Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF hækkuðu töluvert í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan hækkaði um 1,25% og var 7446 stig við lokun markaða. Bréf Eimskips hækkuðu um 8,19%, bréf Exista um 2,48%, bréf Straums- Burðaráss um 2,42% og bréf Kaup- þings hækkuðu um 2,14% og var lokagengið 1004. Er þetta í fyrsta skipti sem dagslokagengi bréfa bankans endar yfir 1.000. Krónan veiktist hins vegar um 0,17% í viðskiptum gærdagsins. Lokagengi Kaupþings komið yfir 1.000 ● BRESKA versl- unarfyrirtækið Mos- aic Fashions, sem skráð er í Kauphöll Ís- lands, hefur sent frá sér jákvæða afkomu- viðvörun og segir útlit á þessu ári hafa batn- að frá því afkomuáætlun var send út á síðasta ári. Félagið sagðist upphaflega gera ráð fyrir að hagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnskostnað yrði 85 milljónir á þessu ári samanborið við 108 milljónir á síðasta ári. Afkomuviðvörun Mosaic Fashions ● HAGNAÐUR Byggðastofnunar á síðasta ári nam 10,1 milljón króna en árið 2005 var Byggðastofnun rekin með 272,2 milljóna króna tapi. Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar er 8,91% en eiginfjárhlutfall lánastofn- unar má ekki vera innan við 8%. Hreinar vaxtatekjur námu 38 milljónum króna, en voru um 140 milljónir króna árið 2005. Rekstr- artekjur námu 705 milljónum og rekstrargjöld að meðtöldum fram- lögum í afskriftarreikning útlána og niðurfærsla hlutafjár nam 733 millj- ónum króna. Byggðastofnun réttir við reksturinn HAGNAÐUR samstæðu Milestone á árinu 2006 nam 21,4 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 14,7 milljarða árið áður. Arðsemi eiginfjár var 92% í árslok. Heildar- eignir í árslok 2006 námu ríflega 170 milljörðum króna og jukust um 102% á árinu. Eigið fé samstæðunnar nam í árslok 2006 ríflega 43,7 milljörðum króna sem er aukning um 69% frá ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall sam- stæðunnar var í árslok 26% en eig- infjárhlutfall móðurfélagsins var 43%. Karl Wernersson, stjórnarfor- maður Milestone, segir í tilkynningu að afkoman á árinu 2006 hafi verið góð og arðsemi eiginfjár framúr- skarandi. Félagið hafi styrkt sig um- talsvert með nýjum arðsömum fjár- festingum. Milestone hyggist vaxa áfram með styrkingu núverandi ein- inga og nýtingu á þeim fjárfesting- artækifærum sem bjóðist. Milestone á m.a. allt hlutafé í Sjóvá og L&H eignarhaldsfélagi, sem meðal annars rekur apóteka- keðjuna Lyf & heilsu. Þá tilkynnti fyrirtækið í lok síðasta árs um stofn- un nýs íslensks fjárfestingarbanka, Askar Capital, með sameiningu Sjó- vár fjármögnunar, Ráðgjafar og efnahagsspár og Aquila Venture Partners. Milestone er kjölfestufjár- festir í bankanum og mun eiga ríf- lega 85% hlutafjár. Milestone hagnast um 21,4 milljarða MIKIL viðskipti voru með hlutabréf Glitnis í Kauphöll Íslands í gær, eða fyrir samtals 29,5 milljarða króna. Tvenn viðskipti skáru sig nokkuð úr, annars vegar fyrir rúmlega 10,5 milljarða króna og hins vegar fyrir rúma 15 milljarða. Fljótlega eftir opnun markaða í gær var greint frá rúmlega 10,5 milljarða kaupum dótturfélags FL Group á hlutabréfum FL Group. Hin stóru viðskiptin, fyrir rúma 15 milljarða, fóru fram skömmu síðar, en ekki var tilkynnt um hver eða hverjir áttu þar hlut að máli. Þar voru tæplega 522 milljónir hluta seldar á genginu 29,0 krónur á hlut. FL Group með þriðjungshlut FL Group og fjárhagslega tengdir aðilar hafa aukið hlut sinn í Glitni banka um 2,6% og eiga nú samtals tæplega 33% hlut í bank- anum. Fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær að félagið FL Group Holding Nether- lands, sem er í 100% eigu FL Group, hefði keypt tæplega 370 milljónir hluta í Glitni, en það er um 2,6% af heildarhlutafé bankans. Gengið á hlutabréfunum í kaupunum var 28,46 krónur á hlut. Heildarkaupverð hluta- bréfanna var því rúmlega 10,5 milljarðar króna. Eftir viðskiptin á FL Group Holding Net- herlands tæplega 2.151 milljón hluta í Glitni. Annað félags sem er einnig í 100% eigu FL Group, félagið FL GLB Holding BV, á 1.925 milljónir hluta í Glitni. Þá á FL Group 624 milljónir hluta í bankanum. Samtals eiga FL Group og fjárhagslega tengdir aðilar því 4,7 milljarða hluta í Glitni. Heildarhlutafé Glitnis er um 14,3 milljarðar króna að nafnverði og er hlutur FL Group því tæp 33%. Gengi hlutabréfa Glitnis hækkaði um 1,1% í gær og var lokaverð þeirra 27,30 krónur á hlut. Mikil viðskipti með bréf Glitnis Morgunblaðið/ÞÖK Hagnaður VBS fjárfestingar- banka dregst saman á milli ára HAGNAÐUR VBS fjárfestingarbanka nam 192 milljónum króna árið 2006 samanborið við 407 milljónir króna árið 2005 og var arðsemi eigin fjár bankans 13% árið 2006 miðað við 69% árið 2005. Vaxtatekjur námu 53 milljónum króna á síðasta ári, en þær námu 257 milljónum árið 2005. Aðrar rekstrartekjur námu alls 782 milljónum króna samanborið við 738 milljónir árið 2005. Framlag í afskriftareikning útlána nam 325 milljónum króna á árinu og hækkaði um 224 millj- ónum frá árinu 2005 þegar það nam um 101 milljón króna. Afskriftareikningur útlána í árslok nam 452 milljónum. Eigið fé nemur um tveimur milljörðum Önnur rekstrargjöld bankans námu 315 millj- ónum króna árið 2006 en voru 400 milljónir árið 2005. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum var 32,7% árið 2006 en 40,2% árið 2005. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum var í árslok 2,7% miðað við 6,3% árið 2005. Heildareignir bankans voru 11,7 milljarðar í árslok 2006 samanborið við 6,3 milljarða króna í árslok 2005. Útlán bankans hafa aukist um 98% á árinu og námu þau 9,3 milljörðum króna í árslok 2006. Eigið fé bankans í lok árs nam tæpum tveimur milljörðum króna og hefur aukist um 60% frá ára- mótum. Eiginfjárhlutfall bankans í lok árs 2006 var um 20%, að því er segir í tilkynningu til Kaup- hallar Íslands. Í HNOTSKURN » Hagnaður fjárfestingarbankans dróstsaman um 215 milljónir króna á síð- asta ári. » Mestu munar um mikinn samdráttvaxtatekna, eða um 204 milljónir króna á milli ára. Merkel, kanslara Þýskalands í dag þar sem þau munu ræða framtíð EADS. Þessar fréttir koma á sama tíma og póstfyrirtækið United Parcel Service (UPS) tilkynnti um und- irritun nýs samkomulags við Airbus þar sem gert er ráð fyrir frekari frestun á afhendingu tíu A380 fragtvéla. Hið nýja samkomulag veitir UPS heimild til að rifta kaupsamn- ingnum alfarið verði frekari tafir á afhendingu vélanna. EADS, móðurfélag flugvélafram- leiðandans Airbus, gæti greint frá því í næstu viku að fjórum verk- smiðjum verði lokað í Frakklandi en áður hefur verið greint frá því að fjórum verksmiðjum EADS verði væntanlega lokað í Þýskalandi. Þetta kemur fram í franska dag- blaðinu Les Echos í gær. Jafnframt er til athugunar að loka verksmiðju í Bretlandi og á Spáni. Forseti Frakklands, Jacques Chirac mun eiga fund með Angelu Airbus lokar fjórum verksmiðjum Reuters Lokanir Starfsmenn Airbus hafa mótmælt lokunum verksmiðja í Þýska- landi, þar sem þessi mynd er tekin, en ekki haft árangur sem erfiði.                !                   !"  #   $ ## %   "&     ' #  ( ) # * + , - . /+ ' #  & -' # , -  0   0  "    1   2$3 4 "54'  6          )7  " +   8  -   (-+  8  -   9: 5  ;0< $ =>   =>+++ 3 %3  ? %3        14 * + 13 -         ($  -  ( 35      !                                                                                        (- 2 3#  - + ='3 @ # - +A .  1                                   2      2     2 2 2                    2    2   2                   2     2 2 2  ?3#  @ #B =( C  +   "5%- 3#         2  2  2 2 2  1@3  3# 3 9 - D 1E       F F "=1) G<      F F HH ;0< 1 ##        F F ;0< . % 9##    F F 8H)< GI J     F F GÓÐ HEILSA GULLI BETRI STERK STEINEFNABLANDA FRÁ www.nowfoods.com APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR H á g æ ð a fr a m le ið sl a A ll ta f ó d ýr ir NNFA QUALITY FULL SPECTRUM MINERALS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.