Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
w w w . a u s t u r l a n d . i s
Lagarás 4, 700 Egilsstaðir. S. 580 7905 ● Búðareyri 2, 730 Reyðarfjörður. S. 580 7907
Hilmar Gunnlaugsson lögg.fasteignasali.
Guðrún Gísladóttir lögg.fasteignasali.
Hjördís Hilmarsdóttir lögg.fasteignasali.
Nánari upplýsingar á Fasteigna- og skipasölu Austurlands.
Höfum fengið til einkasölumeð-
ferðar rekstur Hárhallarinnar á
Egilsstöðum, sem er rótgróin
hárgreiðslustofa með mikla við-
skiptavild. Reksturinn er í rúm-
góðu leiguhúsnæði sem rúmar
auðveldlega 6 stóla. Í sama hús-
næði hefur verið rekin snyrtistofa
og er slík aðstaða því einnig til
staðar.
Nánari upplýsingar gefur
Hilmar Gunnlaugsson hdl., lfs.
Fasteigna- og skipasala Austurlands
sími 580 7905.
Hraunhamar fast-
eignasala hefur fengið
í einkasölu mjög glæsi-
legar 2 143 fm. 4ra
herb. hæðir í nýju 3ja
hæða húsi sem er í
byggingu, í hjarta
Hafnarfjarðar. Íbúðirnar afhendiast fullb. án gólfefna í ágúst 2007, með vönduðum
innréttingum og tækjum, flísalögðu baði og þvottahúsi. Eigninirnar skiptast, sam-
kvæmt teikningu í forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, baðherbergi, tvö her-
bergi, vinnuherbergi, þvottahús og geymslu. Tvennar svalir, aðrar um 60 fm. Stór
geymsla í risi sem býður upp á mikla möguleika.
Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi gsm 8960058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Strandgata - Hf
Hraunhamar fast-
eignasala hefur feng-
ið í einkasölu sérlega
fallegt og vel hannað
pallabyggt endarað-
hús á besta útsýnis-
stað í Ásahverfinu í
Garðabæ. Eignin er
136,1 fm auk 24,9 fm
bílskúrs, samtals 161
fm. Skipti á minni eign koma til greina. Glæsilegur garður.
Verð 54 millj.
Birkiás - Garðabæ
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hjallabraut - Hf. - Glæsileg
Í einkasölu glæsileg, nýstandsett 146 fm íbúð á 2. hæð í góðu, klæddu fjöl-
býli á besta stað í norðurbæ Hafnarfjarðar. 3 góð svefnherbergi, glæsilegt ný-
standsett eldhús og baðherbergi. Vandað, gegnheilt parket á gólfum. Stórar
stofur, gott sjónvarpshol. Hús klætt að utan í góðu standi. Óvenju björt og
falleg íbúð, mikið endurnýuð, allt fyrsta flokks. Eign í sérflokki.
Verð 25,6 millj. 8587-1
Upplýsingar gefur Hilmar í s. 892 9694.
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.Sími 588 4477
Opið hús í dag kl. 14-16
Krossalind 19 - Kópavogi
Um er að ræða mjög gott sér-
lega vel staðsett 170,7 fm par-
hús á tveimur hæðum, ásamt
26,2 fm góðum bílskúr. Glæsi-
legt útsýni, tvennar svalir, parket
og flísar á öllum gólfum. Fjögur
svefnherbergi. Hiti í plani.
V. 49,8 m.
Ragnar og Gyða taka á móti þér og þínum
í dag á milli kl. 14 og 16
Opið hús í dag kl. 13-15
Þórðarsveigur 18
Glæsileg 87 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í vönduðu bíl-
skýli. Innangengt er í bílskýli úr lyftuhúsi. Íbúðin er fallega innréttuð
með vönduðu parketi á gólfum. Sérþvottahús. Lítil geymsla er í
íbúðinni og nýtist vel sem tölvuherbergi. Vönduð rimlagluggatjöld.
Suðursvalir.
Rín sýnir í dag, sunnudag milli kl. 13-15.
Allir velkomnir. Rín á bjöllu.
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
Sími 533 4040
jöreign ehf
Opið mán.–fim. frá kl. 9–18,
fös. frá kl. 9–17.Dan V.S. Wiium hdl.,
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG KL. 14-18
KAMBASEL 53 - ÍBÚÐ 0101
Rúmgóð og falleg 2ja herb.
íbúð á jarðhæð í litlu fjölbýli.
Sérgarður í suður. Góðar
innréttingar. Hús í góðu
ástandi. Sérþvottahús. Laus
fljótlega. Verð 15,9 millj.
Ólafur Haukur tekur á móti áhugasömum
í dag milli kl. 14 og 18.
lögg. fasteignasali
Kristinn Valur Wiium sölum., s. 896 6913 - Ólafur Guðmundsson sölustjóri, s. 896 4090
Ármúla 21 • Reykjavík • kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HRAFNINN á líkt og aðrir spör-
fuglar erfitt um þetta leyti árs þótt
hann megi heita konungur þeirra.
Krummi hefur löngum kitlað ímynd-
unarafl okkar og honum tileinkuð
nokkur klókindi – jafnvel talinn háð-
fugl. Fólkinu á bænum þótti ekki
verra ef hrafnar áttu sér bú í ein-
hverjum klettinum skammt frá.
Fjöldi krummavísna er á flækingi í
málinu og bera vitni innbornum
áhuga fyrir þessum stóra fylgifugli
landsins. „Krummi krunkar úti/
kallar á nafna sinn.“ Þetta þekkjum
við öll og þykir gaman að þegar
sungið er við glaðhlakkalega útsetn-
ingu Jóns Ásgeirssonar á þjóðlagi
aftan úr öldum; en hver orti roms-
una? Í Nýju vísnabókinni (tíu ára
gömul) segir að þetta sé gömul þjóð-
rolla en í vísnabók sem prentuð var
handa börnum fyrir hálfri öld stend-
ur neðan við erindið: Eiríkur á
Reykjum. Spurningin er þá: Er átt
við Eirík Vigfússon bónda og hrepp-
stjóra á Skeiðum eða son hans Eirík
sem tók við búi á Reykjum? Báðir
fengust þeir við að yrkja; eftir Eirík
eldri er: „Um eldfjöllin um Íslands-
setur“ sem hann orti þegar honum
þótti Bjarni Thorarensen lúta Dana-
konungi um of í kvæðinu „Tindafjöll
skjálfa en titrar jörð“. Eiríkur yngri
orti nokkur trúarljóð í tilfinn-
ingatreyju nítjándu aldar; hann
hafði gott vald á íþróttinni eins og
eftirfarandi vísa ber með sér en hún
er um Ingigerði dóttur hans sem
gekk með föður sínum að heyskap:
„Ýfrið trúa auðarlín/Er í lúa stappi/
Flekkja grúa Gerða mín/Gjörir snúa
af kappi.“
Eiríkur yngri orti kunnar vísur
um sauðasölu sem þá var komin til
sögunnar og voru sauðir seldir á fæti
til Englands; þetta var bændum til-
finningamál og má skilja það af vís-
um Eiríks: „Sé ég eftir sauðunum.“
Sumir eigna föður hans þessi erindi.
Eiríkur eldri var hreppstjóri Skeiða-
manna í fjörutíu ár og forlík-
unarmaður (sáttasemjari) í þrjá ára-
tugi. Sagt er að réttardag einn hafi
Eiríkur setið á hesti sínum, horft yf-
ir safnið og mælt fram tregastef:
„Nú sést féð og fólkið margt og feit-
ur klárinn./En engin sjást hér af því
hárin/eftir liðin sjötíu árin.“ Þetta
minnir á frásögn keimlíka af Alex-
ander Filippussyni frá Makedóníu
er hann lagði upp með fjölmennan
her á leið til Persíu. Hann stöðvaði
hest sinn á hæð nokkurri og leit yfir
fylkingarnar, augu hans urðu tárvot
er hann hugsaði til þess, að margir
hinna ungu manna ættu ekki aft-
urkvæmt en myndu láta lífið á fjar-
lægum vígvöllum.
Nokkrar krummavísur þekkjum
við öll: Krummi svaf í klettagjá –
Krumminn á skjánum – Krummi sit-
ur á kvíavegg. Á hrafnaþingi vita
þeir hvar landið er í byggð. Þótt
krummi njóti nokkurrar virðingar er
mörgum illa við hann og fjöldi
hrafna er drepinn ár hvert; einkum
er æðarbændum og fjárbændum í
nöp við krumma sem er hiklaus í að-
förum þegar færi gefst að kroppa í
bústofn þeirra. Menn nema gjarnan
staðar og líta upp þegar hrafn tyllir
sér í öruggri hæð og tekur að krunka
fréttir til félaganna sem aldrei eru
langt undan. Fróðleik um hrafna og
háttalag þeirra er m.a. að finna í
hinni merku fuglabók Ævars Pet-
ersen; fræðimanninum Ævari þykir
fullhart sótt að krumma og óþarfi að
drepnar séu þúsundir þeirra ár
hvert. Okkur þætti tómlegra ef
krummi hætti að skemmta okkur og
honum sæist ekki bregða fyrir stöku
sinnum. Samband manns og
krumma hefur staðið lengi, allt frá
tyllidögum germanskrar goðafræði
og auðvitað lengur. Hvenær hrafn-
inn barst til Íslands er óþekkt en ef
til vill var Flóki Vilgerðarson sá sem
færði okkur þennan forvitnilega fé-
laga við upphaf mannlífs á Íslandi.
EMIL ALS,
Árbraut 18, Blönduósi.
Krummi krunkar úti
Frá Emil Als:
Fullkomnaðu
verkið með
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
Þ
A
K
R
E
N
N
U
K
E
R
FI
á
öllhús
–
allsstaðar
BLIKKÁS –
Smiðjuvegi 74
Sími 515 8700
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali