Morgunblaðið - 18.02.2007, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
OPIÐ HÚS
STÓRAHJALLA 19 - KÓP.
Bjart og vel umgengið 228,1 fm endaraðhús með fjórum herbergjum á
tveimur hæðum, innbyggðum bílskúr, útsýni til Esjunnar og góðum
suðurgarði. Verð 41,9 m.
Sveinn og Aðalheiður taka á móti gestum í dag, sunnudag,
milli kl. 13 og 15.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14 - 16
NORÐURTÚN 16 - ÁLFTANESI
Magnús og Guðbjörg taka á móti áhugasömum og sýna hús sitt, sem er mjög fallegt
um 195,6 fm einbýlishús á frábærum stað á Álftanesi. Vandaðar innréttingar og gólf-
efni. Stór bílskúr með gryfju. Glæsileg lóð, góð verönd með heitum potti. Örstutt í
leikskóla, grunnskóla og íþróttamiðstöð. Skipti möguleg á 4ra herb. eða litlu raðhúsi.
Verð kr. 49,9 millj.
Sölumaður Sigurður s. 8983708
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
70,2 fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í húsi byggðu 1987. Eignin
skiptist í anddyri, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvotta-
hús og sérgeymslu í sameign. Stutt er í alla þjónustu, skóla og versl-
anir. V. 18,5 millj.
Opið hús í dag milli kl. 13.00 og 14.00.
Álfaheiði 8e – Opið hús
46,6 fm glæsileg 2ja herbergja íbúð í nýlegu (byggt 2004) húsi við
Frakkastíg með sérinngangi og verönd til suðurs. Íbúðin skiptist í for-
stofu, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, geymslu í íbúð,
sameiginlegt þvottahús í sameign. Vel staðsett íbúð sem vert er að
skoða. Áhvíl. hagstætt lán. Getur verið laus fljótlega. V. 17,9 millj.
Opið hús í dag milli kl. 15.00 og 16.00 (Sunna Dögg á dyrabjöllu).
Frakkastígur 14b – Opið hús
Glæsilegar 139,9 fm 4ra herb. efri sérhæðir auk 33,2 fm bílskúrs í fal-
lega hönnuðum tvíbýlishúsum við Lindarvað í Reykjavík. Alls er hver
hæð því 173,1 fm með bílskúr. 50 fm svalir fylgja hverri íbúð í suður.
Eignunum er skilað fullbúnum án gólfefna. Hægt er að fá eignirnar 5
herbergja. V. 40,9 millj.
Lindarvað – Nýbygging
284,2 fm einbýli á tveimur hæðum, þar af 32 fm bílskúr. Sér 2ja herb.
íbúð á jarðhæð. Glæsileg ca 100 fm verönd með skjólvegg og heit-
um potti til suðurs. Á efri hæð er forstofa, tvö svefnherbergi, baðher-
bergi, stofur og eldhús. Á neðri hæð er sjónvarpshol, tvö svefnher-
bergi, baðherbergi, saunaklefi og þvottahús. V. 68,0 millj.
Skógarhjalli - Með aukaíbúð
112,7 fm glæsileg og mjög mikið endurnýjuð 5 herbergja íbúð á 2.
hæð auk stæðis í lokaðri bílageymslu. Íbúðin skiptist í hol, stofu með
suðursvölum, glæsilegt eldhús með borðkrók, þvottahús, fjögur góð
svefnherbergi og baðherbergi. Eign sem vert er að skoða. V. 28,5
millj.
Flétturimi - 5 herbergja íbúð
– Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! –
Í HAUST var tekin upp ný náms-
leið í sjúkraliðanámi, svokölluð
sjúkraliðabrú, við Fjölbrautaskól-
ann við Ármúla. Þeir sem geta sótt
um námið eru ófaglært starfsfólk
sem vinnur umönnunarstörf, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum. Þessi
skilyrði eru: Að um-
sækjandi hafi minnst 5
ára samfelldan starfs-
aldur við umönn-
unarstörf, hafi með-
mæli frá
vinnuveitanda og hafi
lokið a.m.k. 230 stunda
námskeiðum eða ígildi
þeirra. Sjúkraliðabrú-
in er skipulögð skv.
námskrá sem Starfs-
greinaráð um heil-
brigðis- og félagslega
þjónustu fól faghópi
sérfróðra að skrifa.
Markmið náms á sjúkraliðabrú eru
m.a. að fjölga starfandi sjúkraliðum í
umönnunarstörfum og auka fag-
mennsku í þessum störfum.
Samkvæmt námskrá sjúkrali-
ðabrúar eru almennir áfangar á
sjúkraliðabraut metnir, að und-
anskildum áfanga í upplýs-
ingatækni. Jafnframt er 16 vikna
launuð starfsþjálfun metin til stytt-
ingar á hefðbundnu sjúkraliðanámi.
Nemar þurfa hins vegar að taka all-
ar sérgreinar sjúkraliðabrautar,
þ.m.t. ólaunað verknám með leið-
beinanda, alls 40 vaktir eða 320
stundir á námstímanum.
Í hefðbundnu sjúkraliðanámi er
ólaunað verknám með leiðbeinanda
45 vaktir eða 360 stundir. Til skýr-
ingar er rétt að taka fram að vinnu-
staðanám í sjúkraliðanámi er tví-
þætt; annarsvegar ólaunað verknám
undir handleiðslu leiðbeinanda á
vinnustað og hjúkrunarkennara, og
hins vegar 16 vikna launuð starfs-
þjálfun. Sérgreinar brautar eru t.d.
hjúkrunargreinar, líf-
færa- og lífeðlisfræði
o.fl. greinar.
Rökin fyrir
sjúkraliðabrú
Það hefur varla farið
fram hjá neinum að
mikill skortur er á
sjúkraliðum á vinnu-
markaði. Í könnun
Landlæknisembætt-
isins frá 1999 kemur
fram að 800 sjúkraliða
vanti á vinnumarkaðinn
og skv. spá Hag-
fræðistofnunar HÍ, frá des. 2006 um
þörf á starfsfólki í heilbrigðiskerf-
inu, þarf að brautskrá 140 sjúkraliða
árlega á næstu árum til þess að
mæta þörfinni. Vandinn mun vaxa ef
ekkert verður að gert vegna vaxandi
fjölda aldraðra í samfélaginu og auk-
ins fjölda sjúkraliða sem hverfur af
vinnumarkaði á næstu árum.
Það er alkunna að á heilbrigð-
isstofnunum starfar fólk í umönn-
unarstörfum án formlegrar starfs-
menntunar, sem engu að síður hefur
sýnt færni í þessum störfum. Staða
ófaglærðra innan flestra heilbrigð-
isstofnana er veik og þess vegna
leita reyndir starfsmenn oft í önnur
störf. Heilbrigðisstofnanir, sem búa
við stöðugan og vaxandi skort á
starfsfólki mega ekki við því að
missa þessa reyndu starfsmenn. Í
Danmörku og Noregi var gripið til
þeirra ráða fyrir mörgum árum að
bjóða fólki með langa starfsreynslu í
umönnunarstörfum upp á nám í lík-
ingu við sjúkraliðabrúna með góðum
árangri. Það er í anda þeirrar mann-
auðsstefnu, sem nýtur vaxandi vin-
sælda á vinnumarkaði að virkja
þekkingu og reynslu starfsfólks og
hvetja það til þess að fara í nám.
Launþegasamtökin og stjórnvöld
eru samstiga í þessari stefnu. Laun-
þegasamtökin með því að semja um
aukin framlög í starfsmennt-
unarsjóði stéttarfélaga og viðsemj-
endur með auknu framlagi í sjóðina
og sveigjanleika.
Vert er að geta þess að stjórn-
endur Landspítala og fjölda hjúkr-
unarheimila hafa sýnt gott fordæmi
með því að auðvelda starfsfólki að
komast í nám á sjúkraliðabrú.
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla
stunda 70 nemendur nám á sjúkrali-
ðabrú,
meðalaldur þeirra er 48 ár, yngsti
nemandinn er 23 ára og elsti 64 ára.
Meirihluti nemenda hefur lokið
lengra undirbúningsnámi en 230
stunda námskeiðum.
Öllum bóklegum áföngum á haust-
misseri lauk með prófum. Það er
skemmst frá því að segja að þessir
nemendur stóðu sig með prýði.
Gagnrýni svarað
Í skrifum sjúkraliða gegn
sjúkraliðabrú ber mest á ótta við að
verið sé að minnka kröfur, sem muni
leiða til þess að laun lækki. Með
sjúkraliðabrú er reynt að meta raun-
færni fólks á vinnumarkaði til þess
að stytta námið. Skólameistarar
hafa fulla heimild skv. lögum til þess
að meta óformlegt nám og slíkt mat
er engin nýlunda á starfsmennta-
brautum.
Um laun er það að segja að
menntun er ekki eina breytan sem
hefur áhrif á laun, sbr. nýleg um-
ræða um samanburð á launum fé-
lagsliða og sjúkraliða.
Lokaorð
Gífurlegar breytingar hafa orðið á
möguleikum fólks til þess að afla sér
menntunar. Fólki með mikla reynslu
en litla formlega menntun í starfs-
grein býðst nú tækifæri til þess að
sækja sér menntun, sem mun koma
samstarfsmönnum í greininni og
skjólstæðingum þeirra til góða.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er
þróunarskóli í námi heilbrigð-
isstétta, þar er stöðugt unnið að því
að þróa starfsnám og laga það að
nýrri þekkingu og breytingum á
vinnumarkaði. Sjúkraliðabraut skól-
ans í samvinnu við Sjúkraliðafélag
Íslands hefur lagt sitt að mörkum til
þess þróa sjúkraliðanám og bregð-
ast við áhuga sjúkraliða á frekara
námi. Við skólann geta sjúkraliðar
stundað viðbótarnám í hjúkrun aldr-
aðra og fyrirhugað er að bjóða upp á
meiri fjölbreytni í viðbótarnámi á
næstu árum. Nám á sjúkraliðabrú er
enn einn valkostur sem skólinn býð-
ur upp á í þeim tilgangi að efla fag-
mennsku í umönnunarstörfum og án
efa munu verðandi sjúkraliðar af
sjúkraliðabrú efla sjúkraliðastéttina.
Um sjúkraliðabrú
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir
fjallar um málefni sjúkraliða
Guðrún Hildur
Ragnarsdóttir
»Nám á sjúkraliðabrúer enn einn val-
kostur sem skólinn býð-
ur upp á í þeim tilgangi
að efla fagmennsku í
umönnunarstörfum og
án efa munu verðandi
sjúkraliðar af sjúkrali-
ðabrú efla sjúkraliða-
stéttina.
Höfundur er kennslustjóri sjúkraliða-
brautar Fjölbrautskólans við Ármúla
og sat í faghópi um sjúkraliðabrú.
Fréttir á SMS