Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 12
12 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
FYRST er greint opinberlega frá
fyrirhugaðri kaupstefnu klám-
framleiðenda í Reykjavík í kvöld-
fréttum Ríkisútvarpsins að kvöldi
fimmtudagsins 15. febrúar. Þar kem-
ur fram að tæplega 150 stærstu netk-
lámframleiðendur heims ætli að
halda kaupstefnu í Reykjavík dagana
7.–11. mars undir yfirskriftinni
SnowGathering 2007, en skipuleggj-
endur séu eigendur hollenskrar
klámsíðu.
Í samtali við Sigríði Hagalín
Björnsdóttur, fréttakonu hjá Rík-
isútvarpinu, upplýsir Cristina Ponga,
skipuleggjandi kaupstefnunnar, að
fjórar þekktar klámstjörnur og
stærstu framleiðendur í geiranum
hafi boðað komu sína og að til standi
að taka klámmyndir hérlendis á af-
viknum stað í tengslum við kaup-
stefnuna. Fram kemur í fréttinni að
ráðstefnugestir muni dvelja á Hótel
Sögu, þ.e. Radisson SAS í Reykjavík.
Fréttina um kaupstefnuna mátti hins
vegar fyrst lesa í netheimum, þar á
meðal á spjallsíðunni malefnin.com.
Raunar hafði Guðbjörg Hildur Kol-
beins þegar miðvikudaginn 14. febr-
úar fjallað um fyrirhugaða komu
klámframleiðenda á bloggi sínu kol-
beins.blog.is.
Borgarstjóri bregst hratt við
Daginn eftir senda Stígamót rík-
isstjórn, þingmönnum, borgarstjórn,
Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðis
og Ríkislögreglustjóra bréf þar sem
hvatt er til að ráðamenn og lögregla
taki höndum saman og komi í veg
fyrir að ráðstefna netklámframleið-
enda fari fram hér á landi. Samtökin
benda á að á vef ráðstefnunnar,
snowgathering.com, sé að finna
tengla yfir á vefsíður þátttakenda
þar sem finna megi gróft klámefni
með vísarnir í barnaklám. Þessir
tenglar eru síðar fjarlægðir af vef
ráðstefnunnar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg-
arstjóri sendir frá sér yfirlýsingu þar
sem tekið er fram að það sé yfirlýst
stefna Reykjavíkurborgar að vinna
gegn klámvæðingu og vændi. Lög-
regluyfirvöld skoða hvort boðuð
klámráðstefna stangist á við lög, en
samkvæmt 210. gr. almennra hegn-
ingarlaga er framleiðsla, innflutn-
ingur, sala og dreifing á klámi bönn-
uð.
Mótmæli berast víða að
Næstu daga berast mótmæli víða
að og í Morgunblaðinu mánudaginn
19. febrúar er greint frá því að Bisk-
up Íslands og formaður Prestafélags
Íslands hafi sent frá sér yfirlýsingu
þar sem þeir harmi fyrirhugaða
klámkaupstefnu. Hvetja þeir þjóðina
til að standa saman gegn því að land-
ið verði „leiksvið klámmynda“. Jafn-
framt skora Bandalag kvenna í
Reykjavík, Kvenfélagasamband Ís-
lands og Kvenréttindafélag Íslands á
ríkisstjórnina að koma í veg fyrir
„kaupstefnu klámkónga“. Stjórn
Ungra vinstri grænna og Ungir jafn-
aðarmenn í Hafnarfirði harma einnig
fyrirhugað klámþing.
Á fundi sínum þriðjudaginn 20.
febrúar samþykkir borgarstjórn ein-
róma ályktun þess efnis að þátttak-
endur ráðstefnu klámframleiðenda
séu óvelkomnir gestir í borginni. Í
ályktun sinni harmar borgarstjórn
að Reykjavíkurborg verði vett-
vangur ráðstefnu framleiðenda
klámefnis fyrir netmiðla og hugs-
anlega jafnframt vettvangur athæfis
sem bannað er með íslenskum lög-
um.
Borgarstjórn ítrekar óskir borg-
arstjóra um að lögregluembættið
rannsaki hvort þátttakendur í hópi
ráðstefnugesta kunni að vera fram-
leiðendur barnakláms, auk annars
ólögmæts klámefnis, ef það megi
verða til þess að koma í veg fyrir dvöl
meintra kynferðisbrotamanna hér á
landi eða til þess að upplýsa um ólög-
mæta starfsemi.
Á morgunverðarfundi sem
kvennahreyfingin á Íslandi efnir til
undir yfirskriftinni „Stefnumót við
stjórnmálaflokka – kynbundið of-
beldi“, miðvikudaginn 21. febrúar,
lýsa fulltrúar allra stjórnmálaflokk-
anna því yfir að þeir ætli að beita sér
fyrir því í sínum þingflokkum að
samþykkt verði ályktun gegn klám-
ráðstefnunni í sama anda og borg-
arstjórn gerði kvöldið áður.
Daginn eftir, fimmtudaginn 22.
febrúar, senda þingflokkar Alþingis
frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar
sem þeir harma að Reykjavík verði
vettvangur ráðstefnu framleiðenda
klámefnis og segja slíka ráðstefnu
hérlendis haldna í mikilli óþökk
þingflokkanna. Á svipuðum tíma lýs-
ir stjórn Bændasamtaka Íslands,
sem eru eigendur Hótels Sögu eða
Radisson SAS í Reykjavík, því yfir
að umræddum hópi fólks hafi verið
synjað um gistingu á hótelinu. Bent
er á að ákvörðunin sé studd af Rezi-
dor Hotel Group sem er rekstraraðili
Radisson SAS-hótelkeðjunnar.
Í fréttatilkynningu sem Bænda-
samtökin senda frá sér með þessari
ákvörðun vilja samtökin „lýsa van-
þóknun sinni á starfsemi þeirri sem
ofangreindur hópur tengist. Hótelið
hefur ekki farið varhluta af sterkum
viðbrögðum almennings undanfarna
daga og í fyrradag lýstu borgaryf-
irvöld þennan hóp óvelkominn í
Reykjavík“, segir m.a. í tilkynningu.
Segja aldrei hafa staðið til að
brjóta lög hér á landi
Í framhaldinu tilkynna skipuleggj-
endur ráðstefnunnar að hætt verði
við að halda klámkaupstefnuna hér-
lendis þar sem ólíklegt sé að annað
hótel muni vilja hýsa ráðstefnugesti.
Cristina Ponga, skipuleggjandi
kaupstefnunnar, segist furða sig á
viðbrögðum Íslendinga og telur þau
til marks um hræsni þjóðarinnar í
málaflokknum. Tekur hún fram að
þátttakendur hafi aldrei haft í
hyggju að brjóta lög hérlendis.
Skipuleggjendur kaupstefnunnar
lýsa því yfir að þeir hyggist leita sér
lögfræðiaðstoðar vegna þess fjár-
hagslega tjóns sem þeir hafi orðið
fyrir vegna afbókunar Hótels Sögu
með svo skömmum fyrirvara.
Samtök ferðaþjónustunnar senda
svo í gær frá sér yfirlýsingu vegna
mikillar fjölmiðlaumræðu um klám-
ráðstefnuna og þeirrar ákvörðunar
eigenda Hótels Sögu að vísa þátttak-
endum frá. Í yfirlýsingunni er tekið
fram að vandséð sé hvernig ferða-
þjónustufyrirtæki geti meinað fólki,
sem stundi löglega starfsemi í
heimalandi sínu, sem sé hins vegar
bönnuð á Íslandi, að koma í
skemmtiferð til Íslands.
Boðuð klámkaupstefna mátti
víkja fyrir almenningsálitinu
Morgunblaðið/Golli
Kaupstefna netklám-
framleiðenda hérlendis í
marsbyrjun komst í há-
mæli fyrir rétt rúmri
viku. Sl. fimmtudag
ákváðu eigendur Hótels
Sögu að hýsa ekki þátt-
takendur og í framhald-
inu var stefnan slegin af.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞAÐ GERIST kannski ekkert ef við erum að
tala um næstu vikur eða fram á vor en það væri
best upp á að auðvelda allan frágang, ef þessum
framkvæmdum myndi ljúka fyrir vorið. Að
hægt væri að ganga frá í vor eða fyrri hluta
sumars,“ segir Þórólfur Jónsson, garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur, um framkvæmdir vegna
lagningar vatnsleiðslu um Heiðmörk. Skóg-
rækt ríkisins lagði á fimmtudag fram kæru
vegna röskunar á skóglendi en áður höfðu
Náttúruverndarsamtök Íslands kært.
Framkvæmdir voru sem kunnugt er stöðv-
aðar föstudaginn 9. febrúar, þegar í ljós kom að
skipulagsráð Reykjavíkur hafði ekki veitt
framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni. Enn
er beðið eftir umsögn frá umhverfissviði borg-
arinnar sem væntanleg er eftir helgi.
Þórólfur segir m.a. að ef svo óheppilega vilji
til að jarðvegshrúgur á skurðbakkanum muni
liggja þar í allt sumar, væri ljóst að svörðurinn
undir yrði meira og minna ónýtur. „Ef hægt
væri að ganga frá í vor gæti svörðurinn hugs-
anlega tekið við sér aftur. Hann ætti að
skemmast tiltölulega lítið ef hægt er að taka
jarðefnin ofan af snyrtilega, þ.e. án þess að
grafa allt í sundur. Síðan þarf auðvitað að laga
skurðstæðið sjálft, með trjáplöntun, sáningu og
jafnvel væri hægt að nota torfur,“ segir Þór-
ólfur og bætir við að hann hafi séð að gróð-
urtorfur hafi verið fjarlægðar með það í huga
að nýta aftur. „Í alla staði væri best að frágang-
urinn yrði sem fyrst, þar sem eftir að frágang-
ur dregst tekur lengri tíma að laga þetta aftur.“
Eðlilegt að samráð sé haft
Skógrækt ríkisins hefur kært framkvæmd-
irnar á þeim forsendum að brotnar séu 6. og 7.
gr. skógræktarlaga. Þar segir m.a.: „Ekkert
svæði má rjóðurfella nema með samþykki
skógræktarstjóra, og þó því aðeins að sá, sem
heggur, skuldbindi sig til þess að breyta land-
inu í tún eða græða upp skóg að nýju á öðru
jafnstóru svæði og hafa byrjað á því innan
tveggja ára“, og einnig að „Bannað [sé] að
stinga upp og flytja á brott tré og hvers konar
ungviði án leyfis skógræktarstjóra eða skóg-
arvarða.“
Segir skógræktin að samþykki skógræktar-
stjóra hafi ekki legið fyrir í þessu tilfelli og að í
nútíma stjórnsýslu sé eðlilegt að samráð sé haft
við skógræktina á skipulagsstigi fyrir fram-
kvæmdir sem hafa í för með sér skógareyðingu.
„Hvorki Kópavogsbær né Reykjavíkurborg
höfðu fyrir því að leita samþykkis skógrækt-
arstjóra á skipulagsstigi vatnsveitulagnarinnar
í Heiðmörk,“ segir í tilkynningu frá Skógrækt
ríkisins.
Best væri ef frágangur yrði sem fyrst
Skógrækt ríkisins hefur lagt fram kæru vegna framkvæmda í Heiðmörk Garðyrkjustjóri Reykja-
víkur telur að eftir því sem framkvæmdir tefjist lengur verði erfiðara að bæta tjón vegna jarðrasks
Morgunblaðið/Ómar
Jarðrask Áhrif framkvæmda við lagningu vatnsleiðslu fyrir Kópavogsbæ eru greinileg og sést
vel hvernig fjölmörg tré voru flutt burtu vegna leiðslunnar, án samþykkis Skógræktar ríkisins.
Í UMRÆÐUNNI síðustu daga hafa ólík orð verið notuð til að lýsa fyrirhug-
aðri ferð klámframleiðenda hingað til lands í marsbyrjun. Í fyrstu fréttum
af komu þeirra var ferðinni lýst sem kaupstefnu, síðan var farið að tala um
viðskiptastefnu og ráðstefnu. Orðræðan í fjölmiðlum og í netheimum fór
síðan að snúast um að hér væri um að ræða hvataferð. Í framhaldinu fóru
einhverjir að lýsa ferðinni sem skemmtiferð og að lokum var vísað til ferð-
arinnar sem vetrarfrís umræddra einstaklinga.
Hvernig kaupstefna varð
að skemmtiferð í vetrarfríi