Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Vélstjóri VF1 Traust útgerðarfyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu óskar eftir vélstjóra. VF1 réttinda er krafist. Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. á box@mbl.is merktar: ,,V - 19575’’ fyrir mánudaginn 26. febrúar. Sölumaður fasteigna Óskum eftir að ráða vanan sölumann á rót- gróna og reyklausa fasteignasölu, vel staðsetta í Reykjavík. Vinsamlega skilið inn umsóknum til auglýs- ingadeildar Mbl. eða á box@mbl.is merktum: ,,S - 19556’’. Bókari óskast í hlutastarf. Lítið fyrirtæki í Hveragerði óskar eftir bókara í hlutastarf. Góð reynsla skilyrði. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Morgunblaðsins eða á box@mbl.is fyrir 1. mars 2007 merktar:,,Bókari - 19555”. sunnudagur 18. 2. 2007 atvinna mbl.isatvinna Gestir í vikunni 11.261 » Innlit 20.527 » Flettingar 159.532 » Heimild: Samræmd vefmæling STYRKIR STARFSMENNTARÁÐS ÍSLENSKUKENNSLA FYRIR ÚTLENDINGA, FERÐAMÁL OG VERSLUN HAFA FORGANG, SEGIR MARGRÉT KR. GUNNARSDÓTTIR >> 10 Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Menning 66/69 Staksteinar 8 Leikhús 68 Veður 8 Myndasögur 70 Daglegt líf 24/39 Krossgáta 72 Forystugrein 40 Dægradvöl 73 Reykjavíkurbréf 40 Bíó 74/77 Umræðan 43/55 Staður og stund 74 Bréf 48/49 Víkverji 76 Hugvekja 57 Velvakandi 76 Minningar 57/63 Sjónvarp 78 * * *  Kynferðisofbeldi gegn börnum getur leitt til margvíslegra sálrænna vandamála, að sögn Vigdísar Er- lendsdóttur, sálfræðings og for- stöðumanns Barnahúss, sem segir að til að mynda geti komið fram át- raskanir hjá stúlkum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. „Alls konar hegðunarvandamál geta komið fram hjá þolendum – svo sem erfiðleikar með að treysta öðru fólki og ýmis til- finningaleg vandamál, þunglyndi og sjálfskaðandi hegðun,“ segir Vigdís. »Forsíða, 10  Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð vill taka á kvótabraski og að- gangi innlendrar fiskvinnslu að hrá- efni komist flokkurinn í ríkisstjórn eftir komandi kosningar, að sögn Steingríms J. Sigfússonar, formanns vinstri grænna í viðtali í Morg- unblaðinu í dag. Steingrímur segir að ef vinstri græn og Samfylkingin gætu myndað meirihlutastjórn eftir kosningarnar þá væru það söguleg stórtíðindi, sem í fælust þau skilaboð „að þannig ríkisstjórn vildi þjóðin“. »Forsíða, 16  Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að sveitarfélögin hafi boðist til að hefja viðræður við kennara um framtíðarsýn í skólamálum sem gæti orðið grundvöllur að nýjum kjara- samningi við þá. Kennarar hafi hins vegar ekki verið tilbúnir að hefja viðræðurnar fyrr en ágreiningur um endurskoðunarákvæði gildandi samnings yrði leystur. » 4  Stórfellt eignatjón varð en eng- inn slasaðist í tveimur umferð- aróhöppum sem urðu í Reykjavík í gærmorgun, meðal annars vegna ofsaaksturs ökumanna. Ökumaður ók á ofsahraða eftir Breiðholtsbraut og lögreglunni tókst að stöðva hann með því að aka utan í bifreið hans og snúa henni. Maðurinn er grunaður um ölvun eins og ökumaður bíls sem stöðvaður var eftir mikla eftirför seint í fyrrakvöld. » Baksíða  Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja á Akureyri, segir að brátt verði hafist handa við að reisa fullkomnasta fiskvinnsluhús heims á Dalvík. Þorsteinn segir áræðni skorta í íslenskan sjávarútveg og meginástæða þess sé neikvæð um- ræða um atvinnuveginn. » 4  680 grömm af kókaíni fundust á tveimur íslenskum konum á Kefla- víkurflugvelli um miðja síðustu viku. Þær voru báðar úrskurðaðar í gæsluvarðhald og einnig karlmaður sem handtekinn var síðar vegna málsins. Konurnar komu til landsins frá Amsterdam og höfðu falið efnið innvortis og innan klæða. » 6  Ráðherra upplýsingamála í út- lagastjórn Sahrawi-manna í Vestur- Sahara, Sid Ahmed Batal, gagnrýnir íslensk fyrirtæki sem hafa samið við Marokkómenn um fiskveiðikvóta við strendur Vestur-Sahara. „Samein- uðu þjóðirnar hafa samþykkt að fyr- irtæki sem semji þannig við Mar- okkó séu að brjóta gegn samþykktum samtakanna, séu lög- brjótar. Allir slíkir samningar eru samningar um þjófnað,“ segir ráð- herra útlagastjórnarinnar. » 30 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is VALGERÐUR Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra hefur náð því marki að hafa setið lengst allra kvenna hér á landi í embætti ráðherra eða í samtals 2.604 daga. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, átti um árabil þann titil í íslenskum stjórn- málum að hafa setið lengst allra kvenna á ráðherrastóli en Val- gerður náði starfsaldri hennar í ráðherraembætti fyrir um þremur mánuðum. Valgerður tók fyrst við ráðherraembætti 31. desember 1999 er hún varð viðskipta- og iðn- aðarráðherra. Hún hefur verið ut- anríkisráðherra frá 15. júní á sein- asta ári. Síðastliðinn fimmtudag var ráðherraseta Valgerðar orðin 7 ár, einn mánuður og 16 dagar. Jó- hanna Sigurðardóttir gegndi emb- ætti félagsmálaráðherra alls í 2.514 daga eða frá 7. ágúst árið 1987 til 24. júní árið 1994. Samtals var Jó- hanna því í ríkisstjórn í 6 ár, tíu mánuði og 18 daga. Þriðja lengsta ráðherraferil kvenna á Siv Friðleifsdóttir heil- brigðisráðherra en hún hefur sam- tals verið á ráðherrastóli í 6 ár og um fjóra mánuði. Konur eiga enn langt í land ætli þær að skáka þeim körlum sem lengst hafa gegnt ráðherrastörfum hér á landi í starfsaldri. Lengstan starfsaldur allra íslenskra stjórn- málamanna í ríkisstjórn átti Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, sem var ráðherra samtals í 20 ár og rúman mánuð og næst lengsta fer- ilinn á Halldór Ásgrímsson, Fram- sóknarflokki, sem var ráðherra í 19 ár og tæpan mánuð. Ellefu konur hafa gegnt ráð- herraembætti hér á landi. Flestar á vegum Sjálfstæðisflokksins eða fimm, Auður Auðuns, Ragnhildur Helgadóttir, Sólveig Pétursdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Anna Þórðardóttir. Fjórar framsóknarkonur hafa verið ráð- herrar, Valgerður Sverrisdóttir, Siv Friðleifsdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og Jónína Bjartmarz. Tvær konur hafa gegnt ráðherra- störfum á vegum Alþýðuflokksins, Jóhanna Sigurðardóttir og Rann- veig Guðmundsdóttir. Lengst kvenna í ríkisstjórn Valgerður hefur skákað Jóhönnu sem lengst starfandi kvenráðherrann Konur á ráðherrastóli Ráðherrastörf kvenna í mánuðum Valgerður Sverrisdóttir 85 Jóhanna Sigurðardóttir 82 Siv Friðleifsdóttir 76 Ingibjörg Pálmadóttir 72 Ragnhildur Helgadóttir 49 Sólveig Pétursdóttir 48 Þorgerður K. Gunnarsdóttir 38 Sigríður A. Þórðardóttir 21 Auður Auðuns 9 Jónína Bjartmarz 8 Rannveig Guðmundsdóttir 5 Valgerður Sverrisdóttir Jóhanna Sigurðardóttir Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „VIÐ MUNUM fljótlega boða til fundar til að ræða það alvarlega ástand sem er í mengunarmálum í hverfinu,“ segir Hilmar Sigurðsson, formaður íbúasamtaka 3. hverfis Reykjavíkurborgar, sem nær til Hlíðanna, Holtanna og Norðurmýr- arinnar. Hilmar segir mælinn fullan hjá samtökunum vegna aðgerðaleys- is yfirvalda við að draga úr bílaum- ferð um hverfið. Nú sé tími til kom- inn að grípa til aðgerða, lagning þess hluta Miklubrautar sem liggur í gegnum hverfið í niðurgrafinn stokk sé skref í rétta átt. Hilmar segir umfjöllun Morgun- blaðsins um svifryk og niturdíoxíðs- mengun, NO2, að undanförnu hafa minnt íbúana á umfang þess heilsu- farsvandamáls sem loftmengun sé, einkum nýlegt viðtal við Þórarin Gíslason lungnalækni um mælingar á magni NO2 í andrúmsloftinu víðs- vegar um borgina. Hilmar segist í ljósi umræðunnar eiga von á fjölmenni á fundinn sem haldinn verði innan skamms. „Ég held að það sé ekki spurning. Ég á bágt með að trúa öðru en að þetta hreyfi við fólki. Hér vísa ég til magns niturdíoxíðs í andrúmsloftinu og hættu á öndunarfærasjúkdómum vegna loftmengunarinnar. Helmingur ferða undir 2 km Niturdíoxíð myndast einkum við bruna í bílvélum og þeim mun hraðar sem þeim er ekið, þeim mun meira myndast af því. Því þarf að draga úr hraðanum við göturnar sem eru hraðbrautir, ekki stofnbrautir og liggja þvert í gegnum hverfið.“ Hilmar er þeirrar hyggju að auka þurfi vægi almenningssamgangna. „Ef maður veltir fyrir sér þjóð- félagslegum kostnaði vegna meng- unar sýnist lítið mál að lækka verðið í strætó. Ef við skoðum ferða- mynstrið er meira en helmingur bíl- ferða hjá okkur undir tveimur kíló- metrum og um 30 prósent ferðanna undir kílómetra, vegalengd sem tek- ur um tvær mínútur að hjóla. Meirihluti íbúa hverfisins er innan þess 200 metra áhrifasvæðis frá helstu stofnæðunum sem Þórarinn læknir tilgreinir í viðtalinu. Börnin í hverfinu búa ekki aðeins við mengun heima sjá hér, heldur eru allir skólar hverfisins innan þessa áhrifasvæðis og fimm af sjö leikskólum.“ Hilmar bætir því við að hann telji mjög brýnt að greiða fyrir umferð hjólreiðafólks um borgina, líta þurfi á hjólið sem samgöngutæki en ekki sem afþreyingartæki. Efna til borgarafundar vegna loftmengunar ÞESSA dagana stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur sýning á 100 vatnslitamyndum eftir Erró. Myndirnar eru flestar í eigu listamannsins og hafa þær ekki verið sýndar hér á landi áður, enda margar hverjar frá síð- ustu árum. Myndefnið er fjölbreytt og byggist á klippi- myndum sem listamaðurinn vinnur upp úr hinum ýmsu prentmiðlum samtímans, þó aðallega myndasögum. Stúlka úr sjötta bekk Álftanesskóla skoðar sýn- inguna af áhuga og af svipbrigðunum að dæma líkar henni vel það sem fyrir augu ber. Morgunblaðið/G.Rúnar Erró og ungdómurinn ALLS voru átta ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur af lögreglunni á Suðurnesjum á föstudagskvöldið og aðfaranótt laugardags. Skv. upp- lýsingum lögreglu mældist sá er hraðast ók á 135 km/klst. á Reykja- nesbrautinni þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Annar ökumaður var stöðvaður á Reykjanesbrautinni á 131 km hraða á klst. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Þá var ökumaður kærður fyrir að aka gegn rauðu ljósi á Hringbraut í Reykjanesbæ. Töluvert hefur verið um ólöglegan hraðakstur að undanförnu í lög- regluumdæminu. Síðastliðinn föstu- dag var ökumaður á Reykjanes- brautinni mældur á 171 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Var maðurinn færður á lögreglustöð og var hann sviptur ökuleyfi til bráða- birgða. Á ofsahraða á Reykja- nesbraut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.