Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Óskar Jónsson augnlæknir hefur hafið störf við Augnlæknastöðina Sjónlag Óskar er augnskurðlæknir með áherslu á sjónhimnusjúkdóma og augasteinsaðgerðir. Hann sinnir einnig almennum augnlækningum. Tekið er á móti tímapöntunum alla virka daga frá kl. 8:30-16:00 í síma 577 1001. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Sjónlags www.sjonlag.is Spöngin 39, 112 Reykjavík, sími 577 1001 Út er komin bókin „Þetta eru mínireinkastaðir“ en henni er ætlaðað hjálpa foreldrum að ræða viðog kynna börnum sínum hvað eru eðlileg mörk samskipta fullorðins fólks við börn og koma þannig í veg fyrir kyn- ferðislegt ofbeldi gegn börnum. Það er forvarnaverkefnið Blátt áfram sem stendur að útgáfu bókarinnar með stuðningi Hagkaupa. Systurnar Svava og Sigríður Björnsdætur eru forsvarsmenn verkefnisins. Þær segja að starf samtak- anna snúist um forvarnir og fræðslu fyrst og fremst og hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Verkefnið hefur verið starfrækt frá 2004 og meðal annars gefið út fræðslu- bækling fyrir fullorðna um það hvernig þekkja megi einkenni kynferðislegs ofbeldis í umhverfi barna. Þær hafi nýtt hann í kennslu á námskeiðum fyrir fullorðna, með- al annars í leikskólum og grunnskólum, en á þeim hafi komið fram, að foreldra vantar verkfæri til að ræða um þessi mál við börn- in sín. Þess vegna hafi þær farið að líta í kringum sig eftir efni sem hentað gæti í þessum efnum og Svava, sem býr í Kali- Morgunblaðið/RAX Forvarnir Systurnar Sigríður og Svava Björnsdætur forsvarsmenn verkefnisins Blátt áfram. Bók sem hjálpar fullorðnum að ræða við börn um eðlileg mörk snertingar TOLLVERÐIR á Keflavíkurflug- velli fundu um 680 grömm af kókaíni á tveimur íslenskum konum um miðja seinustu viku. Konurnar sem voru að koma til landsins frá Amsterdam höfðu falið efnið bæði innvortis og innan klæða. Þær eru báðar á fimmtugsaldri og eru þær ekki góðkunningjar lögregl- unnar, að sögn Eyjólfs Kristjánsson- ar, fulltrúa lögreglustjórans á Suð- urnesjum. Mesta kókaínmagn sem fundist hefur í Leifsstöð frá áramótum Konurnar voru báðar úrskurðaðar í vikulangt gæsluvarðhald síðastlið- inn miðvikudag. Í kjölfar handtökunnar var karl- maður á þrítugsaldri handtekinn og var hann einnig úrskurðaður í gæslu- varðhald, sem rennur út næstkom- andi miðvikudag. Eyjólfur segir að þetta sé mesta magn af kókaíni sem fundist hefur á farþegum í Leifsstöð það sem af er þessu ári. „Rannsóknin er í fullum gangi og gengur vel,“ seg- ir Eyjólfur Kristjánsson. Tvær konur teknar með 680 grömm af kókaíni í Leifsstöð Konurnar og karl á þrítugsaldri úrskurðuð í gæsluvarðhald Morgunblaðið/Árni Sæberg Smygl Kókaínið sem tollgæslan í Leifsstöð fann er það mesta sem tekið hefur verið í ár. Í fyrra náðu lögregla og tollgæsla í alls 12,8 kg af kókaíni. ÓLAFUR Proppé, rektor Kennaraháskóla Ís- lands, kynnti í gær nýja og endurskoðaða náms- og kennsluskrá við skólann og minnti þá á að kennarastéttin væri stærsta fagstétt landsins. Í leik-, grunn- og framhalds- skólum væru tæplega 13.000 sérmenntaðir starfs- menn. Ekki þyrfti að fjöl- yrða um það hve miklu menntun þeirra skipti sam- félagið. Fram kom í máli Ólafs að fyrir rúmlega tveimur árum hefði háskólaráð Kenn- araháskólans ákveðið að láta endurskoða allt nám við skólann með það að markmiði að skapa heildstætt starfsnám sem tæki mið af því besta sem unnt væri að finna í öðrum löndum en byggðist einnig á þeirri reynslu sem fyrir væri. Haft hefði verið í huga að allt nám við skólann, heilar námsbrautir og eintök námskeið, hefðu tengsl við rannsóknir og vettvang og legðu áherslu á sköpun og miðlun og ábyrgð nem- enda á eigin námi. Þakkaði Ólafur öllum, sem að þessu verki hefðu unnið, og sagði að nú hillti undir það langþráða markmið að unnt væri að bjóða upp á starfsmenntun fyrir kennara á öllum skóla- stigum. Endurskoðun náms í haust Að sögn Ólafs verður á hausti komanda boð- ið upp á endurskoðað, samhæft bakkalár- og meistaranám á öllum námsbrautum en það mun taka mið af sívaxandi kröfum samfélags- ins og því besta sem læra má af öðrum þjóðum á viðkomandi sviði. Lögð verður áhersla á að nemendur geti sér- hæft sig á þeim sviðum, sem þeir hafa áhuga á, en meðal sérhæfinga í nýrri námskrá eru með- al annars mál og læsi, kennslufræði yngri barna, lestrarkennsla og lestrarörðugleikar, mat á námi og námskrárgerð, fjölmenning og tvítyngi, samskipti og miðlun, nám og kennsla fullorðinna, sérkennsla og fötlunarfræði, menntastjórnun og menntaráðgjöf ásamt sér- hæfingu í kennslu fjölmargra greina, til dæmis íslensku, stærðfræði, náttúrufræði, fé- lagsgreina og listgreina. Þá býður Kennarahá- skólinn frá sama tíma endurskoðað, rann- sóknatengt meistara- og doktorsnám. Fram kom í ræðu Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskólans, að Kennaraháskólinn væri næstelsti háskóli landsins með 2.400 nemend- ur. Þar væri boðið upp á menntun fyrir kenn- ara á öllum skólastigum. Mikið símenntunar- starf fyrir kennara og aðrar uppeldisstéttir færi fram í skólanum og nærri allt nám við skólann stæði einnig til boða sem fjar- og stað- nám og nú stundaði rúmur helmingur nem- enda námið með fjarnámssniði. Heildstætt nám á nýj- um grunni Ólafur Proppé Ný námskrá við Kenn- araháskóla Íslands kynnt „Þetta eru MÍNIR einkastaðir“ forníu, rekist á þessa bók á ráðstefnu um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum þar. Höf- undur bókarinnar, Diane Hansen, og dóttir hennar fjögurra ára, Charlotte Hansen, hafi gert myndirnar. Diane hafi verið á ráðstefn- unni og gefið góðfúslega leyfi til að bókin yrði þýdd á íslensku og gefin út hér. Bókin sé mjög einföld og aðgengileg fyrir börn, textinn allur rímaður og því auðveldara að tileinka sér hann en ella. Börnin hafi gaman af að lesa textann aftur og aftur og þarna séu einnig leiðbeiningar fyrir foreldra um það hvernig þau geti lesið bókina með börn- um sínum, auk umsagna frá fagaðilum og fólki sem orðið hafi fyrir kynferðislegu of- beldi um það hvort bók af þessu tagi hefði getað hjálpað þeim, hefði hún verið til þegar þau voru yngri. Einfaldar upplýsingar „Þetta eru í raun ósköp einfaldar upplýs- ingar sem við erum að hvetja foreldra og aðra aðstandendur barna til að ræða um við börnin. Það hefur flækst fyrir fólki hvernig það eigi að tala um þessi efni við börnin og hvernig það eigi að kenna börnum sínum að þekkja eðlileg mörk í samskiptum. Við feng- um Hagkaup í lið með okkur og erum þeim mjög þakklátar fyrir að taka þátt í því með okkur að fræða Íslendinga í þessum efnum og gefa út bókina,“ segja Sigríður og Svava. Bókin kemur út á föstudaginn kemur og verður seld í öllum verslunum Hagkaupa og mun kosta tæpar eitt þúsund kr. Söluverð bókarinnar verður notað til að styrkja áframhaldandi starf verkefnisins Blátt áfram. Sigríður og Svava segja aðspurðar að eðlilegt sé fyrir foreldra að byrja að ræða um þessi hluti við börnin strax og þau séu tveggja til þriggja ára gömul, þ.e.a.s. um snertingu og mörk hennar, hvað megi og hvað megi ekki, hvað sé góð snerting og hvað sé slæm snerting. Bókina sé hægt að nota fyrir börn upp í 9-10 ára. Sjálfsagt mál „Við mælum einnig með því að bókin sé lesin fyrir barnahópinn saman og rætt um efni hennar, um reglurnar og hvernig við eigum koma fram hvort við annað, þannig að börnin fái öll sömu skilaboðin,“ segja þær. Systurnar benda á að það sé eins sjálf- sagt mál að ræða um og kenna börnum eðli- leg mörk snertingar og kenna þeim umferð- arreglurnar. Það þurfi að ræða um þetta við börnin oftar en einu sinni svo tryggt sé að þau skilji að þau hafi vald yfir líkama sínum og enginn annar. „Við kennum börnunum okkar að ganga yfir götu oftar en einu sinni. Við förum ekki með þau að gangbrautinni og segjum: „Þarna eru hvítu strikin og græni karlinn og þú sérð um þetta.“ Það er það sama með þetta. Við vonum að for- eldrar setjist niður með börnum sínum með bókina öðru hverju og að upplýsingar um þessi efni verði sjálfsagður og eðlilegur þáttur í uppfræðslu barna,“ segja þær enn- fremur. Systurnar vilja koma á framfæri þakklæti til Hagkaupa og Saga film, sem bjó til sjón- varpsauglýsingu til að vekja athygli á bók- inni. Bókin hefst á þessari vísu: Nú byrjum við að læra um einkastaði okkar. Stelpur og strákar – þetta eru tveir flokkar. Öðru vísi að framan; en að aftan alveg eins. Að þykjast ekki vita þetta er ekki til neins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.