Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN G etur verið að vísindi og trú eigi eitthvað sam- eiginlegt? Fyrir utan það að hvort tveggja er alltumlykjandi kerfi sem ætlað er – eða var upp- haflega ætlað – að leita hins end- anlega sannleika. Einhver sagði mér (kannski var það lygi) að út- skýringin á „science“ í gamalli Brittannicu hafi einfaldlega verið „sannleikurinn“. Það má finna að minnsta kosti tvennt sem vísindi og trú eiga sam- eiginlegt fyrir utan það að vera kerfi til að finna sannleikann: Hvorugt er lýðræðislegt, og hvor- ugt gengi upp án skírskotunar til yfirvalds. Vísast má finna ýmislegt fleira, en látum þetta duga í bili og athugum nánar. Að vísu þarf líklega ekki að fara nákvæmlega út í það með hvaða hætti trú er hvorki lýðræðisleg né fengist þrifist án yfirvalds. En vís- indi? Var það ekki meirihluta- ákvörðun á vísindamannaþingi núna um daginn sem svipti Plútó reikistjörnutitlinum? Sumir héldu því jafnvel fram að þetta hefði verið pólitísk ákvörðun, fremur en vís- indaleg. Er það ekki einmitt frelsi vís- indanna undan yfirvaldi sem gerir þau svo miklu áreiðanlegri en trúna? Eru ekki skynsemin og sannleikurinn einu „yfirvöldin“ sem vísindin lúta? Þegar upp- gangur vísinda og tækni var sem mestur í byrjun síðustu aldar ríkti sannkölluð „vísindatrú“. Þeir voru álitnir hinir mestu kverúlantar og afturhaldshjassar sem ekki viðruðu óhefta sannfæringu sína um að vís- indin og tæknin myndu leysa allan vanda mannkynsins. Þetta er gömul saga sem óþarft er að klifa á. Núna er það viðtekin skoðun að árangur í vísindum og tækni hafi verið mikill, en fáir eru ennþá sannfærðir um að vísindin geti (að minnsta kosti í prinsippinu) leitt mannkynið í allan sannleika um það sem vert er að vita. Þessi skoðun er svo viðtekin, að jafnvel páfinn hefur hana. Á fundi í Vís- indaakademíu Páfagarðs í fyrradag sagði Benedikt að „maðurinn [geti] ekki treyst vísindum og tækni svo fullkomlega og skilyrðislaust að trúa því að vísindalegar og tækni- legar framfarir geti útskýrt allt og fullnægt alveg tilvistarlegum og andlegum þörfum hans“. En að hvaða leyti eru vísindin lík trúnni, og í hverju eru takmarkanir þessara heimsmynda helst fólgnar? Í bókinni Vísindabyltingar (sem væntanlega kemur út í íslenskri þýðingu undirritaðs í lærdóms- ritaröð bókmenntafélagsins á næsta ári) gerði bandaríski heim- spekingurinn Thomas Kuhn grein fyrir tvenns konar vísindum. Ann- ars vegar því sem hann nefndi „venjuleg“ vísindi og hins vegar „byltingarkenndum“ vísindum. Það sem hér skiptir máli er að svo að segja öll vísindi eru „venju- leg“ eða skipulögð. Þau bylting- arkenndu eru eðli sínu samkvæmt ekki stunduð á skipulagðan hátt. Öll þau vísindi sem fregnir berast af dags daglega, og öll vísindi sem stunduð hafa verið á Íslandi, svo dæmi sé tekið, eru venjuleg. Og í venjulegum vísindum gilda strangar reglur, þar er farið eftir ákveðnum aðferðum og þar er yf- irvald reyndra manna jafnan ekki dregið í efa. Það er ekki sam- komulagsatriði hvort vísindalegri aðferð skuli fylgt, og það er ekki at- kvæðagreiðsla sem sker úr um hvort vísindaleg tilraun skilar til- ætluðum árangri. Svona „kreddu- festa“ er forsenda þess að vísindi séu marktæk og skili árangri. En „kreddufestuna“ eiga vísindin sam- eiginlega með trúnni. Líkt og kreddufesta er bæði for- senda trúar og helsta fótakefli hennar er hin stranga vísindalega aðferð bæði forsenda vísindanna og helsta fótakefli þeirra í leitinni að sannleikanum. Um miðja síðustu öld gerði þýski heimspekingurinn Hans-Georg Gadamer ítarlega grein fyrir þessu eðli vísindanna, aðferðar þeirra og sannleikans, í bókinni Sannleikur og aðferð. Ólíkt kennara sínum, Martin Heidegger, hafnaði Gadamer þó ekki vísindum og tækni. En vís- indalegri aðferð, sagði hann, verður ekki beitt til árangurs á öllum svið- um mannlífsins, og hún getur ekki leitt allan sannleika í ljós. Til dæm- is fær hún engu áorkað þegar út- skýra skal þann sannleika sem finna má í miklum listaverkum. Það er vegna þess að sá sannleikur sem um ræðir er fólginn í upplifun ein- staklingsins, sem aftur ræðst af sögubundinni mótun hans. Sann- leikur verksins er ekki fólginn í því sjálfu. Það má útskýra listaverk endalaust, en útskýringin nær aldr- ei utan um sannleikann sem verkið segir, því hann er ekki í því sjálfu. Allt er þetta líka vel þekkt saga sem óþarft er að fara náið í. Þeir Kuhn og Gadamer áttu hvor með sínum hætti (og hvor í sinni heims- álfunni) stóran þátt í að gera grein fyrir þeim takmörkunum sem vís- indin eru háð, og núna eru hug- myndir þeirra næsta viðteknar. Þær eru þó alls ekki óumdeildar, og kannski bendir ýmislegt til þess að vísindin séu á ný – ekki síst vegna árangurs er náðst hefur í erfða- fræði, einræktun og stofn- frumurannsóknum – að öðlast svip- aðan sess og þau höfðu í byrjun tuttugustu aldar. Til marks um þennan uppgang vísindanna má reyndar hafa sterk viðbrögð þeirra sem aðhyllast kenninguna um svokallaða „vits- munahönnun“, og hafa látið veru- lega til sín taka í bandarísku skóla- kerfi á undanförnum árum. Þeir hafa fyrst og fremst verið að bregð- ast við því sem þeim finnst vera yf- irgangssemi hins vísindalega lífs- viðhorfs, og tillitsleysi þess við önnur lífsviðhorf. Auðvitað hefur það ekki sakað fyrir þá, að hafa for- setann sín megin. En núna eru menn reynslunni ríkari, og villast ekki út á sama hála ísinn og fyrir einni öld, þegar allt mátti leysa með því að gera það vís- indalega, og meira að segja var gerð tilraun til að byggja upp „vís- indalegt“ þjóðfélag (það hét Sov- étríkin). Nú hafa menn varann á. Eða hvað? Vísindi og trú »Kannski bendir ýmislegt til þess að vísindinséu á ný – ekki síst vegna árangurs er náðst hefur í erfðafræði, einræktun og stofnfrumurann- sóknum – að öðlast svipaðan sess og þau höfðu í byrjun tuttugustu aldar. BLOGG: kga.blog.is VIÐHORF Kristján G. Arngrímsson kga@mbl.is LAUGARDAGINN 7. október síð- astliðinn birtist í Blaðinu grein á veg- um tímaritsins Orðlaus, en Orðlaus er tímarit ætlað ungum konum sem áður var sjálfsætt en er nú hluti af Blaðinu. Textinn sjálfur var stuttur, en með- fylgjandi voru fjórar myndir. Umfjöll- unarefnið var tíska og fyrirsæturnar á myndunum voru tvær mjög ungar stelpur, lík- lega á aldrinum 6–9 ára. Stærsta myndin var af þeim báðum þar sem þær sátu fyrir klæddar í ballkjóla, hlaðnar perlu- festum og öðru skarti, málaðar í framan og með uppsett hár. Einnig voru þrjár minni myndir sem sýndu stelpurnar ýmist hoppa í rúmi, ganga eftir götu á há- hæluðum skóm eða drekka te úr testelli. Tilgangur myndanna var ekki aug- ljós við fyrstu skoðun og mátti jafnvel álykta að greinin ætti að höfða til barna. Þegar textinn var lesinn varð sú tilgáta hins vegar ólíkleg þar sem textinn var í raun lýsing á því hvernig ýmsar ungar konur hafa sig til áður en þær fara út á lífið. Þar var talað um að „allar stelpur hefðu gaman af að dressa sig upp í fína kjóla, hlaða á sig skarti, punta sig örlítið … og fá sér svo te eða eitthvað bragðsterkara“. Það er frekar ólíklegt að litlar stelpur eyði eftirmiðdögunum í tedrykkju þaðan af síður neyslu sterkari drykkja. Fyrst greinin virtist vera ætluð ungum konum hvers vegna voru þá börn notuð sem fyrirsætur? Hvaða áhrif ætli það hafi á ungar stelpur að sjá jafnaldra sína sem kynímyndir og hvaða mismunandi kvenhlutverk koma fram? Það er vel hægt að ímynda sér að litlar stelpur skoði greinina og taki innihaldið til sín, sérstaklega þar sem að talað var um stelpur en ekki konur. Stelpurnar eru sýndar sem kynverur og á myndunum er lögð áhersla á að þær komi fram sem konur frekar en börn. Myndirnar eru raunar kynferð- islegar. Á stærstu myndinni horfir sú ljóshærða beint fram á meðan sú dökkhærða tyllir höfðinu niður og horfir eilítið upp. Vegna þess hvernig sú dökkhærða er klædd verður svip- urinn á henni bjóðandi og end- urspeglar eina af staðalímyndum kvenna; þessa und- irgefnu, góðu og sætu. Á myndinni þar sem þær ganga eftir götu í hælaskóm, skreyttar glingri og önnur klædd í pels kemur ósjálfrátt upp í hugann, vegna aldurs þeirra, að þær séu að leika tvær vænd- iskonur á leið niður götu. Á annarri mynd sem er í raun barnaleg- ust sjást stelpurnar hoppa í rúmi. Það sem truflar á þeirri mynd eru ermalausu kjólarnir sem þær eru í og hvernig þeir hafa runnið til svo sést í hálfbera bringu hjá annarri og bera handleggi hjá báðum. Allar myndirnar eiga það sameig- inlegt að sýna barnungar stelpur í fullorðinslegum aðstæðum. Greinin á að vera fyrir ungar konur en börn eru notuð sem fyrirsætur og þótt ungar konur séu aðal markhópurinn er óbeint verið að höfða til lítilla stelpna sem markhóps. Í markaðsvæðingu nútímans eru stelpur hvattar til að byrja snemma að hugsa um útlitið, gera sér grein fyrir kyni sínu og um leið stöðu sinni í samfélaginu. Í grein- inni er ungum konum (litlum stelp- um?) bent á að gaman sé að drífa sig í bæinn, skoða og kaupa sér föt og fylgihluti. Staðalímyndir og myndir sem koma fram í auglýsingum, sjón- varpsefni og námsefni hafa áhrif á börn sem kannski ekki hafa þroska og skilning til að verjast áhrifum þessara miðla. Umræðan um jafnrétti kynjana hefur tekið kipp á undanförnum miss- erum og nú þegar fjöldinn allur af ungum konum eru kannski að gera sér grein fyrir rétti sínum og getu skýtur vægast sagt skökku við að blað eins og Orðlaus, sem stílar inn á þennan markhóp, birti heilsíðu grein þar sem litlar stelpur eru sýndar sem fullorðnar konur. Ef þetta end- urspeglar almennt viðhorf og vænt- ingar samfélagsins til lítilla stelpna má segja að það takmarki verulega rétt þeirra til að vera börn. Barnaníðingar og þolendur kyn- ferðislegs ofbeldis hafa einnig verið í kastljósinu á síðustu misserum. For- varnarátakið „Blátt áfram“ er þáttur í að auka vitund fólks og minnka líkur á að börn búi við kynferðislegt ofbeldi í áraraðir án þess að segja frá því. Ef greinin er skoðuð í ljósi slíks átaks er hún sérstaklega óviðeigandi, að mynda litlar stúlkur og breyta þeim í litlar Lolitur er ekki beint í anda for- varnarátaks gegn ofbeldi á börnum og má jafnvel búast við því að þegar barnaníðingar eða fólk sem þykir börn kynferðislega æsandi skoðar myndirnar sjái það ekki fötin og skartið sem aðalatriði heldur sakleys- isleg börn í „fullorðinsleik“. Það er vægast sagt glannalegt og ábyrgðarlaust að nota börn á þennan hátt í greinum eða auglýsingum. Þau eiga rétt á að halda barnslegu sak- leysi sínu sem lengst og það er skylda fullorðna fólksins að standa vörð um þennan rétt. Barnaleikir? Sunna Ingólfsdóttir fjallar um myndibirtingar á börnum í blaðagreinum og auglýsingum » Í markaðsvæðingunútímans eru stelp- ur hvattar til að byrja snemma að hugsa um útlitið, gera sér grein fyrir kyni sínu og um leið stöðu sinni í sam- félaginu. Sunna Ingólfsdóttir Höfundur er mannfræðinemi við Háskóla Íslands. KONUR eru mikilvægar á vett- vangi stjórnmálanna, eins og alls staðar annars staðar í þjóðlífinu. Í sívaxandi mæli eru konur sem betur fer farnar að láta til sín taka sem er afar jákvætt í þeim miklu áskorunum og hnattvæðingu sem framundan er. Breytt hlutverkaskipan og samskiptamynstur kynjanna kallar á meiri samvinnu bæði innan heimila og utan þeirra, úti á vinnumarkaðnum og á öllum stjórn- stigum ef okkur á að auðnast að vinna vel og farsællega úr réttum tækifærum fyrir börn- in okkar og komandi kynslóðir. Þó margt hafi áunnist í jafnréttismálum, eig- um við enn langt í land. Við þurfum að gera okkur fulla grein fyrir því að jafnrétti á öllum sviðum er ekki síður hagur karla en kvenna. Kynin þurfa því að vinna saman og ná sem fyrst landi í jafnréttismálum til að gera heiminn lífvænlegri fyrir alla þjóðfélagshópa, konur, karla og börn. Við viljum ekki stéttskipt þjóðfélag. Við þurfum að snúa bök- um saman og megum ekki sofna á verðinum einn einasta dag. Ég hef ákveðið að bjóða krafta mína fram á hinum pólitíska ís- lenska vettvangi og stefni á fimmta til sjötta sætið í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Suðurkjördæmi sem fram fer nk. laugardag. Ég vona að fram- boð mitt megi virka hvetjandi á aðr- ar konur, sem vilja hafa skoðun og vilja einhverju ráða um sitt nánasta þjóðfélags- umhverfi og barna sinna. Þó því beri að fagna að nýir kven- frambjóðendur stíga fram á völlinn, tilbúnar í pólitískan slag, geri ég ekki ráð fyrir að væntanlegir stuðnings- menn mínir kjósi mig vegna kynferðisins ein- göngu heldur miklu fremur vegna þeirrar réttlætiskenndar, sem ég tel mig búa yfir. Afar mikilvægt er að við Íslendingar sitjum ekki bara hjá og sættum okkur við þau efnahagslegu og félagslegu vanda- mál, sem hér eru uppi, heldur bæt- um stöðu okkar í þessum mikilvægu málaflokkum. Þjóðfélagið okkar er ekki nógu fjölskylduvænt. Fullorðið fólk vill fá að njóta samvista við börnin sín eftir að venjulegum vinnudegi lýkur öðru- vísi en að vera dauðuppgefið og út- slitið og eiga svo auk allra annarra verka, sem bíða, eftir að hjálpa til við heimanám. Þarna þurfa skólarnir að koma inn með meiri þjónustu svo fjölskyldur geti notið samvista í frí- tímum sínum á uppbyggjandi og skemmtilegan hátt. Í okkar litla þjóðfélagi þurfum við að taka ofbeldismálin föstum tökum og herða viðurlög gegn slíkum brot- um. Mig langar ekki að hlusta á það í kvöldfréttatímum að barnakennari hafi barnaklám í tölvunni sinni og ég vil heldur ekki lesa um nauðganir í dagblöðunum. Ég vil líka að komið sé fram við eldri borgara af meiri virðingu en nú er gert. Sú kynslóð hefur skilað sínu dagsverki og á rétt á þjónustu heilbrigðisgeirans þegar nauðsyn kallar. Þetta fólk, sem hefur rutt lífsgæðabrautina fyrir okkur hin, á ekki að þurfa að bíða á biðlistum svo mánuðum skiptir eftir þjónustu sam- félagsins og það á ekki að koma til greina að hjón fái ekki að búa sam- an á elliheimilum. Stjórnmálamenn geta alltaf gert betur. Þeir kandidatar þurfa fyrst og fremst að komast að sem ekki bara friða lýðinn með innantómu tali heldur þeir, sem láta verkin tala. Jafnrétti fyrir alla Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar um jafnréttismál » Í okkar litla þjóð-félagi þurfum við að taka ofbeldismálin föst- um tökum og herða við- urlög gegn slíkum brot- um. Birgitta Jónsdóttir Klasen Höfundur er náttúrulæknir og býður sig fram í 5.–6. sætið í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Suðurkjördæmi. Sagt var: Þeir treystu á hjálp hvors annars. RÉTT VÆRI: Þeir treystu hvor á annars hjálp. Eða: Þeir treystu á hjálp hvors við annan. Gætum tungunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.