Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sun 12/11 kl. 14 Sun 19/11 kl. 14
Sun 26/11 kl. 14 Sun 3/12 kl. 14
Fim 9/11 kl. 20 Fös 10/11 kl. 20 UPPS.
Fim 16/11 kl. 20 Sun 26/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 20 UPPS. Fös 17/11 kl. 20
Fös 24/11 kl. 20 Lau 2/12 kl. 20
Fim 9/11 kl. 20UPPS. Fim 16/11 kl. 20 UPPS.
Fim 23/11 kl. 20 Sun 3/12 kl. 20
Sun 3/12 kl. 20 Fös 8/12 kl. 20
Fös 10/11 kl. 20 Sun 19/11 kl. 20
Síðustu sýningar.
Lau 11/11 kl. 14 Frumsýning
Lau 18/11 kl. 14 Lau 25/11 kl. 20
Frítt fyrir 12 ára og yngri
JÓLALEIKRITIÐ
RÉTTA LEIÐIN
Mið 22/11 kl. 18 og 20 Frumsýning UPPS.
Lau 11/11 kl. 20 Sun 12/11 kl. 20
Fös 17/11 kl. 20 Lau 18/11 kl. 20
SAKAMÁL Á SVIÐ
Leiklestrar á 3ju hæðinni.
Sun 12/11, 19/11, 26/11 kl. 20
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
Sun 12/11 kl. 20 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20 Lau 25/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 17 Miðaverð 1.000
WATCH MY BACK
Fös 10/11, sun 19/11, sun 26/11
kl. 20:10 Miðaverð 1.000
LEIKHÚSSPJALL
Aðstandendur Amadeus spjalla um
leiðina frá höfundi til áhorfenda.
Fim 9/11 kl. 20 í Kringlusafni.
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
www.leikfelag.is
4 600 200
Herra Kolbert
Fim 9. nóv kl. 20 örfá sæti – 6. kortasýn
Fös 10. nóv kl. 19 UPPSELT - 7. kortasýn
Umræður að lokinni sýningu. Allir velkomnir
Lau 11. nóv kl. 19 UPPSELT - 8. kortasýn
Fim 16. nóv kl.20 örfá sæti - 9.kortasýn
Fös 17. nóv kl.19 örfá sæti - 10.kortasýn
Lau 18. nóv kl. 19 UPPSELT
Næstu sýn: 23/11, 24/11, 25/11, 1/12. Ekki við hæfi barna.
Einungis sýnt í nóv og des! – Tryggðu þér miða núna
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 12.nóv kl. 14 UPPSELT
Sun 12. nóv kl. 15
Sun 19.nóv kl. 14 og 15 örfá sæti laus
Næstu sýn: 25/11, 2/12, 9/12, 16/12. Sýnt í nóv og des.
Ath styttri sýningartími – lækkað miðaverð
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumsýning 18. nóvember kl. 20 - 2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR
STRENGJALEIKHÚSIÐ
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
ARÍUR UM ÁSTINA - HÁDEGISTÓNLEIKAR ÞRIÐJUD. 14. NÓV. KL.12.15
Jónas Guðmundsson, tenór, og Kurt Kopecky, píanó, flytja rússneskar og ítalskar aríur í hádeginu
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Miðvikudaginn 8. nóvember kl. 20.30
Einsöngstónleikar
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir syngur
Francisco Javier Jáuregui og
Marteinn H. Friðriksson
leika á gítar og orgel
Miðasala virka
daga frá kl.11-16
og 2klst. fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl.20
Sýnt í Iðnó
Fim. Upps. 09.11
Fös. 10.11
Lau. Örfá 11.10
Lau. Örfá 18.11
Sun. Upps. 19.11
Fim. Aukas. 23.11
Fös. 24.11
Lau. 25.11
ÞAÐ eru í sjálfu sér engin tíðindi, að
haldnir séu tónleikar með verkum
eftir Schumann. Það sem var hins
vegar athyglisvert við tónleika í
Kammermúsíkklúbbnum þetta kvöld
var að öll þrjú verkin eftir róm-
antíkerinn mikla voru samin á einu
ári. Það sem merkilegast var að
heyra, var hve verkin eru mismun-
andi, jafnvel ólík, þótt öll séu af svip-
uðum toga, og í hve mikilli tilrauna-
starfsemi Schumann var þetta ár,
1842.
Schumann var afburða píanisti, og
þegar hér var komið sögu, hafði hann
samið verk sem sem enn í dag teljast
til höfuðverka píanóbókmenntanna.
Kammermúsíkinni hafði hann varla
snert við svo heitið gæti, en reynt sig
í skamman tíma við hljómsveita-
músík. Að baki voru kvartettar
Beethovens og önnur kammerverk
hans, Mozarts og Haydns, og kannski
ekki að undra að Schumann hafi legið
í kammerverkum þessara meistara
til að átta sig á því hvað það var sem
gæddi þau ýmist gleði eða dýpt sem
hóf þetta unga form tónlistarinnar í
æðra veldi.
Rætur Schumanns í píanóinu eru
auðheyranlegar í „Fantasiestücke“,
sem var fyrsta verkið á efnisskránni.
Sem kammerverk er það líka óburðu-
gast, og nánast eins og píanóverk þar
sem fiðlan og sellóið eru eins og
óþroskaðar fylgiraddir, nema í þriðja
þættinum, þar sem strengjahljóð-
færin fá loks langþráðan byr og svig-
rúm fyrir stórbrotnu píanóhlutverki
verksins.
Strengjakvartett nr. 3 í A-dúr, er
hins vegar fullskapað snilldarverk,
þar sem hljóðfærunum er teflt saman
á jafnréttisgrundvelli, ekkert píanist-
ískt valdabrölt. Í Píanókvartetti í Es,
ópus 47 sem leikinn var eftir hlé, er
hlutverk píanósins líka mjög stórt,
eins og í fyrsta verkinu, en þar er það
þó svo miklu betur samtvinnað heild-
inni. Þennan kvartett hef ég ekki oft
heyrt á tónleikum, en það rifjaðist
upp fyrir mér hvað hann er djúpur og
hrífandi, með sterkar andstæður í dí-
sætum melódíum, eins og í þriðja
þættinum.
Hópurinn sem
lék á tónleikunum
hefur ekkert nafn,
og hefur að því er
ég best veit ekki
gefið sig út fyrir að
vera samæfandi
hópur. Sif Tulinius
var fyrsta fiðla,
Elfa Rún Kristins-
dóttir önnur; Þór-
unn Ósk Marinós-
dóttir lék á víólu og
Sigurgeir Agnars-
son á selló. Píanó-
leikari í klúbbnum
þetta kvöld var
Edda Erlendsdóttir. Það var engin
sundurgerð í spilamennskunni þótt
hópurinn væri svona lausbeislaður og
þaðan af síður nokkurt óöryggi.
Þvert á móti bar spilamennskan fal-
legt og heildstætt svipmót. Edda Er-
lendsdóttir hafði í nógu að snúast, en
hún er þrautreyndur píanóleikari og
hafði þetta allt í hendi sér. Sif Tul-
inius er frábær leiðari og öll hafa
strengjaleikararnir margsýnt að þau
eru hörku spilarar; músíkölsk og
næm.
Dúó Sifjar og Sigurgeirs í þriðja
þætti „Fantasiestücke“ á móti píanó-
inu var hreinn unaður, og enn hærra
flugu þau í cantabile þættinum í
píanókvartettinum. Það var áhrifa-
ríkt hvað hljóðfæraleikararnir voru
óragir við grófan tón í öðrum þætti
strengjakvartettsins, sem þau bók-
staflega rifu í sig án þeirra tilgerð-
arlegu fegrunarmeðala sem margir
kvartettar beita í þessu verki, þrátt
fyrir fyrirmæli tónskáldsins um æsi-
legan leik. Toppurinn var þó að mínu
mati skertsóþáttur píanókvartetts-
ins, sem hafði ógnardrif og kraft sem
þær Sif og Edda keyrðu áfram.
Þarna var semsagt leikið á allt litróf
blæbrigða og tilfinninga, og útkoman
steinlá; þetta voru afbragðs tónleikar.
Ár í lífi Schumanns
Bergþóra Jónsdóttir
TÓNLIST
Bústaðakirkja
Edda Erlendsdóttir, Sif Tulinius, Elfa
Björk Kristinsdóttir, Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir og Sigurgeir Agnarsson léku
verk eftir Robert Schumann. Sunnudag-
inn 29. október kl. 20.
Kammertónleikar
Kammertónleikar „Það var engin sundurgerð í spila-
mennskunni þótt hópurinn væri svona lausbeislaður
og þaðan af síður nokkurt óöryggi. Þvert á móti bar
spilamennskan fallegt og heildstætt svipmót.“
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Í dag hefst tón-leikaröð Egils
Ólafssonar í til-
efni af útgáfu
nýrrar geisla-
plötu hans,
Miskun dalfiska.
Þá kemur Egill
fram ásamt
fylgdarliði í
Landnámssetrinu í Borgarnesi, en á
morgun er ferðinni heitið til Akur-
eyrar þar sem Egill leikur fyrir gesti
Græna hattsins. Í Reykjavík verða
svo tónleikar á hinum nýja stað
Domo í Þingholtsstræti á föstudag-
inn og lokatónleikarnir verða á Nasa
laugardaginn 11. nóvember. Allir
viðburðirnir hefjast klukkan 21.
Fólk folk@mbl.is