Morgunblaðið - 24.02.2007, Page 28
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Margrét Salóme Þorsteins-
dóttir Frænka hennar keypti
þennan silfurlitaða kjól í Dan-
mörku og gaf henni. „Ég fíla
þennan gríska stíl á þessum
kjól. Aðalmálið er að manni líði
vel í fötunum og að skórnir séu
þægilegir. Ég er frekar sjóuð í
því að vera á háum hælum og
finnst ekkert mál að dansa á
þeim.“
Þær eru skemmtilega ólíkar, bæði í klæða-
burði og skoðunum, stelpurnar úr Mennta-
skólanum í Hamrahlíð sem koma saman á
heimili einnar þeirra á árshátíðarkvöldinu
til að borða saman áður en þær fara á ball-
ið. Þær eru allar á þriðja og fjórða ári og
því nokkuð sjóaðar í árshátíðarmálunum og
segjast ekki gera eins mikið úr þessu og áð-
ur. „Stelpurnar á fyrsta og öðru ári fara
sumar í ljós, neglur, förðun, greiðslu og læti
fyrir þetta kvöld. Þetta er miklu meira mál
hjá þeim og þær kaupa sér frekar árshátíð-
arkjóla, sérstaklega ef þær ætla í matinn,
því það er auðvitað hátíðlegra og allir dálít-
ið fínir þar, kennararnir líka. Við erum al-
veg slakar og leggjum ekki djúpar pælingar
í þetta.“
Aðeins ein þeirra hefur keypt sér nýjan
kjól fyrir kvöldið, önnur er í áramóta-
kjólnum sínum en hinar hafa fengið lánuð
föt hjá vinkonum eða frænkum.
Þær fullyrða að strákarnir í MH séu allt-
af flottir í tauinu á árshátíðinni. „Þeir verða
ótrúlega sætir í kvöld, mæta í jakkafötum
og allt.“
Þær segja allskonar fólk vera í MH og að
fatastíllinn þar sé mjög fjölbreyttur.
„Það er fullt af stelpum í MH sem eru
alltaf svaka skvísur dags daglega í skól-
anum, á háum hælum og allt. Svo eru aðrir
sem eru alltaf í gallabuxum og strigaskóm
og svo hafa Gothararnir náttúrulega sinn
sérstaka fatastíl.“
Þær eru sjö saman vinkonurnar og þær
eyða mismiklum peningum í fatakaup en
flestar kaupa fötin sín í útlöndum og kaupa
þá mikið í einu sem endist þeim lengi. Ein
þeirra segist klæða sig eftir því í hvernig
skapi hún er og hennar fatastíll er því mjög
misjafn frá degi til dags.
Guðrún Helga Sigurðardóttir
„Vinkona mín lánði mér þennan
skokk sem er frekar hversdags-
legur en mér finnst hann mjög
flottur og einstaklega þægileg-
ur. Mér finnst skipta miklu máli
að föt séu þægileg, hvort sem ég
er að fara eitthvað sérstakt eða
bara í skólann.“
Guðrún Helga var stelpuleg og
frískleg þetta árshátíðarkvöld.
Sigríður Ásgeirsdóttir „Vin-
kona mín lánaði mér skóna fyrir
kvöldið en sjálf keypti ég pilsið
fyrir hálfu ári. Fatakaup mín
eru háð fjárveitingum frá
mömmu, þannig að ég er ekki í
nýjum fötum daglega. En ég
reyni að birgja mig upp af fötum
þegar ég fer til útlanda, þar eru
þau ódýrari en hér heima og
hægt að fá meira fyrir minna.“
Elín Margrét Rafnsdóttir Hún var í
nýjum kjól sem hún keypti í Zöru, sér-
staklega fyrir árshátíðina, en hún læt-
ur duga að kaupa nýjan árshátíð-
arklæðnað annað hvert ár. „Mér finnst
sniðið á þessum kjól flott og það heftir
ekki hreyfingar og því er hægt að
dansa frjálslega í honum. Litirnir heill-
uðu mig líka.“ Elín segist eiginlega
alltaf vera í pilsi í skólanum af því
henni finnst það þægilegast.
Alveg slakar
fyrir kvöldið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Margrét Rúnarsdóttir „Mér finnst
gaman að vera í svolítið óvenjulegum
fötum...“ segir Margrét „...einhverju
sem ekki allir eru í.“ Þegar hún fer
eitthvað fínt, verður jafnan kjóll fyrir
valinu. Árshátíðarkjólinn nældi hún
sér í á útsölu í Gyllta kettinum en það
er ein af hennar uppáhalds versl-
ununum. Skóna fann hún í Kaupfélag-
inu og þeir passa fullkomlega við kjól-
inn og hárið sem hún litar reglulega,
en þessa svart-hvítu samsetningu hef-
ur hún haldið tryggð við í að verða
eitt ár.
MR-stúlkurnar skellihlæja þeg-
ar blaðamaður spyr þær hvort
þær kaupi sér eitthvað í hverj-
um mánuði og svara spurning-
unni játandi. Allar kaupa þær
sér eitthvað nýtt í hverjum mán-
uði – mismikið þó. Upphæðin er
á bilinu 10.000–30.000 krónur á
mánuði og þær sem vinna með
skólanum eyða meiri peningum í
föt, hinar fá skotsilfur frá for-
eldrum sínum. Þær taka skýrt
fram að þær séu orðnar býsna
flinkar við að finna föt á útsöl-
um og stíla þó nokkuð inn á
þær. Verslanirnar sem eru í
mestu uppáhaldi eru Vero
Moda, Top Shop, Zara, Spútnik
og Kron Kron. Tvær þeirra fara
á árshátíðina í kjól úr Gyllta
kettinum – sem báðir fengust á
frábæru verði á útsölu.
Þær segjast spá frekar mikið í
föt, en dags daglega og í skól-
anum þá skiptir máli að fötin
séu þægileg en verði að sjálf-
sögðu að vera flott. Dauð-
þreyttar í svarta myrkri ná þær
sumar að setja saman smart
dress en einhverjar kjósa að
velja fötin kvöldinu áður. Þær
harðneita að vera einhverjir
tískuþrælar en fylgjast grannt
með hvað er í gangi hverju sinni
og af árshátíðarfötum stúlkn-
anna að dæma, fylgjast þær
bara mjög vel með.
Rakel Jónsdóttir Guðmann „Ég
er langoftast í kjól eða skokk í
skólanum, mér finnst það þægileg-
ast....“ segir Rakel „...þú veist
svona síðum bolum sem eru eins
og kjólar.“ Hér er greinilega
kjólakona á ferð sem á þá nokkra.
Í skólanum er hún oftast í legg-
ings við og finnst mikilvægt að föt-
in séu þægileg. Árshátíðarkjólinn
keypti hún á útsölu í Gyllta kett-
inum en skóna átti hún fyrir og
þeir eru oft dregnir fram þegar
hún fer eitthvað fínt.
Dagmar Magnadóttir „Nei, það
er ekkert mál að ganga á þessum
hælum, en ég er ekki á svoleiðis
skóm dags daglega, bara þegar
ég fer eitthvað fínt.“ segir Dag-
mar. Bertie-skóna hefur hún átt á
annað ár og þeir passa veæ við
árshátíðarfötin sem hún valdi
þetta árið. Fötin fann Dagmar á
netinu og móðir hennar keypti
þau síðan í útlöndum. Hún segist
stundum fjarstýra mömmu sinni í
ákveðnar verslanir úti í löndum
og það hafi heppnast mjög vel.
Eygló Alexandra Sævarsdóttir
Hún viðurkennir að eitthvað sé af
óþægilegum fötum í fataskápnum,
en dags daglega skipta þægindi
skólafólk nokkru máli. „Best er
auðvitað ef þægindi og flottheit
fara saman. En hvað leggur maður
ekki á sig...“ segir Eygló og hlær.
Hún ákvað að fara í kjól sem hún
keypti fyrir jólin í Warehouse. Þó
hann sé hlýralaus er hann þægileg-
ur, sem hún segir að hafi komið sér
á óvart þegar hún mátaði. Skóna
fékk hún fyrir nokkru í Spútnik.
Spá frekar
mikið í föt
tíska
28 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Flottar og fjölbreyttar skólastelpur
Misjafnt er hversu mikið stelpur í framhaldsskólum landsins leggja upp úr klæðnaði þegar þær fara á árshátíð í skólanum sínum. Sumar
kaupa nýja flík en aðrar fá eitthvað lánað hjá vinkonu. Eitt er víst að fjölbreytnin er mikil og hver og ein hefur sinn persónulega stíl.