Morgunblaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 51
AFMÆLI
Elskulegur faðir
minn Hjörtur Þórar-
insson, fyrrum skóla-
stjóri og fram-
kvæmdastjóri
Samtaka sunnlenskra
sveitarfélaga, er átt-
ræður í dag.
Á þessum tímamót-
um langar mig að
rifja upp lífshlaup
þessa atorkumikla og
lífsglaða manns sem
ég var svo lánsöm að
eignast sem föður.
Faðir minn fæddist
á Miðhúsum í Reykhólahreppi og
ólst þar upp til 12 ára aldurs en
flutti þá að Reykhólum. Enginn
skóli var á þessum tíma á Reykhól-
um en börnin í sveitinni nutu far-
kennslu eins og títt var. Faðir
minn fór síðar í skóla á Flateyri og
síðan í unglingaskóla hjá séra Ár-
elíusi Níelssyni á Stað á Reykja-
nesi. Áhugi hans á kennslu og
skólamálum hlýtur að hafa vaknað
þar því hann lauk kennaraprófi
1948, íþróttakennaraprófi frá
Laugarvatni 1949 og tók reyndar
öll kennarapróf sem til voru á
þeim tíma; í söngkennslu, dans-
kennslu, handavinnukennslu og
síðar einnig ökukennarapróf.
Kennaraferillinn hófst við
Barna- og miðskólann í Stykkis-
Hjörtur Þórarinsson
hólmi þar sem hann
starfaði 1949-1951.
Hann flutti á Selfoss
og starfaði við
Barna- og miðskól-
ann á Selfossi 1951-
1961með ársleyfi
vegna kennslu við
Flensborgarskólann
1959-60. Einnig var
hann stundakennari
við Iðnskólann á Sel-
fossi sömu ár. Hann
fluttist í Reykholts-
dalinn 1961 og hóf
störf sem skólastjóri
við nýbyggðan skóla að Klepp-
járnsreykjum þar sem hann starf-
aði til ársins 1978. Samhliða skóla-
stjórastarfinu sinnti hann einnig
ökukennslu í uppsveitum Borgar-
fjarðar. Leiðir lágu aftur til Sel-
foss þar sem hann kenndi við
Gagnfræðaskólann á Selfossi 1978-
1980 en þá tók hann við starfi
framkvæmdastjóra Samtaka sunn-
lenskra sveitarfélaga sem hann
sinnti til ársloka 1994 þegar hann
lét af störfum sökum aldurs.
Samhliða starfi sínu alla tíð og
einnig eftir hefðbundin starfslok
hefur faðir minn sinnt félagsmál-
um af mikilli atorku og áhuga og
er ekki hægt að nefna nema sumt
af því hér. Hann var einn stofn-
enda Tónlistarfélags Árnesinga
1955 og Tónlistarfélags Borgar-
fjarðar 1966 og hefur staðið fyrir
fjölmörgum tónlistarviðburðum á
vegum þessara félaga ásamt því að
syngja sjálfur í flestum þeim
kirkjukórum sem hann hefur verið
nálægt. Hann stofnaði og var for-
seti Kiwanisklúbbsins Jökla í
Borgarfirði 1972 og er nú félagi í
Kiwanisklúbbnum Búrfelli á Sel-
fossi. Skólaáhugi hans dvínaði ekki
þótt hann hætti kennslu og var
hann formaður skólanefndar Fjöl-
brautaskóla Suðurlands 1981-1994
og síðar formaður Hollvarðasam-
taka sama skóla frá 2002. Frá 1999
hefur faðir minn verið formaður
Félags eldri borgara á Selfossi og
dustaði svo rykið af íþróttakenn-
aramenntun sinni þegar hann gekk
til liðs við Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra og hefur á þess
vegum ferðast um landið og kynnt
íþróttir, leiki og heilsurækt fyrir
eldri borgara. Ferðalög og náttúra
landsins hefur heillað föður minn
alla tíð og rúmlega sjötugur skellti
hann sér í nám að nýju og lauk
ferðaleiðsöguprófi og hefur síðast-
liðin ár verið leiðsögumaður fyrir
ýmsa hópa um Suðurland. Áhugi
hans á sögu og náttúru Íslands átti
þátt í að hann kynnti sér lífshlaup
og dvalarstaði Fjalla-Eyvindar og
Höllu konu hans og hefur hann
staðið fyrir því að þeir staðir hafa
verið merktir.
Eftir föður minn liggja ótal ljóð
og lausavísur. Ekkert tilefni telur
hann of ómerkilegt fyrir vísnagerð
og hefur sú iðkun hans glatt marga
gegnum árin. Hann er eftirsóttur
ræðumaður og flytur oft ræður að
miklu leyti í bundnu máli. Einnig
hefur hann sinnt ritstörfum, hefur
verið ritstjóri Umhverfisins, blaðs
Kiwanismanna á Suðurlandi og
birt greinar í ýmsum ritum.
Ekki er hægt að fjalla um föður
minn án þess að minnast elsku
móður minnar sem var hans besta
stoð í lífi og starfi þar til hún lést
1995. Ólöf Sigurðardóttir var
skólastjóri Húsmæðraskólans á
Staðarfelli þegar þau kynntust og
síðar grunnskólakennari. Hún
starfaði við hlið hans sem kennari
og hússtýra heimavistarskólans að
Kleppjárnsreykjum og eftir að þau
fluttu aftur á Selfoss kenndi hún
við Grunnskóla Selfoss. Eins og ég
sagði í upphafi var ég lánsöm að
eignast þessa foreldra. Það var
ekki sjálfgefið, því þeim varð ekki
eigin barna auðið. Náin tengsl
voru milli foreldra minna og móð-
urbróður, Jóns Sigurðssonar og
konu hans Jóhönnu G. Erlingsson.
Þau áttu miklu barnaláni að fagna
og var sú ákvörðun tekin að eitt
barna þeirra, undirrituð, yrði barn
Hjartar og Ólafar. Kærleiksböndin
milli beggja foreldra minna urðu
einnig til þess að öll systkini mín
áttu sitt annað heimili hjá okkur.
Við systkinin upplifðum öll að við
ættum tvö foreldrapör og alla tíð
einkenndust samskipti fjölskyldn-
anna af djúpu gagnkvæmu þakk-
læti.
Sú ást og umhyggja sem ég ólst
upp við beindist einnig að nem-
endum foreldra minna á Klepp-
járnsreykjum. Í huga minn koma
margar minningar, börn hlaupandi
í fangið á skólastjóranum,
skemmtilegar kvöldvökur á heima-
vistinni, pabbi spilandi undir
fjöldasöng, vikulangar skíðaferðir
með skólanemendum, danskennsla
nemenda og svo má lengi telja.
Hann hefur enn þetta einstaka lag
á börnum og hafa afabörnin hans
þrjú notið þess í ríkum mæli.
Eftir lát móður minnar var
pabbi svo lánsamur að kynnast
yndislegri konu, Bryndísi Stein-
þórsdóttur húsmæðrakennara, sem
hefur reynst honum einstakur fé-
lagi og mér og fjölskyldu sem besti
vinur.
Á þessum stóra degi finn ég fyr-
ir þakklæti, minn besti vinur og
stoð í lífinu hefur náð því að fylla
átta áratugi heilsuhraustur og
glaður. Án efa hefur hin jákvæða
lífssýn hans og glettni hjálpað til
en kímnigáfu hans má best lýsa
með því loforði sem hann gaf mér
fyrir löngu; „að verða allavega 95
ára, ellegar dauður liggja“ og skal
hann standa við það! Hjörtur Þór-
arinsson verður að heiman í dag.
Hann frábiður sér vinsamlega allar
gjafir í tilefni dagsins en ég veit að
það væri hægt að gleðja hann með
vísukorni sem senda má á lou-
rimi15@internet.is eða Lóurima
15, 800 Selfoss.
Sigrún Hjartardóttir.
sunnudagskvöldsins 18. febrúar og
hefst hún kl. 20.
Á morgun er hins vegar messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sigurbjörn
Þorkelsson framkvæmdastjóri safn-
aðarins leiðir guðsþjónustuna, pré-
dikar og hefur bænir. Fulltrúar les-
arahóps kirkjunnar lesa
ritningarlestra á Biblíudaginn og
hópur fermingarbarna aðstoðar við
guðsþjónustuna. Kór kirkjunnar
leiðir kröftugan almennan safn-
aðarsöng og organisti að þessu sinni
er Árni Heiðar Karlsson. Um sunnu-
dagaskólann sjá þau Stella Rún,
Þorvaldur og María Rut.
Þriðjudagskvöld eru mannrækt-
arkvöld í Laugarneskirkju. Þau
hefjast með kvöldsöng í kirkjunni
kl. 20, sem Þorvaldur Halldórsson
og Gunnar Gunnarsson leiða. Sig-
urbjörn Þorkelsson íhugar nokkur
orð og leiðir stutta bæn. Að kvöld-
söngnum loknum næsta þriðjudags-
kvöld 13. febrúar mun Sigurbjörn
halda áfram að fjalla um fyrirgefn-
inguna. Er fyrirgefningin raunhæf-
ur valkostur? Hvað þarf að fyr-
irgefa? Hver á að fyrirgefa? Og þá
hverjum, hvenær og hvernig? Jafn-
ingjafræðsla og spjall.
Þetta sama kvöld koma 12 spora-
hópar kirkjunnar einnig saman og
halda áfram sinni vinnu.
Á fimmtudaginn 15. febrúar er
svo boðið til kyrrðarstundar í há-
deginu kl. 12. Gunnar Gunnarsson
leikur ljúfa tóna á orgel kirkjunnar.
Sigurbjörn Þorkelsson hugleiðir orð
úr Biblíunni og leiðir fyrirbæna-
stund við altarið. Eftir stundina eða
um kl. 12.30 gefst fólki kostur á að
fá sér einfalda en kjarngóða og sam-
félagseflandi máltíð í safnaðarheim-
ilinu á 500 kr. Allir velkomnir.
Þennan sama dag, fimmtudaginn
15. febrúar, kl. 14, er samvera eldri
borgara. Sr. Frank M. Halldórsson
segir frá páskum í Jerúsalem. Gunn-
hildur Einarsdóttir kirkjuvörður
býður upp á kaffi og kræsingar.
Laugarneskirkja er iðandi mann-
lífstorg. Þangað eru allir velkomnir
á jafningjagrunni til að rækta
mennsku sína og himneska sýn.
Biblían í daglegu lífi
Miðvikudaginn 14. febrúar hefst, í
samvinnu Leikmannaskóla Þjóð-
kirkjunnar og Reykjavíkurprófasts-
dæmis vestra, námskeiðið Biblían í
daglega lífinu. Kennari á námskeið-
inu er sr. María Ágústsdóttir hér-
aðsprestur.
Á námskeiðinu mun sr. María
meðal annars fjalla um hvernig best
er að lesa Biblíuna og hvort orð
hennar geta varðað daglegt líf s.s.
hvað hún kennir okkur um mismun-
andi hlutverk hversdagsins – for-
eldrahlutverkið, vináttuna, viðhorf
okkar til vinnunnar og heim-
ilisstarfanna. Námskeiðið er haldið í
Hallgrímskirkju og hefst 14. febr-
úar kl. 20. Kennt er í fjögur skipti,
tvo tíma í senn og hægt er að skrá
sig í síma 535 1500 eða á vef Leik-
mannaskólans, www.kirkjan.is/
leikmannaskoli
Kvennakirkjan í
Dómkirkjunni
Kvennakirkjan heldur guðsþjónustu
í Dómkirkjunni sunnudaginn 11.
febrúar kl. 20.30. Yfirskrift mess-
unnar er: Guð, vinkona okkar. Séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar.
Kór Kvennakirkjunnar leiðir söng-
inn við undirleik Aðalheiðar Þor-
steinsdóttur. Á eftir verður kaffi á
kirkjuloftinu.
Fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20
verður örþing í stofum Kvenna-
kirkjunnar, Laugavegi 59, 4. hæð,
gengið inn frá Hverfisgötu. Ninna
Sif Svavarsdóttir guðfræðinemi
fjallar um kvenmynd Guðs í Spá-
dómsbók Jesaja sem er hluti af BA-
verkefni hennar í guðfræðideild-
inni. Á eftir verða umræður yfir
kaffi og kleinum. Allt fólk er vel-
komið.
Dr. Kristinn Ólason í
Hallgrímskirkju
Á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju
kl. 10 á Biblíudaginn, sunnudaginn
11. febrúar, verður fjallað um Dav-
íðssálm 139. Fyrirlesarinn, dr. Krist-
inn Ólason, Skálholtsrektor, nefnir
erindi sitt Bænamál Saltarans. Allir
eru velkomnir og eftir fræðsluna er
boðið til umræðu yfir kaffibolla fram
að messu. Messa og barnastarf kl. 11.
Sr. Sigurður Pálsson predikar og
þjónar fyrir altari, ásamt sr. Guðna
Má Harðarsyni skólapresti og messu-
þjónum. Mótettukórinn syngur undir
stjórn Björns Steinars Sólbergs-
sonar, sem jafnframt leikur á orgel
kirkjunnar. Börnin taka þátt í fyrri
hluta messunnar en njóta síðan
fræðslu og dagskrár sunnudaga-
skólakennara undir stjórn Magneu
Sverrisdóttur. Að lokinni messu er
boðið uppá kaffi í Suðursal.
Gideon-menn á
Biblíudeginum í Frí-
kirkjunni í Reykjavík
Almenn guðsþjónusta er kl 14. Gi-
deon-menn kynna félagið og lesa
ritningarlestra dagsins. Anna Sig-
ríður Helgadóttir og Carl Möller
leiða almennan safnaðarsöng, auk
þess sem Anna Sigríður gleður okk-
ur með einsöng. Fermingarbörn úr
fræðsluhópi vetrarins aðstoða í
guðsþjónustunni. Ása Björk Ólafs-
dóttir hugleiðir um Biblíudaginn og
Orð Guðs í samtímanum ásamt því
að þjóna fyrir altari. Að venju gefum
við fuglunum á Tjörninni andabrauð
að lokinni guðsþjónustunni.
Lækningadagar
í Veginum
Lækningadagar verða í Veginum
helgina 2.–4. mars nk. Á lækn-
ingadögum er þér búinn þægilegur
staður þar sem þú færð að dvelja í
nærveru Drottins, taka við lausn og
við lækningu inn í líf þitt.
Hvaðan kemur hjálp mín?
Kyrrðarstund. Fyrirgefning.
Fyrirbænir. Einkaviðtal. Lausn
frá neikvæðri reynslu.
Skráning er hafin á skrifstofu
Vegarins í síma 564-2355 eða á veg-
urinn@vegurinn.is Reynslan af
þessum dögum er hreint stórkost-
leg, margir hafa fengið lækningu og
lausn til líkama, sálar og anda. Nær-
vera Jesú og þjónusta Heilags anda
hefur verið stórkostleg. Allir eiga
erindi á þessa daga.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlíðarendakirkja í Fljótshlíð