Morgunblaðið - 24.02.2007, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 57
menning
Óskarsverðlaunin verða veittvið eflaust hátíðlega at-höfn í Kodak-leikhúsinu í
Hollywood aðfaranótt mánudags.
Mikið hefur verið spáð og spek-
úlerað í hverjir komi til með að
hljóta verðlaunin, sem af mörgum
eru talin þau eftirsóknarverðustu
á sviði kvikmynda.
Verðlaunin hafa oft verið gagn-
rýnd fyrir yfirborðsmennsku, fyr-
ir að verðlauna fólk fyrir ævi-
framlag frekar en það sem
tilnefnt er fyrir og fleira og
fleira.
En hvað sem tautar og raular
eru Óskarsverðlaunin án efa þau
kvikmyndaverðlaun sem vekja
hvað mesta heimsathygli ár hvert
og þykja verðlaunin mikill gæða-
stimpill í draumaborginni Holly-
wood, sem víðar.
Sá flokkur sem öruggast er aðspá um eru leikkonur í aðal-
hlutverki. Ég býðst til að narta í
heilan rekka af höttum ef Helen
Mirren bætir ekki á sig enn einum
gullgripnum fyrir hlutverk sitt
sem Elísabet Englandsdrottning í
The Queen. Svo virðist sem keppi-
nautar Mirren séu á sama máli en
Judi Dench, sem tilnefnd er í
flokknum fyrir Notes on a Scan-
dal, ætlar ekki að mæta til hátíð-
arinnar vegna veikinda og sagði í
viðtali að hún myndi veðja öllum
sínum peningum á Mirren.
Í flokki karla í aðalhlutverki
vandast hins vegar málið. Forest
Whitaker þykir vissulega líklegur
til sigurs fyrir túlkun sína á ill-
menninu Idi Amin. Peter O’Toole
er einn þeirra sem akademían
hefur sniðgengið gegnum árin.
Hann er tilnefndur í átttunda sinn
fyrir leik en hefur enn ekki feng-
ið styttuna eftirsóttu. Þá er
ónefndur Leonardo di Caprio sem
gneistaði af í Blood Diamond og
ætti sannarlega skilið Óskar fyrir.
Ég veðja þó á Whitaker en myndi
gleðjast með di Caprio.
Í aukahlutverki kvenna erkeppnin hörð. Jennifer Hud-
son var góð í hinni annars hrút-
leiðinlegu Dreamgirls og Abigail
Breslin átti hug og hjarta áhorf-
enda í Little Miss Sunshine, þær
hljóta að teljast líklegar til sigurs
og þá sérstaklega sú fyrrnefnda.
Annars gréti ég það ekki ef hin
mexíkóska Adriana Barraza eða
hin japanska Rinko Kikuchi
fengju Óskar fyrir frammistöðu
sína í Babel.
Það hefðu trúlega ekki margirtrúað því að nærbuxnamód-
elið Marky Mark ætti eftir að
verða tilnefndur til Óskars-
verðlauna einn daginn. Hið ótrú-
lega getur þó gerst og Mark Wa-
hlberg er tilnefndur fyrir leik í
The Departed. Hann þykir mér þó
ekki líklegur til sigurs í flokkn-
um, þeir Alan Arkin (Little Miss
Sunshine) og Eddie Murphy
(Dreamgirls) eru að mínu mati
sigurstranglegri. Mín von er hins
vegar sú að Djimon Hounsou
hljóti verðlaunin í þetta sinn fyrir
Blood Diamond.
Sú umfjöllun um Óskarsverð-launin hefur vart átt sér stað
undanfarnar vikur að möguleikar
Martins Scorseses til sigurs á
sviði leikstjórnar fyrir The Dep-
arted séu ekki nefndir. Hann er
nú tilnefndur í sjötta sinn og
margir telja „komið að honum“ að
fá Óskar. Myndin er þó langt því
frá hans besta en ég ætla að veðja
á að akademían sjái á honum
aumur og gefi honum verðlaun í
ár. Annars þykir mér Clint
Eastwood einnig líklegur fyrir
Letters From Iwo Jima.
Gaman væri að sjá bæði LittleMiss Sunshine og Babel fá
verðlaun sem besta myndin. Lík-
legra er þó að „komið sé að“
Scorsese fyrir The Departed.
Einnig kæmi lítið á óvart ef
Eastwood bætti enn einum í safn-
ið fyrir Letters From Iwo Jima.
Það verður gaman að fylgjastmeð aðfaranótt mánudags og
ekki spillir fyrir að Ellen DeGene-
res er kynnir í ár.
Drottningin og Marky Mark
Reuters
Heimilislausir Gulllitaðir Óskarar bíða eigenda sinna.
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
» Jennifer Hudson vargóð í hinni annars
hrútleiðinlegu Dream-
girls og Abigail Breslin
átti hug og hjarta
áhorfenda í Little
Miss Sunshine.
birta@mbl.is
RAÐ- OG FJÖLDAMORÐINGJAR
eru vinsælt umfjöllunarefni í afþrey-
ingarmenningunni, en fáir geta talist
jafn ástsælir og mannætan Hannibal
Lecter sem Anthony Hopkins gerði
eftirminnileg skil um árið í kvik-
myndinni Lömbin þagna en þar var
um að ræða aðlögun á samnefndri
metsölubók Thomas Harris. Fleiri
bækur og kvikmyndir hafa komið út
um Hannibal, misgóðar mjög, en með
nýjustu afurðinni, þ.e. uppvaxtarsögu
Hannibals, hefur rithöfundinum tek-
ist af fara með hugarfóstur sitt ger-
samlega niður í svaðið. Í bókinni
Hannibal Rising (Upprisa Hannibals)
og samnefndri bíómynd gerir Harris
þau mistök að leitast við að bregða
birtu á þau áföll í æsku sem mótuðu
Hannibal og gerðu hann að mann-
ætunni sem hann síðar varð en sú
rökvísi grefur markvisst undan þeirri
óræðu og kaldhæðnu ófreskju sem
Hannibal Lecter er í fyrri framsetn-
ingum á sögupersónunni. Það er ljóst
af útkomunni að hugmyndin er
dauðadæmd, enda er kvikmyndin
sem Harris skrifar sjálfur handritið
að ein hringavitleysa frá upphafi til
enda.
Leitast er við að gefa þessari mót-
unarsögu Hannibals evrópskan blæ,
en hún lýsir því er hópur förumanna
ræðst inn á heimili hins 8 ára gamla
Hannibals undir lok síðari heims-
styrjaldar og slátrar öllum þeim sem
þar eru. Sérstaklega hlýtur litla syst-
ir Hannibals hrapalleg örlög, er notuð
í súpu sem illmennin éta með bestu
lyst, og heitir drengurinn því hefnd-
um hvað sem það kostar. Þegar
Hannibal er orðinn nógu stálpaður til
að flýja af munaðarleysingjahælinu
og leita morðingja fjölskyldu sinnar
leitar hann ásjár hjá kynþokkafullri
japanskri ekkju frænda síns heitins.
Sú kennir honum austrænar bar-
dagalistir en auk þess nælir Hannibal
sér í þekkingu í því að búta niður
mannslíkama er hann fer í læknanám
í París.
Með þennan undirbúning í fartesk-
inu heldur Hannibal síðan í hefnd-
arför þar sem illmennin sem átu syst-
ur hans fá að óþvegið. En í stað þess
að myndin sé sálfræðitryllir í anda
raðmorðingjahefðarinnar,minnir
framvindan fremur á nokkurs konar
rambóhasarmynd þar sem dýrslegur
Hannibal ræðast aftan að mönnum
með veiðihnífum (og murkar úr þeim
lífið á einkar grimmdarlegan hátt
vegna þess að þeir „eiga það skilið“).
Myndin er öll illa leikin, sér-
staklega er Gaspard Ulliel dauflegur í
hlutverki Hannibals þar sem hann
þenur nasavængi í gríð og erg í til-
raun til að túlka siðfágað ófreskjueðli
Hannibals. En vandamálið er að sá
blóðþyrsti en réttsýni Hannibal sem
birtist okkur í þessari útlitslega fín-
pússuðu en óspennandi og innihalds-
lausu þroskasögu, á lítið skylt við rá-
gátuna Hannibal Lecter sem orðinn
er að nokkurs konar goðsögn meðal
raðmorðingja kvikmyndasögunnar.
Upprennandi mannæta
Léleg Kvikmyndin er almennt afar illa leikin að mati gagnrýnanda.
KVIKMYNDIR
Sambíóin Kringlunni, Álfabakka
og Akureyri
Leikstjórn: Peter Webber. Aðalhlutverk:
Gaspard Ulliel, Gong Li, Rhys Ifans.
Frakkland/Bretland/BNA, 117 mín.
Upprisa Hannibals (Hannibal Rising)
Heiða Jóhannsdóttir
Fréttir í tölvupósti