Morgunblaðið - 24.02.2007, Side 26
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Mér finnst svo gaman aðtaka myndir af fólkiog alls konar mannlífs-myndir,“ segir Borg-
nesingurinn Birta Rán Björgvins-
dóttir, sem er alveg harðákveðin í
því hvað hún vill verða þegar hún
verður stór. Líf og yndi Birtu Rán-
ar snýst nefnilega um ljósmyndun
og hún er nánast alltaf með mynda-
vélina til taks ef hún kemst í tæri
við gott mótíf.
Myndavél í fermingargjöf
Fyrir nokkrum dögum var hún
með foreldrum sínum í New York
þar sem hún fékk dálitla útrás fyr-
ir ljósmyndadelluna og í gær brá
hún sér í höfuðborgina frá Borg-
arnesi til að upplifa öskudags-
stemninguna. Hún er yngst fimm
systkina, en ekkert þeirra er haldið
þessari sömu „bakteríu“ og hún.
„Pabbi minn hafði að vísu áhuga á
myndavélum hér í eina tíð, er mér
sagt, en hann er nú búinn að gefa
mér gömlu filmuvélina sína. Ég
fékk svo stafræna myndavél í ferm-
ingargjöf, af gerðinni Canon 350D
sem ég er ánægð með,“ segir Birta
Rán, sem nú er í níunda bekk
grunnskólans í Borgarnesi.
Þegar Birta Rán er beðin um að
skjóta á hvað hún eigi margar
myndir nú þegar, svarar hún að
safnið sitt sé að nálgast tíu þúsund
myndir. „Ég stefni auðvitað að ljós-
myndanámi við Iðnskólann í
Reykjavík, en ef það gengur ekki
upp, veit ég hreinlega ekki hvað ég
geri. Þessi ljósmynda-baktería
hófst fyrir alvöru árið 2003 þegar
pabbi minn keypti litla stafræna
myndavél. Það kveikti í mér þó ég
hafi svo sem alltaf haft gaman af
því að taka myndir á gömlu filmu-
vélina okkar. Mér finnst ég vera
búin að finna mína tröppu í lífinu.
Það væri gaman að setja á stofn
ljósmyndastofu seinna meir og það
væri án efa líka gaman að mynda
fyrir blöð og tímarit.“
Birta Rán er með myndirnar sín-
ar inni á slóðinni www.flickr.com
þar sem fjöldi atvinnu- og áhuga-
ljósmyndara frá öllum heims-
hornum hefur stofnað síður og sett
inn myndir.
Leggur hugsun í mótífin sín
Fyrir utan króníska ljósmynda-
dellu segist Birta Rán hafa gaman
af því að vera með vinkonunum og
hlusta á tónlist og séu Radiohead
og Coldplay í uppáhaldi. Hún segir
vinkonurnar þó ekki deila með sér
ljósmyndaáhuganum því hún sé ein
um hann. Fólk og mannlíf er í aðal-
hlutverki í myndunum hennar
Birtu Ránar og hún segist vilja
setja list í myndirnar sínar. „Ég
pæli þar af leiðandi mikið í mótíf-
um og legg mikla hugsun í mynd-
irnar mínar,“ segir þessi upprenn-
andi, jákvæði og duglegi
unglingur, sem stefnir að því að
verða ljósmyndari.
Morgunblaðið/Júlíus
Ljósmyndarinn Birta Rán Björgvinsdóttir fékk alvöru myndavél í fermingargjöf sem hefur fylgt henni síðan.
Lífið snýst um ljósmyndun
www.flickr.com/photos/birtarnb
Uppáhaldsmyndirnar Birta Rán
hefur næmt auga fyrir fjölbreyttu
myndefni og leggur mikla hugsun í
myndirnar.
þarf að fá tíma til að velta hlutum fyr-
ir sér í einrúmi og melta þær upplýs-
ingar sem það fær í hendur og koma
svo með hugmyndir.
Vefmiðillinn MSNBC er síðan með
kosningu á Netinu samhliða þessum
niðurstöðum könnunarinnar um
gagnsemi funda. Þegar könnunin var
skoðuð í gær höfðu um tvö þúsund og
fimm hundruð gestir síðunnar greitt
atkvæði. Niðurstaðan var að 82%
taldi fundina sem þeir sátu alltof
marga í viku hverri og rúmlega 60%
þátttakenda töldu að sjaldan skiluðu
þeir nokkru markverðu.
FÓLK á í erfiðleikum með að finna
nýjar og frumlegar lausnir þegar það
situr fundi eða vinnur í hóp ef marka
má niðurstöður rannsóknar sem gerð
var við háskólann í Indiana og fjallað
var nýlega um á vef MSNBC.
Þátttakendur rannsóknarinnar
fengu gosdrykk í hendur og síðan
voru þeir beðnir um að nefna aðra
gosdrykki. Þegar þátttakendur voru
einir áttu þeir ekki í vanda með að
nefna hina og þessa gosdrykki en ef
fleiri voru saman komnir var fátt um
svör.
Niðurstöðurnar má að mati vís-
indamannanna heimfæra á aðskilj-
anlegustu fundi og hópvinnu í fyr-
irtækjum. Að sögn H. Shanker
Krishnan sem var í forsvari fyrir
rannsóknina geta fundasetur verið
vita gangslausar og komið í veg fyrir
að góðar hugmyndir fæðist.
Hvort sem það er heima eða í
vinnunni þá kemur iðulega einn úr
hópnum með hugmynd og tilhneig-
ingin er að þá sé hún miðpunkturinn
og jafnvel samþykkt án þess að fleiri
hugmyndir komi upp.
Aðstandendur rannsóknarinnar
benda á að þegar hópur fólks fær í
hendur upplýsingar þá sé venjan að
af stað fari umræður um þær. Þegar
einn úr hópnum kemur svo fljótlega
með hugmynd þá verður erfiðara fyr-
ir hina einstaklingana að kalla fram
aðrar hugmyndir.
Annað sem kann að hafa áhrif er að
þátttakendur í hópvinnu hafa til-
einkað sér mismunandi aðferðir við
að taka á móti upplýsingum og leggja
á minnið og læra.
Í hópvinnu geta einstaklingarnir
því þurft að hugsa um efnið öðruvísi
en þeir myndu gera í einrúmi. Fólk
Eru fundasetur forheimskandi ?
Reuters
Fundir Flestir töldu að þeir væru alltof oft á fundum.
Þegar einn kemur með
hugmynd verður erfiðara
fyrir hina að kalla fram nýj-
ar hugmyndir.
|laugardagur|24. 2. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Miðgarðsormurinn í MH vindur
upp á sig, en tveir skaparar
skepnunnar gáfu sig fram á
dögunum. » 30
daglegt
Áhugamálin setja svo sann-
arlega svip sinn á herbergi ung-
linganna, eins og Katrín Brynja
Hermannsdóttir komst að. » 32
innlit
Fjölbreytileikinn er mikill og
hver framhaldsskólastúlka hef-
ur sinn stíl þegar kemur að
árshátíðarfötunum. » 28
tíska
Vængjað
brúðkaup
Reuters
Brúðarkjóll sem sýndur var á
brúðkaupssýningu í Düsseldorf
fyrir skömmu var óneitanlega að-
eins öðruvísi en fólk á að venjast
þegar brúður gengur inn kirkju-
gólf.
Það er ekki víst að allar konur
kæri sig um að vera með vængi í
brúðkaupinu sínu en þær myndu
að minnsta kosti ná athygli allra
viðstaddra.