Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
20% afsláttur
af öllum úlpum
og kápum
Pelsfóðurjakkar
Pelsfóðurkápur
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
STÆRÐIR 40 - 52
KYNNING
6-11 NÓV
HAUST/VETUR
06NÝJAR HUGMYNDIRNÝR STÍLL
Peysusett
margar tegundir
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16
Ný sending
Úlpur, útigallar, kápur og frakkar
Jólaföt í úrvali
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.is
20% afsl. af ullarfatnaði
Bolir, samfellur og gammósíur
Allt úr 100% Merinóull sem er mjúk,
stingur ekki og má þvo í þvottavél
á ullarkerfi
Einstaklega vel með farinn Volvo S80 til sölu
árg. 2003. Vél 2.0 t. Aðeins ek. 39
þús. km., silfurmet, sjálfskiptur,
leðurklæðning, viðarklæðning,
útv./segulb./cd, cruise control,
rafdrifnar rúður/speglar, fjarstýrðar
samlæs. Hiti í sætum. 17" álfelgur og
dekk. Verð 2.700 þús. kr.
Aðrar upplýsingar í síma 820 0401.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs
Group. Í henni mótmælir hann harð-
lega staðhæfingum Ekstrablaðsins
um fyrirtækið. Blaðið hefur neitað að
birta athugasemdir frá Baugi.
„Baugur Group mótmælir harð-
lega þeim blaðagreinum sem blaða-
menn danska Ekstrablaðsins hafa
skrifað um fyrirtækið að undan-
förnu. Greinarnar eru fullar af vill-
um.
– Engin tengsl eru eða hafa nokk-
urn tíma verið á milli Baugs Group
og Rússans Mikhail Fridman.
– Baugur Group er ekki eigandi að
Sterling.
– Baugur Group hefur engin áform
uppi um að stækka í Rússlandi.
– Í júní 2005 sagði forstjóri Mosaic
Fashion í breska blaðinu Times, að
áhugi væri fyrir því að fara inn á
Rússlandsmarkað. Það geta því
varla talist nýjar upplýsingar fyrir
neinn, nema kannski blaðamenn
Ekstrablaðsins. Eins og flestir vita
er Mosaic Fashions skráð í Kauphöll
Íslands en hlutur Baugs Group í fyr-
irtækinu eru 36,7%. Fyrirtækið á
einar 1.750 verslanir í yfir fimmtán
löndum, þar á meðal fjórar í Rúss-
landi. Þá hyggst fyrirtækið opna þar
þrjár verslanir til viðbótar á næstu
mánuðum.
– Baugur Group er ekki háður
fjármagni frá Kaupþingi banka.
Þvert á móti vinnur fyrirtækið með
fjölda annarra banka víðs vegar um
heiminn.
– Deutsche Bank hefur aldrei lán-
að Gaumi peninga eða stjórnað
hlutabréfum félagsins.
Baugur Group er alþjóðlegt fyrir-
tæki sem sérhæfir sig í rekstri smá-
sölu og fasteigna á Norðurlöndum
sem og í Bretlandi.
Baugur Group hefur alltaf unnið
samkvæmt lögum þeirra landa sem
fyrirtækið starfar í og staðhæfingar
um annað eru fráleitar.
Með öflugu stjórnunarteymi hefur
okkur tekist að snúa við rekstri
fjölda fyrirtækja sem við höfum tek-
ið yfir á undanförnum árum og nýtt
þau tækifæri vel sem okkur hafa boð-
ist, dönskum neytendum til mikilla
hagsbóta. Magasin Du Nord er ef-
laust eitt besta dæmið um það og er-
um við mjög stolt af því verkefni.
Hvað dönsku blaðamönnunum
gengur til með skrifum sínum er
okkur ekki ljóst. Hins vegar er ljóst
að við munum verja okkur með laga-
legum ráðum.
Blaðamenn danska blaðsins segja
hvergi svör að finna varðandi málefni
Íslendinga erlendis, enginn vilji tjá
sig um málin. Baugur Group hefur
hins vegar ítrekað reynt að fá birtar
athugasemdir frá fyrirtækinu í
Ekstrablaðinu varðandi það sem
snýr að Baugi en þær athugasemdir
hafa þó af einhverjum ástæðum ekki
ratað inn á síður blaðsins.“
Vísar á bug fréttum
í Ekstrablaðinu
Forstjóri Baugs segist ekki hafa fengið svör sín birt
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross-
ins, Kópavogsbær og Svæðisskrif-
stofa málefna fatlaðra á Reykjanesi
hafa gert með sér samning um
rekstur Dvalar, athvarfs fyrir geð-
fatlaða í Kópavogi, til næstu
tveggja ára. Samkvæmt samningn-
um annast Kópavogsdeild rekstur-
inn en Kópavogsbær og svæðis-
skrifstofan greiða launakostnað og
leggja til húsnæði.
Við undirritun samningsins sagði
Garðar H. Guðjónsson, formaður
Kópavogsdeildar Rauða kross Ís-
lands, að fjölmörg dæmi væru um
það hvernig Dvöl hefði breytt lífi
fólks til batnaðar og ekki þurfi að
spjalla lengi við gestina til að komast
að því hvaða þýðingu athvarfið hef-
ur.
Athvarfið Dvöl var opnað 1998 að
frumkvæði Kópavogsdeildar Rauða
kross Íslands. Markmiðið er að rjúfa
félagslega einangrun gestanna,
draga úr fordómum í garð geðfatl-
aðra og auka lífsgæði þeirra. Fjöldi
sjálfboðaliða Kópavogsdeildar starf-
ar í tengslum við athvarfið og sjá
þeir meðal annars um að hafa það
opið á laugardögum.
Reynslan af rekstri Dvalar í Kópa-
vogi og Vinjar í Reykjavík hefur orð-
ið til þess að sambærileg athvörf eru
nú rekin víða um land, segir í frétta-
tilkynningu.
Rekstur Dvalar
tryggður
KÁRI Sölmund-
arson gefur kost
á sér í 3.–4. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í
Suðurkjördæmi
vegna alþingis-
kosninganna í
vor. Prófkjörið
fer fram um
næstu helgi. Kári
hefur verið félagi
og þátttakandi í starfi Sjálfstæðis-
flokksins í tuttugu ár, fyrst á Horna-
firði, en síðustu ár í Reykjavík. Hann
var fyrsti formaður Félags ungra
sjálfstæðismanna á Hornafirði, vara-
bæjarfulltrúi og varaformaður hafn-
arstjórnar fyrir hönd flokksins.
Kári hefur starfað við sölu og
markaðssetningu á sjávarafurðum
frá 1992, þar af fjögur ár í Frakk-
landi og er í dag sölustjóri land-
frystra afurða hjá HB Granda.
Hann hefur starfað að hagsmuna-
málum útflytjenda sem formaður út-
flutningshóps Félags íslenskra stór-
kaupmanna.
Kári gefur
kost á sér í
3.–4. sæti
Kári
Sölmundarson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað Seltjarnarneskaupstað
af 4 milljóna kr. miskabótakröfum
fatlaðrar stúlku vegna ólögmætrar
meingerðar þegar skólastjóri Val-
húsaskóla vísaði henni tímabundið úr
skóla árið 2000 og neitaði að taka við
henni aftur 2001. Kvaðst stúlkan
hefðu þurft að leita sér menntunar í
öðru bæjarfélagi sem hafði í för með
sér óþægindi fyrir hana og fjölskyldu
hennar. Jafnframt hefði brottvikn-
ingin valdið því að hún hefði farið á
mis við kennslu og samskipti við
jafnaldra sína. Hefði stúlkan og fjöl-
skylda hennar upplifað aðgerðir
skólayfirvalda á Seltjarnarnesi sem
einelti og ofsóknir.
Stefndi taldi að skólayfirvöld
hefðu gert allt sem í þeirra valdi stóð
til að tryggja stúlkunni tækifæri til
náms og ráðið starfsfólk til að vinna
með henni. Þá hefði Réttarholtsskóla
verið greidd tvö stöðugildi kennara
vegna stúlkunnar skólaárið 2001–
2002, þótt hún hefði þá lögum sam-
kvæmt átt að hafa lokið skólagöngu
sinni í grunnskóla.
Dómurinn taldi ósannað að stúlk-
an hefði sætt einelti og að kennarar
og skólastjórnendur hefðu vanrækt
skyldur sínar gagnvart henni. Brott-
vísun hennar úr Valhúsaskóla var á
sínum tíma felld úr gildi með úr-
skurði ráðherra enda talið að brott-
vísunin byggðist á ólögmætum for-
sendum. Dómurinn taldi þó að í
þessu fælist ekki ólögmæt meingerð
gagnvart stúlkunni eða æru hennar.
Ekki hefði þá verið sýnt fram á að
hún hefði í reynd verið útilokuð frá
skólanum.
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari
dæmdi málið. Dögg Pálsdóttir hrl.
flutti málið fyrir stúlkuna og Val-
garður Sigurðsson hrl. fyrir stefnda.
Brottvísun ekki
talin meingerð