Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 49 Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Talaðu varlega. Sambönd ganga vel ef þú temur þér að forðast úrslitakosti og hafa samráð við makann áður en kaup eru gerð í beggja nafni. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þegar eitthvað gleðilegt gerist hættir þér til þess að líta á það sem heppni, í stað þess að viðurkenna að kannski eigirðu það bara inni. Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur, ef þú bara viðurkennir það, þannig kallarðu á meira. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn leiðir kurteislega hjá sér það sem aðrir segja um ástalíf hans – sumir skilja hreinlega ekki eðli sam- banda. Ekki samt líta framhjá því sem þú veist í hjarta þínu að er rétt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ástríður þínar eru loks endurgoldnar. En fyrst þarftu að taka skref tilbaka og gefa hinni manneskjunni pláss til að taka sína eigin ákvörðun. Biðin er erfiðasti kaflinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Dagurinn virðist kannski tilbreytinga- laus, en kvöldið bætir svo sannarlega um betur. Eitthvað gerist sem myndi aldrei gerast meðan sól er hátt á lofti. Eitthvað sem skríður kemur skríðandi og virkar leiðslur byrja að gneista. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan er ekki hefnigjörn að eðlisfari, yfirleitt ekki. Kannski ertu það stund- um, ef fólk sem á það ekki skilið ber eitthvað gott úr býtum. Þá er best að taka sér smá tíma til að hugleiða eigin gæfu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Kannski virðist vogin stefnulaus í aug- um þeirra sem ekki vita betur. Þú sérð leiðina til frelsis og ákveður að fara hana. Vonandi á enginn eftir að spyrja þig hvert þú sért að fara. Málið er að vera frjáls. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er kominn tími fyrir eina af þínum frægu endurholdgunum. Sporðdrekinn er svo flinkur í því að breytast í nýja og spennandi útgáfu af sjálfum sér að ekki er víst að þeir sem eru í kringum hann taki eftir neinu. En þú veist það og það vegur þyngst. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmaðurinn óskar þess kannski að einhver myndi leiðbeina honum, en ef alheimurinn myndi í raun og vera þrymja „gerðu þetta“ eða „gerðu hitt“ myndi hann steyta hnefann og svara „ekki segja mér fyrir verkum, ég geri það sem mér sýnist“. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Steingeitin er búin undir nokkrar mis- fellur á framfarabrautinni, en ekkert býr hana undir átökin sem verða hið innra þegar árangurinn er rétt innan seilingar. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Allt virðist í lausu lofti. En þú gætir vel notið lífsins undir þessum kringum- stæðum, enda ertu verulega þrosk- aður. Tónlist léttir stemninguna um- talsvert. Rifjaðu upp gamalt uppá- haldslag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Búðu til ráðgátu og leyfðu öðrum að vísa veginn með spurningum sínum. Einhleypir kynnast einhverjum álit- legum á meðan þeir erinda, gera ein- hverjum greiða eða iðka íþróttir. Pör auka samlyndið með því sama. Stjörnuspá Holiday Mathis Orka sporðdrekans lýtur að breytingum – sem marg- ir telja óhugsandi. Það er kannski tugga, en fyrsta skrefið í áttina að því að breytast er að viðurkenna vandamálið. Nýtum orku sólar í sporð- dreka og einbeitum okkur að því sviði lífs- ins sem myndi hafa jákvæð áhrif á allt annað ef einhverju yrði breytt þar. MÉR þykir alltaf gott að koma í Möguleikhúsið, til dæmis af því að þar á ég von á að sjá leikmyndir og búninga eftir Katrínu Þorvalds- dóttur. Og núna í samstarfinu við Sigurð Sigurjónsson fær hún full- komlega að njóta sín. Einföld er þessi leikmynd en ævintýraleg vegna þess að efni og litir eru val- in af kostgæfni og virðingu fyrir áhorfendum og hvert smáatriði, og þau eru mörg, augljóslega sprottin úr höfði og hjarta höfundarins. Bleikt flauelið, töfrateppi, sem rammar inn leiksvæðið, þrætt söguþráðum (!) er hlýr og mjúkur bakgrunnur fyrir þennan einleik Bjarna Ingvarssonar, sniðinn að þörfum yngri barna, – eða eigum við frekar að segja þessa frásögn hans með leiknum innskotum; búningurinn einsog sprottinn úr Þúsund og einni nótt og sömuleiðis litlu, einföldu meðölin sem notuð eru til að töfra fram aðrar persón- ur svosem regnhlíf, hanskar, bolt- ar, gylltur höfuðbúnaður, fjaðra- skraut – en gullna höllin fannst litlum frænda mínum best. Verkið sem samanstendur af tveimur ævintýrum byggist á hefð- um Möguleikhússins, sögumaður er frá byrjun í beinu sambandi við áhorfendur, þeir eru að ákveðnu marki virkjaðir til þátttöku og þar er jafnvel vísað í verk Þórarins Eldjárns frá því í fyrra: Börnin eru fengin til að ríma. Sigurður Sigurjónsson, leikstjórinn, hefur unnið vel með Bjarna Ingvarssyni, leiknu atriðin eru einföld og skýr og kómík verður aldrei að stór- kallalegum skrípalátum. Bjarni kemst að vísu ekki alltaf á nægilegt flug í frásögninni en þar er held ég ekki við leikstjóra að sakast. Tónlist er aldr- ei notuð til að æsa leikinn. Menn reiða sig á söguna og áhorf- endur í anda boð- skapar verksins um undramátt ímyndunaraflsins. Og er nú komin önnur ástæða fyr- ir því að mér þyk- ir alltaf gaman á sýningum Mögu- leikhúsins, en hún er sú að á þeim bæ eiga menn allt- af eitthvert erindi við þá er sitja í salnum. Um undramátt ímyndunaraflsins LEIKLIST Möguleikhúsið Eftir Bjarna Ingvarsson. Leikstjóri: Sig- urður Sigurjónsson. Leikmynd og bún- ingar: Katrín Þorvaldsdóttir. Tónlist: Jón- as Þórir. Leikari: Bjarni Ingvarsson. Möguleikhúsinu, 5. nóvember 2006 kl.14.00 Höll ævintýranna Möguleikhúsið „Á þeim bæ eiga menn alltaf eitt- hvað erindi við þá er sitja í salnum.“ María Kristjánsdóttir Sænska tískuvörukeðjan Hennesog Mauritz mun á fimmtudag setja á markað þriðju hátískulínu sína. Hönnuðir í ár eru Hollend- ingarnir Viktor og Rolf en fatn- aðurinn er seldur á svipuðu verði og aðrar vörur í verslunum H&M. Keðjan nýtur mikilla vinsælda víða um heim ekki síst fyrir lágt vöru- verð. H&M keðjan var stofnuð árið 1947 og starfar eftir einföldu við- skiptamódeli. Margar eins flíkur framleiddar og þær seldar á lágu verði. Forstjóri Hennes og Mau- ritz er Rolf Erikssen. Fyrir tveim- ur árum ákvað H&M að brydda upp á þeirri nýjung að fá hátísku- hönnuði til að framleiða fyrir sig tískulínu sem yrði seld á svipuðu verði og aðrar vörur í verslunum H&M. Hönnuðurinn Karl Lager- feld varð fyrstur til þess í nóvem- ber 2004 og má segja að viðskipta- vinir H&M hafi tekið þessu fram- taki fagnandi og var fatnaðurinn bókstaflega rifinn út á nokkrum mínútum. Í fyrra var það breski hönnuður- inn Stella McCartney sem hannaði línuna fyrir H&M. En í ár eru það Hollendingarnir Viktor og Rolf. Þeir eru lítið þekktir fyrir utan tískuheiminn en eru mikilsmetnir innan hans, að sögn tísku- skríbentsins Tim Blanks á vefnum style.com. Alls starfa fimmtíu þúsund manns hjá H&M í 24 löndum og eru verslanirnar orðnar ríflega 1.300 talsins. Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862                     !"      # $%    %&  '   Fös. 10. nóv. kl. 20 - Örfá sæti laus Sun. 12. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus Fös. 17. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus Sun. 19. nóv. kl. 20 - Síðustu sýningar! „Frábær sýning í alla staði!“ Starfsmenn Atlanta / ÁLFABAKKA THE DEPARTED kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10:10 B.i. 16 THE DEPARTED VIP kl. 5:30 - 8:30 THE LAST KISS kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:30 B.i. 12 THE GUARDIAN kl. 8 - 10:30 B.i. 12 BESTA MYND MARTINS SCORSESE TIL ÞESSA Vel gerð og rómantísk með þeim Zach Braff („Scrubs“, „Garden State“), Rachel Bilson („The O.C.“ þættirnir) ofl. SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND MEÐATH! NÝJU DIGITAL TÆKNINNI „THE DEPARTED ER EÐAL GLÆPAMYND EINS OG ÞÆR GERAST BESTAR OG ER ENN EIN RÓSIN Í HNAPPAGAT SCORSESES.“ eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee T.V. KVIKMYNDIR.IS eee H.J. MBL FRÁ HANDRITSHÖFUNDI „MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“ ÓBYGGÐIRNAR „THE WILD“ Sýnd með íslensku og ensku tali ! „...groddalegur og beinskeyttur húmor... þannig að maður ælir nánast af hlátri“ Þ.Þ. - FRÉTTABLAÐIÐ Sýnd í Sambíóunum í Kringlunni og Keflavík SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. UPPRUNALEGU PARTÝ-DÝRIN ERU MÆTTÞú átt eftir að skemmta þér sjúklega vel. eeee H.Ó. MBL eee LIB Topp5.is KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu the last kiss eee EMPIRE Eruð þið tilbúin fyrir eina fyndnustu mynd allra tíma? / KRINGLUNNI BORAT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 THE DEPARTED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 DIGITAL BÆJARHLAÐIÐ kl. 6 LEYFÐ m/ísl. tali MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ BEERFEST kl. 8 B.i. 12 / KEFLAVÍK BORAT kl. 8 - 10 B.I. 12 MÝRIN kl. 8 B.I. 12 THE DEPARTED kl. 10:10 B.I. 16 / AKUREYRI THE DEPARTED kl. 8 b.i. 16 BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ MATERIAL GIRLS kl. 6 LEYFÐ THE GUARDIAN kl. 8 b.i. 12 eeee EMPIRE MAGAZINE T.V. - Kvikmyndir.com eeeee THE MIRROR eeee S.V. MBL eeeee V.J.V. - Topp5.is eeeee EMPIRE BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ BARNYARD m/ensku tali kl. 6 - 10:10 LEYFÐ JACKASS NUMBER 2 kl. 4 - 8 B.i. 12 ÓBYGGÐIRNAR m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ M u n i ð a f s l á t t i n n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.