Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 54. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TRAPPAN FUNDIN BIRTA RÁN HEFUR ÁHUGA Á AÐ SETJA Á FÓT LJÓSMYNDASTOFU SEINNA MEIR >> 26 HVERNIG FANNST ÞEIM Í LEIKHÚSINU? ABBABABB SPURT Í BARNABLAÐINU FRÉTTASKÝRING Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is ÞEGAR Einar Oddur Kristjánsson lýsti sig sam- þykkan því á Alþingi á fimmtudag, að nú væru breyttir tímar; eignarnám ætti ekki við í neðri hluta Þjórsár og ekkert lægi á í virkjunar- og stóriðjumálum, tók hann undir nýjan tón í umhverfismálaum- ræðu Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn skynja vax- andi pólitískt mikilvægi um- hverfismálanna og bæði forystumenn og almennir flokksmenn sjá nauðsyn þess að flokknum takist að brjóta af sér „Kárahnjúkahlekkina“ og vísa þá til þess, að náttúruverndarumræðan hefur tengzt Kárahnjúkavirkjun og beinzt gegn ríkisstjórninni, sem Sjálfstæðisflokkurinn leiðir. Flokknum sé hrein og bein lífsnauðsyn að sjálfstæðismenn nái saman um umhverfisstefnu á breyttum tímum. Það var hann Illugi Gunnarsson sem hóf um- ræðuna um hægri græna; að saman geti farið að vera stuðningsmaður markaðsskipulags og náttúru- verndarsinni. Hann hafnaði í fimmta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík, nýr maður á þeim vettvangi. Annar ungur sjálfstæðismaður sem hefur fjallað um umhverfismál er Guðlaugur Þór Þórðar- son sem nú er stjórnarformaður Orkuveitu Reykja- víkur, hann náði öðru sæti í prófkjörinu og leiðir lista sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður. Fleiri frambjóðendur flokksins gerðu umhverfismál- in sérstaklega að umræðuefni, og náðu góðum ár- angri, og er litið til þess að endurnýjun í þingliðinu muni endurspegla þessa þróun. Í þingflokki sjálfstæðismanna hafa fleiri sýnt grænan lit, þ. á m. Sigríður Anna Þórðardóttir, sem var umhverfisráðherra um tíma, sá fyrsti og eini, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt. Þá hefur Pétur Blöndal fjallað um umhverfismál í ræðu og riti. Í haust héldu ungir sjálfstæðismenn málefnaþing undir kjörorðinu Umhverfið er okkar. Nú er formað- ur SUS, Borgar Þór Einarsson, formaður málefna- nefndar um umhverfismál fyrir landsfund Sjálfstæð- isflokksins í vor, þar sem menn munu ræða málin og móta stefnu til næstu framtíðar. Samtöl við sjálfstæðismenn sýna teikn á lofti um það að grænir sjálfstæðismenn hafi ekki einasta tek- ið höndum saman inn á við, heldur sýni þeir litinn óhræddir út á við og vilji ná vopnum sínum fyrir kosningar. Út um græna grundu Sjálfstæðismenn beina at- hygli að umhverfismálum Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, setti fram á landsfundi flokksins verkefna- lista í nítján liðum sem hann sagði að ný rík- isstjórn ætti að ráðast í á fyrstu 90–120 dög- unum eftir að hún tæki við völdum. Steingrímur sagði að meðal verkefna rík- isstjórnarinnar ætti að vera að bjóða heildar- samtökum aldraðra og öryrkja til samráðs um umbætur í velferðarmálum. Setja ætti sjö milljarða til viðbótar á ári í þennan mála- flokk. Steingrímur sagði að stöðva ætti taf- arlaust frekari uppbyggingu í stóriðju og undirbúa víðtæka friðlýsingu vatnsfalla. Hækka ætti skattleysismörk og breyta út- færslu fjármagnstekjuskatts með því að gera þeim sem hefðu tugi og hundruð milljóna í fjármagnstekjur skylt að reikna sér hæfileg laun. Þá sagðist Steingrímur vilja bjóða út strandsiglingar strax í sumar. Steingrímur sagði það vera forgangsverk- efni að fella ríkisstjórnina. Tækist það ekki yrðu engar breytingar. „Þegar þrátt fyrir allt blæs það byrlega að aftur og aftur er okkur mælt svipað eða jafnvel meira fylgi en stjórn- arflokkunum, þá væri það undarleg stjórn- arandstaða sem ekki rynni blóðið til skyld- unnar, sem ekki fengi það sem danskurinn myndi kalla „blod på tanden“, og tvíefldist í þeim ásetningi sínum að fella ríkisstjórn og taka við. En þessu ráðum við auðvitað ekki ein, góðir félagar, og við munum ekki ganga skuldbundnari til kosninga að þessu leyti en samstarfsflokkar okkar í stjórnarandstöð- unni eru tilbúnir til að gera … Eins og útlitið sem sagt er um þessar mundir þá eru bullandi möguleikar á hvoru tveggja; að fella ríkisstjórnina og að mynda nýja og betri ríkisstjórn með okkar aðild.“ Sjö milljörðum meira til öryrkja og aldraðra á ári „Göngum ekki skuldbundnari til kosninga en aðrir í stjórnarandstöðu“ Morgunblaðið/ÞÖK Breytingar Steingrímur J. Sigfússon sagði forgangsverkefnið að fella ríkisstjórnina.  Bullandi stemning | Miðopna VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgar- stjóri í Reykjavík, brá á leik með fána Frakklands í Íþróttahúsinu við Austurberg í Breiðholti í gærmorgun. Þar voru einnig franski sendiherrann, um 500 leikskólabörn og eldri borgarar úr Breiðholti, sem sungu einum rómi Meistari Jakob og Frére Jacq- ues. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, leiddi sönginn. Morgunblaðið/Kristinn Meistarasöngur Stórsýningin Tækni og vit 2007 í Fífunni, Kópavogi, 8. - 11. mars 2007 Misstu ekki af glæsilegri sýningu! Fjármálaráðuneyti Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti Forsætisráðuneyti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.