Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Hella | Rangárþing eystra og
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
hafa undirritað samkomulag þess
efnis að Styrktarfélagið skuldbindi
sig til að veita þjónustu iðjuþjálfa á
Hvolsvelli fyrir börn og ungmenni
yngri en 18 ára. Rangárþing eystra
leggur til vinnuaðstöðu fyrir starf-
semina. Unnur Brá Konráðsdóttir
sveitarstjóri og Vilmundur Gíslason,
framkvæmdastjóri Styrktarfélags-
ins, undirrituðu samninginn.
Fram kemur í fréttatilkynningu
að samningsaðilar munu leitast við
að staða iðjuþjálfa sem sinnir börn-
um og ungmennum á starfssvæði
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
verði tryggð til frambúðar.
Unnur Brá segir að hópur foreldra
hafi haft samband við sveitarstjórn
og sýnt henni fram á að það væri
skynsamlegra að bjóða þjónustuna á
staðnum en að eyða peningunum í
bensín til að sækja hana til Reykja-
víkur. Sveitarstjórnin hefði tekið
undir þetta en verkefnið væri á verk-
sviði ríkisins. Haft hafi verið sam-
band við Styrktarfélagið og sú góða
lausn fengist að ráða iðjuþjálfa í
þetta sem búsettur væri á svæðinu.
Ungmenn-
um þjónað
heima
LANDIÐ
Eftir Sigurð Sigmundsson
Flúðir | Það var margt um manninn
í Félagsheimilinu á Flúðum um
helgina þegar haldinn var fjöl-
þjóðadagur. Erlent fók frá all-
nokkrum löndum sem starfar og
býr hér í sveitinni, sýndi sitthvað
frá menningu sinna landa, meðal
annars þjóðbúninga, bækur, mynd-
ir og hafði myndarlega matarkynn-
ingu með réttum frá sínum gömlu
heimalöndum.
12% íbúanna af öðru þjóðerni
Einnig voru sýnd erlend mynd-
bönd og leikin tónlist. Börn í fyrsta
bekk Flúðaskóla, hluti þeirra af er-
lendu bergi brotinn, sungu nokkur
lög við undirleik Magneu Gunn-
arsdóttur. Þá kynntu nokkur ís-
lensk félög starfsemi sína, meðal
annars Landsbjörg.
Í ávarpi Ísólfs Gylfa Pálmasonar
sveitarstjóra, sem þýtt var á pólsku,
kom meðal annars fram að um 12%
íbúa Hrunamannahrepps eru af er-
lendu þjóðerni.
Sumir eru búnir að vera hér um
allnokkurt árabil, einkum konur
sem eru giftar Íslendingum og eiga
hér fjölskyldu. Þónokkrir Pólverjar
og Úkraníumenn eru sestir að á
Flúðum og eiga börn þar börn í
skóla.
Verður á hverju ári
Í samtölum fréttaritara við fólkið
á þjóðahátíðinni kom fram að það
hefði komið hingað til að vinna og
kynnast nýju umhverfi. Því líkar al-
mennt vel á Íslandi og í Hruna-
mannahreppi og margir eru komn-
ir til að vera um lengri eða
skemmri tíma. Langflest af þessu
dugmikla fólki vinnur við garð-
yrkju eða störf henni tengd.
Helga Karlsdóttir á Melum, ein
úr undirbúningshópi hátíðarinnar,
segir alla hafa lagt sitt af mörkum
til að gera daginn ánæjulegan.
Hann hafi tekist afar vel. Fjöl-
þjóðadagur verður hér eftir á
hverju ári, segir Helga.
Kynna nýja menningu
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Fjölmenning Skúli Gunnlaugsson bragðar á úkraínskri rauðrófusúpu hjá
Nínu Faryna. Fjölbreyttir réttir voru á borðum á hátíðinni.
Fjölmenni leit við
á fjölþjóðadegi
á Flúðum
Norskar Else Nielsen, Vigdís Furu-
seth og Mildrit Irene Steinberg
Blönduós | Á þriðja tug folalda kom
á sýningu sem haldin var í reiðhöll-
inni á Blönduósi sl. laugardag. Þar
mátti sjá margan eigulegan grip.
Dómari og áhorfendur dæmdu fol-
öldin og voru svo samstiga að sömu
þrjú folöldin voru efst hjá báðum.
Flest atkvæði áhorfenda hlaut þó
það folald sem var í öðru sæti hjá
dómaranum.
Efnilegasti ræktunargripurinn að
mati dómara var Heiðdís, rauð, frá
Hólabaki. Hún er undan Rökkva frá
Hárlaugsstöðum og Dreyru frá
Hólabaki. Eigandi hennar er Björn
Magnússon. Folaldið í öðru sæti að
mati dómara og eigulegast að mati
áhorfenda var Fjöður frá Blönduósi,
rauðglófext, tvístjörnótt. Hún er
undan Parker frá Sólheimum og
Kleópötru frá Blönduósi. Eigandi
hennar er Karen Ósk Guðmunds-
dóttir. Folaldið í þriðja sæti var
rauður hestur frá Sauðanesi. Hann
er undan Hágangi frá Narfastöðum
og Slæðu frá Sauðanesi. Eigandi
hans er Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Á myndinni eru þau Björn Magn-
ússon, Karen Ósk Guðmundsdóttir
og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Ljósmynd/Magnús Ólafsson
Dómari og
áhorfendur
samstiga
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÍBÚAR í nágrenni Iðnskólans í
Reykjavík eru ósáttir við áform um
að stækka til muna byggingu Iðn-
skólans uppi við Hallgrímskirkju.
Samkvæmt upplýsingum skipulags-
og byggingasviðs Reykjavíkurborg-
ar eru hugmyndir um að bæta einni
hæð ofan á þá byggingu sem fyrir er
og reisa nýja tveggja hæða byggingu
sem nái út að Frakkastíg.
Anna Ingólfsdóttir, sem býr í ná-
munda við Iðnskólann, segir íbúana
telja að stækkun skólans auki mikið
áreitnina á umhverfið. Hallgríms-
kirkja sé í námunda við Iðnskólann
en ef eitthvað sé um að vera þar fylgi
því margir bílar og þetta bætist svo
við. Ekki sé gert ráð fyrir að bíla-
stæðum verði fjölgað þrátt fyrir ný-
byggingar við Iðnskólann. Þá muni
margir sem búa á bak við Iðnskólann
tapa útsýni vegna fyrirhugaðrar ný-
byggingar.
Varðar alla Reykvíkinga
Anna segir að íbúar í nágrenninu
hafi áhyggjur af röskun á viðkvæm-
um stað í bænum. „Þetta er Skóla-
vörðuholtið, þarna er Hallgríms-
kirkjan og margir ferðamenn koma á
hverjum degi og skoða kirkjuna,“
segir Anna og bætir við að engin að-
staða sé fyrir ferðamennina við
kirkjuna.
„Svo á að bæta við þarna byggingu
sem fer alveg út í götuna í stað þess
að slaka pínulítið á og gera gott úr
þessu umhverfi. Mér finnst þetta
varða alla Reykvíkinga.“
Anna segir að íbúarnir hafi haldið
fund þar sem áformunum var mót-
mælt og sent frá sér ályktun varð-
andi málið að honum loknum.
Hún segir að annað slagið hafi
komið upp hugmyndir um að færa
skólann, til að mynda í Vatnsmýrina.
Þar sé meiri möguleiki á vexti í fram-
tíðinni, en Skólavörðuholtið sé full-
nýtt. Íbúum á svæðinu finnist ekki
hægt að bæta við byggingum á þess-
um stað, en það hafi mikið menning-
argildi fyrir höfuðborgina.
Jóhannes S. Kjarval, sem sér um
skipulag miðborgarinnar hjá skipu-
lagsfulltrúa Reykjavíkur, segir að
gróf drög að áformunum um stækk-
un Iðnskólans hafi verið í kynningu
hjá hagsmunaaðilum en frestur til að
skila inn athugasemdum rann út í
gær.
Hann segir að athugasemdir hafi
borist en eftir sé að fara yfir þær.
„Ég skil vel að fólk hafi áhyggjur,“
segir hann og vísar m.a. til stærðar
nýbyggingarinnar og bílastæðamála.
Þær athugasemdir sem borist hafa
fari fyrir afgreiðslufund skipulags-
fulltrúa á föstudag.
Jóhannes segir að verið sé að deili-
skipuleggja allan reitinn sem Iðn-
skólinn stendur á með framtíð skól-
ans að leiðarljósi.
„Við höfum lengi beðið eftir því að
fá upplýsingar um áform Iðnskólans.
Nú liggja þau fyrir í samræmi við
uppdrætti sem hafa verið unnir fyrir
menntamálaráðuneytið af Studio
Granda,“ segir hann.
Iðnskólinn hefur ekki lengur
afnot af Vörðuskóla
Spurður um hvers vegna standi til
að stækka Iðnskólann segir Jóhann-
es að um árabil hafi Vörðuskólinn,
sem stendur sunnan við Austurbæj-
arskólann, staðið Iðnskólanum til af-
nota, en samningur um þau afnot sé
runninn út.
Til standi að Austurbæjarskólinn
fái afnot af Vörðuskóla. Þörfin fyrir
að stækka Iðnskólann hafi verið fyr-
ir hendi, en hún sé nú orðin knýjandi
„til þess að hýsa það sem Vörðuskóli
hefur þjónustað“.
Áforma mikla stækkun Iðnskólans
Morgunblaðið/ÞÖK
Stækkun fyrirhuguð Meðal annars eru áform um að byggja hæð ofan á byggingu Iðnskólans í Reykjavík.
Ný bygging Rauða hringlaga byggingin á myndinni er fyrirhuguð nýbygg-
ing við Iðnskólann.
Íbúar í nágrenninu
telja að ekki eigi að
bæta við byggingum
Í HNOTSKURN
» Áform eru uppi um aðbyggja við Iðnskólann í
Reykjavík og bæta tveggja
hæða byggingu við skólann.
» Nemendur í Iðnskólanumí Reykjavík í dag- og
kvöldnámi eru um 1.900 tals-
ins.