Morgunblaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 28
lifun 28 LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ É g ætlaði mér að eignast gamalt, fallegt hús áð- ur en ég yrði þrítugur og mér tókst að standa við það. Við Siggi fest- um kaup á þessu húsi fyrir einu og hálfu ári og ég varð þrítugur í fyrra. Hér hefur okkur liðið rosalega vel en nú höfum við sett það á sölu vegna þess að okkur langar til að njóta lífs- ins. Við ætlum að minnka við okkur og nota gróðann til að ferðast og njóta augnabliksins. Við sjáum auð- vitað svolítið eftir húsinu, þetta er draumahúsið okkar, en það er svo margt annað í lífinu sem skiptir meira máli en hús,“ segir Kristján Hannesson sem býr ásamt sambýlis- manni sínum, Sigurði Eysteinssyni, og tíkinni Úmu Kristjánsen Sigurð- ardóttur í hundrað ára gömlu báru- járnshúsi vestur í bæ. Litla, rauða húsið þeirra er sérstaklega krúttlegt og minnir óneitanlega á dúkkuhús. „Ég hafði líka lofað sjálfum mér að eignast svona hús áður en ég yrði fimmtugur, svo það er enn nægur tími til að láta drauminn rætast síðar á ævinni og kaupa annað hús,“ segir Siggi fullur æðruleysis. Númeraðir trébitar frá Noregi „Þegar við fluttum hingað inn þurftum við ekki að gera neitt, því fyrri eigendur höfðu tekið húsið allt í gegn fyrir tíu árum, alveg frá grunni, en margt hafði samt verið látið halda sér. Hér eru til dæmis upprunalegar gólffjalir og þó svo að einhverjir veggir hafi verið teknir til að opna rýmið þá voru trébitarnir látnir halda sér og skorsteinninn líka. Það eru göt til að tengja kam- ínur við hann á öllum hæðunum, en við höfum ekki nýtt okkur það. Á bitunum sést að þetta hús hefur verið flutt inn frá Noregi, því þeir eru númeraðir. Flest af gömlu báru- járnshúsunum í Reykjavík eru svo- kölluð „catalog“-hús sem fólk pant- aði eftir vörulista frá Noregi. Þau komu í númeruðum einingum og voru svo sett saman eins og legó- kubbar eftir tölunum. Þá var iðn- byltingin á fullu skriði og allt var verksmiðjuframleitt, líka hús.“ Friðað tré í garðinum Rauða, krúttlega húsið er ekki stórt, aðeins tæpir fimmtíu fermetr- ar hvor hæð, en kjallarinn var dýpk- aður þegar breytingarnar voru gerð- ar til að bæta við þriðju hæðinni og auka plássið. Þar er einstaklingsíbúð sem þeir Kristján og Siggi leigja út. „Garðurinn hafði líka verið tekinn í gegn, honum var breytt og stór ver- önd byggð við húsið. Við þetta garð- rask var hróflað við rótum á stóra trénu okkar sem er friðað og það varð til þess að í einhverju brjáluðu veðri lagðist tréð á hliðina og skemmdi bíla úti á götu. Þetta tré varð nokkuð frægt fyrir vikið og fólk kom hingað í hópum til að taka mynd af því, en það var reist við og lifir góðu lífi og setur mikinn svip á garðinn. Við höldum að þetta sé ein- hver sjaldgæf tegund af reyni.“ Ástarleikjakveikjari Kristján og Siggi segja alveg frá- bært að hafa góðan garð, sér- staklega fyrir tíkina Úmu sem þeir Morgunblaðið/ÞÖK Gamalt og gott Bæði rauða bárujárnshúsið og hið fræga tré í garðinum sem féll á nokkra bíla og skemmdi, eru forn og bera með sér andblæ liðins tíma. Hundrað ára dúkkuhús Smáatriðin Meira að segja hurð- arhúnarnir eru gamlir. Sófasett gert af Guðmundi blinda Kristján, Siggi og Úma láta fara vel um sig í sófa frá afa og ömmu. Borðstofa Hlýleiki gamalla húsa er óumdeilanlegur. Áður fyrr var húsið mikið partíhús og til eru ótal sögur af því sem fæstar er hægt að hafa eftir. Kristín Heiða Krist- insdóttir heimsótti Krist- ján og Sigga sem búa núna í miklum rólegheit- um í þessu sama húsi sem byggt var 1907. Hlaðinn skorsteinn Setur svip. Andar Víða er opið á milli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.