Morgunblaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss| „Mín ósk er sú að okkur tak-
ist að vinna sameiginlega að því að
hér rísi fallegur og lifandi miðbær á
allra næstu árum,“ sagði Ragnheiður
Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborg-
ar, í upphafi fundar þar sem kynnt
var verðlaunahugmynd sú sem hlaut
fyrstu verðlaun í nýafstaðinni sam-
keppni um skipulag miðbæjarins á
Selfossi.
Bæjarstjóri boðaði víðtækt sam-
ráðsferli um þá vinnu sem framundan
er við að vinna upp deiliskipulagstil-
lögu út frá verðlaunahugmyndinni.
„Eitt skrefið í þeirri viðleitni er sá
fundur sem hér hefur verið boðað til.
Um er að ræða fyrsta skrefið í því
vinnuferli að þróa verðlaunahug-
myndina áfram sem rammaskipulag
um uppbyggingu miðbæjarins á Sel-
fossi. Síðan mun hver reitur verða
deiliskipulagður í samræmi við þann
ramma. Það er einlæg von mín að
okkur takist sameiginlega, á næstu
vikum, að eiga málefnalega og upp-
byggilega umræðu um þetta stóra
verkefni,“ sagði Ragnheiður þegar
hún lýsti vinnuferlinu framundan.
Kynningarfundurinn var vel sóttur
enda hefur skipulag miðbæjarins ver-
ið mjög til umræðu undanfarin ár,
einkum eftir að fram komu mjög rót-
tækar tillögur frá fyrirtækinu Miðj-
unni ehf. en þær hugmyndir ein-
kenndust af tveimur háum turnum í
hjarta bæjarins. „Í ljósi umræðna
sem urðu í kjölfar kynningar eigenda
þessa svæðis taldi bæjarstjórnin
brýnt að leitað yrði leiða til að ná víð-
tækari sátt um miðbæjarskipulag.
Jafnframt var ákveðið að skipuleggja
stærra svæði en umræddar hug-
myndir tóku til, þar með náði verk-
efnið yfir lóðir í eigu mun fleiri aðila,
og að sveitarfélagið hefði forgöngu
um verkið,“ sagði Ragnheiður.
Rammaskipulag í 1. áfanga
Í apríl 2006 var samþykkt að halda
samkeppni um miðbæjarskipulag og
niðurstaða liggur nú fyrir. Unnið er
að skilgreiningu verkefnisins og áætl-
unum en gert er ráð fyrir að semja við
höfunda verðlaunatillögunnar um
gerð vinnslu rammaskipulags.
„Hugmyndin er sú að í fyrsta
áfanga verði unnið rammaskipulag
fyrir miðbæjarsvæðið sunnan Aust-
urvegar og Eyravegar. Skipaður
verður vinnuhópur með fulltrúum
hönnuða, skipulags- og byggingasviðs
sveitarfélagsins og bæjarstjórnar.
Hópurinn mun vinna að nánari út-
færslu hugmyndarinnar og leita eftir
góðu samstarfi við eignaraðila á
svæðinu. Jafnframt verður á næstu
dögum óskað eftir þátttöku ýmissa
aðila, sem hagsmuna eiga að gæta á
umræddu miðbæjarsvæði, í samráðs-
hóp. Slíkur samráðshópur kæmi sam-
an til að ræða þessa tilteknu hug-
mynd að skipulagi og til að koma á
framfæri sjónarmiðum sem fólk telur
mikilvægt að litið sé til við áframhald-
andi vinnslu rammaskipulagsins,“
sagði Ragnheiður og vonaðist til að
það stuðlaði að góðu samkomulagi.
Hún sagði að að mörgu væri að
hyggja í framhaldinu. „Fyrir eru á
svæðinu ýmiss konar byggingar,
íbúðahverfi, fyrirtæki og stofnanir en
einnig auð svæði og órækt. Eignar-
hald lóða er með ýmsum hætti og
hugmyndir eigenda um framtíðarnýt-
ingu mislangt á veg komnar. Bæjar-
yfirvöld munu kappkosta að vanda til
verksins á öllum sviðum, leita sam-
ráðs eins og fram hefur komið og
kalla til liðs við sig þá sérfræðinga
sem þörf er talin á. Skipulagsmál eru
meðal stærstu málaflokka í hverju
sveitarfélagi. Þau snerta hvern íbúa á
einn eða annan hátt því að þau varða
lífsskilyrði okkar í nútíð og framtíð.
Vafalítið er öllum það ljóst að sá tími
mun seint koma að allir séu fullkom-
lega sáttir við þann miðbæ sem hér
mun rísa á næstu árum eða áratug.
Hagsmunir fólks, skoðanir, smekkur
og væntingar eru með mismunandi
hætti í þessu máli, eins og algengt er í
skipulagsmálum. Mismunandi skoð-
anir mega þó ekki verða til þess að í
hjarta bæjarins vaxi áfram njóli og
annað illgresi.“
Verðlaunahugmynd gagnrýnd
Á fundinum kom fram gagnrýni á
ýmsa óraunhæfa þætti verðlaunatil-
lögunnar, svo sem að færa Tryggva-
skála alveg fram á bakka Ölfusár þar
sem mest flóðahætta er. Einnig var
mikið byggingamagn gagnrýnt, eink-
um syðst á skipulagssvæðinu þar sem
áður voru hugmyndir um bæjargarð.
Samtals er gert ráð fyrir 460 íbúðum
á samkeppnissvæðinu þar af eru 120
íbúðir í fjölbýlishúsum syðst.
Páll Gunnlaugsson, einn arkitekt-
anna frá Ask arkitektum, sem eru
höfundar tillögunnar, lýsti verðlauna-
tillögunni og meðal annars svonefndu
Ártorgi sem hugsað er sem sam-
komutorg suður af núverandi hring-
torgi. Umferðarskipulag var gagn-
rýnt og að ekki væri tekið tillit til
sögulegra húsa svo sem Sigtúns sem
Egill Thorarensen byggði en það var
á sínum tíma eitt myndarlegasta hús-
ið á Suðurlandi, byggt af miklum stór-
hug. Á fundinum var spurt um samn-
ing þann sem fyrri bæjarstjórn gerði
við Miðjuna ehf. um lóðakaup og
byggingarétt en sá samningur var
gerður í framhaldi af því að bæjaryf-
irvöld tóku frumkvæðið varðandi
skipulag miðbæjarins. Ekki voru
keyptar lóðir af öðrum lóðareigend-
um í miðbænum. Á fundinum upp-
lýstu fulltrúar bæjarstjórnar um inni-
hald samningsins en hann var einn
forsagnarþátta í samkeppninni.
Sögðu þeir að auðvelt væri að nálgast
samninginn. Þar er þess getið m.a. að
byggingaréttur Miðjunnar ehf. skuli
vera 16 þúsund fermetrar sem er há-
marks nýtingarhlutfall.
Gestur Ólafsson skipulagsfræðing-
ur var einn fundargesta. Hann benti á
nauðsyn þess að bæjaryfirvöld skil-
greindu hvernig byggð menn vildu fá
til þess að lenda ekki í öngstræti með
málið og nefndi hann Laugaveginn í
Reykjavík sem dæmi. Greinilega kom
fram á fundinum að ánægja var með
það að bæjaryfirvöld hefðu frum-
kvæði að skipulagningu miðbæjarins.
Fundur bæjarstjórnar um skipulag miðbæjar Selfoss var fjölsóttur
Vill vanda til skipulagsvinnu
og leita víðtæks samráðs
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Skipulag Kynntar voru verðlaunatillögur um skipulag nýs miðbæjar á Sel-
fossi á borgarafundi í vikunni. Bæjarbúar voru áhugasamir um málið.
Í HNOTSKURN
»Bæjarstjóri Árborgar boðaðivíðtækt samráð við und-
irbúning skipulags nýs miðbæjar
á Selfossi á borgarafundi um
málið. Tók þó fram að smekkur
fólks væri misjafn og seint næð-
ist alger samstaða um niðurstöð-
una.
»Fundarmenn gagnrýndumeðal annars umferð-
arskipulag og meðferð sögu-
frægra húsa.
GÓÐUR rómur var gerður að
sameiginlegri kynningu sem Mark-
aðsskrifstofa ferðamála á Norður-
landi og Markaðsstofa Austur-
lands stóðu að í Kaupmannahöfn á
miðvikudaginn var, en þar voru
kynntir ferðamöguleikar á Norð-
urlandi og Austurlandi.
Kynningin var unnin í samstarfi
við Ferðamálastofu Íslands og Ice-
land Express. Þangað varð boðið
um 70 sérvöldum ferðaskrifstofum
og fjölmiðlamönnum, aðallega frá
Kaupmannahöfn en einnig frá
Malmö í Svíþjóð.
Bjartsýni
Um 20 aðilar úr ferðaþjónustu á
Norðurlandi og Austurlandi tóku
höndum saman við kynningu á nýj-
um valkostum fyrir ferðamenn
tengdum beinu flugi Iceland Ex-
press til Akureyrar og Egilsstaða,
en flogið verður fjórum sinnum í
viku til þessara staða næsta sum-
ar. Það var samdóma álit þeirra
sem að þessari kynningu stóðu að
hún hefði í alla staði heppnast vel
og samstarfið reynst mjög
ánægjulegt.
Flogið fjórum sinnum í viku
Forráðamenn Markaðsskrifstofu
ferðamála á Norðurlandi og Mark-
aðsstofu Austurlands vonast til
þess að þetta fyrsta alvöru sam-
starfsverkefni sé einungis fyrsta
skrefið í markaðssamstarfi þess-
ara landshluta. Sameiginlegir
hagsmunir séu heilmiklir og því
mikil bjartsýni um framhaldið.
Iceland Express verður með
áætlunarflug tvisvar í viku í sumar
á milli Egilsstaða og Kaupmanna-
hafnar, en það er nýjung í rekstri
félagsins. Iceland Express flýgur
einnig tvisvar í viku á milli Ak-
ureyrar og Kaupmannahafnar eins
og síðustu ár.
Vel heppnuð
ferðakynning í
Kaupmannahöfn
Vertu velkomin Kjartan Lárusson,
framkvæmdastjóri Markaðs-
skrifstofu Norðurlands, á kynning-
unni í Kaupmannahöfn í vikunni.
Í HNOTSKURN
»Sameiginleg kynning Mark-aðsskrifstofu ferðamála á
Norðurlandi og Markaðsstofu
Austurlands í Kaupmannahöfn í
vikunni þótti vel heppnuð.
»Hinir ýmsu ferðamöguleikará Norðurlandi og Austur-
landi voru kynntir fyrir 70 sér-
völdum ferðaskrifstofum og fjöl-
miðlamönnum.
FYRSTA Goðamót ársins af þremur hófst í gær, en
knattspyrnudeild Þórs stendur fyrir mótunum. Það eru
4. og 5. flokkur kvenna sem ríða á vaðið. Keppnin hófst
um miðjan dag, boltinn byrjar að rúlla aftur í bítið og
keppni lýkur eftir hádegi á morgun. Hér eru það stúlk-
ur úr A-liðum KA og HK sem eigast við.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skemmtileg stemning í Boganum
Í NOKKUR ár hefur Krulludeild
Skautafélags Akureyrar staðið fyrir
sérstöku móti fyrir nýliða en sú regla
hefur jafnan verið viðhöfð að hverju
liði er heimilt að tefla fram einum
reyndari leikmanni. Nýliðamótið
2007 er nú rúmlega hálfnað.
Ein umferð var leikin mánudaginn
12. febrúar og tvær mánudagskvöld-
ið 19. febrúar. Lokaumferðirnar fara
fram í Skautahöllinni á Akureyri í
kvöld, laugardag 24. febrúar, og
hefst keppni þá kl. 18.30.
Liðin í Nýliðamótinu bera ýmiss
konar frumleg nöfn og má nefna
Riddara 1 og 2, Svarta gengið,
Kappaflingfling, Karolínus, KGB og
KLÍA. Staðan að loknum þremur
umferðum af fimm er þannig að lið
Kappaflingfling (Kaupþing) og
Riddarar 1 eru á toppnum með 6
stig, hafa unnið alla þrjá leiki sína til
þessa.
Nýliðamótið er liður í þeirri við-
leitni að fjölga reglulegum iðkendum
í greininni og jafnframt ætlað til al-
mennrar kynningar á íþróttinni.
Fyrst og fremst tekur fólk þátt sér
til gamans þótt oft sé stutt í keppn-
isskapið þegar á svellið er komið.
Oft stutt í keppnisskapið!
Lokaumferð Nýliðamótsins í krullu fer fram í kvöld