Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 4

Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STRAUMUR af fólki og gríðarlega góð stemning, voru lýsingar sem starfsmenn listasafna gáfu um klukkan 23.00 í gærkvöldi. Þá stóð Safnanótt sem hæst og fólk á öllum aldri notaði sér óvenjulegan af- greiðslutíma safnanna í borginni og ókeypis aðgang til að njóta fjöl- breyttrar dagskrár sem var í boði á þessum lið Vetrarhátíðar í Reykja- vík. Boðið var m.a. upp á leiðsögn, tónlist, fyrirlestra og dans. Starfsmaður í kaffiteríu Lista- safns Reykjavíkur í Hafnarhúsi sagði að þar væri heilmikil stemn- ing og mikið að gera. Hreinlega straumur af fólki á ferli. Að sögn starfsmanns á Kjarvalsstöðum hafði verið mikil aðsókn um kvöldið en þó virtust belgísku flamenco- dansararnir La Guardia Flamenca hafa mest aðdráttarafl því að fólk hreinlega flykktist að til að njóta listar dansflokksins fima. Safnanótt var opnuð kl. 19.00 við Listasafn Einars Jónssonar á Skóla- vörðuhæð. Þar flutti Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borg- arstjórnar, ávarp og fjöllistahóp- urinn Norðan Bál lék listir sínar í garði listasafnsins. Við Hlemmtorg vakti Náttúrufræðistofnun Íslands athygli á áhrifum loftslagsbreyt- inga á lífið á norðurslóð, Minjasafn Reykjavíkur, Grasagarðarnir og Orkuveitan stóðu fyrir fræðslu- göngu frá Hlemmi að Þvottalaug- unum og um Laugardalinn. Í Þjóð- menningarhúsi var m.a. fjallað um tískuhönnun og sýnd náttúrulífs- kvikmynd Páls Steingrímssonar og í Borgarbókasafni var boðið upp á samsöng undir stjórn Óskars Ein- arssonar, svo nokkuð sé nefnt. Safnanæturstrætó ók frítt með gesti svo að auðvelt var að komast á milli safnanna til að njóta alls þess sem var í boði. Napurt Gestir Safnanætur voru hlýlega klæddir við setningarathöfnina. Seiðandi listir á Safnanótt Morgunblaðið/Sverrir Listabörn Alma Dís Kristinsdóttir útskýrði list Kjarvals fyrir börnum á Kjarvalsstöðum í gær. Þar var sýningin Kjarval og bernskan, sýning um börn fyrir börn í norðursal. Ljóðlist Hrafnhildur Júlía Guðjónsdóttir setti upp klippiljóð sitt í Borgarbókasafninu. Hanna Birna Kristjánsdóttir setti Safnanótt. RÖSKVULIÐINN Dagný Ósk Ara- dóttir var í vikunni kjörinn formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hún er sjötta konan sem gegnir þessi embætti í 87 ára sögu ráðsins, en ráðið var stofnað 1920. Í kosning- um sem haldnar voru fyrr í mán- uðinum fékk Röskva, samtök félagshyggju- fólks við HÍ, í fyrsta skipti hreinan meirihluta síðan hún missti hann í kosningum árið 2002. Að sögn Dagnýjar leggur Röskva mikla áherslu á að hærra heyrist í rödd stúdenta í gegnum Stúdentaráð um öll þau málefni sem snerta stúd- enta með einum eða öðrum hætti. „Röddin verður að ná eyrum sam- félagsins, stjórnvalda og háskólayf- irvalda og þannig getur Stúdentaráð haft áhrif á líf tíu þúsund stúdenta við HÍ,“ segir Dagný og tekur fram að eitt helsta verkefni nýs Stúdenta- ráðs sé að gera málefni stúdenta að kosningamáli í komandi alþingis- kosningum. Segir Dagný t.d. nauð- synlegt að fá skýra stefnu frá flokk- unum sem eru í framboði um hvernig þeir vilji sjá fjármögnun háskóla- stigsins háttað, hvort þeir vilji bæta bága fjárhagsstöðu stúdenta, hvern- ig þeir sjái bókakost Þjóðarbókhlöð- unnar fyrir sér og hvernig þeir hygg- ist tryggja fæðingarorlofsmál eins og þau snúa að nemendum. Rödd stúd- enta þarf að heyrast Dagný Ósk Aradóttir FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff þekktust boð Haraldar Noregskon- ungs um að vera viðstödd hátíð- arhöld í tilefni af sjötugsafmæli konungs. Hátíðarhöldin hófust í gær. Í dag verða forsetahjónin við- stödd dagskrá í Menningarsögu- safni Noregs og hátíðarkvöldverð og dansleik í konungshöllinni. Í fyrramálið sækja gestir messu í Hallarkirkjunni og síðan atburði í nágrenni Óslóborgar. Forsetahjónin eru væntanleg heim annað kvöld. Á dagskrá forsetans í gær voru heimsóknir í höfuðstöðvar ýmissa íslenskra fyrirtækja í Noregi, þ. á m. Glitnis og BNBank og starfsstöð Kaupþings. Þá heimsótti forsetinn höfuðstöðvar Norsk Hydro. Á dag- skrá forsetans var og heimsókn í nýja friðarstofnun sem Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráð- herra Noregs, hefur sett á fót. Sér- stakri dagskrá forseta Íslands lauk með kynningu á starfsemi Actavis. Í afmæli konungs ♦♦♦ ÞAU mistök urðu við vinnslu forsíðu blaðsins í gær að seinna ártalið skol- aðist til í fréttaskýringu um álitamál í tengslum við Alcan í Straumsvík og hugsanlega stækkun þess. Rétt er málsgreinin: „Almennt virðast menn vera sam- mála þessum orðum Jóns Baldvins og benda á að það væri óðs manns æði fyrir Alcan að rjúka upp til handa og fóta og loka sjoppunni því að fyrirtækið væri bundið af raforku- samningum, þannig að það þyrfti að greiða fyrir um 85% orkunnar sem um hefur verið samið til 2014, hvort sem raforkan væri nýtt eða ekki.“ Í greininni hafði misritast 2024, ártalið er samningurinn rennur út og kemur fyrir fyrr í greininni. 2014 en ekki 2024 „ÉG geng ekki erindi einna né neinna. Erindi mitt eru almanna- hagsmunir og að því vinn ég í þessu máli eins og öðrum,“ segir Sæunn Stefánsdóttir, varaformaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis, og tekur fram að sér finnist „aðdrótt- anir“ Læknafélags Íslands (LÍ), eins og þær m.a. birtust í Morgunblaðinu í gær, einkennilegar. Eins og fram hefur komið er LÍ ósátt við að trygg- ingafélög geti krafist upplýsinga úr erfðarannsókn á tryggingartaka og einnig að hægt sé að afla upplýsinga um þriðja aðila án vitundar eða sam- þykkis viðkomanda. Segir Sæunn nefndina taka allar umsagnir alvarlega og hafa fullan hug á að koma til móts við athuga- semdir jafnt Læknafélags Ís- lands, Persónu- verndar og fleiri. Að sögn Sæunnar munu breytingar- tillögur nefndar- innar við frum- varp viðskipta- ráðherra vonandi liggja fyrir í næstu viku. Seg- ist hún sannfærð um að nefndin muni komast að tillögu sem sætti sjónar- mið hinna ólíku aðila. Harma fordóma LÍ Samtök fjármálafyrirtækja sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þau harma fordómana í garð vátrygg- ingastarfsemi á Íslandi sem komi fram í umsögn LÍ um fyrrnefnt frumvarp. Minnt er á að trygginga- félög hafi ekki óskað eftir því að lögin veittu þeim heimild til að afla upplýs- inga um niðurstöður erfðarannsókna þess efnis að umsækjandi persónu- trygginga sé ekki haldinn tilteknum sjúkdómi. Segir í tilkynningu að slík- ar upplýsingar hefðu enga þýðingu við áhættumat sem framkvæmt er í persónutryggingum. Í fréttatilkynningu sem Félag ís- lenskra stórkaupmanna (FÍS) sendi frá sér í gær harmar félagið „alvar- legar aðdróttarnir LÍ í garð þeirra sem stunda vátryggingastarfsemi á Íslandi“. Að mati FÍS stendur og fellur framtíð vátryggingamiðlunar á Íslandi með því að frumvarp við- skiptaráðherra verði að lögum. Er á það minnt að við gildistöku laga um vátryggingasamninga hafi komið í ljós mismunandi skilningur milli tveggja opinberra eftirlitsstofnana, þ.e. Persónuverndar og Fjármálaeft- irlitsins á heimild til að afla upplýs- inga um heilsufar foreldra og systk- ina umsækjenda við töku líf- og sjúkdómatryggingar. Til að taka af öll tvímæli og taka tillit til sjónar- miða Persónuverndar hafi ráðherra lagt fram frumvarp til breytinga á nefndum lögum. Tekið er fram að FÍS telur breytingarnar til bóta, enda sé „aðeins um óverulega efn- isbreytingu að ræða“. Varaformaður telur tillögur nefndar geta sætt ólík sjónarmið FÍS segir framtíð vátryggingamiðlunar á Íslandi standa og falla með frumvarpinu Sæunn Stefánsdóttir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.