Morgunblaðið - 08.11.2006, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Prúttað við Umhverfisnefnd
Akureyrar
UNDIRRITAÐUR bar lof á um-
hverfisnefnd Akureyrar í Vikudegi
fyrir tveimur vikum vegna þeirrar
afstöðu sem nefndin tók varðandi
skipulag við Kjalarsíðu.
Umhverfisnefnd hafnaði sex hæða
byggingu og bauð tillöguhöfundi að
koma með nýja tillögu að byggingu
sem tæki mið af hæð fjölbýlishúsa í
Kjalarsíðu, sem eru þrjár hæðir með
kjallara og risþaki. Tillöguhöfundur
vill greinilega prútta við umhverf-
isnefndina enda ekki óvanur því.
Tillagan sem liggur nú fyrir hljóð-
ar upp á tvö hús á sömu lóð sem eiga
að vera fjögurra hæða með sléttu
þaki. Vissulega má segja að það sé
bitamunur á þriggja hæða húsi með
risþaki og fjögurra hæða húsi með
flötu þaki en yfirbragð svæðisins við
Kjalarsíðu er með þeim hætti að öll
húsin þar eru með risþaki og því
eðlilegt að ætlast sé til að tillöguhöf-
undur fari nú eftir því sem umhverf-
isnefnd hefur þegar boðið honum og
hætti þessu prútti.
Benedikt Guðmundsson.
Trúir þú á Tóta trúð
SIÐMENNT valdi sér auðvelt skot-
mark þegar samtökin hófu barátt-
una fyrir því að flæma kristni úr
skólunum. Í skólum fer fram við-
kvæmt starf og ekki erfitt að færa
rök fyrir því að þar skuli ekki fara
fram trúboð. En mér er spurn hvar
Siðmennt ber niður næst. Sennilega
má ekki lengur tengja umfjöllun um
jólin og páska kristninni. Frí í tilefni
uppstigningardags og annars í hvíta-
sunnu afnumið. Í staðinn haldið upp
á afmælisdag Tóta trúðs eða Kon-
fúsíusar.
Að segja að það skipti ekki máli
hvort gullna reglan komi frá Jesú
Kristi eða Tóta trúð (sbr. grein í
Morgunblaðinu 4. nóv. sl. ) hlýtur að
særa alla kristna menn. Þetta er
nefnilega ekki spurning um hver
segir hvað fyrst. Hvað segir Sið-
mennt um þjóðsönginn eða þjóðfán-
ann og mér er spurn er trúleysi ekki
trú í sjálfu sér eða er það bara hlut-
leysi? Við vitum hvað gerist ef bíll er
í hlutlausum gír, hann er vissulega í
gangi en kemst hvorki aftur á bak né
áfram.
Jón Guðmundsson.
Dökkbrún leðurbudda týndist
DÖKKBRÚN leðurbudda týndist sl.
fimmtudag, hugsanlega í strætó eða
á Reykjavíkursvæðinu. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma 691 5485.
Grátt Mongoose fjallahjól
hvarf í Kópavogi
GRÁTT Mongoose fjallahjól hvarf
frá húsi í vesturbæ Kópavogs 2. nóv.
sl. Ef einhver hefur orðið þess var
þá vinsamlegast hringið í síma
892 9781 eða 554 4465.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
60 ára af-mæli. Í
dag, 8. nóvem-
ber, er sextug
Elín Þ. Snædal,
félagsráðgjafi.
Hún er að
heiman en langi
einhvern að
gleðja hana þá
er hún að safna
fyrir brunni í Afríku og þiggur með
þökkum stuðning við það. Brunnur
kostar um 120.000 kr. og sér 3–500
manns fyrir hreinu vatni á annan
áratug. Lagt er inn á reikning hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar, nr. 1150-
26-27. Kennitala: 450670 0499, merkt
brunnur. Margt smátt gerir eitt
stórt!
70ára af-mæli. Í
dag, 8. nóvem-
ber, er sjötugur
Eiður Sigurður
Gunnlaugsson,
sjómaður, Garð-
arsbraut 28,
Húsavík. Af því
tilefni tekur
hann á móti
gestum í salnum Miðhvammi Húsavík,
næstkomandi laugardag kl.18.
90ára af-mæli. Í
dag, 8. nóvem-
ber, er 90 ára
Ingólfur Ólafs-
son, vélstjóri, til
heimilis að
Hrafnistu í
Reykjavík.
Hann tekur á
móti gestum í
dag í Skála, Hótel Sögu, kl. 17–19.Umferðarmenningá Íslandi er
óþrjótandi uppspretta
efnis fyrir Víkverja. Að
þessu sinni verður þó
ekki vikið að framferði
íslenskra ökumanna,
heldur undarlegum
frágangi þeirra, sem
sjá um framkvæmdir
við umferðarmann-
virki og viðhald þeirra.
Nú hafa til dæmis svo
dögum skiptir staðið
allmargar keilur úti í
kanti á Hringbrautinni
þar sem ekið er í vest-
urátt fram hjá Um-
ferðarmiðstöðinni og
hún er hvað breiðust. Keilur þessar
eru vitnisburður um framkvæmdir,
sem sennilega stóðu einhvern tím-
ann yfir og ekki er víst hvort sé lokið
eða muni nokkurn tímann ljúka.
Þær gegna kannski sama hlutverki
og jakki, sem skilinn er eftir á snaga
í skrifstofu: eigandinn fór ekki langt,
þurfti bara rétt að skreppa. Þarna
blasir einnig við skilti til merkis um
að vegurinn þrengist. Dögum saman
hefur hins vegar ekki verið nein
þrenging þegar Víkverji hefur átt
leið um frekar en framkvæmdir. Það
er hins vegar spurning hvað gerist
ef framkvæmdir hefjast á ný og veg-
urinn verður þrengdur því að bíl-
stjórar, sem leið eiga um þennan
kafla Hringbrautar-
innar, eru löngu hættir
að taka mark á skiltinu.
Merkingar á fram-
kvæmdum geta verið
með ýmsu móti. Kunn-
ingi Víkverja átti fyrir
einhverjum mánuðum
leið eftir Suðurgötunni
að kvöldlagi í kolniða-
myrkri. Fyrir framan
hann var leigubíll og
fór hvorugur greitt.
Skyndilega kloss-
bremsar leigubílstjór-
inn og tekur á sig
krappan sveig á veg-
inum. Kunningi Vík-
verja gerði slíkt hið
sama, sem var eins gott því að ann-
ars hefði hann farið niður um djúpa
holu í veginum. Og hvernig voru
þessar framkvæmdir merktar? Við
holuna stóð ein keila, grútskítug svo
rétt glitti í hana í endurskini bílljós-
anna. Akstur í Reykjavík getur boð-
ið upp á óvæntar uppákomur. Sumir
ökumenn halda t.d. að þeir gæði um-
ferðina spennu með því að gefa ekki
stefnuljós og láta aðra ökumenn því
bíða í ofvæni eftir að komast að því
hvort þeir hyggist beygja eða ekki.
Öðrum ökumönnum liði hins vegar
betur án slíkrar óvissu og yrðu
þakklátari ef merkingar um fram-
kvæmdir væru til marks um fram-
kvæmdir, en ekki bara til skrauts.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
8. nóvember, 312. dagur
ársins 2006
Orð dagsins : Jesús segir við hann: „Þú trúir, af því
þú hefur séð mig. Sælir eru þeir, sem hafa ekki séð
og trúa þó.“ (Jh. 20.)
Fyrirtækið Mugiboogie ehf.,sem er í eigu Arnar Elíasar
Guðmundssonar, sem í daglegu
tali er nefndur Mugison, hefur
sent Ísafjarðarbæ erindi þar sem
farið er fram á kaup á gömlu
slökkvistöðinni í Hnífsdal sem er í
eigu sveitarfélagsins. Í húsnæðinu
hyggst Mugison koma upp hljóð-
veri.
Ef af kaupum verður þarf að
innrétta húsið frá grunni svo það
nýtist sem fullkomið hljóðver og
er ætlað að þær framkvæmdir
hlaupi á milljónum.
Bæjarráð leggur til við bæj-
arstjórn, að ofangreind eign verði
seld.
Frá þessu er greint á fréttavef
Bæjarins besta á Ísafirði,
www.bb.is.
Hin 74 ára Teri Horton, sem erfyrrverandi vörubílstjóri, datt
mögulega í lukkupottinn þegar hún
keypti málverk í skranbúð sem
henni fannst fyndið. Málverkið hékk
um tíma í hjólhýsi hennar en var svo
sett í geymslu. Hún bauð svo kunn-
ingja sínum, sem er myndlistar-
kennari, verkið til sölu á fimm dali,
tæplega 350 krónur, en hann benti
henni á að verkið væri sennilega eft-
ir listamanninn Jackson Pollock og
gæti verið um 100 milljóna dala
virði.
Peter Paul Biro, listfræðingur í
Montreal segir nú að fingraför á
verkinu séu þau sömu og fundist
hafa á málningardós úr vinnustofu
listamannsins í Austur-Hampton í
New York, og á málverki eftir Pol-
lock í listasafni í Lundúnum.
Reyndar eru ekki allir jafn sann-
færðir. Thomas Hoving, sérfræð-
ingur hjá Alþjóðastofnuninni um
listrannsóknir, segir að málverkið
hafi líklega verið málað fyrir ein-
hvern sem þurft hefur málverk í stíl
við stofuna sína í sólríkum hluta
heimsins.
Biro segist þó fullviss um að verk-
ið sé ósvikið og stendur til að fara
með málið fyrir rétt til að komast að
hinu sanna.
Fólk folk@mbl.is
WWW.HASKOLABIO.ISSTÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS HAGATORGI • S. 530 1919
Varðveit líf mitt fyrir
ógnum óvinarins
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
BESTA MYND MARTINS
SCORSESE TIL ÞESSA
SJÁIÐ EINA BESTU MYND ÁRSINS. BETRI LEIKHÓPUR
HEFUR EKKI SÉST Í KVIKMYND Í LANGAN TÍMA
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
T.V. KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL
eeee
Davíð Örn Jónsson
– Kvikmyndir.com
eeeee
Hallgrímur Helgason
– Kastljósið
eeee
H.S. – Morgunblaðið
eeee
DV
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
MÝRIN kl. 5:50 - 7 - 9 - 10:15 B.i. 12.ára.
THE LAST KISS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12.ára
WORLD TRADE CENTER SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 10:30 B.i. 12.ára
THE QUEEN kl. 8 B.i. 12.ára.
THE DEPARTED kl. 6 - 9 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 8 B.i.12.ára.
AN INCONVENIENT TRUTH SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 6
FRÁ HANDRITSHÖFUNDI
„MILLION DOLLAR BABY“ OG „CRASH“
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN.
the last kiss
Vel gerð og rómantísk með
þeim Zach Braff („Scrubs“,
„Garden State“), Rachel
Bilson („The O.C.“
þættirnir) ofl.
eeee
EMPIRE MAGAZINE