Morgunblaðið - 29.12.2006, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MYNDIR af sex plötual-
búmum Bítlanna prýða
frímerki sem verða gefin
út í Bretlandi eftir ára-
mót og verður þetta í
fyrsta sinn sem þessi
frægasta popphljóm-
sveit heims birtist á frí-
merkjum.
Bítlarnir hafa verið í
sviðsljósinu vítt og breitt
um heiminn í meira en
fjóra áratugi, þó hljómsveitin hafi leyst upp
1970. Síðsumars völdu Bretar Bítlaplötuna
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band
uppáhalds plötuna sína í könnun á vegum
breska ríkisútvarpsins, BBC, í tilefni af því
að 50 ár voru liðin frá því byrjað var að birta
opinbera vinsældalista í landinu. Fyrir rúm-
um mánuði kom nýjasta Bítlaplatan, Love,
út í Bretlandi, en um er að ræða tilrauna-
kenndar endurhljóðblandanir tuttugu og
sex kunnra Bítlalaga. Maðurinn á bak við
plötuna er George Martin, oft kallaður
„fimmti bítillinn“ en Bítlana skipuðu John
Lennon, sem var myrtur 1980, George
Harrison, sem dó úr krabbameini 2001,
Ringo Starr og Paul McCartney.
Bítlarnir
loks á
frímerki
Abbey Road Plötu-
albúmið á frímerki.
Myndir af sex plötual-
búmum prýða merkin
TILRAUNIR með nýja tegund af megr-
unarpillum benda til þess að hún gefist
betur en vísindamenn höfðu gert sér vonir
um og frekari tilraunir eru fyrirhugaðar,
að því er fram kom í frétt breska dag-
blaðsins The Daily Telegraph í gær.
Pillan nefnist excalia og er tekin dag-
lega. Blaðið segir að pillan hafi hjálpað
fólki að léttast um 12% af líkamsþyngd
sinni á tæpu ári.
Pillan hefur þau áhrif að fólki finnst það
verða mett fyrr en ella og hún hraðar jafn-
framt efnaskiptum. Hún kemur þannig í
veg fyrir að líkaminn bregðist við megr-
uninni með því að hægja á efnaskiptunum,
að sögn The Daily Telegraph.
Í pillunni eru tvö lyf. Annað þeirra hef-
ur verið notað við flogaveiki og hitt hefur
verið notað til að draga úr löngun í nikó-
tín.
Í tilraunum í Bandaríkjunum léttust
þátttakendurnir um 9,2% af líkamsþyngd
sinni að meðaltali á 24 vikum en þeir sem
fengu gervilyf urðu 0,4% léttari. Þátttak-
endurnir losnuðu alls við um 12% af þyngd
sinni á 48 vikum.
Megrunarpilla
reynist vel
♦♦♦
BJÖRGUNARHUNDUR stekkur í gegnum
gjörð á æfingu slökkviliðs í Peking í gær.
Hundar slökkviliðsins í kínversku höfuðborg-
inni voru meðal annars æfðir í því að stökkva í
gegnum eld og að bjarga fólki úr logandi
byggingum.
Reuters
Hundakúnstir á slökkviliðsæfingu í Kína
Mogadishu. AP, AFP. | Hersveitir
bráðabirgðastjórnar Sómalíu og
eþíópískir hermenn réðust í gær
inn í Mogadishu, höfuðborg lands-
ins, án þess að mæta mótspyrnu,
að sögn forsætisráðherra bráða-
birgðastjórnarinnar, Mohameds
Alis Gedis. Nokkrum klukkustund-
um áður höfðu leiðtogar hreyfing-
ar, sem hafði reynt að stofna ísl-
amskt ríki í Sómalíu, hörfað frá
borginni. Hreyfingin segist ætla að
halda áfram baráttunni gegn
bráðabirgðastjórninni í sunnan-
verðu landinu.
„Við erum komnir til Mogad-
ishu,“ sagði Gedi eftir að hafa rætt
við leiðtoga ættflokka um samstarf
við að koma bráðabirgðastjórninni
til valda í höfuðborginni án blóðs-
úthellinga. Tugir ættflokkaleið-
toga frá Mogadishu tóku á móti
Gedi í nálægum bæ, Afgoye, ásamt
hundruðum eþíópískra og sóm-
alskra hermanna sem hafa barist
gegn hreyfingu íslamista í rúma
viku.
Rán og gripdeildir
Vopnaðir menn rændu og rupl-
uðu í Mogadishu eftir að liðsmenn
íslömsku hreyfingarinnar hörfuðu
úr borginni. Hleypt var af byssum
víða í borginni og hermt er að fjórir
borgarbúar hafi beðið bana.
Forsætisráðherra Eþíópíu, Mel-
es Zenawi, hét fullnaðarsigri yfir
hreyfingu íslamistanna og kvaðst
vona að átökunum lyki „á næstu
dögum eða vikum“. „Við erum að
ræða leiðir til að tryggja að glund-
roði taki ekki við í Mogadishu,“
sagði forsætisráðherrann. „Við
ætlum ekki að láta Mogadishu
brenna.“
Einn af forystumönnum ísl-
ömsku hreyfingarinnar, Abdir-
ahman Janaqow, kvaðst hafa fyr-
irskipað liðsmönnum hennar að
hörfa frá Mogadishu til að afstýra
blóðsúthellingum í borginni. Sóm-
ali, sem sagði skilið við íslömsku
hreyfinguna í gær, sagði að aðeins
hörðustu stuðningsmenn hennar
hygðust halda baráttunni áfram
gegn bráðabirgðastjórninni. Hann
taldi þá vera um 3.000 og sagði þá
ætla að safnast saman í hafnar-
borginni Kismayo, sunnan við Mo-
gadishu. Íslamska hreyfingin náði
Kismayo á sitt vald í september og
segist ekki ætla að fara þaðan án
mótspyrnu.
Hersveitir stjórnarinnar
komnar til Mogadishu
Íslamistar flúðu frá sómölsku höfuðborginni án þess að veita mótspyrnu
Í HNOTSKURN
» Líklegt er að ætt-flokkaleiðtogar í Mogad-
ishu ráði úrslitum um hvort
hægt verði að afstýra glund-
roða í höfuðborginni.
» Ættflokkarnir steyptueinræðisherranum
Mohamed Siad Barre af stóli
1991 en hófu síðan blóðuga
valdabaráttu. Íslamistar
komu á friði í Mogadishu og
óttast er að ættflokkarnir
berist aftur á banaspjót og
hafni bráðabirgðastjórninni.
Jerúsalem. AP, AFP. | Stjórnvöld í
Egyptalandi hafa sent örygg-
issveitum Mahmouds Abbas, for-
seta Palestínumanna, miklar birgðir
af byssum og skotfærum með sam-
þykki Ísraelsstjórnar, að sögn ísr-
aelskra embættismanna í gær. Með
þessu eru Egyptar og Ísraelar
sagðir vilja sýna stuðning sinn við
Abbas og tilraunir hans til að hefja
friðarviðræður við Ísraelsstjórn.
Embættismenn í Jerúsalem
sögðu að stjórn Ísraels hefði sam-
þykkt að Egyptar sendu örygg-
issveitum Abbas 2.000 sjálfvirka
riffla, 20.000 skothylki og tvær
milljónir byssukúlna. Embætt-
ismennirnir vildu ekki láta nafns
síns getið vegna þess að stjórnvöld í
Ísrael, Egyptalandi og á sjálfstjórn-
arsvæðum Palestínumanna höfðu
ekki staðfest fréttina.
Abbas hefur átt í harðvítugri
valdabaráttu við Hamas-hreyf-
inguna og lengi reynt að efla örygg-
issveitir sínar. Ísraelsstjórn færðist
í fyrstu undan því að samþykkja
vopnasendinguna þar sem hún hafði
áhyggjur af því að vopnin kynnu að
verða notuð gegn Ísraelum. Afstaða
Ísraelsstjórnar virðist hafa breyst
vegna vinsamlegra viðræðna Abbas
við Ehud Olmert, forsætisráðherra
Ísraels, auk þess sem henni er í
mun að Abbas hafi betur í valdabar-
áttunni við Hamas.
Samdi við Olmert
Ísraelska dagblaðið Haaretz
sagði að Olmert og Abbas hefðu
samið um vopnasendinguna á fyrsta
fundi sínum í Jerúsalem á laug-
ardaginn var.
Hamas og Fatah-hreyfing Abbas
hafa tekist á um völdin frá því að
Hamas sigraði í þingkosningum í
janúar. Sautján manns hafa beðið
bana og tugir manna særst í átök-
um milli öryggissveita Abbas og
vopnaðra liðsmanna Hamas eftir 16.
desember þegar palestínski forset-
inn boðaði til kosninga eftir árang-
urslausar tilraunir til að mynda
samsteypustjórn með Hamas.
Egyptar senda liði Abbas vopn
Ísraelar sagðir hafa samþykkt vopnasendinguna til að efla öryggissveitir Abbas
AP
Brugðið á leik Liðsmenn öryggissveita Mahmouds Abbas í snjókasti fyrir
utan höfuðstöðvar palestínska forsetans í Ramallah á Vesturbakkanum.
Manila. AFP. | Talið er að yfir 3.000
manns hafi látið lífið í náttúruham-
förum á Filippseyjum á árinu, að
sögn þarlendra yfirvalda í gær.
Fjórir fellibyljir á síðustu þremur
mánuðum ársins og nokkrar aur-
skriður kostuðu að minnsta kosti
1.312 manns lífið og 1.859 til viðbótar
eru taldir af, að sögn almannavarna-
stofnunar Filippseyja.
Talið er að 2.050 manns hafi farist
í fellibyljunum fjórum og aurskrið-
um sem fylgdu þeim í október til des-
ember.
Ennfremur er talið að 1.122 hafi
látið lífið í aurskriðu sem féll á bæinn
Guinsaugon á eyjunni Leyte eftir
monsúnrigningar í febrúar.
Áætlað er að efnahagslega tjónið
af völdum fellibyljanna og skriðufall-
anna nemi rúmum 20 milljörðum
pesosa, sem samsvarar rúmum 30
milljörðum króna.
Yfir 3.000
fórust í
hamförum