Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 20
|miðvikudagur|8. 11. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Dr. Sigmundur Guðbjarnason
segir efni í grænmeti og heilsu-
jurtum sem styrkja forvarnir
gegn ýmsum sjúkdómum. »24
jurtir
Upplýst skrifstofa að næturlagi
sóar jafnmikilli orku og þarf
til að hita upp eitt þúsund
kaffibolla.»22
vistvænt
Skammdegið fer misvel í
landsmenn. Margir kunna
vel við sig í rökkrinu en
aðrir sakna birtunnar. »24
heilsa
Zlatko Novak dreymdi um að
eignast eigin verslun og nú geta
Eyfirðingar nálgast pólskar
vörur í verslun þeirra hjóna. »21
neytendur
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Það er afskaplega skemmtilegtað fá að vinna við það semmann langar virkilega til aðgera. Ég er að rúlla mér af
stað í þessu, er á hálfgerðum byrj-
unarreit, en byrjunin lofar bara góðu,“
segir Helga Lilja Magnúsdóttir, 23 ára
nýútskrifaður fatahönnuður. Hún hef-
ur fengið mjög góðar viðtökur við
peysum, sem hafa undanfarnar vikur
fengist í verslunum í Reykjavík og í
Kaupmannahöfn. Í Reykjavík hafa
peysurnar verið til sölu í Nakta ap-
anum við Bankastræti og í versluninni
Address í Ahornsgade í Nörrebro í
Kaupmannahöfn.
„Nú þarf ég að fara að framleiða
meira því peysurnar mínar seldust
nánast upp um daginn,“ segir Helga
Lilja, „en nú langar mig að fara að
bæta við, kjólum og fleiru fíneríi, en ég
legg mig fram við að hanna þægilegan
og flottan hversdagsfatnað fyrir bæði
kynin, alveg frá unglingsaldri og upp
undir þrítugt. Annars er hverjum sem
er velkomið að ganga í flíkunum.
Ætli ég sé nokkuð komin með þá
sýn ennþá að geta hannað fyrir allan
aldur. Það kemur seinna. Mér fannst
auðveldast að byrja á peysum því þær
eru mikið í tísku núna. Það vilja allir
vera í flottum þægilegum peysum.
Mínar peysur hef ég saumað úr jogg-
ingefni, en ætla nú að fara að sauma
peysur og kjóla úr flottu prjónaefni
frá Janus í Kópavogi. Ég notast bæði
við bútasaum og silkiprent á peys-
urnar og nota ég þá gráan, svartan og
hvítan lit í grunninn og skreyti svo
með litríkari litum,“ segir Helga
Lilja, sem er búin að koma sér upp
vinnustofu að Vesturgötu 17 ásamt
átta öðrum starfandi hönnuðum úr
fjölmörgum hönnunargeirum. Hún
framleiðir undir vörumerkinu „Hele-
copter“. Helga hefur nýlega opnað
eigin heimasíðu undir veffanginu
www.helecopter-design.com.
Fór óvart í fatahönnunina
Helga Lilja útskrifaðist úr Listahá-
skólanum sl. vor, fékk sér sum-
arvinnu við alls óskyld störf, en skellti
sér svo út í fagið þegar líða tók að
hausti. „Mér sýnist ég geta lifað af
þessu ef rétt er á málum haldið.
Reyndar slysaðist ég hálfpartinn út í
fatahönnunina. Ég ætlaði mér alltaf
annaðhvort í íslensku eða listasögu í
Háskóla Íslands. Systur minni leist
ekkert á þá fyrirætlan þar sem ég var
alltaf eitthvað að leika mér í hönd-
unum. Hún hvatti mig til að sækja um
í Listaháskólanum og ég lét til leiðast
með hálfum huga þó. Ég var með lé-
lega möppu og bjóst alls ekki við að
komast inn. Spá mín gekk þó ekki eft-
ir og þegar ég fór sem skiptinemandi
til Amsterdam á þriðja ári fór ég að
blómstra og finna mig í þessu.“
Morgunblaðið/Sverrir
Peysur Helga
Lilja Magnúsdóttir
hefur hannað peys-
ur undanfarið en
hyggst nú snúa sér
að kjólum og öðru
fíneríi.
„Peysurnar seldust upp“
Fatahönnuðurinn
Helga Lilja Magnúsdóttir
er 23 ára og farin að
hanna eigin línu.
TENGLAR
.....................................................
www.helecopter-design.com
Ínágrannalöndum okkar,Noregi og Svíþjóð, hafa ver-ið gerðar kannanir á þvíhversu margir búa einir. Í
Svíþjóð búa fjórir af hverjum tíu
einir, eða 40%, en í Noregi einn af
hverjum fjórum, eða 25%. Þrátt
fyrir að fjöldi þeirra sem búa einir
hafi vaxið mikið er talsvert ódýrara
að vera í sambúð, að því er nýjar
tölur frá Svíþjóð sýna. Sagt er frá
þessu á vef Aftenposten.
Karlmaður sem býr einn er með
útgjöld upp á 1.587.113 kr. Kona
sem býr ein er með útgjöld upp á
1.534.114 kr. en til samanburðar er
einstaklingur sem er í sambúð með
útgjöld upp á 1.375.119 kr. á árs-
grundvelli.
Sérstaklega er húsnæðiskostn-
aður hærri, matvörur og nytja-
hlutir eru sömuleiðis dýrari fyrir
einstæðar konur og karla en þá
sem eru í sambúð.
Einstæð kona notar 463.736 kr.
til húshaldsins en það kostar ein-
stæðan karlinn 459.000 kr. að
halda heimili. Fólk í sambúð þarf
hins vegar einungis að punga út
300.955 á mann til heimilishaldsins.
Hjá einstæðu konunni fara auk
þess 39.748 kr. í nytjahluti en karl-
inn notar 18.928 kr. til kaupa á því
sama og sambýlisfólk 24.606 kr.
Þegar kemur að því að borða úti
horfa hlutirnir hins vegar aðeins
öðruvísi við. Sambýlisfólk eyðir
56.784 kr. árlega í að borða úti,
einstæð kona borðar úti fyrir
50.159 kr. en karl sem býr einn
eyðir litlum 81.390 kr. í að borða
úti.
Mestur munur er þó á útgjöldum
sem snúa að klæðnaði og skófatn-
aði á milli einstæðra og sambýl-
inga. Einstæð kona eyðir sam-
kvæmt sænsku tölunum 105.996 kr.
í slíkt en karlinn 44.480 kr. Mann-
eskja sem er í sambúð eyðir 64.355
kr. að meðaltali í klæðnað og skó-
fatnað.
Sænskar krónur eru umreikn-
aðar í íslenskar samkvæmt gengi
6. nóvember 2006.
Dýrt að búa einsamall
Morgunblaðið/Sverrir
Einhleypingar Húsnæðiskostnaður, matvörur og nytjahlutir eru dýrari
fyrir einstæðar konur og karla en þá sem eru í sambúð.
Einar Kolbeinsson íBólstaðarhlíð tók eftir því
hvað frambjóðendur eru unglegir
og smáfríðir á auglýsingamyndum í
prófkjörum:
Létt mun ná á listans topp,
lofsins æðsta verður,
frambjóðandi í photoshop,
fagurlega gerður.
Jón Arnljótsson tók saman helstu
niðurstöður prófkjörs Samfylk-
ingarinnar í Norðvesturkjördæmi,
vitaskuld í bundnu máli:
Skólastjóri fyrstur fer,
til framboðs talinn bestur.
Þar í sæti öðru er
afturgenginn prestur.
Í þriðja sæti felld var frú,
fer því víst af þingi sú.
í sæti fjórða öslar inn
Ísafjarðardrengurinn.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Fegurð og
prófkjör