Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 79

Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 79 E N N E M M / S ÍA / N M 2 19 9 9 túkall Saltkjöt og baunir, Saltkjöt og baunir eru skemmtilegasta matarhef›in sem Íslendingar eiga. Sprengidagurinn nálgast, tökum hann me› trompi. Franski leikarinn Samy Naceri,sem helst er þekktur fyrir að leika hlutverk Daniels, leigubíl- stjórans í Taxi-myndunum, var á föstudaginn dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að ógna dyraverði á næturklúbbi með hnífi eftir að dyravörðurinn hafði neitað Naceri um inngöngu í næturklúbb- inn sem er í bænum Aix í Pro- vence-héraði. Atvikið átti sér stað í janúar. Honum var jafnframt gert að greiða fimm þúsund evrur í sekt fyrir að hafa móðgað lögregluþjón sem gætti hans á sjúkrahúsi, en leikarinn var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa tekið of stóran skammt af lyfjum í fangaklefa sem hann gisti vegna árásarinnar á dyravörðinn. Naceri hefur oft komist í kast við lögin og var síðast dæmdur í fang- elsi í desember á síðasta ári. Naceri, sem er 45 ára gamall, var samkvæmt upplýsingum frá lögreglu drukkinn er hann kom að næturklúbbnum með tvær ungar stúlkur upp á arminn. Honum lenti saman við dyravörðinn eftir að hafa verið synjað um inngöngu og dró leikarinn þá upp hníf og beindi honum að dyraverðinum. Dyravörðurinn slapp ómeiddur en Naceri þurfti hins vegar að leita til bráðamóttökunnar þar sem hann datt fyrir bíl og slasaðist á kjálka auk þess sem nokkrar tennur fuku. Eins og áður sagði hefur Naceri oft komist í kast við lögin og í des- ember var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa móðgað svartan lögreglumann með óviðeigandi kynþáttaummælum. Frá árinu 2000 hefur hann hlotið fjóra dóma, fyrir líkamsárás, ölv- unarakstur og hraðakstur. Naceri á franska móður en föður frá Alsír og er múslimi. Í október 2005 vann hann sér það til frægðar að hóta Salman Rushdie lífláti í frönskum spjallþætti, að sögn heimildarmanna, en ummæli hans voru klippt út. Á Naceri að hafa sagst vera tilbúinn að myrða Rus- hdie fyrir 50 dali, „Pour 50 balles, moi, je te fume.“ Eftir þetta hefur Salman Rushdie aldrei komið fram í frönskum sjónvarpsþætti og segir að það muni hann aldrei gera aftur. Bandaríski sveitasöngvarinnKenny Chesney hefur vísað því á bug að rekja megi það hversu skammvinnt hjónaband hans og kvikmyndaleikkonunnar Renée Zellweger varð, til þess að hann sé samkynhneigður. Í umsókn sinni um ógildingu hjónabandsins bar Zellwe- ger við „svikum“ án þess að gera nánari grein fyrir því og túlkuðu margir það svo að Chesney væri samkynhneigður. „Það er ekki satt. Punktur. Ég hefði kannski átt að koma strax fram og segja „nei ég er ekki hommi“, en ég vildi ekki draga enn meiri athygli að þessu,“ sagði Chesney í nýlegu sjónvarpsviðtali. „Ég þurfti ekki að sanna fyrir neinum að ég væri ekki hommi. Mér fannst ég ekki þurfa að gera það. Einu svikin sem framin voru, voru þau að ég hélt að ég vissi hvað fælist í því að vera giftur, að ég gæti ímyndað mér hvernig það væri, en ég gerði það í raun ekki,“ sagði hann. Þá segir hann þau Zellweger hafa komið sér saman um að bera við svikum þar sem það geti haft mjög víða merkingu. Það hafi hins vegar verið misráðið hjá þeim. „Ég sé alls ekki eftir hjónabandi okkar. Ekki minnstu vitund, segir hann. „Ég segi hins vegar við sjálfan mig: „Ég vildi að við hefðum bara skilið í stað þess að ganga í gegn um þessa ógilding- arvitleysu.“ Það hefði sparað mér mikla auðmýkingu. Ég iðrast þó einskis. Ég elskaði hana og það var raunverulegt.“ Zellweger og Chesney gengu í hjónaband á Jómfrúreyjum í maí ár- ið 2005 og fjórum mánuðum síðar sótti Zellweger um ógildingu hjóna- bandsins. Hún sendi síðar frá sér yf- irlýsingu þar sem hún sagði að orðið „svik“ ætti ekki við um persónuleika Chesneys. Fólk folk@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.