Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 37

Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 37 ✝ Páll Þórðarsonfæddist í Reykjavík 2. desem- ber 1958. Hann andaðist 30. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Guðný Eiríksdóttir, f. á Smærnavöllum í Garði 15.9. 1916, d. 8.9. 1997, dóttir Guðrúnar Sveins- dóttur úr Garði, f. 14.6. 1875, d. 16.8. 1969, og Eiríks Guðmundssonar úr Mýrdalnum, f. 21.1. 1869, d. 3.12. 1933, og Þórður Jón Pálsson á Eyrarbakka, f. 1.4. 1921, sonur Guðbjargar Elínar Þórðardóttir úr Reykjavík, f. 4.12. 1896, d. 25.11. 1983 og Páls Guðmunds- sonar af Eyrarbakka, f. 26.9. Hagaskóla. Hann var nokkur sumur í sveit á Eldjárnsstöðum í Blöndudal og Dröngum á Skóg- arströnd. Hann byrjaði ungur að vinna, þá þrettán ára gamall, fyrst í veiðarfæralager Bæj- arútgerðar Reykjavíkur með skólanum og á sumrin eins og venja var í þá daga, allt til ársins 1974. Páll hóf nám í málmiðn- aðardeild Iðnskólans í Reykjavík 1976 og lauk sveinsprófi í bif- vélavirkjun 1981. Verknámið stundaði hann á vélaverkstæði Þ. Jónssonar & co í Reykjavík. Páll vann í Kjötmiðstöðinni við Laugalæk í tólf ár við af- greiðslustörf, starfaði um tíma við pökkun búslóða í herstöðinni í Keflavík, vann hjá Fiskkaup hf. í Reykjavík við vélaviðgerðir og síðan ýmis önnur störf sem oftast tengdust bifreiðum og véla- viðgerðum. Útför Páls verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 1895, d. 5.4. 1927. Systkini Páls eru Elín, f. 23.1. 1942, maki Reinhold Kristjánsson, f. 3.5. 1939, Steinunn, f. 12.4. 1943, maki Hrafn Backman, f. 16.1. 1943, Aðal- steinn, f. 18.10. 1945, maki Guðrún Jóhannesdóttir, f. 11.11. 1944, Kjart- an, f. 24.6. 1949, maki Helga Kristín Einarsdóttir, f. 6.7. 1951 og Gunnar Þórðarson, f. 13.6. 1953, maki Hafdís Kjart- ansdóttir, f. 31.10. 1949. Páll ólst upp á Melunum í Reykjavík og fyrstu sumrin í Þrastaskógi með foreldum sín- um. Hann gekk í Melaskóla og Fátt er svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott. Barnatrúin sem við vorum aldir upp í segir, að þegar við yfirgefum þennan heim förum við til annars heims, sem er miklu fegurri og betri. Ég trúi því að þér líði vel þar. Í þeim heimi er náttúran ósnert og fögur. Blóm og tré gróa á sígrænum völlum. Ár og vötn eru full af fiski. Allir eru jafnir, enginn betri eða verri en hinn. Þú og mamma okkar eruð nú saman, og horfið niður til okkar hinna. Með tíð og tíma verðum við öll sameinuð á ný. Palli minn, ég vil þakka þér þær mörgu góðu stundir, sem við urðum aðnjótandi í Þrastarskógi í barn- æsku, við leik og störf, og í Skorra- dal síðastliðin tvö ár við að byggja sumarbústaðinn, þar sem við ætluð- um að dvelja saman í faðmi náttúr- unnar. Þú varst tíður gestur á heimili okkar Hafdísar, og varst uppáhalds- frændi barnanna. Þó að nokkur tími sé enn til jóla voru þau búin að spyrja, hvaða dag þú yrðir hjá okkur, því sá dagur var alltaf tilhlökkunarefni hjá þeim. Þú varst alltaf léttur í lund, og sagðir skemmtilegar sögur, um það sem þú hafðir upplifað um ævina í vinnu og frístundum. Oft hlógum við okkur máttlaus þegar þú varst að segja frá. Hjá okk- ur verður eitt sæti autt um næstu jól, sem erfitt verður að fylla. Það verður okkur erfitt að geta ekki slegið á þráðinn til þín þegar bílarnir okkar bila, eða þegar við þurfum að- stoð við annað, því þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa til ef þú gast. Svo var líka upplyfting í því að heyra í þér, leiðindi gleymdust og vellíðan fylgdi í kjölfarið. Elsku bróðir, það eru margir dropar í fljóti minninga sem rennur gegn um hugann, þegar besti félagi manns og vinur hverfur á braut. Þeir dropar gufa ekki upp, heldur munu verma huga og sál um ókomna tíð. Palli minn, berðu kveðju okkar til þeirra sem við höfum misst, og dvelja á sama stað og þú. Þinn bróðir Gunnar. Ég man vel þegar Palli bróðir fæddist, dökkur á brá og hörund með öll einkenni föðurættarinnar frá Eyrarbakka. Palli var frítt barn og augasteinn fjölskyldunnar. Fyrstu árin með rennislétt hár, en um ferm- ingu safnaði hann bítlahári sem krullaðist og var hann með liðað hár eftir það. Sem barn og unglingur var hann mjög líflegur, alltaf í góðu skapi og vinur allra, aldrei stríðinn eða hrekkjóttur. Vinahópurinn stór og leiksvæðið allt frá Gróttu og aust- ur að Öskjuhlíð. Oft gleymdist að koma á réttum tíma í kvöldamat og þá buxurnar stundum ansi óhreinar. Einu sinni var hann á flugvallar- svæðinu og þá boðið í þyrluflug yfir Reykjavík. Síðar átti hann eftir að fljúga til Bandaríkjanna og víðar, en þessi fyrsta flugferð var minnis- stæðust. Pabbi okkar var skógar- vörður í Þrastaskógi og þar var Palli fyrstu sumrin. Sem smásnáði gat hann róið um Sogið og Álftavatnið án erfiðleika. Sumrin í Þrastaskógi lögðu grunn að áhugamálum hans. Hann var góður stangveiðimaður og nýtti öll tækifæri sem honum gáfust til veiða í ám og vötnum. Mamma og pabbi ferðuðust víða um landið og alltaf var hann með. Síðan fór hann sjálfur um landið með vinum sínum, jeppaferðir um hálendið og mest gaman ef jepparnir festust eða biluðu, svo taka þurfti til hendi og bjarga málunum. Palli lærði bifvéla- virkjun og bílar voru hans annað áhugamál, hann endursmíðaði Cort- inu sem hann átti. Það var gott að leita til Palla með aðstoð, alltaf tilbú- inn að leggja öðrum lið, gera við bíla og heimilistæki, flytja búslóðir o.fl. Hann gat komið hvaða bíldruslu sem var í gang eins og Ella systir sagði. Allt lék í höndum hans, bílaviðgerð- ir, trésmíði, fluguhnýtingar o.fl. Palli vann í mörg ár í Kjötmiðstöðinni sem mágur okkar Hrafn rak með miklum myndarskap. Palli naut sín þar, mikið af ungu fólki, fjör og spennandi að lifa. Þar kynnist Palli fyrstu ástinni og blómstraði meðan það samband entist. Palli átti oft sín- ar erfiðu stundir og margar góðar á milli. Palli var ætíð þakklátur aðstoð sem hann fékk á Staðarfelli og í AA- samtökunum. Gunnar bróðir og Palli voru góðir vinir og reyndist Gunnar honum mjög vel, sama hvað blés á móti. Þeir fóru margar veiðiferðirn- ar saman. Gunnar er að byggja sum- arbústað í Skorradal, þar voru þeir mikið saman og Palli naut sín í fal- legu umhverfi með besta vini sínum. Palli var félagsvera, en hlédrægur og tranaði sér aldrei fram. Fjölskyldan hittist alla laugardaga hjá pabba og þar mætti Palli þegar hann gat, hafði frá mörgu skemmtilegu að segja og þótti gaman að ræða málin. Annan hvern mánuð hefur fjölskyldan farið í gönguferðir á Hellisheiði, Reykja- nesi og víðar. Palli var alltaf farinn að ræða næstu ferð og undirbúa löngu áður en aðrir, hann fann landakort af gönguleiðunum og upplýsingar um það helsta sem sjá mátti á leiðinni. Samveran með fjölskyldunni og gönguferðirnar voru honum mikils virði. Það er sárt að kveðja, en ég vona að Palli bróðir sé á góðu ferða- lagi á himins leiðum í fögru umhverfi með góðum vinahóp. Þökk fyrir allt, minn kæri Palli bróðir. Þinn bróðir Aðalsteinn. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar Þórný systir sagði mér að Palli væri dáinn, þetta var svo óraunveru- legt. Palli var uppáhaldsfrændi minn, hann var alltaf svo hress og kátur þegar maður hitti hann. Hann hafði rosalega gaman af því að segja manni sögur frá því hann var yngri, sögur úr Kjötmiðstöðinni og frá ferðalög- um sem hann hafði farið í og brand- ara sem hann hafði klippt út úr blöð- um eða sjónvarpsdagskránni. Hann var alltaf duglegur að koma í heim- sókn og það var alltaf svo gaman að fá Palla frænda í heimsókn, því þá fylltist húsið af sögum og hlátrasköll- um, stundum kom hann með lista af spurningum, sem hann mátti alls ekki gleyma að spyrja okkur. Hann var svo skemmtilegur og einstakur karakter og manni leið alltaf svo vel í kringum hann. Ég er svo þakklát fyr- ir að hafa þekkt Palla frænda, og fyr- ir allar veiðiferðirnar og sumarbú- staðaferðirnar sem við fórum í. Ég bara trúi því ekki að ég eigi ekki eftir að heyra dyrabjölluna hringja tvisv- ar lengur og vita að Palli frændi sé við dyrnar. Ég trúi því ekki að ég eigi aldrei eftir að sjá uppáhaldsfrænda minn aftur. Ég á eftir að sakna hans sárt, en ég veit að honum líður vel núna. Ég þakka Guði fyrir að ég gat kvatt Palla frænda með faðmlagi og koss áður en ég flutti til Svíþjóðar, hans síðustu orð til mín voru „Farðu varlega Jóhanna mín og gangi ykkur vel.“ Jóhanna frænka. Páll Þórðarson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Labradorhvolpar til sölu. Erum með hreinræktaða labradorhvolpa til sölu (án ættbókar). Svartir og brúnir. Tilbúnir til afhendingar, heilsufars- skoðaðir og sprautaðir. S. 899 8190. NUTRO - NUTRO Bandarískt þurrfóður í hæsta gæðaflokki fyrir hunda og ketti. 30-50% afsláttur af öllum gælu- dýravörum. Tokyo, Hjallahrauni 4, Hafnarfirði, opið mán-fös 10-18 lau. 10-16, sun 12-16. Flug Flugmiði Kef-K.höfn-Kef á 15 þús. krónur. Einn flugmiði með Iceland Ex- press til K.hafnar til sölu. Út að morgni 11. nóv., heim 14. nóv. Hef uppl. um mjög hagstæða gistingu nálægt miðbæ. Uppl. í s. 892 8550. Heilsa Aloe vera vörur. Örugg dulkóðuð verslun. Aloe vera drykkir. Ef vefur nýtir dulritun byrjar slóðin á sjálfri pöntunarsíðunni á https. og breytast þá upplýsingar í dulmál yfir netið. www.heilsuvara.is Hættu að reykja á 60 mín. Ef þú vilt hætta að reykja, hafðu sam- band í síma 862 3324 og við los- um þig við níkótínþörfina á 60 mín. Ráðgjöf og Heilsa, Ármúla 15, s. 862 3324 - heilsurad.is Nudd Klassískt nudd. Árangursrík olíu- og smyrslameðferð með ívafi ísl. jurta. Steinunn P. Hafstað félagi í FÍHN, s. 586 2073, 692 0644, Láttu dekra við þig! Slökunar,- steina,- súkkulaði,- og saltnudd. Frábær verð. Snyrtistofan Hrund Grænatún 1 Kópavogi. Pantanasími: 554 4025 Atvinnuhúsnæði Til leigu 135 fm og 110 fm skrifstofuhúsnæði í Skútuvogi. Húsgögn geta fylgt. Upplýsingar í síma 664 5900. Geymslur Geymum hjólhýsi, fjallabíla og fleira. Húsnæðið er loftræst, upphitað og vaktað. Stafnhús ehf., símar 862 1936 - 8991128 Til sölu Presicosa skartgripir Mikið úrval. Slóvak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogur, s. 544 4331. Slovak Kristall. Hágæða postulín matar-, kaffi-, te- og mokkasett. Margar gerðir. Slovak Kristall (Kaldasel ehf.), Dalvegur 16b, 201 Kópavogur, sími 544 4331. www.skkristall.is Tékkneskar og slóvanskar kristalsljósakrónur, mikið úrval. Slovak Kristall, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331 og 820 1071. Tilboð. Glæsilegir dúkar fyrir jólin. Þvottahús A. Smith ehf., sími 551 7140. www.dukar.is Þjónusta Húsbyggingar. Löggiltur húsa- smíðameistari getur bætt við sig verkum til dæmis uppslætti á húsum, uppsetningu á innrétting- um, milliveggjum o. fl. Tilboð eða tímavinna. S. 899 4958. Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Bílar aukahlutir HÖGGDEYFAR Fyrir bílinn: Gabriel höggdeyfar, gormar, stýrisliðir, vatnsdælur, sætaáklæði, sætahlífar fyrir hesta- og veiðimenn, burðarbog- ar, aðalljós, stefnuljós, ASIM kúplingssett. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. Sykrmolarnir - Björk Ammælisplata Sykurmolanna, Sykur- molabókin og handskrifaða bókin hennar Bjarkar. Tilboð óskast. Upplýsingar í sím a 898 9475.  Fleiri minningargreinar um Pál Þórðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höf- undar eru: Þórný frænka góðan stað þar sem hlíðin er fögur, bleikir akrar og slegin tún, í faðm foreldra þinna og systkina. Svo margt hefur þessi maður gert fyrir mig og okkur barnabörnin og raunar alla sem hann átti samleið með í líf- inu, ætíð af einskærri hjartahlýju og góðmennsku. Fyrir það mun ég ætíð vera þakklátur. Ég mun minnast hans sem manns sem gerði allt fyrir sína og tel ég að allir ættu að geta dregið lærdóm af honum afa mínum, Gunnari Helgasyni. Hvíldu í friði, afi minn. Þinn Davíð. Kveðja frá Sjálfstæðisflokknum Gunnar Helgason gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og á vegum hans um áratugaskeið. Hann var einn af máttarstólpum flokksstarfsins hér í Reykjavík um langa hríð, m.a borg- arfulltrúi um skeið, og naut flokk- urinn krafta hans í ýmsu eftir að hann lét formlega af störfum sem starfsmaður og kjörinn fulltrúi flokksins. Gunnar gekk ungur til liðs við flokkinn og réðist til starfa hjá hon- um sem erindreki fyrir sextíu árum, þá einnig formaður Heimdallar, fé- lags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann var starfsmaður flokksins allt til ársins 1979, síðustu árin framkvæmdastjóri fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Gunnar sinnti einkum verkalýðsmál- um og var formaður Verkalýðsráðs flokksins um árabil. Stýrði hann þar starfi flokksins á vettvangi verka- lýðsfélaganna en á þeim árum var verkalýðsbaráttan harðskeyttari en síðar varð og afskipti stjórnmála- flokkanna meiri. Gunnar stýrði þess- um verkefnum fyrir flokkinn af mik- illi festu, prúðmennsku en umfram allt með góðum árangri. Ég man fyrst eftir Gunnari er hann var borgarfulltrúi á sjöunda áratug síðustu aldar og kynntist honum síðar nokkuð í starfinu innan flokksins. Þau kynni voru mér bæði ánægjuleg og lærdómsrík. Um leið og Gunnar Helgason er hér kvaddur með alúðarþakklæti færi ég fjöl- skyldu hans innilegar samúðarkveðj- ur sjálfstæðismanna. Geir H. Haarde.  Fleiri minningargreinar um Gunnar Helgason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Ágústa Guð- jónsdóttir, Elísabet Guttormsdóttir og Rut og Friðgeir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.