Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
www.torhildur.is
Andri Snær Magnason
rithöfundur
Ingibjörg Hafstað
kennslustjóri Alþjóðahúss
Margrét Pála Ólafsdóttir
höfundur og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Rögnvaldur Sæmundsson
forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar HR
í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Halldóra Geirharðsdóttir
Hannes Smári
Halldór Gylfason leikari og Geirfuglarnir
Stjórnmál snúast um framtíðina
Spáð í spilin með Þórhildi Þorleifsdóttur
Fundarstjóri: Edda Björgvinsdóttir
Allir velkomnir. Kaffi og með því.
ÍSLENSKI saxófónkvartett-
inn leikur í kvöld verk eftir
Astor Piazzolla og Isaac Alben-
iz ásamt verkum franskra tón-
skálda. Tónleikarnir fara fram
í Félagsheimilinu Hvoli á
Hvolsvelli og hefjast klukkan
20.30.
Íslenski saxófónkvartettinn
er skipaður þeim Vigdísi Klöru
Aradóttur á sópran-saxófón,
Sigurði Flosasyni á alt-saxófón, Peter Tompkins á
tenór-saxófón og Guido Bäumer á barítón-
saxófón.
Tónleikarnir eru liður í verkefninu Tónleikar á
landsbyggðinni.
Saxófóntónleikar
Fjórir saxófónar
á Hvolsvelli
Saxófónn.
GUÐRÚN Jóhanna Ólafs-
dóttir heldur tónleika með
trúarlegri tónlist í Dómkirkj-
unni í kvöld klukkan 20.30.
Guðrún syngur m.a. lög eftir
Hugo Wolf, Gabriel Fauré, A.
Dvorak, Knut Nystedt og Pet-
er Eben, en þeir hafa báðir
verið tónskáld Tónlistardaga
Dómkórsins, og aríuna
„Laudamus te“ eftir Mozart,
sem kom henni í verðlaunasæti
í alþjóðlegri söngvakeppni fyrir tveimur árum. Þá
syngur Guðrún Jóhanna spænska kirkjutónlist og
lög eftir John A. Speight við gítarundirleik eig-
inmanns síns, Francisco Javier Jáuregui.
Einsöngstónleikar
Með trúarlegu ívafi
í Dómkirkjunni
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
UNGLIST er nú í fullum gangi
og verður kvöldið í kvöld til-
einkað ungum og efnilegum
dönsurum sem koma úr ólíkum
áttum. Þeir hittast á jafnrétt-
isgrundvelli og sýna helstu
stíla og stefnur íslenskrar
dansmenningar í dag.
Þátttakendur atriða kvölds-
ins koma frá Íslenska dans-
flokknum, Listaháskóla Íslands, Listdansskóla Ís-
lands,
Dansrækt JSB, Dansskóla Birnu Björns, Klass-
íska listdansskólanum, Kramhúsinu, Árbæj-
arþreki og Strákaverkefni Íd. Herlegheitin fara
fram í Tjarnarbíói klukkan 20.
Danssýning
Hvað er betra
en að dansa?
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
LISTAMAÐURINN Sigurður Guð-
mundsson vinnur þessa dagana að
uppsetningu verka sem hann hefur
unnið inn í sjö anddyri nýrra bygg-
inga í hinu ört rísandi Skuggahverfi í
Reykjavík.
„Verkin eru úr graníti, málmi og
bronsplötum,“ upplýsir listamað-
urinn um verkin sjö, sem tengjast öll
innbyrðis að hans sögn. „Þau eru
mjög keimlík. Þarna getur að líta
form sem ég hef unnið mikið með í
gegnum áratugina: húsform og pílur
ásamt „ófígúratífum“ formum.“
Sigurður segist ekki hafa unnið
mikið í tvívíðum verkum á sínum
listamannsferli en hann hafi hins
vegar gert grafíkverk. „Ég fór í það
eldhús mitt fyrir þetta verkefni og
lét það „inspíra“ mig. Það er kveikj-
an að þeim hugmyndum sem seinna
urðu þessi verk.“
Hann neitar því hins vegar að hafa
farið af stað með ákveðið mótíf. „Mín
nálgun er frekar abstrakt, meira
huglæg, getur maður sagt.“
Virðingarvert framtak
Verkin eru horn í horn á einum
vegg í hverju hinna sjö anddyra. En
er ekki að praktískum hlutum að
hyggja þegar um er að ræða lista-
verk fyrir anddyri húsa? Sigurður
segir að hann hafi að sjálfsögðu
þurft að hafa í huga hvar verkunum
ætti að koma fyrir. „Það er alltaf
svoleiðis. Maður þarf alltaf að laga
sig að aðstæðum, t.d. rýminu, og
eins að hafa í huga endingargildi og
að verkið þoli þá umgengni sem
fylgir stað af þessu tagi. Svo ef eig-
endurnir eru mjög mótfallnir verk-
inu þá er það augljóslega ekki gott,
hvorki fyrir þá eða mig. Þó maður sé
sem listamaður ekki beint í þjónustu
eins eða neins þá líður manni betur
þegar eigendurnir eru sáttir.“
Það var félagið 101 Skuggahverfi
hf. sem ákvað á sínum tíma að leita
til Sigurðar til að þróa og skapa
listaverkin fyrir 1. byggingaráfanga
félagsins á þessum fallega útsýn-
isstað. Framtak félagsins segir Sig-
urður vera bæði virðingarvert og
skemmtilegt.
„Þetta var nú gert nokkuð mikið í
gamla daga hér á Íslandi. Síðan hef-
ur það af einhverjum ástæðum dott-
ið niður. Ég get ekki verið annað en
mjög jákvæður gagnvart svona
framkvæmdum.“
Myndlist | Sigurður Guðmundsson sinnir óvenjulegu verkefni í Skuggahverfinu
Vinnur verk inn
í sjö anddyri
Í HNOTSKURN
»Sigurður Guðmundsson erbúsettur í Kína. Hann
kemur þó reglulega til Íslands
til að sinna minni og stærri
verkefnum.
»101 Skuggahverfi er félagí eigu Þyrpingar hf. og
Fasteignafélagsins Stoða hf.
Félagið stendur að bygg-
inarframkvæmdum á reit sem
afmarkast af Skúlagötu, Lind-
argötu og Frakkastíg.
SIGURÐUR Guðmundsson leggur senn lokahönd á sjö listaverk sem félag-
ið 101 Skuggahverfi hf. hefur fengið hann til að skapa inn í anddyri nýrra
íbúðarbygginga í Skuggahverfi. Að auki hannaði Sigurður listaverk sem
félagið ætlar kaupendum íbúðanna; egg sem táknar upphaf að nýju lífi.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nýtt líf í nýju húsi
Á AFI-hátíðinni í Hollywood er
frumsýnd heimildarmyndin Se-
arching for Orson, sem gerð er af
króatísku kvikmyndagerðarmönn-
unum Jakov og Dominik Sedlar.
Myndin fjallar um Orson Welles
en kunnugir furða sig lítt á
tengslum króatískra kvikmynda-
gerðamanna við umfjöllunarefnið.
Welles varði síðustu árum ævi
sinnar með króatísku leikkonunni
og myndlistakonunni Oja Kodar,
þrátt fyrir að vera kvæntur ann-
arri konu. Kodar kom fram í kvik-
myndum Welles og aðstoðaði hann
við að skrifa mörg handrit þeirra.
Kodar veitti löndum sínum aðgang
að filmugeymslum sínum og Welles
og veitti viðtöl í heimildarmynd-
inni. Kvikmyndagerðarmennirnir
endurguldu henni greiðann með
því að minnast hvergi á eiginkonu
Welles í myndinni eða ágreining
þann sem hefur verið á milli Kodar
og dætra Welles um eignarréttinn
yfir umtöluðustu ókláruðu kvik-
mynd Welles, The Other Side of
the Wind.
Myndin er að mestu leyti um efri
ár Welles og tilurð The Other Side
of the Wind.
Leikstjórinn Peter Bogdanovich
staðhæfir að Other Side sé ein af
mörgum ókláruðum kvikmyndum
Welles sem hægt væri að ljúka við
án meistarans og að Welles hafi
einmitt farið þess á leit að hann
gerði þetta að Welles gengnum.
Hinir króatísku leikstjórar
myndarinnar hyggjast leita fjár-
magns til þess að ljúka gerð mynd-
arinnar og með Bogdanovich við
stjórnvölinn. Þeir voru hins vegar
ekki mjög skýrir í tali um réttinn á
myndinni. Í heimildarmyndinni
kemur einnig fram að Welles átti
barnabarn sem hann vissi aldrei að
væri til. Dóttir hans, Rebecca Wel-
les Manning, sem lést 2004, átti
dreng, sem heitir Marc, í lausaleik
og gaf hann til ættleiðingar.
Ný heimild-
armynd
um Welles
Deilt um rétt að
ókláraðri mynd hans
Orson Welles
VIÐTAL Bergþóru Jónsdóttur við
Víking Heiðar Ólafsson píanóleikara
sem birtist í Morgunblaðinu á laug-
ardag, er nú að finna í lengri útgáfu
á mbl.is.
Víkingur
á mbl.is
TENGLAR
..............................................
mbl.is/itarefni
Morgunblaðið/Eyþór