Morgunblaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.02.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2007 25 ÁRBORGARSVÆÐIÐ Reykjanesbær | Bernhard í Reykjanesbæ hefur fengið við- urkenningu og verðlaun frá Reykjanesbæ vegna markaðs- verkefnisins Auglýsingalukkupott- ur Reykjanesbæjar 2006. Markmiðið með auglýs- ingalukkupottinum er að verð- launa fyrirtæki sem nota nafn bæjarins í tengslum við hvers kon- ar auglýsingar og stuðla þannig að markaðssetningu hans um land allt. Reykjanesbær varð til við sam- einingu sveitarfélaganna Keflavík- ur, Njarðvíkur og Hafna árið 1994 og hvetja bæjaryfirvöld fyrirtæki og stofnanir í bæjarfélaginu til þess að nota nafn bæjarins í stað þess að notast við gömlu bæj- arheitin. Auglýsingalukkupott- urinn er einn liður í því að festa nafn bæjarfélagsins í hugum bæj- arbúa og annarra landsmanna. Bernhard hefur ávallt notað nafn Reykjanesbæjar við markaðs- setningu og nýtti verðlaunaféð, sem var 100 þúsund krónur, til þess að setja upp skilti við Reykja- nesbrautina þar sem þess er getið sérstaklega að fyrirtækið sé í Reykjanesbæ. Auglýst var eftir umsóknum í auglýsingalukkupottinn og dregið úr innsendum auglýsingum fyr- irtækja og stofnana. Gert er ráð fyrir því að verkefnið verði end- urtekið að ári. Viðurkenning Sigurbjörn Elvarsson, Gunnar Gunnarsson og Erlingur Hannesson, starfsmenn Bernhard, auglýsa bæjarheitið með fyrirtækinu. Verðlaunaðir fyrir að halda nafni bæjarins á loft Reykjanesbær | Reykjanesbær mun kaupa sérstök tæki til að hreinsa rykið úr gervigrasinu í Reykjaneshöllinni. Jafnframt verð- ur gerð tilraun með nýtt efni til að rykbinda sandinn í grasinu og reyna þannig að draga verulega úr svif- ryki. Mælingar í Reykjaneshöllinni sýna að svifryk er þar yfir heilsu- verndarmörkum sem gilda um loft- mengun utandyra en ekki hafa verið sett önnur mörk um inniloft. Reykjaneshöllin er fyrsta fjölnota íþróttahúsið af þessu tagi en ný hús eru með annarri og betri gerð vallar. Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja krafðist úrbóta á þessum málum og mun aðgerðaáætlun Reykjanesbæj- ar verða tekin þar fyrir á næsta fundi. Í fréttatilkynningu frá Reykjanesbæ kemur fram það álit að góðar líkur séu á að aðgerðirnar muni skila tilætluðum árangri. Reyna að hreinsa ryk úr Reykjaneshöllinni SUÐURNES Þorlákshöfn | Bæjarstjórn Ölfuss hefur samþykkt að ganga til samninga við Eign- arhaldsfélagið Fasteign ehf. um uppbygg- ingu íþróttamannvirkja í Þorlákshöfn. Um er að ræða byggingu inni- og úti- sundlaugar, íþróttavallar með hlaupabraut- um, aðstöðu fyrir íþróttafélög og starfs- mannaaðstöðu ásamt líkamsræktarstöð með heilsuræktaraðstöðu. Ólafur Áki Ragn- arsson bæjarstjóri segir að byggingin sé lið- ur í því að skapa aðstöðu til íþróttaiðkunar og almennrar heilsueflingar. Áætlaður kostnaður er 680 milljónir kr. og leigir bær- inn mannvirkin fyrir 40 milljónir á ári. Ný íþrótta- mannvirki í Þorlákshöfn Eftir Sigurð Jónsson Selfoss | „Það er núna verið að senda út bréf og rifta úthlutun á fjórum einbýlishúsalóðum og einni parhúsalóð á Selfossi. Þetta eru að- ilar sem ekki hafa greitt staðfest- ingargjald fyrir lóðirnar og hafa því ekki hug á að hefja framkvæmdir á þeim,“ sagði Bárður Guðmundsson, byggingafulltrúi í Árborg, en lítið framboð hefur verið af hálfu sveit- arfélagsins á lóðum og aðeins ein lóð verið laus til umsóknar. „Það er meiri lóðavelta núna er var í fyrra sem felst í því að menn falla frá lóðum og aðrir sækja um, menn sem ætla að halda lóðunum og hefja framkvæmdir á þeim,“ sagði Bárður og ennfremur að raunveruleg eftirspurn væri núna minni en í fyrra en það gæti þó ver- ið árstíðabundin sveifla. Vantar deiliskipulag „Vandi okkar hjá sveitarfélaginu er að nú er ekki tilbúið nýtt deili- skipulag af hálfu sveitarfélagsins til nýbygginga á Selfossi en við mun- um á næstunni auglýsa lóðir í Ein- arshafnarhverfinu á Eyrarbakka,“ sagði Bárður. Undirbúningur er að hefjast að vinnu við nýtt deiliskipulag á svo- kölluðu Björkurstykki og á Bjark- arlandi, sunnan byggðarinnar á Selfossi sem Bárður segir vera framtíðarsvæði sem Árborg hefur til að skipuleggja sem íbúðabyggð. Þessi svæði eru næst Eyraveginum en austar eru svo tvö svæði, Grá- hellusvæði og Dísastaðir, en einka- aðilar, eigendur þessara svæða, eiga nú í samningaviðræðum við framkvæmdasvið Árborgar um uppbyggingu samkvæmt fyrirliggj- andi deiliskipulagi og tímasetningu verklegra framkvæmda á þessum svæðum. Þá er Hagaland, vestan Eyravegar, í mikilli uppbyggingu og unnið við gatnagerð og að gera lóðir þar byggingarhæfar. Síðan er einkaaðili með deiliskipulag í far- vatninu í Laugardælalandi, upp með Ölfusá, í átt að golfvellinum við Svarfhól. „Það deiliskipulag verður tekið fyrir á næsta fundi skipulagsnefnd- ar. Svo er nýlokið samkeppni um miðbæ á Selfossi þar sem gert er ráð fyrir íbúða- og þjónustubygg- ingum. Undirbúningur að deili- skipulagi á því svæði mun hefjast á næstunni og þar eru reyndar einka- aðilar líka langt komnir með deili- skipulag,“ sagði Bárður Guð- mundsson byggingafulltrúi sem sagði þessi byggingasvæði á Sel- fossi geta tekið á móti miklum íbúa- fjölda og fjölbreyttri byggð. Mikil uppbygging á íbúðum í farvatninu hjá einkaaðilum Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Væntanlegt Bárður Guðmundsson stendur við markastaur sunnan við byggðina á Selfossi og bendir yfir Björkurstykki og Bjarkarland.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.