Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 23
hún og bendir á að þar sé mun um- hverfisvænni orka á ferðinni en hefð- bundið eldsneyti. Sé litið inn á kaffistofu skrifstof- unnar er fjölmargt þar sem huga má að. „Eitt af því er borðbúnaður – að bollar, skeiðar og annað slíkt sé ekki úr plasti eða pappír. Eins er betra að kaupa stórar umbúðir í stað litlu smjörstykkjanna eða mjólkurfern- anna. Sorpflokkun skiptir líka máli, jafnvel þótt það sem endar í ruslinu sé minnkað. Gámaþjónustan býður t.d. núna upp á sérstaka endur- vinnslutunnu sem setja má gæða- pappír, dagblöð og pappa beint í en málma, fernur og plastumbúðir set- ur maður hvað í sinn plastpokann áð- ur en það fer ofan í tunnuna.“ Þá skiptir máli að uppþvotta- og hreinsiefni séu umhverfismerkt og að efni séu ekki ofnotuð í þrifum.“ Plöntur á skrifborðið Skrifstofuhúsnæðið sjálft er svo enn einn umhverfisþátturinn. „Öll byggingarefni láta eitthvað frá sér því þau eru ekki óbreytanleg. Til dæmis er formaldehýð oft í límefnum sem notuð eru í byggingarefnum. Hins vegar er erfitt að nálgast upp- lýsingar og þjónustu í þessum efnum í íslenskum byggingarvöruversl- unum enn sem komið er. Víða annars staðar er orðið hluti af flottasta arki- tektúrnum að finna lausnir með sjálf- bærum byggingarefnum en hér erum við nánast á byrjunarreit.“ Í fyrrnefndri grein í Guardian er þó bent á að rannsókn á vegum NASA sýndi að plöntur ynnu gegn 99% eiturefna í andrúmslofti innan- húss. „Gúmmí- og klifurplöntur gagnast vel gegn formaldehýði, körfublóm gegn nýrri málningu og plasti […] á meðan bambus virkar á flest efnin,“ segir í greininni. Þær stöllur segja hins vegar ekki heldur mega vanmeta hin óbeinu um- hverfisáhrif af starfsemi fyrirtækja. „Okkar stærsti umhverfisþáttur hér á Alta er ráðgjöfin sem við veitum en stórmarkaður getur t.d. haft óbein umhverfisáhrif með því að merkja líf- rænt ræktaðar matvörur og um- hverfismerktar vörur á áberandi hátt. Fyrirtæki sem selur ritföng gæti í kynningarbæklingnum sínum merkt sérstaklega við þær vörur sem eru umhverfisvænar og jafnvel bóka- safn getur haft óbein áhrif, t.d. með því að merkja bækur um umhverf- ismál sérstaklega og stilla þeim fram á áberandi stað á safninu.“ Þær leggja áherslu á hversu mikil- vægt sé að vanda til verka þegar breyta á umhverfismálum skrifstof- unnar til hins betra. „Ef ætlunin er að hafa símafundi er nauðsynlegt að hafa góða símafundaaðstöðu og ef stefnan er að flokka sorp verður flokkunarkerfið að vera einfalt og að- gengilegt því annars verður þetta bara kvöð. Séu allir hnútar hnýttir eykur það á ánægju starfsfólksins og oft verður það mjög stolt yfir því að eitthvað sé gert í þessum málum í fyrirtækinu. Gott umhverfisstarf hef- ur jákvæð áhrif á viðhorf við- skiptavina til fyrirtækisins og loks hafa slíkar breytingar oftast heilmik- inn peningalegan sparnað í för með sér þótt flestir upplifi það atriði svo- lítið eins og bónus.“ Ruslið Sorpflokkun skiptir líka máli, jafnvel þótt minna fari í tunnuna. Endurvinnsla Pappírsbakki við hvert skrifborð er góð lausn. ben@mbl.is Í HNOTSKURN »Algengt er í fyrirtækjumað hver starfsmaður noti um 60 kíló af pappír á ári. »Með því að hafa kveikt átölvuskjá yfir nótt fer jafn- mikil orka til spillis og nægir til að prenta út 800 A4-síður með geislaprentara. »Framleiðslan í Álfsnesigetur annað 3–4000 met- anbílum en ekki eru nema rúmlega 50 í notkun á höf- uðborgarsvæðinu. » Íslendingar eiga heimsmetí orkunotkun miðað við höfðatölu. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 23 Að gera sér mat úr sérstöðu Ný norræn matargerð og neytendavernd Morgunverðarfundur 10. nóvember kl. 8:30 Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Rannís og Norræna nýsköpunarmiðstöðin bjóða til morgunverðarfundar þar sem kynntir verða styrkir til verkefna er miða að nýsköpun og auknu samstarfi matvæla-, ferða- og afþreyingariðnaðar og að efla svæðisbundna verðmætasköpun. Ímynd norrænna matvæla er hollusta, ferskleiki og hreinleiki. Þetta endurspeglast í matargerð okkar, menningu og hefðum. Matvælaiðnaðurinn gegnir lykilhlutverki í atvinnulífi allra Norðurlandanna og löng hefð er fyrir öflugu norrænu rannsókna- og þróunarsamstarfi sem hefur skilað Norðurlöndum forystu á þessu sviði. Dagskrá: Norræn forysta í neytendavernd Oddur Már Gunnarsson deildarstjóri hjá Rannís og verkefnisstjóri SAFEFOODERA verkefnisins kynnir auglýsingu SAFEFOODERA eftir verkefnum á sviði matvælaöryggis. Ný norræn matargerð Tryggvi Felixson deildarstjóri deildar umhverfis- og auðlindamála hjá Norrænu ráðherranefndinni segir frá norrænu samstarfsverkefni um nýja norræna matargerð. Felast verðmæti í norrænni matargerð, menningu og hefðum? Sigríður Þormóðsdóttir ráðgjafi hjá Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni kynnir auglýsingu eftir verkefnum til að efla nýsköpun í matvæla-, ferðamála- og afþreyingariðnaði. Umræður Fundurinn er haldinn á Hótel Nordica þann 10. nóv nk. og hefst kl. 8:30. Fundarstjóri er Hans Kristján Guðmundsson forstöðumaður Rannís Allir velkomnir Vinsamlegast staðfestið þátttöku fyrir 7. nóvember á tölvupóstfangið rannis@rannis.is eða í síma 515 5800. Kraftur og reynsla til forystu! Opnun kosningamiðstöðvar á Seyðisfirði Verið velkomin í opnun kosningamiðstöðvar að Austurvegi 30 miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20 Arnbjörgu í 1. sætið Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 25. nóvember www.arnbjorgsveins.is Gar›atorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni Egilsstö›um - Höfn - Fáskrú›sfir›i - Sey›isfir›i - Neskaupsta› - Eskifir›i - Rey›arfir›i - Ísafir›i - Bolungarvík Patreksfir›i - Borgarnesi - Grundarfir›i - Stykkishólmi - Bú›ardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn K R A FT A V ER K MULTÍ VÍT inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. Dagleg neysla byggir upp og stuðlar að hreysti og góðri heilsu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.