Morgunblaðið - 08.11.2006, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 45
dægradvöl
1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rc3 Rf6 4. Rf3 c6
5. e3 Be7 6. Dc2 Rbd7 7. b3 Dc7 8.
Bd3 h6 9. O-O O-O 10. Bb2 b6 11.
Re5 Rxe5 12. dxe5 Rg4 13. h3 Rxe5
14. Bh7+ Kh8 15. cxd5 Ba6 16. Hfd1
f5 17. dxe6 Kxh7 18. Rd5 Db7 19.
Rxe7 Dxe7 20. Bxe5 Dxe6 21. Dc3 c5
22. Bxg7 Hf7 23. Be5 Hd7 24.
Hxd7+ Dxd7 25. Dc2 Hd8 26. Bf6
Dd3 27. Db2 Hd7 28. De5 De4 29. f3
Dd3 30. Kh2 Kg6 31. Be7 Dd5 32.
Df6+ Kh7
Staðan kom upp í fyrri hluta Flug-
félagsdeildar Íslandsmóts skákfélaga
sem fór fram fyrir skömmu í
Menntaskólanum í Hamrahlíð. Sigur-
björn Björnsson (2335) hafði hvítt
gegn Ríkharði Sveinssyni (2180). 33.
Hd1! og svartur gafst upp enda verð-
ur hann mát eftir t.d. 33... Bd3 34.
Hxd3 Dxd3 35. Df7+ Kh8 36. Bf6#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Ekki orð.
Norður
♠Á9
♥854
♦Á2
♣ÁKDG103
Vestur Austur
♠G852 ♠--
♥Á1096 ♥KDG732
♦94 ♦DG10
♣972 ♣8654
Suður
♠KD107643
♥--
♦K87653
♣--
Eitt þekktasta hamfaraspil sög-
unnar kom upp á EM 1956 í leik Ítala
og Frakka. Austur vakti á einu hjarta
og Ítalinn Forquet stökk í fjóra spaða
með 7-6 skiptinguna í suður. Siniscalco
í norður spurði um ása með 4G, en For-
quet mætti því með eðlilegu stökki í
sex tígla, frekar en að neita ás. Sinis-
calco breytti í sex spaða og Forquet
lyfti í sjö. Þetta eru skrýtnar sagnir og
Frakkinn Trézel í vestur hélt að NS
hefðu farið út af sporinu og doblaði.
Eftir doblið er freistandi að svína fyrir
spaðagosann fjórða í vestur, en For-
quet fékk ekki tækifæri til þess, því
Siniscalco breytti í 7G! Það var doblað
og vörnin tók sex fyrstu slagina. Til
þess var tekið að Ítalarnir sögðu ekki
orð eftir spilið, heldur tóku sallarólegir
til við næsta spil og kolunnu leikinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 skortir nær-
ingu, 8 faðir, 9 mastur,
10 kvendýr, 11 böggla,
13 ákveð, 15 flaug,
18 svera, 21 sund, 22 kút,
23 trylltir, 24 getuleysi.
Lóðrétt | 2 aðhlynning,
3 hafna, 4 knáa, 5 ótti,
6 fita, 7 vegg, 12 þreyta,
14 eignist, 15 vers,
16 ráfa, 17 skessum,
18 glæsileg, 19 látnu,
20 forar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hopar, 4 búkur, 7 renni, 8 rokið, 9 fót, 11 naut,
13 iðna, 14 ódæll, 15 barm, 17 lugt, 20 hal, 22 teppa,
23 ormur, 24 runni, 25 tolla.
Lóðrétt: 1 hóran, 2 pontu, 3 reif, 4 burt, 5 kákið, 6 riðla,
10 ófæra, 12 tóm, 13 ill, 15 bátur, 16 ræpan, 18 urmul,
19 torfa, 20 hani, 21 lost.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 Óprúttnir menn freistuðu þessað ræna heimabanka og flytja
fjármuni til útlanda. Hvert höfðu pen-
ingarnir verið fluttir þegar tókst að
frysta þá og ná til baka?
2 Náttúrufræðistofnun varð fyrirmiklu tjóni þegar 2000 sýnum
var fargað að henni forspurðri. Hver
er forstjóri stofnunarinnar?
3 Davíð Á. Gunnarsson sóttist eftirforstjórastöðu erlendis en fékk
ekki fylgi. Hjá hvaða stofnun?
4Minnast á 100 ára afmælismerks formanns Framsóknar-
flokksins með málþingi á sunnudag.
Hver var hann?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Hvað heitir skákfélagið sem Hrafn
Jökulsson tefldi fyrir í skákmaraþoni um
helgina? Svar: Hrókurinn. 2. Sigurvegar-
inn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suð-
vesturkjördæmi bar sigurorð af tveimur
þingkonum. Hvað heitir hann? Svar: Gunn-
ar Svavarsson. 3. Einn virtasti kvikmynda-
leikstjóri heims vinnur að heimildarmynd
um Rolling Stones. Hver er hann? Svar:
Martin Scorsese. 4. Einn frægasti hlaup-
ari allra tíma er nú formaður fram-
kvæmdanefndar Ólympíuleikanna í Lond-
on 2012. Hvað heitir hann? Svar:
Sebastian Coe.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
HÓPUR innrásarlistamanna sem hafa haft
bækistöðvar í Kling og Bang galleríi sam-
anstendur af átta listamönnum sem búa og
starfa í New York. Þau eru Agathe Snow,
Michael Jurewicz, Theodore Fivel, Rita
Ackerman, Michael Portnoy, David Adamo,
Marianne Vitale og Hrafnhildur Arnardóttir,
öðru nafni Shoplifter, sem er leiðtogi sýning-
arinnar og stýrir henni frá New York.
Hugmyndin um innrás listarinnar er
skemmtilegt mótvægi við hugmyndinni um
útrás íslenskra listamanna og beinir athygl-
inni að þeirri staðreynd að listir og menning
eru bæði hernaðarlega og peningalega tengd.
Yfirbragð sýningarinnar er hrátt og subbu-
legt og vísar til undirheima listarinnar og
mýtunnar um listamanninn sem utangarðs-
mann, jafnvel hryðjuverkamann. Viðburður-
inn nær langt út fyrir rými gallerísins þar
sem gjörningar hverskonar spila stóran þátt í
heildinni. Innrásargjörningar sem túlka
„árásir“ á pólitíska, táknræna og landfræði-
lega mikilvæga staði á landinu eru áberandi
og á sýningunni sem stendur uppi í galleríinu
má sjá verk sem sum eru minningar eða leif-
ar atburða sem áttu sér stað fyrr á sýningar-
tímabilinu, litlar innsetningar sem verða eins
og sögulegar minjar innrásarinnar.
Útvarpsupptökur frá opnuninni eru spil-
aðar á þeim stað sem útvarpað var frá „inn-
rásinni“, stóla og fundarborð má sjá í eins-
konar aðgerðaherbergi þar sem tölvutengd
táknmynd Hrafnhildar á miðjum vegg vitnar
um hvernig aðgerðinni var stjórnað frá
Bandaríkjunum í gegn um beintengda rás. Í
texta um sýninguna á vefsíðu gallerísins segir
að hópurinn starfi sem nokkurskonar sér-
trúarsamtök þar sem hver og einn (listamað-
ur) kynnir sín einstöku máttaröfl í gegn um
gjörninga, tónlist, herkvaðningu, málamiðl-
anir, sérleiðangra og trúboð. Vissulega má
lesa ákveðna kaldhæðni úr þessum texta og
ómögulegt að vita hvort og hvernig lista-
mennirnir standa með boðun sinni og verk-
um. Boðskapurinn er ekki bara merktur
ákveðnum óhugnaði, dimmum öflum, klámi
og ljótleika sem mögulega mætti túlka sem
gagnrýni á samfélagið, heldur má einnig
skynja mikla leikgleði og skemmtun sem
listamennirnir tjá í verkunum. Þetta gerir
það að verkum að erfitt er að sjá hvort hér sé
samfélagsgagnrýni á ferðinni eða upphafn-
ingu og fagurgervingu á hverskonar trúar-
legum, þjóðernislegum og kynferðislegum
helgibrotum.
Þegar myndbandi sem sýnir Mikael
Portnoy girnast og serða stóran plastkakka-
lakka er lokið tekur við annað leikið mynd-
band sem sýnir listamennina í tuskudýrabún-
ingum að smala íslenskum börnum burt úr
borginni. Bæði þessi atriði vísa til einhvers
íslensks raunveruleika, kakkalakkanna sem
bandaríski herinn á að hafa skilið eftir í land-
inu og gamalt skjal frá seinni heimstyrjöld-
inni sem kveður á um að fjarlægja eða forða
skuli börnum úr borginni ef til innrásar
kæmi. Þessi myndbönd ásamt gjörningi þar
sem kirkjur og skjaldarmerki þjóðarinnar
eru pervertuð vekja andúð um leið og þau
virðast fyndin og þegar upp er staðið bara
gróteskur leikur. Sú menningarlega sam-
svörun sem má þekkja hér á milli hernaðar
og framúrstefnulistar, innrásar og nauðgun-
ar, frelsis og stjórnleysis er áhugaverð á
margan hátt og ætti að gefa tilefni til íhug-
unar og umræðna. Innrás Bandaríkjamanna í
Írak í nafni frelsis gæti verið eitt skotmark
sýningarinnar en um leið setur sýningin sjálf
óhjákvæmilega spurningarmerki við mörk
frelsis í listum.
Á vissan hátt virðist sýningin svoldið
gamaldags, eins og innihaldslaust retró frá
ákveðnum framúrstefnuhreyfingum á síðustu
öld og virkar helst eins og hrekkjavaka fyrir
ímyndaða góðborgara sem láta sér auðvitað
ekkert bregða enda nóg framboð af efni af
þessum toga í dægurmenningunni. Sá óhugn-
anlegi samtímaspegill sem hér er brugðið
upp missir því marks sem sú samfélagslega
gagnrýni sem hann hefði getað tjáð því upp-
hafningin í formi hins óhefta og afstæða
frelsis listarinnar grefur undan gagnrýninni
afstöðu og breytir öllu í karnivalíska skemmt-
un.
Sýningin í Kling og Bang og gjörningarnir
sem henni tengjast voru eitt viðamesta fram-
lagið til Sequences listhátíðarinnar sem hefur
verið áberandi í Reykjavík undanfarnar vik-
ur.
Innrás úr undirheimum New York
MYNDLIST
Kling og Bang
Átta listamenn frá New York.
Sýningin stóð til 5. nóv
INVASIONISTAS – hópur innrásarmanna
Þóra Þórisdóttir