Morgunblaðið - 08.11.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2006 51
Glanni
Solla
Guðrún*
Nenni
Siggi
*fyrir okkur hin
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
33
63
9
11
/0
6
NÝVERIÐ lauk hinum árlega verðlaunaleik
„Skjóttu á úrslitin í Formúlu 1“ á mbl.is. Að
venju var til veglegra verðlauna að vinna og
þátttaka því góð.
Rétt eins og í sjálfum kappakstrinum er þó
aðeins einn sem í lok keppnistímabils stendur
uppi sem sigurvegari og í ár var það Grímur
Lúðvíksson sem reyndist getspakastur og
hlaut hann að launum glæsilega fartölvu frá
Opnum kerfum.
Á myndinni eru frá vinstri Arna María
Gunnarsdóttir frá Opnum kerfum, sigurveg-
arinn Grímur Lúðvíksson, Kristín, dóttir
Gríms, og Jón Agnar Ólason á markaðsdeild
Morgunblaðsins. Morgunblaðið óskar Grími
hjartanlega til hamingju með frammistöðuna
og þakkar um leið öllum þeim fjölmörgu sem
skutu á úrslitin á mbl.is nú í sumar.
Skaut rétt
á úrslitin
Morgunblaðið/Ásdís
Maksim Myaskovskiy, 18 áraRússi, hefur verið handtekinn í
Los Angeles fyrir að hóta að drepa
leikkonuna Hilary Duff. Talið er að
Myaskovskiy hafi setið um Duff og
hótað henni. Vefurinn TMZ.com seg-
ir Myaskovskiy hafa verið handtek-
inn á hóteli eftir að hafa sagt einka-
spæjara frá áformum sínum um að
myrða hina 19 ára gömlu Duff síðast-
liðinn sunnudag.
Duff og unnusti hennar, Joel Mad-
den, hafa óskað eftir því að nálg-
unarbann verði sett á Rússann. Sam-
kvæmt lagaskjölum í málinu kom
Myaskovskiy til Bandaríkjanna í
þeim tilgangi einum að hefja ást-
arsamband við Duff. Það gekk hins
vegar ekki eftir eins og fyrr segir.
Rapparinn Snoop Dogg hefur gef-ið sig fram við lögregluna í
Bandaríkjunum sem hefur ákært
hann fyrir að hafa gert tilraun til
þess að bera árásarvopn inn í flugvél.
Snoop Dogg, sem heitir réttu nafni
Calvin Broadus og er 35 ára gamall,
var stöðvaður þar eð hann var með
kylfu, sem hægt var að fella saman, í
farangri sínum er hann var á leiðinni
inn í flugvél í Kaliforníu þann 27.
september síðstliðinn.
Snoop var leystur úr haldi gegn
greiðslu 150.000 dala (rúmar 10 millj-
ónir kr.) tryggingargjalds eftir að
hann var ákærður.
Rapparinn mun mæta fyrir dóm-
ara þann 12. desember næstkom-
andi.
Hann gæti átt yfir höfði sér
þriggja ára fangelsi.
Snoop sagði við lögreglumennina
þegar hann var handtekinn að um-
rædd kylfa, sem er rúmir 50 cm á
lengd, væri leikmunur úr kvikmynd.
Áhugasamir eiga nú kost á því aðláta nafn sitt koma fram í mynd-
bandi hljómsveitarinnar Westlife.
Aðdáendur sveitarinnar geta
skráð nöfn sín á heimasíðu hennar og
nöfnin dúkka svo upp á boðskortum í
brúðkaup eða í smáskilaboðum til
hljómsveitarmeðlima í myndbandi
við nýjustu smáskífu þeirra „The
Rose“.
Smáskífan er sú tuttugasta sem
Westlife sendir frá sér en af þeim
hafa 13 ratað á topp vinsældalista í
Bretlandi. Sveitin hefur verið ein-
hver vinsælasta strákasveit síðustu
ára og hafa þeir fjórmenningar selt
rúmlega 35 milljónir platna um heim
allan.
Westlife hefur starfað í átta ár en
fyrir tveimur árum sagði fimmti liðs-
maðurinn, Bryan McFadden, skilið
við hljómsveitina.
Fólk folk@mbl.is
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali