Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 43
menning
Höfum
kaupendur
Erum með kaupendur að öllum stærðum og gerðum fyrir-
tækja sem mega kosta allt upp í 3-400 milljónir. Margt
kemur til greina. Einnig kaupendur að öllum gerðum lítilla
fyrirtækja. Greiðslur eru oftast staðgreiðsla. Hafið samband
við Reyni Þorgrímsson, sem stofnaði þessa elstu starfandi
fyrirtækjasölu landsins og starfar þar enn. Hann þekkir því
þessi mál betur en flestir aðrir. Gemsinn hans er 896 1810.
Allar upplýsingar í fullum trúnaði.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða
á netinu.
Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is
Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl.
Elsta fyrirtækjasalan á landinu.
„Ragnheiður Elín á erindi á
Alþingi vegna menntunar sinnar,
fjölbreyttra starfa, áhuga á
þjóðmálum og mótaðra skoðana
á þeim. Með fágaðri framkomu
og yfirveguðum málflutningi
auðveldar hún okkur valið.
Tryggjum henni 4. sætið á
framboðslista sjálfstæðismanna
í kjördæmi okkar.”
Ólafur G Einarsson,
fv. ráðherra, Garðabæ
„Ragnheiður Elín er sterkur
einstaklingur sem vegna
starfa sinna býr að mikilli
yfirsýn yfir helstu viðfangsefni
stjórnmálanna og hugsjónir okkar
sjálfstæðismanna. Áralöng störf
við hlið ráðherra og skýr sýn á
sjálfstæðisstefnuna er
dýrmætt veganesti fyrir unga
stjórnmálakonu og
ávinningur fyrir kjósendur
Sjálfstæðisflokkins. Ragnheiður
Elín á brýnt erindi á þing.”
Jónmundur Guðmarsson
bæjarstjóri á Seltjarnarnesi
„Ragnheiður Elín er kraftmikil
og býr yfir mikilli þekkingu og
dýrmætri reynslu af stjórnmálum.
Henni treysti ég til að vinna
af heilum hug að íþrótta- og
æskulýðsmálum. Ég hvet alla
til að styðja hana í 4. sætið
á lista sjálfstæðismanna í
Suðvesturkjördæmi.”
Arnór Guðjohnsen
knattspyrnumaður, Kópavogi
„Ragnheiður Elín er afar
málefnaleg og skeleggur
talsmaður sjálfstæðis-
stefnunnar. Hún hefur
dýrmæta reynslu af
stjórnmálastarfi og verður
glæsilegur þingmaður.”
Rósa Guðbjartsdóttir,
bæjarfulltrúi í Hafnarfirði
Fyrir nokkrum árum fluttinígeríski rithöfundurinnChinua Achebe þrjá fyr-
irlestra við Harvard-háskóla og
fléttaði þá síðan saman í bókina
Home and Exile.
Í þessari stuttu en listavel skrif-
uðu ævisögu segir hann meðal ann-
ars frá því að skáldsagan Mister
Johnson eftir Joyce Cary hafi verið
sú bók sem helst var notuð í bók-
menntakennslu enda mat breskra
embættismanna að engin bók lýsti
betur lífinu í Afríku.
Við nígerískum skólapiltum
blasti þó annað enda augljósir kyn-
þáttafordómar í bókinni. Achebe og
félagar hans gerðu uppreisn gegn
þeirri mynd sem dregin var upp af
nígerísku samfélagi í bókinni og
segja má að hann hafi verið í upp-
reisn alla tíð.
Fyrsta skáldsaga Achebe,Things Fall Apart, sem kom út
1958, vakti gríðarlega athygli og er
jafnan talin með helstu nígerískum
skáldverkum og eins með helstu
bókmenntaverkum afrískum. Hún
er eiginlega framhald af uppreisn
hans og félaga hans gegn þeirri
mynd sem dregin var upp af Afríku
í Mister Johnson og í henni leggur
Achebe áherslu á að evrópskir
landkönnuðir og trúboðar hafi ekki
búið til afríska menningu; þar hafi
verið fyrir lifandi og fjölbreytt
menning ótal þjóða sem beðið hafi
mikinn skaða af menningarlegum
hermdarverkum heimsveldisins.
(Söguhetja bókarinnar, Okonkwo,
stendur frammi fyrir því að þurfa
að sætta sig við breytingar á lífs-
háttum og siðvenjum vegna inn-
rásar og hernáms Breska heims-
veldisins, en hafnar þeim með því
að svipta sig lífi.)
Þessi hugsun hefur verið snar
þáttur í æviverki Achebes og í
Home and Exile er hann við sama
heygarðshornið, heldur því fram og
styður með dæmum að fordómar
gagnvart Afríku séu enn ríkjandi
þegar fjallað er um afríska menn-
ingu á Vesturlöndum. Til að mynda
tínir hann til dæmi um fordóma og
þröngsýni í verkum Elspeth Hux-
ley, sem ólst upp í Kenía, og flengir
V.S. Naipaul rækilega.
Kjarninn í máli Achebes er þóekki að allt sé slæmt sem frá
Vesturlöndum komi (eða Kar-
íbahafi) heldur að sýn afrískra rit-
höfunda hljóti að vera nær raun-
veruleikanum en þeirra sem skoða
afrískan veruleika með misjafnlega
lituð gleraugu.
Eins og Achebe orðar það: Þar til
sagnfræðingur ljónanna birtist
verður veiðimaðurinn einn mærður
í öllum sögum af ljónaveiðum.
Sagnfræðingur ljónanna
Nígeríska rithöfundasambandið
Igbo Nígeríski rithöfundurinn Chinua Achebe hefur barist gegn nýlendu-
hyggju alla ævi og berst enn.
AF LISTUM
Eftir Árna Matthíasson
» Achebe legguráherslu á að evr-
ópskir landkönnuðir og
trúboðar hafi ekki búið
til afríska menningu.
arnim@mbl.is
VELGENGNI hópsins sem kennir
sig við Vesturport virðist stöðugt
vera að aukast, hér á landi sem og
erlendis.
Nú hefur leikmyndahönnuðurinn
Börkur Jónsson verið tilnefndur til
Evening Standard leikhúsverð-
launanna bresku.
Verðlaunin, sem þykja eftirsókn-
arverð, verða veitt í London þann
27. nóvember næstkomandi.
Tilefninguna hlýtur Börkur fyrir
leikmynd sína við sýninguna Ham-
skiptin eftir Franz Kafka í uppsetn-
ingu Vesturports í London.
Stjarna sýningarinnar
Börkur hefur fengið lofsamleg
ummæli um leikmyndina í fjölda
breskra fjölmiðla. Menning-
arvefritið The Stage sagði meðal
annars í umsögn um Hamskiptin að
Börkur væri
stjarna sýning-
arinnar.
Gagnrýnand-
inn Nuala Calvi
segir óreiðu-
kennda sviðs-
myndina í full-
komnu samræmi
við inntak verks-
ins og fim-
leikaburði leikhópsins.
Börkur hefur hannað fjölda leik-
mynda fyrir Vesturport og gjarnan
fengið lof fyrir.
Hann fékk meðal annars Eddu-
verðlaunin 2006 fyrir leikmynd árs-
ins fyrir vinnu sína við Fagnað í
Þjóðleikhúsinu og fyrir leikmyndina
í leiksýningunni Woyzeck í sviðs-
setningu Leikfélags Reykjavíkur og
Vesturports.
Stjarna Hamskiptanna
Börkur Jónsson
EINS OG fram hefur komið munu
Sykurmolarnir fagna 20 ára af-
mæli sínu með því að koma saman
að nýju og leika á einum afmæl-
istónleikum í Laugardalshöll,
föstudaginn 17. nóvember næst-
komandi. Nú hefur verið tilkynnt
að hljómsveitin múm muni hita
upp fyrir Sykurmolana á tónleik-
unum.
Þetta verða fyrstu tónleikar
múm á árinu en sveitin hélt síðast
tónleika í desember í fyrra í Tapei
höfuðborg Taiwan. Múm-liðar
spiluðu sem plötusnúðar Sum-
mersonic Festival í Tókíó og Osaka
í sumar og á Isle of Wight hátíð-
inni í Bretlandi núna í september,
auk þess að snúa plötum á Sirkus
á opnunarkvöldi Airwaves hátíð-
arinnar í október.
Plata á leiðinni
Múm lék síðast á tónleikum hér-
lendis á Snæfellsnesi í ágúst 2005
og þar á undan í Bæjarbíói Hafn-
arfirði í ágúst 2004.
Ný múm-plata er væntanleg og
hafa liðsmenn sveitarinnar meðal
annars verið við upptökur á henni í
Finnlandi. Hún er væntanleg í
byrjun næsta árs. Strax í desem-
ber mun Fat Cat hins vegar gefa
út upptökur úr þætti John Peel á
BBC frá árinu 2002 undir nafninu
múm Pell Session.
Múm er skipuð þeim Örvari Þór-
eyjarsyni Smárasyni, Gunnari Erni
Tynes og Kristínu Valtýsdóttur.
Ekki uppselt enn
Enn eru til miðar á tónleikana.
Miðasala er í fullum gangi í versl-
unum Skífunnar í Kringlunni og
Smáralind, BT Akureyri, Selfossi
og Egilsstöðum og á Midi.is. Miða-
verð er 5.000 krónur, að viðbættu
350 króna miðagjaldi söluaðila.
Aldurstakmark á tónleikana er
18 ár, nema í fylgd fullorðinna.
Hita upp Þau Kristín, Örvar og Gunnar eru múm.
Múm hita upp fyrir
Sykurmolana í Höllinni