Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 39
Atvinnuauglýsingar
Grunnskólinn á Hellu auglýsir!
Kennarar
Forfallakennara vantar til starfa við Grunnskól-
ann á Hellu.
Helstu kennslugreinar: Öll almenn kennsla m.a.
íslenska, stærðfræði og enska.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um skólann má nálgast á heima-
síðu skólans http://hella.ismennt.is
Vinsamlegast hafið samband við undirritaða
og fáið upplýsingar um kjör og aðstöðu.
Sigurgeir Guðmundsson skólastjóri í símum
487 5441/894 8422,
Steinar Tómasson aðstoðarskólastjóri í símum
487 5442/845 5893.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Tangarhöfði
– hagstæð leiga
Glæsilegt 200 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
til leigu. Skiptist í rúmgott anddyri, 7 herbergi
með parketgólfi, fundar- og eldhúsaðstöðu,
geymslu og snyrtingu.
Uppl. í símum 562 6633 og 693 4161.
Til sölu
Hringstigi
til sölu
Tilboð óskast í þennan
sérsmíðaða hringstiga
til flutnings. Stiginn nær
þremur hæðum, ca 7 m
hæð og radíus ca 2,2 m.
Nánari upplýsingar
veitir Aron í s. 861 3889.
Tilboð/Útboð
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Kjalarnes, aðfærsla að
Melavöllum
Verkið felst í lagningu 4,5 km stofnlagnar hitaveitu og
vatnsveitu frá Grundarfirði á Kjalarnesi að Melavöllum.
Helstu magntölur eru:
Skurðlengd 4.500 m
Hitaveitulagnir 4.410 m
Kaldavatnslagnir 4.170 m
Verkinu skal lokið fyrir 1. maí 2007.
Útboðsgögn verða seld frá og með þriðjudeginum 7.
nóvember, hjá þjónustufulltrúum á 1. hæð í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík.
Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Tilboð verða opnuð á sama stað, í fundarsal á 3.hæð,
vesturhúsi, miðvikudaginn 15. nóvember 2006 kl. 11:00.
OR 2006/53
Útboð
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 7000
www.or.is/utbodTilkynningar
Sveinspróf í bíliðngreinum
Umsóknarfrestur vegna þátttöku í sveinsprófi
2. febrúar 2007 í bifvélavirkjun rennur út þann
8. desember nk.
Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.
Umsóknareyðublöð fást hjá Fræðslumiðstöð
bílgreina hf., Gylfaflöt 19, Reykjavík.
Jafnframt ber að skila umsóknum ásamt fylgi-
gögnum þangað og greiða tilskilin gjöld í síð-
asta lagi 8. desember nk.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 586 1050.
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um nýtt deili-
skipulag og breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með
auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi og tillaga að
breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík.
Reitir 1.116 og 1.115.3, Slippa- og
Ellingsenreitur.
Með vísan til úrskurðar þar sem deiliskipulag
Ellingsensreits var fellt úr gildi hefur nú verið unnin
ný tillaga sem afmarkast af nýrri Mýrargötu til suð-
urs, Grandagarði til vesturs, hafnarbakka til norðurs
og Tryggvagötu til austurs, þar sem Ellingsenreitur
og Slippareitur hafa verið sameinaðir í einn reit,
Slippa- og Ellingsenreit.
Deiliskipulagið er unnið í samræmi við forsendur
og markmið rammaskipulags fyrir Mýrargötu og
Slippasvæði. Gert er ráð fyrir að nýbyggingar
verði almennt fjórar hæðir með eða án kjallara.
Þó eru hærri hús vestast á reitnum á lóðunum
Grandagarði 2 (Ellingsen) og Mýrargötu 26, en þau
geta orðið allt að sjö hæðir auk bílgeymslum í kjall-
ara. Bílageymslur eru fyrirhugaðar undir íbúðarhús-
um og görðum þeirra, þær eru allar á lóðum og í
einkaeign. Ekki er gert ráð fyrir íbúðarbyggingum á
byggingarreitum meðfram sjó og ekki verður heim-
ilt að koma fyrir íbúðum á efri hæðum bygginga á
hafnarsvæðum.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Reitur 1.140.4, Landsímareitur.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.140.4,
Landsímareit sem afmarkast af Thorvaldsensstræti,
Vallarstræti, Aðalstræti og Kirkjustræti.
Breytingin felst í því að hækka þakkant Aðalstrætis
11 um 1,2 metra og að leyft verði að setja lyftu
á sunnanverða bygginguna með anddyri á fyrstu
hæð. Heildarstækkun verður um 10,5 m².
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 8. nóv. til og með 20. desember 2006. Einnig
má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfull-
trúa) eigi síðar en 20. desember 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 8. nóv. 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
I.O.O.F. 9187110881/2 I.O.O.F. 18 1871188 9.O*
I.O.O.F. 7 1871187½ II.*
GLITNIR 6006110819 I
HELGAFELL 6006110819 VI
Njörður 6006110819 III
Fjárfestar
einstakt tækifæri
Leita að fjárfestum sem áhuga hafa á að koma
sem hluthafar í nýtt arðbært félag í ferða-
mannaþjónustu hér á landi og erlendis. Gæti
orðið mjög spennandi og skemmtilegur rekstur
ásamt góðum atvinnumöguleika.
Þuríður Halldórsdóttir hdl.,
löggiltur fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali.
S. 551 7280 thuridurkh@islandia.is
Ýmislegt
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
UNDIRRITAÐIR forystumenn í
stjórnmálum ungs fólks lýsa von-
brigðum með þá ákvörðun nokkurra
forystumanna í Frjálslynda flokkn-
um að ala á trúarbragðafordómum
og tortryggni í garð útlendinga í til-
raunum sínum til að auka fylgi flokks
síns, segir í yfirlýsingu sem Morg-
unblaðinu hefur borist.
„Þannig popúlískur málflutningur
er meiðandi gagnvart hópi Íslend-
inga og stuðlar að sundrungu í sam-
félaginu. Popúlismi sem þessi marg-
faldar hættuna á því að þau meintu
vandamál, sem Magnús Þór Haf-
steinsson og Jón Magnússon sjá fyr-
ir sér, verði að veruleika í íslensku
samfélagi. Mikilvægi þess að spyrna
fótum gegn þessum málflutningi
verður því ekki ofmælt.
Ofsinn og orðfærið sem einkennir
málflutning Magnúsar Þórs og Jóns
er bersýnilega til þess eins ætlaður
að kalla fram ótta og reiði í hugum
kjósenda. Nægir þar að nefna fjar-
stæðukenndan hræðsluáróður Jóns
Magnússonar í viðtali í Silfri Egils á
sunnudag og málflutningur Magnús-
ar Þórs Hafsteinssonar að verið sé
að „kaffæra íslensku þjóðina“ í
frjálsu flæði vinnuafls. Þessi mál-
flutningur er ekki yfirvegaður, ekki
öfgalaus og ekki byggður á rökum.
Þau álitamál sem snúa að þjóðinni
varðandi aukinn áhuga útlendinga til
að starfa á Íslandi, og sívaxandi
fjölda fólks sem ákveður að ganga
inn í íslenskt samfélag, eiga ekkert
skylt við þær rakalausu upphrópanir
sem Magnús Þór og Jón hafa uppi. Í
stað þess að stuðla að klofningi milli
Íslendinga af ólíkum uppruna ber
stjórnmálaflokkum, og öðrum þátt-
takendum í stefnumótun, að stuðla
að því að hér þróist áfram samfélag
þar sem fólk er boðið velkomið, en sé
ekki hafnað á grundvelli pólitísks po-
púlisma, hræðsluáróðurs eða for-
dóma. Þess vegna er mikilvægt að
stjórnmálaflokkar haldi áfram að
byggja stefnu sína í málefnum inn-
flytjenda á því skynsamlega sjónar-
miði að hér á landi geti menn lært og
starfað, þrifist og dafnað, óháð því
hver sé þeirra uppruni.
Agnar Freyr Helgason, ritstjóri
Veftritsins,
Andri Heiðar Kristinsson, for-
maður Vöku,
Ásgeir Runólfsson, framkvæmda-
stjóri stúdentaráðs Háskóla Íslands,
Auður Lilja Erlingsdóttur, for-
maður Ungra vinstri grænna,
Borgar Þór Einarsson, formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna,
Drífa Kristín Sigurðardóttir, rit-
stjóri Deiglunnar,
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður
Heimdallar,
Eva María Hilmarsdóttir, formað-
ur Röskvu,
Friðbjörn Orri Ketilsson, formað-
ur Frjálshyggjufélagsins,
Helga Tryggvadóttir, ritstjóri
Veftritsins,
Jakob Hrafnsson, formaður Sam-
bands ungra framsóknarmanna,
Magnús Már Guðmundsson, for-
maður Ungra jafnaðarmanna,
Sigurður Örn Hilmarsson, oddviti
Vöku í stúdentaráði Háskóla Ís-
lands,
Þórlindur Kjartansson, ritsjóri
Deiglunnar.“
Yfirlýsing forystumanna ungs fólks í
stjórnmálum um umræðu um innflytjendur
UMHVERFIS- og ferðamálanefnd
Kjósarhrepps lýsir yfir undrun sinni
á ítrekuðum fréttaflutningi af fyrir-
huguðum verksmiðjubyggingum á
Grundartanga í Hvalfirði.
Mótmælir nefndin fyrirhuguðum
framkvæmdum og hvetur fólk, á
þessu svæði sem og annars staðar, til
að taka höndum saman og stöðva
þessa slæmu þróun. Þetta kemur
fram í ályktun sem nefndin sam-
þykkti á fundi sínum nýverið.
„Með því að gera einn fallegasta
fjörð landsins að allsherjar iðnaðar-
svæði er verið að taka óþarfa áhættu
á röskun dýralífs, flóru og mannlífs á
svæðinu,“ segir í ályktuninni.
Mótmæla
fyrirhug-
uðum fram-
kvæmdum