Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag miðvikudagur 8. 11. 2006 íþróttir mbl.is íþróttir Ragnhildur Sigurðardóttir í keppni á Ítalíu >> 2 Í AUSTURVEG ÍSLANDSMEISTARALIÐ NJARÐVÍKINGA LEIKUR Í RÚSSLANDI OG KEFLVÍKINGAR GLÍMA VIÐ TÉKKA 4 Reuters Svekktur Wayne Rooney, framherji Manchester United, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir tapið gegn Southend í deildabikarkeppninni í gær. ÚVALSDEILDARLIÐ ÍR í körfu- knattleik karla mun mæta til leiks með bandaríska bakvörðinn Nate Brown í næstu umferð Iceland Ex- press-deildarinnar. ÍR hefur verið með La M. Owen frá Bandaríkj- unum í sínum röðum í fyrstu fimm umferðunum og hefur hann ekki þótt standa undir væntingum. Owen hefur skorað rétt tæp 16 stig að meðaltali í leik, en ÍR hefur að- eins náð að landa sigri í einum leik til þessa, gegn Hamri/Selfoss. Brown er þekkt stærð í íslenskum körfuknattleik, en hann lék með Snæfelli frá Stykkishólmi á síðustu leiktíð undir stjórn Bárðar Eyþórs- sonar sem í dag er þjálfari ÍR-inga. Brown er 26 ára gamall bakvörður og skoraði hann rétt tæplega 20 stig að meðaltali með Snæfelli í fyrra en hann lék með Þór, Þor- lákshöfn, veturinn 2004–2005 og þar skoraði hann rúm 22 stig að meðaltali í 11 leikjum. Mikil meiðsli hafa verið í her- búðum ÍR-inga að undanförnu og segir Bárður Eyþórsson, þjálfari liðsins, að einungis 8–9 leikmenn hafi getað mætt á æfingar liðsins að undanförnu. Hreggviður Magn- ússon, miðherji liðsins, er að jafna sig eftir kinnbeinsbrot. Steinar Arason hefur verið meiddur og einnig Jakob Egilsson. Brown er þriðji bandaríski leikmaðurinn sem kemur til ÍR-liðsins á þessari leiktíð en Rodney Blackstock lék með lið- inu á undirbúningstímabilinu, en var sagt upp störfum rétt áður en Íslandsmótið hófst. Einhverjar lík- ur eru á því að Owen verði áfram á Íslandi, en 1. deildar liðin Breiða- blik og KFÍ hafa sýnt honum áhuga. Brown fer til ÍR-inga HERMANN Hreiðarsson tryggði Charlton sæti í átta liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Charlton hafði betur gegn 2. deildar liði Chester- field í vítspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið 3:3 að lokinni framlengingu. Charlton sigraði, 4:3, í vítakeppninni og skoraði Her- mann sigurmarkið. Óvænt úrslit urðu í leik Southend og Manchester United, sem átti titil að verja. Southend, sem situr á botni 1. deildarinnar, gerði sér lítið fyrir og sló út topplið úrvalsdeild- arinnar með 1:0-sigri. „Sigrarnir verða ekki stærri en þessi,“ sagði Steve Tilson, knatt- spyrnustjóri Southend. „Þetta er stærsta stundin hjá mér sem knatt- spyrnustjóri og frammistaða strák- anna var hreint mögnuð.“ Hermann skaut Charl- ton áfram Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Erla, sem er 23 ára gömul, hefur leikið með Mallbacken síðustu tvö árin en lék áður með sænsku liðun- um Stattena og Sunnanå. Erla sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að næstu dagar færu í að vega og meta tilboðin sem henni hafa borist, en sænsku úrvalsdeildarliðin Hamm- arby, Örebro og Qbik hafa öll gert henni tilboð og væntanlegt er tilboð frá Kopparbergs/Göteborg. Norska liðið Team Strömmen og danska liðið Fortuna Hjörring hafa einnig borið víurnar í hana en bæði liðin leika í efstu deild. Þá hafa forráðamenn bandaríska atvinnumannaliðsins New Jersey sýnt áhuga á að fá Erlu Steinu í sínar raðir sem og Íslands- og bikarmeist- arar Vals, KR og Breiðablik sem hún lék með tímabilið 2002. „Það eina sem liggur fyrir er að ég verð ekki áfram hjá Mallbacken en hvert ég fer kemur ekki í ljós alveg strax. Ég ætla að gefa mér góðan tíma til að fara yfir öll tilboðin sem mér hafa borist. Ég hef úr nógu að velja sem er bara mjög ánægjulegt en það verður erfitt val hjá mér,“ sagði Erla Steina við Morgunblaðið í gær. Aðspurð hvað henni litist best á sagði hún: „Það er erfitt að segja. Ég er búin að spila í Svíþjóð í sex ár og væri alveg til í að prófa eitthvað ann- að eins og til dæmis að spila í Banda- ríkjunum. Ég mun á næstu dögum og vikum hitta menn frá þessum liðum sem hafa gert mér tilboð og eftir það tek ég ákvörðun um framhaldið,“ sagði Erla, sem útilokar alls ekki að spila á Íslandi næsta sumar. Erla Steina er sókndjarfur miðju- maður sem hefur leikið 15 leiki með íslenska A-landsliðinu og skorað eitt mark. Erla Steina hefur úr mörgum tilboðum að velja ERLA Steina Arnardóttir, lands- liðskona í knattspyrnu, hefur leikið sinn síðasta leik með Mallbacken sem féll úr sænsku úrvalsdeildinni á dögunum. Hún hefur ákveðið að róa á önnur mið og hefur úr mörgu að velja því félög frá Svíþjóð, Dan- mörku, Noregi, Bandaríkjunum og Íslandi vilja fá hana í sínar raðir. Yf ir l i t                                   ! " # $ %      &         '() * +,,,                     Í dag Sigmund 8 Forystugrein 26 Veður 8 Viðhorf 28 Staksteinar 8 Umræðan 28/31 Úr verinu 12 Bréf 31 Viðskipti 13 Minningar 31/37 Erlent 14 Leikhús 42 Höfuðborgin 18 Myndasögur 44 Landið 18 Dagbók 44/49 Suðurnes 19 Staður og stund 46 Akureyri 19 Víkverji 48 Daglegt líf 20 Bíó 46/49 Menning 16 Ljósvakamiðlar 50 * * * Innlent  Karlmaður og kona á miðjum aldri eru í lífshættu eftir að eldur kom upp í íbúð í blokk í Ferjubakka í Breiðholti í gærkvöldi. Fólkið hlaut alvarleg brunasár, en reykkafarar björguðu því meðvitundarlausu út úr brennandi íbúðinni. Rauði kross Íslands veitti nágrönnum áfallahjálp eftir að slökkvilið náði að ráða nið- urlögum eldsins. » Forsíða  Lögregla og tollgæsla lögðu hald á 950 e-töflur fyrstu níu mánuði árs- ins, og í fyrra var lagt hald á 1.500 töflur. Meðaltal áranna á undan var um 8.000 töflur á ári. Rannsókn á láti konu sem hafði tekið inn e-töflu aðfaranótt laugardags heldur áfram, en hún beinist að því hvaðan efnið var fengið. » Baksíða  Íslensk stjórnvöld ætla að nýta sér aðlögunarfrest til tveggja ára gagnvart Búlgaríu og Rúmeníu, sambærilegan þeim sem viðhafður var gagnvart átta löndum Evrópu- sambandsins árið 2004. Löndin tvö ganga í ESB á næsta ári. » Forsíða  Leikskólaráð leggur til við borg- arráð að niðurgreiðsla til dagfor- eldra hækki um u.þ.b. 40% þannig að meðaltalsgreiðsla til dagforeldra verði um 38 þúsund krónur á mán- uði. Jafnframt er lagt til að nið- urgreiðsla til sjálfstætt rekinna leik- skóla hækki. » 6  Íbúar í nágrenni Iðnskólans í Reykjavík eru ósáttir við áform um að stækka byggingu skólans við Hallgrímskirkju. Hugmyndir eru uppi um að bæta einni hæð ofan á byggingu sem fyrir er og reisa nýja tveggja hæða byggingu. » 18  Kostir og gallar við að opna á nýj- an leik gamla lækinn sem rennur úr Reykjavíkurtjörn til norðurs út í sjó verða kannaðir af Framkvæmda- sviði Reykjavíkurborgar á næstunni. Lækurinn gæti því orðið hluti af götumynd miðborgarinnar í árfar- vegi meðfram Lækjargötu. » 11 Erlent  Mikil spenna var í þingkosning- unum í Bandaríkjunum í gær og fyrstu tölur gáfu engar vísbendingar um úrslit. Kosningavélar léku marga kjósendur grátt og töfðust kosning- arnar en sums staðar varð að fram- lengja kjörfund. »Forsíða  Saddam Hussein, fyrrverandi for- seti Íraks, sneri aftur í réttarsal í gær, en fyrir tveimur dögum var hann dæmdur til dauða fyrir morð á sjítum í þorpinu Dujail árið 1982. Í gær var hann kallaður fyrir dómara til að svara ásökunum um fjölda- morð á níunda áratugnum. » 15  Hlýnandi loftslag jarðar stefnir í hættu stöðum þar sem merkar forn- leifar er að finna, t.d. í Perú, Egyptalandi og við Karíbahaf. Hækkandi yfirborð sjávar, tíðari fellibyljir, veðrun og flóð geta valdið því að fornminjar skemmist hraðar. » 14  Níu manns týndu lífi þegar hvirf- ilbylur gekk yfir N-Japan í gær. 21 var lagður inn á sjúkrahús en 33 heimili eyðilögðust og 29 skemmd- ust að hluta. Hvirfilbyljir eru fátíðir í Japan, sér í lagi á eyjunni Hokkaido þar sem þessi fór yfir. » 15 » Eftir Brján Jónasson og Silju Björk Huldudóttur YFIRLÝSINGAR yfirmanna Land- spítala – háskólasjúkrahúss (LSH) varðandi Stefán E. Matthíasson, fyrrverandi yfirlækni æðaskurð- deildar LSH, eru endir á löngu ferli sem varla verður kallað annað en einelti, segir í ályktun stjórnar Læknafélags Íslands (LÍ) sem sam- þykkt var í gær. „Það hefur komið fram hjá yfir- mönnum sjúkrahússins að það verði með engu móti hægt að ráða Stefán aftur í stöðu á sjúkrahúsinu. Til þess að gera sumar af þeim aðgerðum sem hann gerir, verður hann að hafa sjúkrahúsaðstöðu, og eina aðstaðan í okkar heilbrigðiskerfi er á Landspít- alanum. Þar með er búið að útiloka hann frá því að getað stundað sitt starf og sinna sjúklingum sínum hér á landi,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson, formaður LÍ, eftir fundinn. Í ályktun stjórnarinnar eru stjórnunarhættir yfirstjórnar LSH í máli Stefáns harmaðir, og tekið fram að stjórn LÍ muni aldrei una því að félagi í LÍ verði útilokaður af vinnu- markaði sinnar sérgreinar af mönn- um, sem hafa fengið þann dóm að háttalag þeirra sé ólögmætt. Er þar vísað til þess að Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti nú í sumar að áminning sú sem Stefán fékk, sem brottrekstur hans frá spítalanum byggðist á, hefði verið ólögmæt. Með því að áfrýja ekki, sé yfir- stjórnin að viðurkenna að niðurstaða dómsins hafi verið rétt og gangast við lögbroti sínu. Þrátt fyrir þetta hafi forstjóri og lækningaforstjóri spítalans ítrekað lýst því yfir að Stef- án fái ekki starf sitt til baka, né verði hann ráðinn í aðra stöðu á deildinni. Tómlæti ráðherra gagnrýnt Þar sem ekki sé í önnur hús að venda fyrir sérhæfða lækna eins og Stefán, en LSH, séu yfirlýsingar yf- irmanna LSH endir á löngu ferli sem varla verði kallað annað en einelti í hans garð, segir í ályktuninni. Stjórn LÍ gagnrýnir einnig harð- lega það tómlæti heilbrigðisráðherra sem fram hafi komið í viðbrögðum hennar við lögbrotum undirmanna sinna. Það sé alvarlegt að ráð- herrann skuli gefa fordæmi sem leiða muni til agaleysis í heilbrigð- isþjónustunni. Segja stjórn LSH hafa lagt yfirlækni í einelti Í HNOTSKURN »Stefáni E. Matthíassyni varsagt upp störfum 28. nóvember 2005 þar sem hann starfrækti læknastofu samhliða starfi sínu sem yfirlæknir æðaskurðdeild- ar LSH. »Héraðsdómur dæmdi upp-sögn hans ólöglega hinn 29. júní 2006 og hefur frestur til að áfrýja dómnum nú runnið út án þess að það hafi verið gert. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is LÍTIÐ hefur verið unnið í nýbygg- ingu Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) á Norðurbakka í Hafnarfirði undan- farna tvo mánuði. Framkvæmda- stjóri hjá ÍAV segir að meiri þörf hafi verið fyrir mannskapinn annars staðar. „Það hefur ekki verið mikið af mannskap þarna undanfarið, við höf- um verið með önnur verkefni sem þurfti að herða á, sem mennirnir hafa verið í, en þetta mun fara í gang aftur fljótlega,“ segir Kristján Arin- bjarnar, framkvæmdastjóri fram- kvæmdasviðs ÍAV. Hann nefnir sem dæmi að bygging háskólatorgs fyrir Háskóla Íslands hafi verið á eftir áætlun og því settur aukinn kraftur í það verk á kostnað Norðurbakkans. Ekki er búið að selja íbúðir í fjöl- býlishúsinu sem verið er að reisa við Norðurbakka. „Þetta var komið í sölu, en bara í eina eða tvær vikur, og þá kipptum við að okkur hönd- um,“ segir Kristján. Hann segir ástandið á fasteigna- markaði undanfarið auðvitað hafa spilað eitthvað inn í ákvörðun um að seinka Norðurbakkanum. „Við hefð- um eflaust höndlað þetta öðruvísi ef það hefði verið slegist um íbúðirnar.“ Fara í sölu í janúar Kristján segir að ekki hafi verið metið hver kostnaður ÍAV verði af þessum seinkunum, þó ljóst sé að einhver fjármagnskostnaður falli til. Reiknað sé með því að setja íbúð- irnar í sölu í janúar. Seinka byggingu fjölbýl- ishúss við Norðurbakka GUÐBJÖRG Kristjánsdóttir, sem dvelur á hjúkrunar- og dvalarheim- ilinu Hulduhlíð á Eskifirði, er 100 ára í dag. Hún fæddist í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Faðir hennar, Krist- ján Guðmundsson, lést stuttu eftir fæðingu hennar. Þá fluttist hún með móður sinni, Guðrúnu Skúla- dóttur, austur á Reyðarfjörð og ólst þar upp hjá séra Stefáni Björnssyni á Hólmum. Guðbjörg flutti 18 ára til Eskifjarðar og hefur búið þar síðan. Guðbjörg vann m.a. við hús- hjálp, fiskvinnslu og ræstingar. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson 100 ára í dag LÖGREGLAN í Reykjavík yf- irheyrði um helgina mann með rétt- arstöðu sakbornings vegna þeirrar háttsemi að taka átta ára telpu upp í bíl við Rauðavatn í síðasta mánuði. Telpan var á ferð með vinkonu sinni þegar aðvífandi bílstjóri tók hana upp í bíl sinn en hleypti henni út úr bílnum örstuttu síðar. Ekki liggur fyrir hvort hinn yfirheyrði var þarna að verki en hann er ann- ar tveggja sem yfirheyrðir hafa verið vegna málsins. Lauk yf- irheyrslum með því að báðum var sleppt að þeim loknum. Maðurinn er á þrítugsaldri og hefur komið lít- illega við sögu lögreglunnar áður. Yfirheyrður vegna telpu KARLMAÐUR á fimmtugsaldri var tekinn fyrir ölvunarakstur í aust- urbæ Reykjavíkur í hádeginu í fyrradag. Með honum í bíl var kona á svipuðum aldri en hún var ölvuð. Þá var dóttir konunnar sömuleiðis í bílnum en hún er á grunnskóla- aldri. Fólkið hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Tveir aðrir karlmenn voru líka teknir fyrir ölv- unarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík sama dag. Ölvuð með barn í bíl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.