Morgunblaðið - 29.12.2006, Síða 60
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 29. DESEMBER 363. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
Ómissandi í partíið!
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Austan 8–15
m/s, hvassast
sunnantil. Tals-
verð rigning eða
súld suðaustantil en annars
úrkomuminna. » 8
Heitast Kaldast
10°C 5°C
LOKIÐ var síðdegis í gær við að dæla olíu
úr tönkum flutningaskipsins Wilson
Muuga á strandstað við Hvalsnes. Í skip-
inu er eftir olíublandaður sjór í lestarrými
og hefur hann pumpast þangað úr rifnum
botntönkum. Áætlað magn þeirrar olíu
sem þar er eftir er 10–15 tonn. Segir Um-
hverfisstofnun, að hreinsun olíunnar úr
lestarrýminu kalli á annars konar aðgerð-
ir og geti tekið nokkra daga en ekki sé
lengur bráð hætta af olíunni sem eftir er í
skipinu á meðan það stendur af sér veður
og sjógang.
Olíudælingunni lauk kl. 15.45 í gær.
Alls var dælt um 95 tonnum af olíu í land
og var staðið sleitulaust við í 30 stundir.
Umhverfisstofnun segir ljóst, að talsvert
magn af olíu, 60–70 tonn, hafi farið í sjó-
inn þegar skipið strandaði en óveður og
mikill sjógangur fyrstu sólarhringana eft-
ir strandið hafi hjálpast að við að koma ol-
íunni á haf út og brjóta hana niður. Lítil
sjáanleg ummerki hafi fundist um olíu-
mengun í fjörum í nágrenni við strand-
staðinn og hafi tekist að langmestu leyti
að koma í veg fyrir frekari olíuleka frá
skipinu á strandstað.
Morgunblaðið/ÞÖK
Hreinsun 10–15 tonn af sjómettaðri olíu
eru enn um borð í skipinu en bráðameng-
unarhætta er yfirstaðin.
95 tonn af
svartolíu
náðust á land
Olíudælingu úr Wil-
son Muuga lauk í gær
FASTEIGNAMAT hækkar um 20% á atvinnu-
húsnæði og atvinnulóðum í Reykjavík, Kópavogi, á
Seltjarnarnesi, í Garðabæ, Hafnarfirði, Egilsstöð-
um og Fellabæ, samkvæmt ákvörðun yfirfast-
eignamatsnefndar. Almennt mun matsverð íbúð-
arhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og
atvinnuhúsalóða, sumarhúsa og sumarhúsalóða,
matsverð bújarða ásamt íbúðar- og útihúsum og
matsverð hlunninda hækka um 10%.
Frá þessari almennu hækkun eru nokkrar und-
antekningar aðrar en greint er frá í upphafi frétt-
arinnar. Þannig hækkar fasteignamatsverð um
15% á íbúðarhúsum og íbúðarlóðum í Garðabæ,
Grindavík, Vogum, Borgarnesi, Stykkishólmi, á
Sauðárkróki, Hvammstanga, Skagaströnd, Dalvík,
Húsavík, Reyðarfirði, Egilsstöðum, í Fellabæ, á
Flúðum í Hrunamannahreppi og í þéttbýli í Snæ-
fellsbæ. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða
á Álftanesi, í Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Grindavík,
Borgarnesi og á Selfossi hækkar einnig um 15%.
Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Grundar-
firði og Bolungarvík hækkar um 5%.
Engin breyting verður á matsverði íbúðarhúsa
og íbúðarlóða á Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suður-
eyri, Hnífsdal, Grímsey, Flatey á Skjálfanda, Kópa-
skeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafirði, Vopna-
firði, Bakkagerði, Breiðdalsvík, Djúpavogi,
Hornafirði og í Vestmannaeyjum. Matsverð at-
vinnuhúsa og -lóða verður og óbreytt í þéttbýli á
Vestfjörðum frá Gilsfirði að Hrútafjarðarbotni, í
Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Grímsey og Grýtu-
bakkahreppi, í þéttbýli á Norður- og Norðaustur-
landi frá Kinnarfjöllum að og með Mjóafirði. Einnig
í þéttbýli frá og með Breiðdalshreppi að og með
Mýrdalshreppi og í Vestmannaeyjum.
Fjármálaráðherra hefur staðfest nýtt mat. Aug-
lýsingin um fasteignamatið er dagsett 15. desember
sl. en nýtt matsverð tekur gildi nú á gamlársdag.
Fasteignamat hækkar
um allt að fimmtung
Almennt mun matsverð fasteigna og hlunninda hækka um 10% milli ára
Í HNOTSKURN
» Matsverð fasteigna verður óbreyttt.d. víða á Vestfjörðum, eins víða á
Norðausturlandi, sunnanverðum Aust-
fjörðum og í Vestmannaeyjum.
» Fasteignamat ríkisins hefur samiðnýja fasteignaskrá.
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
YFIRSTJÓRN utanríkisráðuneytisins rannsak-
ar nú hvernig það kom til að upplýsingar úr afrit-
um af bréfum, sem sýslumaðurinn á Keflavík-
urflugvelli, Jóhann R. Benediktsson, sendi til
norsku herleyniþjónustunnar og varnamálaráðu-
neytisins í Noregi, var lekið í Blaðið.
Gert var að umtalsefni í Blaðinu, 20. og 21. des-
ember sl., að enskt starfsheiti greiningardeildar,
sem sýslumannsembættið hefur rekið á vegum
utanríkisráðuneytisins, og sinnir hættumati fyrir
Íslensku friðargæsluna, hafi verið Icelandic In-
telligence Service-NATO. Þýðir Blaðið þetta
starfsheiti sem „Íslenska leyniþjónustan“.
Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, segir í samtali við Morgunblaðið í
dag að þessi umfjöllun og gagnalekinn bendi til
að einhver vilji gera störf hans tortryggileg.
Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri í ut-
anríkisráðuneyti, staðfestir að þar sé verið að
grennslast fyrir um málið. „Það er augljóst að ef
upplýsingar úr gögnum ráðuneytisins leka út úr
húsinu án vitundar yfirstjórnar ráðuneytisins er
það mjög alvarlegt mál,“ sagði hann.
Sagði Grétar að hann hefði þegar talað við alla
starfsmenn sem haft hefðu aðgang að þessum
gögnum. Enginn þeirra kannaðist við málið. Ekki
margir hefðu haft aðgang að þeim en þeir gætu
verið á fleiri stöðum en í utanríkisráðuneytinu.
Leki tekinn til rannsóknar
í utanríkisráðuneytinu
Vildu senda mann | 12
GUÐJÓN Valur Sigurðsson,
handknattleiksmaður með þýska
liðinu Gummersbach, var í gær
útnefndur íþróttamaður ársins af
Samtökum íþróttafréttamanna.
Guðjón Valur hlaut 405 stig í
fyrsta sætið en mest var hægt að
fá 460 stig. Eiður Smári Guðjohn-
sen, knattspyrnumaður hjá
Barcelona og handhafi titilsins
síðustu tvö árin, varð annar með
333 atkvæði og handknattleiks-
maðurinn Ólafur Stefánsson,
handhafi titilsins síðustu tvö ár
þar á undan, varð í þriðja sæti
með 188 stig, en Ólafur leikur
með Ciudad Real á Spáni. Alls
hlutu 22 íþróttamenn úr 13 grein-
um atkvæði í kjörinu að þessu
sinni, sex konur og sextán karlar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Guðjón Val-
ur íþrótta-
maður ársins
Tveggja manna tak Guðjón Valur tekur við gripnum af Þorsteini Gunnarssyni, formanni Samtaka íþrótta-
fréttamanna og Bjarni Ármannson og Jón Karl Ólafsson fylgjast sposkir með.
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur
ákveðið veiðikvóta hreindýra árið 2007.
Alls verður leyft að veiða 1.137 hreindýr á
næsta ári, 577 kýr og 560 tarfa, en í ár var
kvótinn alls 909 hreindýr. Fylgi kálfar
veiddum kúm á einnig að veiða þá.
Verð veiðileyfa og umsóknarfrestur um
veiðileyfi verða auglýst í byrjun árs 2007,
að því er fram kemur á hreindýrasíðu
veiðistjórnunarsviðs UST (www.hrein-
dyr.is). Þar má einnig sjá hvernig kvót-
anum er skipt á milli veiðisvæða.
Hreindýra-
kvótinn eykst
um 25%
♦♦♦