Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 35

Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 35 til svangra námsmeyja sem sátu yfir heimaverkefnum. Hann hvatti okkur áfram í náminu og lá aldrei á liði sínu við að aðstoða þegar þess var þörf. Íslenska var hans hjartans mál og ábendingar frá honum við gerð ís- lenskuritgerða voru gulls ígildi. Hann var einstaklega ljúfur og hlýr maður, réttsýnn og fróður með ein- dæmum. Á mikilvægum mótunarár- um var gott að kynnast manni eins og Gylfa. Vegna búsetu minnar er- lendis síðasta áratuginn hitti ég Gylfa sjaldnar. Kynnin héldust þó og hann fylgdist með lífi og störfum vina Gerðar úr fjarlægð. Fjölskyldan var Gylfa allt og ekkert var of gott fyrir Þórönnu og börnin. Fyrir tveimur árum greindist Gylfi með krabbamein í briskirtli. Við tók ströng meðferð sem ég veit var hon- um erfið. Fjölskyldan sýndi einstak- an styrk og studdi hann á allan hátt. Sjálfum sér samkvæmur hafði hann dauðveikur mestar áhyggjur af því hvernig Þórönnu liði. Hann barðist æðrulaus við örþreyttan líkamann þar til yfir lauk og kvaddi að lokum heima á Hlíðarveginum með sína nánustu hjá sér. Kæru Þóranna, Gerdur, Sigga og Gylfi, orð mega sín lítils en megi minningin um einstak- an mann milda sorgina og sefa sökn- uðinn. Helga Guðmundsdóttir. Kveðja frá Rótarýklúbbi Kópavogs Félagi okkar og vinur, Gylfi Grön- dal rithöfundur, er látinn langt um aldur fram eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Gylfi var ein- lægur rótarýfélagi og tók virkan þátt í störfum og stefnumálum hreyfing- arinnar. Hann gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir Rótarýklúbb Kópavogs, síðast sem forseti starfs- árið 2005–2006. Til hans var oft leitað þegar semja þurfti eða ganga frá texta í bundnu eða óbundnu máli við hátíðleg tækifæri í klúbbnum okkar. Gylfi var þjóðþekktur fyrir ritstörf sín og hlaut margar viðurkenningar. Hér skal aðeins fátt eitt nefnt sem tengist Kópavogi. Hann var útnefnd- ur heiðurslistamaður Kópavogs, Eldhugi Kópavogs og hlaut Steininn, viðurkenningu Ritlistarhóps Kópa- vogs. Hvers vegna var ég ekki ákafari í aðdáun minni og yndi á meðan þess naut við? (Eitt vor enn?) Þannig spurði Gylfi í orðastað allra þeirra sem skynja til fullnustu hvað lífið er dýrmætt. Ljóðabókin „Eitt vor enn?“ er í senn óður hans til lífsins og hinsta kveðja þessa góða og hrifnæma drengs. Þar eru strengir hörpunnar slegnir af því ljóðræna listfengi sem Gylfi átti í svo ríkum mæli og tónninn er bæði einlægur og sannur. Einmitt þannig birtist Gylfi okkur félögunum, heilsteyptur og hlýr og ákaflega háttvís. Það var mannbætandi að vera nálægt honum og skemmtilegt að heyra þegar hann miðlaði okkur af þekkingu sinni á listinni og kynnum sínum af eftir- minnilegu og litríku fólki. Allt var það borið fram af sjóði hjartans af næmi og mannskilningi. Og yljað hlýrri og græskulausri kímni. Hugur okkar og hluttekning er hjá Þórönnu konunni í lífi hans og fjölskyldunni allri. Megi minningin um góðan dreng efla þau og styrkja og trúin sem hann sjálfur vitnar um varða leiðina framundan. Við byggjum allt á bjarginu sem opnaði gröf Krists Án upprisu: engin trú án trúar: ekkert líf. (Eitt vor enn?) F.h. Rótarýklúbbs Kópavogs Þórir Ólafsson, forseti. Kveðja frá Ritlistarhópi Kópavogs Gylfi Gröndal var frá upphafi virk- ur félagi okkar í Ritlistarhópi Kópa- vogs. Hann las úr bókum sínum, bæði ljóðabókum og ævisögum á upplestrarsamkomum hópsins. Hann kunni að flytja ljóð með sinni hljómmiklu rödd svo unun var á að hlýða. Það var ævinlega fagnaðarefni þegar von var á nýrri ljóðabók frá honum. Gylfi átti ljóð í öllum útgáfu- bókum Ritlistarhópsins. Í þeirri síð- ustu, Sköpun, sem kom út árið 2001 var ljóðið Griðland birtu, við málverk Elíasar B. Halldórssonar: Vertu mér hugur nýi dagur með glaða sól við ægi greiðan veg og gítarhljóma sem streyma um æðar mínar gleymdu mér ekki griðland birtu morgunljósa tíð á milli stríða hjá himinvatni er værðin sterk og blíð. Fyrir tæpu ári, í desember 2005, var Gylfa afhentur Steinninn, sem er heiðursvottur Ritlistarhóps Kópa- vogs og er það til marks um hug fé- laganna til hans, sem persónu og skálds. Við þá athöfn var kynnt nýj- asta ljóðabókin hans, Eitt vor enn? Ritlistarhópur Kópavogs þakkar góða viðkynningu og gott samstarf og sendir fjölskyldu Gylfa innilegar sam- úðarkveðjur. Við fráfall Gylfa Gröndal kom mér fyrst í hug að þrátt fyrir langt og náið samstarf minnist ég þess ekki að okk- ur hafi nokkru sinni orðið sundur- orða. Við vorum samstarfsmenn hjá Fræðsludeild Sambands íslenskra samvinnufélaga um margra ára skeið og unnum mikið og náið saman. Á þessum árum var oft hart sótt að Sambandinu og samvinnuhreyfing- unni, og störf okkar beggja fólust meðal annars í því að mæta þeim áróðri. Vissulega gat manni hitnað í hamsi í hita baráttunnar, og skemmti- leg var hún oft á tíðum, því er síst að leyna. En Gylfi var þeirrar náttúru að hann skipti aldrei skapi, og hann var prúðmenni alveg fram í fingurgóm- ana. Sjálfsstjórn hans var slík að í til- finningar hans var ekki hægt að ráða. Hann var lipur og laginn í samskipt- um og lagði sig fram um að leysa úr málum án átaka. Hann tók við tímaritinu Samvinn- unni á erfiðum tímamótum, þegar eld- móðurinn í kringum stofnun kaup- félaganna var kannski dálítið farinn að dvína og hugsjónirnar ekki alveg eins brennandi og í byrjun. En í hönd- um hans var Samvinnan gott tímarit. Þar skipti máli að ritstjórinn var traustur blaðamaður og efnið, sem hann valdi, var bæði þaulunnið og í alla staði vandað. Þar var ekki unnið með margumtöluðum hraða samtíma- fjölmiðlunar, heldur af yfirvegaðri kunnáttusemi og fagmennsku hins þrautreynda blaðamanns. Og máski réð þar líka úrslitum að Gylfi var ástríðufullur unnandi ís- lenskrar tungu. Hann var ekki bara góður ritstjóri og höfundur margra frábærra bóka í lausu máli, heldur einnig mjög gott ljóðskáld. Í ljóðabók- um hans birtist lesandanum ekki síst takmarkalaus metnaður hans fyrir hönd móðurmálsins. Ég er svo lán- samur að á samstarfsárum okkar færði hann mér gjarnan að gjöf árituð eintök af nýútkomnum bókum sínum. Þær eru meðal helstu dýrgripa á heimili mínu. Eysteinn Sigurðsson.  Fleiri minningargreinar um Gylfa Gröndal bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höf- undar eru: Kjartan P. Kjartansson, Tryggvi V. Líndal og Kristjón Kol- beins. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, langafi og langalangafi, ANDRÉS MAGNÚSSON, Kleppsvegi 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudag- inn 10. nóvember kl. 11 fyrir hádegi. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Svava Jónsdóttir, Jóna Andrésdóttir, Sigurður Ingi Ingólfsson, Edda Andrésdóttir, Stefán Ólafsson, Gunnar Andrésson, Margrét Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. ✝ Elskulegur frændi okkar, KÁRI KÁRASON, til heimilis á Dalbæ, Dalvík, verður jarðsunginn frá Stærri-Árskógskirkju laugar- daginn 11. nóvember kl. 14:00. Aðstandendur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR, sem lést þriðjudaginn 31. október, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 10. nóv- ember kl. 13.00. Anna Jóna Óskarsdóttir, Þórir Þorsteinsson, Auður Inga Óskarsdóttir Hansen, Bent V. Hansen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, JÓSEFÍNA ARNDÍS ÓSKARSDÓTTIR HORNBACH (Dísa), lést á heimili sínu í San Francisco fimmtudaginn 2. nóvember. Systkini og aðrir aðstandendur hinnar látnu. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ERLA GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR, áður til heimilis á Ásvegi 21, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30. Antonía Lýðsdóttir, Sigurður Hermannsson, Elín Margrét Lýðsdóttir, Atli Sturluson, barnabörn og langömmubarn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og tengdadóttir, MARÓLÍNA ARNHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR, (Malla), lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi mánu- daginn 6. nóvember. Bogi Sigurðsson, Sigurður Bogason, Hanna Guðrún Sigurjónsdóttir, Magnús Bogason, Bogi Arnar Sigurðarson, Sigurjón Andri Sigurðarson, Þóranna Vigdís Sigurðardóttir, Arnheiður B. Magnúsdóttir, Elín Sigurðardóttir, Sigurður B. Sigurðsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, RÓBERT LÁRUSSON, Hólmgarði 25, lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 6. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Dóróthea S. Róbertsdóttir, Sverrir Jensson, Jónína Róbertsdóttir, Benedikt Guðbrandsson, Lárus Róbertsson, Harpa Karlsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ANNA SIGURLAUG GUÐMANNSDÓTTIR, Sunnubraut 2, Blönduósi, lést sunnudaginn 29. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Katrín Líndal, Jakob J. Jónsson, Guðmann Jónasson, barnabörn og langömmubörn, Valdimar Guðmannsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.