Morgunblaðið - 24.02.2007, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
laugardagur 24. 2. 2007
íþróttir mbl.is
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 29.1.2007.
3,2%
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Þannig er mál
með vexti ...
... að það er
hægt að létta
greiðslubyrðina.
enski boltinn
Lundúnabarátta Arsenal og Chelsea í Cardiff » 4
GEYSILEG SPENNA
ÍSLENDINGALIÐIN CHALTON OG WEST HAM MÆTAST Í
AFAR ÞÝÐINGARMIKLUM LEIK Í FALLSLAGNUM >> 2 OG 3
ÍVAR Ingimarsson fær vænt-
anlega nýjan miðvörð við hliðina
á sér í hjarta varnarinnar hjá
Reading þegar lið hans sækir
Middlesbrough heim í ensku úr-
valsdeildinni í dag. Ibrahima
Sonko, sem lengi hefur myndað
sterkt miðvarðapar með Ívari, er
frá vegna meiðsla út þetta tíma-
bil og Andre Bikey hefur að und-
anförnu tekið stöðu hans. Bikey
er hinsvegar í leikbanni í dag og
þar með stefnir í að Michael Du-
berry spili sinn fyrsta leik með
aðalliði Reading – við hlið Ívars.
Duberry er enginn nýgræð-
ingur í úrvalsdeildinni því hann
lék þar í sex ár með Chelsea á
sínum tíma og síðan önnur sex ár
með Leeds. Undanfarin tvö ár
hefur Duberry spilað með Stoke
City en Reading keypti hann á
800 þúsund pund í lok janúar.
Það er þó ekki loku fyrir það
skotið að Brynjar Björn Gunn-
arsson verði tekinn framyfir Du-
berry og spili við hlið Ívars í
vörninni. Brynjar hefur leyst
hina ýmsu miðju- og varnarmenn
Reading af hólmi þegar á hefur
þurft að halda og hefur skorað í
tveimur síðustu leikjum sínum
með liðinu. Síðast glæsimark
gegn Manchester United á Old
Trafford í bikarleik liðanna um
síðustu helgi.
Steve Coppell tefldi fram hálf-
gerðu varaliði í þeim leik gegn
United en náði samt jafntefli, 1:1,
með marki Brynjars. Í dag kallar
hann hinsvegar á alla þá fasta-
menn sem voru hvíldir í leiknum
á Old Trafford og það gæti þýtt
sæti á varamannabekknum fyrir
Brynjar Björn, þrátt fyrir markið
glæsilega.
Írinn Doyle er
tilbúinn í slaginn
Markaskorarinn írski Kevin
Doyle er ekki tilbúinn í slaginn
með Reading í dag en hann hefur
verið frá vegna meiðsla und-
anfarnar vikur.
Leroy Lita, leikmaður enska
21-árs landsliðsins, hefur hins-
vegar tekið upp merki hans og
skorað grimmt fyrir Reading eft-
ir áramótin.
Reading hefur ekki tapað leik í
deild eða bikar á þessu ári en lið-
ið er nú í sjötta sæti úrvalsdeild-
arinnar og hefur komið allra liða
mest á óvart á þessu keppn-
istímabili.
Duberry við hlið Ívars Ingimarssonar?
„Það er gott markmið að stefna á
að komast níu stigum á undan
Chelsea. Við leikum að sjálfsögðu
til sigurs, eins og ávallt, en ef við
verðum níu stigum á undan næsta
liði í leikslok verður það þægileg
tilfinning,“ sagði enski landsliðs-
miðvörðurinn Rio Ferdinand við
Red View, fréttabréf Manchester
United.
Fulham er í 14. sæti úrvalsdeild-
arinnar en er sem fyrr mjög erfitt
heim að sækja og tapar sjaldan
leikjum á Craven Cottage.
„Það eru engir auðveldir leikir í
þessari deild og hvert lið veitir
mismunandi mótspyrnu. Þessa
helgina mætum við öðruvísi sókn-
armönnum en við höfum glímt við
að undanförnu, þeim Brian
McBride og Heiðari Helgusyni.
Þeir eru báðir landsliðsmenn og
góðir framherjar og við eigum því
von á mjög erfiðum leik,“ sagði
Ferdinand.
Þetta er fyrsti deildaleikur Unit-
ed í tvær vikur, frá sigrinum á
Charlton, 2:0, hinn 10. febrúar, en í
millitíðinni hefur United gert jafn-
tefli, 1:1, við Reading í bikarkeppn-
inni og sigraði Lille, 1:0, í Meist-
aradeild Evrópu.
„Það er langt um liðið frá síðasta
deildaleik og það er gott að komast
aftur í þá baráttu. Leikmennirnir
njóta pressunnar sem fylgir því að
spila í deildinni þegar komið er
þetta langt fram á tímabilið. Vet-
urinn reynist stundum langur þeg-
ar aðeins er spilaður einn leikur í
viku en við leikum þétt þessa dag-
ana og stefnum að því að vera á
réttum stað í vor þegar verðlaunin
fyrir árangur tímabilsins verða af-
hent,“ sagði Rio Ferdinand.
Miðvörðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United um viðureignina við Fulham á Craven Cottage
AP
Á ferðinni Heiðar Helguson verður í sviðsljósinu gegn Manchester United.
„Heiðar og
McBride
eru erfiðir“
MANCHESTER United freistar
þess að ná níu stiga forystu í ensku
úrvalsdeildinni í dag. Fyrsti leikur
helgarinnar hefst kl. 12.45 á Cra-
ven Cottage, litla vellinum við
bakka Thames-ár í London, þar
sem Fulham tekur á móti topp-
liðinu. Chelsea spilar ekki í deild-
inni um helgina vegna úrslitaleiks
deildabikarsins á morgun og Unit-
ed fær því tækifæri til að auka for-
skot sitt á toppnum.
Hundsa.. | E2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Edouard Glissant „Eyjar geisla frá sér í allar áttir,
ekki bara eina átt, þaðan liggja vegir til allra átta.“
Franska menningarhátíðin Po-urquoi pas? hófst sl. fimmtu-dag. Í Lesbók í dag er birtviðtal Rögnu Sigurðardóttur
myndlistargagnrýnanda við Pierre Hu-
yghe sem opnar sýningu í Hafnarhúsi í
dag. Hann hefur vakið athygli fyrir fág-
aðan leik með mörk raunveruleika og
skáldskapar í verkum sínum. Sigurður
Pálsson skáld ræðir við Edouard Gliss-
ant, einn fremsta rithöfund Frakka.
Árni Matthíasson skrifar um franska
popptónlist sem verður áberandi á há-
tíðinni. Pétur Gunnarsson rithöfundur
birtir svo grein um franska menningu
sem hann ber saman við íslenska menn-
ingu. Hann bendir til dæmis á að hug-
takið „frelsi“ sé ekki jafn tamt íslenskri
hugsun og franskri, einna helst að
bankar og símafyrirtæki beiti því fyrir
sig hérlendis. Og Pétur spyr:
„Hvað skyldu Íslendingar hafa sett á
gunnfánann ef þeir hefðu gert bylting-
una í stað Frakka? Vinnuna kannski?
„Vinna, jafnrétti, bræðralag“. Og
æstustu byltingarseggirnir „yfir-
vinnuna“.“ » 4–5, 8–9, 12–13
Frelsið
eða
vinnuna?
Frönsk menningar-
hátíð á Íslandi
Emilie Simon Emilie er meðal frönsku poppstjarnanna sem koma til Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn
Pierre Huyghe „Ég vil ekki festast í viðjum listheimsins,“ segir Huyghe í samtali við Rögnu
Sigurðardóttur en sýning hans í Hafnarhúsinu byggir meðal annars á íslenskri myndlist.
Laugardagur 24. 2. 2007
81. árg.
lesbók
BLANCHETT OG DENCH
BÁÐAR ERU TILNEFNDAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
FYRIR LEIK Í NOTES ON A SCANDAL » 3
Byssukúlur seðja ekki hungur mávanna við Tjörnina » 2
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Minningar 41/49
Staksteinar 8 Messur 50/51
Veður 8 Skák 55
Viðskipti 18/19 Menning 56/60
Erlent 20/21 Leikhús 58
Menning 22/23 Myndasögur 60
Akureyri 28 Dægradvöl 61
Árborg 24 StaðurStund 62/63
Landið 25 Dagbók 64/65
Daglegt líf 26/33 Víkverji 64
Forystugrein 34 Velvakandi 64
Umræðan 36/40 Ljósvakamiðlar 66
* * *
Innlent
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, setti fram á lands-
fundi flokksins verkefnalista í nítján
liðum sem hann sagði að ný rík-
isstjórn ætti að ráðast í á fyrstu 90–
120 dögunum eftir að hún tæki við
völdum. » Forsíða
Ekkert er því til fyrirstöðu að
gera ferjuhöfn í Bakkafjöru og verði
ákvörðun tekin um framkvæmdina
verður hægt að sigla milli lands og
Eyja á um 30 mínútum í stað tæp-
lega þriggja klukkustunda nú.
Kostnaður er áætlaður rétt tæpir
fimm milljarðar og gert ráð fyrir
honum í nýrri samgönguáætlun sem
nú er til afgreiðslu á Alþingi.
» Baksíða
Sérhannaður rykbindibíll frá
Reykjavíkurborg hefur verið tekinn
í notkun til að hefta hið hættulega
svifryk sem lengi hefur sett svip
sinn á borgina. » 6
Sæunn Stefánsdóttir, varafor-
maður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis, segir að sér finnist
„aðdróttanir“ Læknafélags Íslands
(LÍ), eins og þær m.a. birtust í
Morgunblaðinu í gær, einkenni-
legar. » 4
Erlent
Bretar hyggjast fjölga um allt að
1.000 manns í herliði sínu í Afganist-
an á næstunni, en Tony Blair, for-
sætisráðherra skýrði frá því í vik-
unni að fækkað yrði í liðinu í Írak
um 1.600 manns á næstu mánuðum
og enn meira síðar á árinu. » 20
Kannanir sýna, að um 14% kín-
verskra unglinga eiga á hættu að
ánetjast netfíkninni. Kínversk
stjórnvöld líta netfíknina mjög al-
varlegum augum og hafa skorið upp
herör gegn þessari „samfélagsvá“ og
virðast staðráðin í að taka hana
sömu tökum, stundum heldur harð-
neskjulegum, og árangursríka bar-
áttu þeirra gegn áfengis- og fíkni-
efnavandanum. » 21
Viðskipti
Mikil viðskipti voru með hluta-
bréf Glitnis í Kauphöll Íslands í gær,
eða fyrir samtals 29,5 milljarða
króna. Þar af voru tvenn viðskipti
fyrir samtals um 25,5 milljarða
króna. Ekki var tilkynnt um hver
átti þar hlut að máli. FL Group og
fjárhagslega tengdir aðilar hafa auk-
ið hlut sinn í Glitni banka um 2,6%
og eiga nú samtals tæplega 33%.
» 18
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
UNGLINGAR sem hafa þurft að
upplifa skilnað foreldra sinna eru
líklegri en jafnaldrar þeirra til að
sýna neikvæðar tilfinningar á borð
við reiði og þunglyndi. Þá eru þeir
líklegri til að reykja og neyta
áfengis og einnig er líklegra að
þeim gangi verr í skóla en öðrum
unglingum. Börn foreldra sem hafa
skilið eru einnig líklegri en jafn-
aldrarnir til að upplifa fjöl-
skylduátök, alvarleg rifrildi eða of-
beldi. Svo virðist sem þessi átök,
sem oft fylgja skilnuðum, séu þeir
þættir sem vega hvað þyngst í skýr-
ingum á vanlíðan og frávikshegðun
barna. Aðskilnaður foreldranna
vegur því ekki eins þungt og þau
átök sem oft fylgja, við skýringar á
vanlíðan og hegðun unglinga.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
Álfgeirs Loga Kristjánssonar og dr.
Ingu Dóru Sigfúsdóttur við
kennslufræði- og lýðheilsudeild Há-
skólans í Reykjavík. Niðurstöður
rannsóknarinnar, sem framkvæmd
var af Rannsóknum & greiningu í
samstarfi við menntamálaráðu-
neytið, voru kynntar á ráðstefnunni
„Áfram ábyrg“ sem haldin var í
Keflavíkurkirkju í gær.
„Tengslin milli skilnaða og nei-
kvæðra þátta á borð við reiði, þung-
lyndi og áhættuhegðun, eru mest
hjá þeim börnum sem nýlega hafa
upplifað skilnað foreldra sinna,“
segir Álfgeir Logi Kristjánsson, að-
junkt við HR. „Það dregur úr styrk
þessara tengsla eftir því sem frá líð-
ur skilnaðinum,“ en í rannsókninni
voru meðal annars könnuð tengsl
skilnaða og reiði, þunglyndis, reyk-
inga, áfengisneyslu og námsárang-
urs. Þá voru einnig könnuð tengsl
milli skilnaða og þess hvort ung-
lingarnir hefðu orðið vitni að alvar-
legu rifrildi milli foreldra eða rifist
alvarlega við þá og hvort þeir hefðu
orðið vitni að ofbeldi á heimilinu
eða lent í slíku þar sem fullorðinn
átti hlut að máli. Að auki voru könn-
uð tengsl skilnaða og fjölskyldu-
þátta á borð við eftirlit foreldra,
stuðning og samverustundir.
Álfgeir segir mikilvægt að skoða
hvað það sé við skilnað sem skipti
máli varðandi þessi tengsl. „Það er
greinilegt að fjölskylduátök, sem
eiga sér stað fyrir og eftir skilnað,
eru lykilþáttur. Þá er afleiðing
skilnaðarins oft sú að samband for-
eldra við barnið minnkar, bæði
vegna þess að þá þurfa foreldr-
arnir, hvort í sínu lagi, að uppfylla
hlutverk sem þeir gerðu saman áð-
ur og einnig vegna þess að þeir eru
oft sjálfir í tilfinningalegum sárum
eftir skilnaðinn og geta þar af leið-
andi gefið minna af sér.“
Rannsóknin sýnir m.a. að líkur á
félagslegum breytingum eru meiri
hjá börnum sem upplifað hafa skiln-
að. Þannig eru þau líklegri til að
hafa flutt í nýtt sveitarfélag eða
hverfi og skipt um skóla. „Við vit-
um að félagslegar breytingar sem
þessar eru gífurlega áhrifamiklar í
lífi unglinga,“ segir Álfgeir. Hins
vegar kom einnig fram að þegar
tengsl skilnaða foreldra og reiði,
þunglyndis, námsárangurs og
áhættuhegðunar unglinga eru
skoðuð en áhrifum sambands við
foreldra, félagslegra breytinga og
fjölskylduátaka er haldið stöðugum
þá dregur mikið úr þessum
tengslum og í sumum tilfellum
hverfa þau alveg.
Af þessu draga höfundar þá
ályktun að „hægt er að draga veru-
lega úr tilfinningalegum og fé-
lagslegum áhrifum skilnaða á ung-
linga með því að hafa velferð þeirra
fyrst og fremst að leiðarljósi við
þær breytingar sem skilnaðir hafa í
för með sér“.
Þunglyndi og reiði fylgifiskar skilnaðar
Fjölskylduátök vega þyngst í skýr-
ingum á vanlíðan og frávikshegðun
Morgunblaðið/Ásdís
Þunglyndi Vanlíðan barns getur
fylgt skilnaði foreldra.
Vonast eftir | 25
TALSMAÐUR neytenda, Gísli
Tryggvason, hefur ritað stærstu
símafyrirtækjum landsins, Símanum
og Vodafone, bréf. Þar er þeim boðið
að upplýsa um raunkostnað við út-
sendingu reikninga, að því er fram
kemur á heimasíðu embættisins. Er
það gert í ljósi þess að neytendur
eigi rétt á fullri sundurliðun fjar-
skiptareikninga endurgjaldslaust.
Þá gaf talsmaður neytenda síma-
fyrirtækjunum rúmlega vikufrest til
að gera athugasemdir við upplýsing-
ar hans um raunkostnað við útsend-
ingu reikninga. Telur talsmaður
neytenda að hann sé í mesta lagi 105
krónur. Einnig spyr talsmaður neyt-
enda um raunkostnað fyrirtækjanna
við „útsendingu reikninga“ og gjöld
sem þau leggja á vegna sundurlið-
unar og útsendingar reikninga.
Í nýrri umsögn sinni til Alþingis
varar talsmaður neytenda við því að
símafyrirtæki fái að óbreyttu tæki-
færi til að sniðganga skarpari reglur
um að neytendur eigi rétt á fullri og
endurgjaldslausri sundurliðun sím-
reikninga. Eftir samþykkt fyrr-
greinds frumvarps á sú sundurliðun
að ná til allra símanúmera og ann-
arrar þjónustu.
Þá ítrekaði talsmaður neytenda í
umsögn til samgöngunefndar tillögu
sem hann lagði fram í fyrri umsögn
til samgönguráðuneytis. Hún felur í
sér að „sett verði hámark á kostnað
eða takmörk við kostnaði sem síma-
fyrirtæki geti lagt á neytendur
vegna útsendingar reikninga – enda
eigi sundurliðun allra símtala að
vera endurgjaldslaus samkvæmt
EES-reglum og frumvarpinu sem til
umsagnar er.“
Í fyrri umsögn sinni benti tals-
maður neytenda m.a. á að eini aug-
ljósi kostnaðurinn við útsendingu
reikninga væri kostnaður við burð-
argjald og e.t.v. umslag. Ekki sé
rætt um í tilvitnuðum lögskýringar-
gögnum að heimildin nái til reikn-
ingsgerðar eða útprentunar.
Óskar upplýsinga um út-
skriftargjald símreikninga
Í HNOTSKURN
»Fyrir Alþingi liggur frum-varp til laga um breytingu
á lögum um fjarskipti.
»Samkvæmt 5. grein frum-varpsins er stefnt að því að
tryggja neytendum, án endur-
gjalds, svonefnt hástig sund-
urliðunar reikninga.
»Talsmaður neytenda legg-ur til að takmörk séu sett
við útsendingarkostnaði
reikninga til að tryggja gjald-
frjálsa sundurliðun símtala.
„BREYTTU rétt“ skrifuðu þær Katrín Inga (t.v.) og
María stórum stöfum á gangstétt og akrein Laugaveg-
arins í gær.
Þær eru skólasystur og nema báðar við Listaháskóla
Íslands. Gjörningur þeirra vakti mikla athygli vegfar-
enda á Laugaveginum og stoppuðu margir við.
Einn vegfarenda, sem augljóslega velti tiltækinu fyr-
ir sér, spurði listakonurnar hvað þær meintu eiginlega
með þessu. Þær svöruðu því til að það ætti bara hver og
einn maður að finna í hjarta sínu.
Morgunblaðið/Ásdís
„Breyttu rétt“
laugardagur 24. 2. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Fjórir frjálsíþróttamenn á Evrópumótið í Birmingham >> 4
FH Á SIGURBRAUT?
BÚIST ER VIÐ JAFNRI OG SPENNANDI KEPPNI Á
FYRSTA BIKARMÓTINU Í FRJÁLSUM INNANHÚSS >> 4
Víkurfréttir/ Þorgils Jónsson
Á toppnum Það var vel tekið á í Keflavík í gærkvöldi þegar nágrannarnir mættust. Njarðvik hafði betur og komst á ný í efsta sætið. » 2
KR varð í gærkvöldi Reykjavík-
urmeistari í knattspyrnu kvenna
þegar liðið lagði Val í síðasta leik
mótsins, 4:3. KR dugði jafntefli til að
tryggja sér titilinn og liðið gerði enn
betur og fagnaði sigri.
Það var fyrirliðinn Olga Færseth
sem kom sínu liði á bragðið í fyrri
hálfleik en fyrirliði Vals, Katrín
Jónsdóttir, svaraði með tveimur
mörkum áður en Olga jafnaði úr
vítaspyrnu, 2:2. Þannig var staðan í
leikhléi og má segja að fyrri hálf-
leikurinn hafi verið hálfleikur fyr-
irliðanna.
Fjóla Dröfn Friðriksdóttir kom
KR í 3:2 snemma í síðari hálfleik en
Vanja Stefanovic jafnaði fyrir val,
3:3.
Það var Katrín Ómarsdóttir gerði
fjórða mark KR og sigurmarkið um
miðjan síðari hálfleikinn.
„Okkur nægði jafntefli í leiknum
þannig að eftir að við komumst í 4:3
um miðjan síðari hálfleikinn vorum
við komnar í ansi þægilega stöðu og
héldum henni,“ sagði Olga í samtali
við Morgunblaðið eftir að hafa tekið
við verðlaunagripnum sem fylgir
Reykjavíkurmeistaratitlinum.
KR-ingar unnu alla sína sex leiki í
mótinu og urðu því meistarar með
fullt hús stiga en Valur tapaði einum
leik, gegn KR í gærkvöldi. Marka-
tala liðanna er nokkuð forvitnileg
því KR gerði 53 mörk og fékk á sig
fjögur, hafði aðeins fengið á sig eitt
mark fyrir leikinn í gærkvöldi. Vals-
konur höfðu hins vegar ekki fengið
eitt einasta mark á sig fyrir leikinn í
gær en höfðu þá skorað 22 mörk.
Sjá mynd á D2.
KR varð
Reykjavík-
urmeistari
kvenna
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
JÚLÍUS Jónsson, landsliðsþjálfari
kvenna í handknattleik, valdi í gær-
kvöldi 16 manna hóp sem hann fer
með á æfingamót í Tékklandi í næstu
viku. Enginn nýliði er í hópnum en
nokkrar stúlkur sem hafa ekki leikið
marga landsleiki.
Stúlkurnar sextán, sem mynda
landsliðið að þessu sinni, eru úr níu
félögum, fjórar eru úr Stjörnunni,
þrjár úr Gróttu, tvær úr HK og SJ
Århus og síðan einn leikmaður úr
Holsterbro, Fredrikshavn, Val,
Haukum og FH.
„Það var fínt að fá þetta mót núna,
helgin var laus og þetta er ágætt mót
sem landsliðið hefur farið á áður þó
það hafi verið fyrir minn tíma,“ sagði
Júlíus í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Júlíus sagði hópinn svipaðan þeim
sem hann hefði valið síðast, stelpurn-
ar væru úr níu liðum. Hann sagði að
verið væri að vinna að því að lands-
liðið fengi einhver verkefni í vor,
þegar Íslandsmótinu lýkur. „Það er
ekki búið að ganga endanlega frá
þessu, en stefnt að því að fá æfinga-
leiki bæði heima og ytra. Við munum
æfa fram á mitt sumar og fáum von-
andi einhver verkefni áður en við
förum í sumarfrí. Síðan tökum við
aftur upp þráðinn með haustinu,“
sagði Júlíus.
Landsliðið, sem heldur til Tékk-
lands á miðvikudaginn, er þannig
skipað að Berglind Hansdóttir, SK
Århus, og Íris Björk Símonardóttir,
Gróttu, eru markverðir. Aðrir leik-
menn eru Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir og Eva Margrét Kristinsdóttir
úr Gróttu, Elísabet Gunnarsdóttir,
Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Rakel
Dögg Bragadóttir og Sólveig Lára
Kjærnested úr Stjörnunni, Arna Sif
Pálsdóttir og Auður Jónsdóttir úr
HK, Dagný Skúladóttir úr Team
Tvis Holsterbro, Drífa Skúladóttir
úr Val, Hrafnhildur Skúladóttir úr
Århus, Guðbjörg Guðmannsdóttir úr
Fredrikshavn, Hanna G. Stefáns-
dóttir úr Haukum og Ragnhildur
Guðmundsdóttir úr FH.
Ágústa Edda Björnsdóttir úr Val
gaf ekki kost á sér þar sem hún á von
á barni.
Fyrsti leikur liðsins verður á
fimmtudaginn þegar liðið mætir
Tékkum, daginn eftir verður leikið
við Slóvakíu og loks Austurríki á
laugardaginn. Þrír leikir á þremur
dögum. „Það er fínt að fá þrjá leiki á
þremur dögum, það þarf að leika
þétt til að venja stelpurnar við. Ég er
líka með 16 leikmenn þannig að það
er hægt að dreifa álaginu aðeins,“
sagði Júlíus.
Stjarnan á flestar í landsliðinu
laugardagur
24. 2. 2007
börn
GAMAN Í LEIKHÚSINU
NOKKUR BÖRN SEGJA SÍNA SKOÐUN Á
SÖNGLEIKNUM ABBABABB » 3
Allt um barnastjörnuna Dakota Fanning» 2
Þegar ég var smá
Þegar ég var smá,
bara oggulítið kríli,
ég oft á bakka lá
og veiddi lítil síli.
Ég oft með mömmu fór
eitthvað lengst út í bæi.
Hún vildi bara hlusta á kór
og það var allt í lagi.
En oft þurfti ég að þrífa mig
og við mamma gerðum það saman,
og það get ég sagt við þig
að lífið er ekki alltaf gaman.
Höf: Sólveig Sigurðardóttir, 11 ára.
Ást
Vinur er sá
sem hjartað mitt á.
Hann gefur mér kærleik, ást og frið
og kemur skemmtilegheitunum á
skrið.
Höf: Andrea Eir Guðmundsdóttir, 9
ára.
Við
Ég á pabba, mömmu og systur litla
sem mér finnst gaman að stríða og
kitla.
Svo kemur tíkin okkar hún Móna
ég er út í hana sár, hún nagaði spari-
skóna.
Í húsi flottu við lifum og búum
í kirkju á sunnudögu við förum
og saman Jesús við lofum og trúum.
Höf: Dagbjört Aðalheiður Magn-
úsdóttir, 7 ára og Guðlaug Magn-
úsdóttir, 8 ára.
Fjölskylda
Ég á góða fjölskyldu
sem mér þykir vænt um.
Pabbi, mamma og systk-
inin
eru allra bestu.
Höf: Sæbjörg Eva Hlyns-
dóttir, 7 ára.
Ljóð
Söngleikurinn Abbababb í Hafnarfjarðarleikhúsinu byggist á barna-plötu Dr. Gunna sem kom út árið 1997. Á þeirri plötu má finna lög
eins og Prumpulagið, Systa sjóræningi og Rauða hauskúpan. Það eru
þrjár hetjur í sýningunni sem eru í leynifélaginu Rauða hauskúpan og
eiga sér þann draum heitastan að upplýsa glæp og fá mynd af sér í Mogg-
ann. Við hittum leikarana sem fara með aðalhlutverkin þrjú. » 3
Morgunblaðið/Árni Torfason
Abbababb Orri Huginn Ágústsson, Álfrún Örnólfsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson fara með aðalhlutverkin í söngleiknum Abbababb.
Hetjurnar þrjár í Abbababb
Dúfur hafa lengi verið ræktaðar af mönnum og geta veriðmjög skrautlegar. Dúfur eru duglegar að rata og voru
áður fyrr notaðar til að flytja skilaboð milli manna. Dúfur lifa
villtar um allan heim – líka á Íslandi.
Úr bókinni Stafróf dýranna eftir Halldór Á. Elvarsson
Dúfa
Púsluspil
Geturðu parað bit-
ana saman þannig
að þú fáir fjóra fern-
inga? Lausn aftast.
Kristín, Orri og Guðjón eru í leynifélaginu Brotnu beinin.
Þau hittast á hverjum degi í bílskúrnum hjá Orra og ákveða
þar ýmislegt leynilegt sem þau ætla að taka sér fyrir hendur.
Eitt sem þau ákváðu að gera var að bjarga útigangsköttum.
Getið þið hjálpað þeim að finna 7 útigangsketti á síðum
barnablaðsins?
Leynifélag bjargar
útigangsköttum
Krakkar í
leynifélagi