Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Skátamessa í Grafarvogskirkju Sunnudaginn 25. febrúar kl. 11. Á undanförnum árum hefur skátafé- lagið Hamar verið með skátamessa í Grafarvogskirkju og er hún haldin nálægt afmælisdegi stofnanda skátahreyfingarinnar Baden Powell sem er 22. febrúar. Í ár eru liðin 150 ár frá fæðingardegi BP. Í þetta sinn mun Jón Ingvar Bragason, fræðslu- stjóri Bandalags íslenskra skáta, prédika. Skátar munu annast ritn- ingarlestra. Heiðursverðlaun verða veitt í messunni. Séra Vigfús Þór Árnason þjónar fyrir altari. Skáta- kórinn syngur. Organisti: Kristjana Ásgeirsdóttir. Kórstjóri: Margrét Sigurðardóttir. Skátakaffi er eftir messu í boði Skátafélagsins Ham- ars. Passíusálmar Grafarvogskirkju Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur fyrsta Passíusálm við upphaf föstunnar. Á undanförnum árum hafa ráðherrar og þingmenn flutt Passíusálma séra Hallgríms Péturs- sonar á föstunni. Helgistund er ber yfirskriftina „Á leiðinni heim“ tekur fimmtán mínútur, frá kl. 18–18.15. Allir eru velkomnir á þessar stundir í kirkjunni. Tónlistarmessa í Óháða söfnuðinum. Á sunnudaginn kemur verður tón- listin höfð meira umleikis heldur en í venjulegum messum. Í upphafi og enda messunnar leikur bjöllukór frá Tónstofu Valgerðar tónlist. Nem- endur úr söngskóla Sigurðar De- metz syngja aríur og einsöng við undirleik organista Óháða safn- aðarins Arngerðar Árnadóttur ásamt kór safnaðarins. Ragnar Gunnarsson kristniboði predikar og kynnir kristniboð Sambands ís- lenzkra kristniboða í Kenía og Eþí- ópíu. Að vanda er barnastaf á sama tíma og maul eftir messuna, þar sem samskot verða tekin til systkina okkar í Afríku. Allir hjartanlega velkomnir. Trúarsannfæring og umburðarlyndi í fjöl- menningarsamfélagi Sr. Sigurður Pálsson mun á þriðju- daginn, 27. febrúar, fjalla um efnið, Trúarsannfæring og umburð- arlyndi í fjölmenningarsamfélagi, á mannræktarkvöldi í Laugarnes- kirkju sem hefst með kvöldsöng í kirkjunni kl. 20. Sr. Sigurður Páls- son er fv. sóknarprestur í Hall- grímskirkju, fv. námsstjóri í kristn- um fræðum og fíknivörnum í mentamálaráðuneytinu og deild- arstjóri hjá Námsgagnastofnun og fv. framkvæmdastjóri Hins íslenska Biblíufélags. Þorvaldur Halldórsson leiðir kvöldsönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni, tónlistarstjóra kirkj- unnar. Sigurbjörn Þorkelsson, framkvæmdastjóri kirkjunnar, hef- ur stutta hugleiðingu og leiðir bæn. Kaffi og kleinur. Allir velkomnir. Á sama tíma koma 12 spora hópa kirkjunnar saman og halda áfram sinni góðu vinnu. Kyrrðarstundir eru í hádeginu alla fimmtudaga í Laugarneskirkju kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur ljúfa tóna á org- elið og Sigurbjörn Þorkelsson frkvstj. kirkjunnar eða sr. Hildur Eir Bolladóttir sjá um ritning- arlestur, stutta hugvekju og leiða bænastund. Allir velkomnir. Freistingar, frami og forgangsröðun í Frí- kirkjunni í Reykjavík Guðsþjónusta kl. 14 með þátttöku fermingarbarna vetrarins, sem lesa, leika tónlist og fleira. Þema þess- arar föstuguðsþjónustu eru freist- ingar, frami og forgangsröðun okk- ar í jarðlífinu. Bæði í samfélaginu og einkalífi hvers okkar er margt sem glepur og því er það okkar að koma auga á og lagfæra það sem betur má fara. Ábyrgðin er okkar. Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller leiða almennan safnaðarsöng en Ása Björk Ólafsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Nanda María kirkjuvarða aðstoðar og afhendir andabrauðið í lokin. Fjölskyldur fermingarbarna eru sérstaklega hvattar til að mæta. Erindi um sorg og sorgarviðbrögð í Lágafellssókn „Ekki tjaldar sorgin til einnar næt- ur“ (Hannes Pétursson). Sorg eru viðbrögð mannsins við hvers konar missi í lífinu. Sorgin veldur sárs- auka og það tekur tíma að komast yfir hana og laga sig að breyttum aðstæðum eftir missi. Þegar við syrgjum erum við að ná áttum og takast á við það sem hefur breyst í lífinu. Þá fetum við okkur áfram, finnum nýjar leiðir og reynum að fóta okkur í breyttri tilveru, sem oft er svo tóm eftir þann missi sem við höfum orðið fyrir. Þetta og margt fleira mun Gunnar Matthías- son sjúkrahúsprestur koma inn á í erindi sínu sem hann heldur í Safn- aðarheimili Lágafellssóknar, Þver- holti 3, Mosfellsbæ, mánudaginn 26. febrúar kl. 20. Í lok fundar verður boðið upp á kaffi, spurningar og umræður. Einnig verður við sama tækifæri kynntur nærhópur fyrir syrgjendur og boðið upp á þátttöku í honum. Ragnheiður Jónsdóttir prestur mun leiða hópinn. Aðgang- ur ókeypis. Verið velkomin. Afleysing í Neskirkju Nýr liðsmaður kemur til starfa í Neskirkju sunnudaginn 25. febrúar og mun þjóna í fjórar vikur. Sr. Þórhildur Ólafs leysir þá af sr. Sig- urð Árna Þórðarson sem klárar feðraorlof sitt. Sr. Þórhildur er boðin velkomin til starfa en hún hefur margra ára reynslu sem prestur í Hafnarfirði og víðar. Í messunni á morgun kl. 11 verður hún boðin velkomin til starfa. Sr. Örn Bárður Jónsson, prédikar og þjónar fyrir altari en sr. Þórhildur útdeilir sakramenti ásamt honum og Hönnu Johannessen og Ursulu Árnadóttur. Kór Neskirkju syngur. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi og spjall eftir messu. Helgihald í Kolaportinu. Sunnudaginn 25. febrúar kl. 14 verður helgihald í Kolaportinu í „Kaffi Port“. Um leið og gengið er um og bænarefnum safnað eða frá kl. 13.30 syngur og spilar Þorvald- ur Halldórsson ýmis þekkt lög, bæði eigin og annarra. Hann ann- ast einnig tónlistina í helgihaldinu. Sr. Halldór Reynisson og sr. Þor- valdur Víðisson munu leiða sam- veruna og prédika. Að venju er boðið upp á að koma með fyrirbæn- arefni og munu Margrét Scheving, sr. Halldór og sr. Þorvaldur biðja með og fyrir fólki. Í gegnum tíðina hefur skapast andrúmsloft til- beiðslu í þessu helgihaldi. Þótt margt sé um að vera í Kolaportinu eru ávallt margir þátttakendur sem gjarnan fá sér kaffisopa, syngja, biðja og hlusta. Í lok stund- arinnar er gengið um með olíu og krossmark gert í lófa þeirra sem vilja. Um leið eru flutt blessunar- orðin: „Drottinn blessi þig og varð- veiti þig“. Allir eru velkomnir, Mið- borgarstarfið. Tómasarmessa í Breiðholtskirkju Áhugahópur um svokallaðar Tóm- asarmessur efnir til fimmtu mess- unnar á þessum vetri í Breiðholts- kirkju í Mjódd sunnudagskvöldið 25. febrúar, kl. 20. Tómasarmessan hefur unnið sér fastan sess í kirkju- lífi borgarinnar, en slík messa hef- ur verið haldin í Breiðholtskirkju í Mjódd síðasta sunnudag í mánuði, frá hausti til vors, síðustu níu árin. Framkvæmdaaðilar að þessu messuhaldi eru Breiðholtskirkja, Kristilega skólahreyfingin, Félag guðfræðinema og hópur presta og djákna. Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tónlist, mikil áhersla er lögð á fyrirbæn- arþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Stór hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbún- ingi og framkvæmd Tómasarmess- unnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Hjóna- og sambúð- armessa í Bessastaðakirkju. Hjóna- og sambúðarmessur eru kvöldmessur sem hafa mælst vel fyrir í Garðaprestkalli og eru haldnar síðasta sunnudagskvöld í mánuði. Hjónabandið er ein mik- ilvægasta stofnun samfélagsins og því brýnt að hlúa vel að. Sunnudag- inn 25. febrúar kl. 20.30 verður hjóna- og sambúðarmessa í Bessa- staðakirkju. Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi fjallar um ,,Áhrif stjúptengsla á hjónabönd“. Tónlistarstjóri er Gunnar Gunn- arsson organisti en með honum eru Tómas R. Einarsson sem spilar á bassa og Kristjana Stefánsdóttir sem syngur. Allt fólk er velkomið, óháð aldri og kynhneigð. Biblíufræðsla í Vídalínskirkju. Á vegum Garðaprestakalls er boðið upp á biblíufræðslu á fimmtudags- kvöldum kl. 20 í Vídalínskirkju. Þar á eftir er síðan kyrrðarstund milli 21 og21.15 og svo er molasopi í safnaðarheimilinu. Fimmtudag- inn 1. mars flytur sr. Ingólfur Guð- mundsson erindi sem ber yf- irskriftina ,,Jósefssagan í GT í ljósi Píslarsögunnar í 2. Filippíbréfi. Sr. Auður Eir flytur erindi 8. mars sem ber yfirskriftina ,,Máttur hinnar góðu reiði“. Næstu tvo fimmtudaga á eftir 15. mars og 22. mars mun sr. Kristján Búason ritskýra guð- spjallstexta úr Jóhannesar- og Lúk- asarguðspjalli. Allir velkomnir. Sjá www.gardasokn.is. Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju Þriðjudagskvöldið 27. febrúar kl. 18 verður mánaðarleg menning- arvaka eldri borgara í Seljahverfi. Ræðumaður kvöldsins er Helgi Seljan, fyrrverandi alþingismaður. Kór eftirlaunakennara syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar, tón- listarstjóra kirkjunnar. Vinsamleg- ast tilkynnið þátttöku í síma kirkj- unnar 567 0110. Verið velkomin! Sorg kvenna, messur og franskir tónleikar í Hallgrímskirkju Sunnudaginn 25. febrúar er mikið um að vera í Hallgrímskirkju. Dag- urinn hefst með Fræðslumorgni í suðursalnum kl. 10 þar sem sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, greinir frá efni meist- araritgerðar sinnar í guðfræði. Ber erindið yfirskriftina: "Sælar eru sorgbitnar því að þær munu hugg- aðar verða" og viðfangsefnið er sorg kvenna eftir missi maka, bæði við skilnað og andlát. Allir eru vel- komnir að þessum áhugaverða fyr- irlestri og heitt á könnunni bæði eftir hann og messuna sem hefst kl. 11. Þar predikar sr. Jón Dalbú Hró- bjartsson og annast altarisþjónustu ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og hópi messuþjóna. Sönginn leiða félagar úr Mótettukórnum og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Hann leikur einnig á orgelið í enskri messu sem hefst kl. 14 og forsöng annast Guðrún Finnbjarnardóttir. Í messunni þjónar sr. Bjarni Þór Bjarnason ásamt hópi sjálf- boðaliða. Kaffiveitingar á eftir. Kl. 17 eru tónleikar í tengslum við frönsku menningardagana og er það franski orgelsnillingurinn Vin- cent Warnier sem leikur á Klais- orgelið. Hann mun einnig leika eitt orgelverk í messunni um morg- uninn. Er dauðinn kveður dyra. Vikuna 30. apríl - 3. maí næstkom- andi verður boðið upp á samtal á vegum Fullorðinsfræðslu Hafn- arfjarðarkirkju um lífið, dauðann, sorgina og þá stöðu sem aðstand- endur standa í við fráfall ástvinar. Boðið verður upp á fjögur þema- kvöld. Rætt verður um útfararsiði, kirkjutónlist við útfarir, útfar- arþjónustur í Hafnarfirði kynna starfsemi sína og djákni við Land- spítala Háskólasjúkrahús flytur er- indi um sorg og sorgarúrvinnslu. Allir eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar veitir sr.Þór- hallur Heimisson prestur við Hafn- arfjarðarkirkju í síma 8917562 Kvikmyndakvöld í Landakoti Mánudaginn 26. febrúar er næsta kvikmyndakvöld í safnaðarheim- ilinu í Landakoti. Sýnd er myndin “Mary, mother of Jesus“ – „María, móðir Jesú“ frá 1999. Þessi fallega mynd sýnir ævi og starf Jesú Krists frá sjónarhorni Maríu meyjar. Sýningin hefst kl. 20 og tekur u.þ.b. einn og hálfan tíma. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Djákna og prestsvígsla í Dómkirkjunni 25. febrúar 2007 kl. 14 Sunnudaginn 25. febrúar næstkom- andi vígir biskup Íslands, Karl Sig- urbjörnsson, tvo presta og fjóra djákna í Dómkirkjunni. Athöfnin hefst kl. 14 og er öllum opin. Vígð verða: Cand. theol. Jón Ásgeir Sig- urvinsson, settur sóknarprestur í Setbergsprestakalli, Snæfellsness- og Dalaprófastsdæmi, cand. theol. Ólafur Jóhann Borgþórsson, ráðinn til starfa sem prestur í Seljasókn með áherslu á æskulýðsmál, Reykja- víkurprófastsdæmi eystra, Guð- björg Ágústsdóttir, kölluð af St. Jós- efsspítala Sólvangi, í Hafnarfirði, til djáknaþjónustu, Kristín Árnadóttir, kölluð af Húnavatnsprófastsdæmi til djáknaþjónustu, Kristín Sigríður Garðarsdóttir, kölluð af Lindasókn til djáknaþjónustu og Ragnheiður Guðmundsdóttir, kölluð af Dval- arheimilinu Höfða í samráði við Garðasókn, Borgarfjarðarprófasts- dæmi, til djáknaþjónustu. Séra Kristján Valur Ingólfsson lýsir vígslu. Vígsluvottar auk hans verða: séra Elínborg Sturludóttir, séra Gunnar Eiríkur Hauksson prófast- ur, séra Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur, séra Gunnþór Ingason, séra Eðvarð Ingólfsson, séra Guð- mundur Karl Brynjarsson, séra Guðni Þór Ólafsson prófastur, séra Sigríður Óladóttir, séra Valgeir Ástráðsson, Ragnheiður Sverr- isdóttir djákni, Guðrún Kristín Þórsdóttir djákni, séra Bolli Pétur Bollason og séra Sigurður Guð- mundsson, vígslubiskup. Ensk messa í Hallgrímskirkju Sunnudaginn, 25. febrúar nk. kl. 14 verður haldin ensk messa í Hall- grímskirkju. Prestur verður sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. Guðrún Finnbjarnardóttir mun leiða almennan safnaðarsöng. Sjötta árið í röð er boðið upp á enska messu í Hallgrímskirkju síð- asta sunnudag hvers mánaðar. Messukaffi. Service in English Service in English at the Church of Hallgrímur (Hallgrímskirkja) 25th of February, at 2 pm. Holy Comm- union. The First Sunday of Lent. Celebrant and Preacher: The Revd Bjarni Thor Bjarnson. Organist: Björn Steinar Sólbergsson. Leading singer: Guðrún Finnbjarnardóttir. Refreshments after the Service. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Barðskirkja í Fljótum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.