Morgunblaðið - 24.02.2007, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 24.02.2007, Qupperneq 60
60 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ menning Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn GRETTIR, ÉG KANN ROSALEGA VEL VIÐ LÍSU EN ÉG VIL FARA MÉR HÆGT. ÉG VIL EKKI DRÍFA OF MIKIÐ Í ÞESSU SAMBANDI ÉG ER EKKI TILBÚINN TIL ÞESS AÐ SÝNA HENNI SOKKASKÚFFUNA MÍNA NEI, ÞÚ ÆTTIR AÐ BÍÐA MEÐ ÞAÐ ÞANGAÐ TIL Á BRÚÐKAUPS- NÓTTINNI ÉG HELD AÐ ÉG FARI HEIM Í STURTU NÚNA.. ÆTLAR ÞÚ AÐ ÞRÍFA ÞIG, SKÍTAPÉSI? ÉG HEF SAMT LÆRT ÞAÐ AÐ BÚAST ALDREI VIÐ OF MIKLU FRÁ STURTUNNI.. HÚN NÆR ALDREI AÐ ÞVO MÉR BAK VIÐ EYRUN MAMMA HVAÐ, KALVIN? ÞÚ KANNAST VIÐ SÓFANN INNI Í STOFU? JÁ, HVAÐ MEÐ HANN? FINNST ÞÉR HANN EKKI OF BREIÐUR? ÉG VAR BARA AÐ SPYRJA HRÓLFUR, HÆTTU ÞVÍ SEM ÞÚ ERT AÐ GERA OG KOMDU NIÐUR EINS OG SKOT! ÉG ER FREKAR UPPTEKINN! HVAÐ ER AÐ? ÞÚ GLEYMDIR NESTINU ÞÍNU! FYRIRGEFÐU. ÞAÐ VAR KANNSKI EKKI NÓG PLÁSS TIL ÞESS AÐ SVEIFLA KETTI EFTIR ALLT SAMAN BLESS MAMMA. TAKK FYRIR OKKUR OKKAR VAR ÁNÆGJAN. TAKK FYRIR KOMUNA GAMAN AÐ SJÁ YKKUR ALLTAF GAMAN AÐ HITTA YKKUR TÓKSTU EFTIR ÞVÍ HVAÐ MAMMA TALAÐI MIKIÐ NIÐUR TIL MÍN? ÉG GAT EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ KOMAST ÞAÐAN ÚT Á SKRIFSTOFU DR. SMITHSON ÉG ER BÚINN AÐ SKRÁ ÞIG INN Á SPÍTALA PARKER EN ÞAÐ ER EKKERT AÐ MÉR BLÓÐIÐ ÞITT ER ÞAÐ ÓVENJULEGT AÐ ÞAÐ GÆTI BENT TIL ÞESS AÐ ÞETTA SÉ NÝ VEIRA ÞVÍ MIÐUR... ÉG VERÐ AÐ LÁTA SETJA ÞIG Í SÓTTKVÍ ÞEIR sem hafa séð kvikmyndina Síðasti konungur Skotlands eru á einu máli um að Forest Whitaker sýni afburðaleik í myndinni og eigi Óskarsverðlaunin vís, en þau verða afhent annað kvöld. Kvikmyndin fjallar um einræðisherrann Idi Amin sem níddist á þegnum sínum í Úg- anda á áttunda áratugnum. Sagan er sögð í gegnum uppdiktaðan karakter Nicks Carrigan, skosks læknis, sem ferðast til Úganda til að láta gott af sér leiða. Hann er fenginn til að gera að sárum einræðisherrans eftir bíl- slys og í kjölfarið tekur Amin hann upp á sína arma og skipar hann einkalækni sinn. Hægt og bítandi kemst Carrigan þó að grimmdareðli Idis Amins og þegar honum verður ljóst að illska einræðisherrans geti hæglega orðið honum sjálfum að ald- urtila er ekkert annað í stöðunni en að koma sér í burtu. Leikstjóri myndarinnar er Kevin MacDonald, sem á myndir á borð við One Day in September og Touching the Void að baki, en á tímabili leit út fyrir að Baltasar Kormákur tæki leikstjórn myndarinnar að sér. Kvikmyndin er sýnd í Smárabíói og Regnboganum. Frumsýning | Síðasti konungur Skotlands Illmenni Forest Whitaker fer á kostum í hlutverki Idi Amin. Óskarinn innan seilingar ERLENDIR DÓMAR Newsweek 90/100 Washington Post 80/100 Los Angeles Times 80/100 Empire 80/100 The New York Times 70/100 EndurmenntunarstofnunHáskóla Íslands býðurupp á námskeiðið Hag-fræði á vorönn. Nám- skeiðið er bæði boðið sjálfstætt og sem hluti af Rekstrar- og við- skiptanámi Endurmenntunar. Kristján Jóhannsson, lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, er umsjónarmaður námskeiðsins ásamt Sveini Agnarssyni, sérfræð- ingi hjá Hagfræðistofnun: „Nám- skeiðið er inngangsnámskeið og fjallar um tvær hliðar hagfræð- innar; þjóðhagfræði, sem fæst við efnahag samfélagsins, og rekstr- arhagfræði, sem fæst við starfsemi fyrirtækja,“ segir Kristján. „Nem- endur læra um grunnhugtök hag- fræðinnar og er markmiðið með náminu að þeir geti tekið virkan þátt í efnahagsumræðu, geri sér grein fyrir samspili helstu þjóð- hagsstærða og geti jafnframt nýtt þekkingu á hagfræði í starfi.“ Í þjóðhagfræðihluta námskeiðs- ins er m.a. fjallað um verðlag og vísitölur, fjármagnsmarkaðinn og peningakerfið: „Í rekstrarhagfræði- hlutanum beinum við sjónum okkar hins vegar að markmiðum í fyrir- tækjarekstri og eiginleikum ólíkra rekstrarforma,“ segir Kristján. „Nemendur fræðast um fram- leiðslu, kynnast framleiðsluþáttum og kostnaðarhugtökum, og hvernig þau nýtast í rekstri. Fjallað er um neytendur og hegðun þeirra, og hvernig má ná til þeirra, og að endingu eru allir þættir tvinnaðir saman til að finna undir hvaða kringumstæðum afkoma fyrirtækis getur verið best.“ Áhersla á hagnýti Á námskeiðinu spreyta nem- endur sig á raunhæfum dæmum sem herma eftir rekstri fyrirtækja á ólíkum sviðum atvinnulífs: „Lögð er mikil áhersla á að veita nem- endum þekkingu sem er hagnýt þegar út í atvinnulífið er komið og vinnum við m.a. hermimódel um rekstur verslunar, framleiðslufyr- irtækis og leikhúss,“ segir Krist- ján. Í lok námskeiðsins þurfa nem- endur að þreyta próf sem haldið er eftir sömu formkröfum og önnur próf í Háskóla Íslands, en námið er hægt að fá metið við viðskiptaskor kjósi nemendur að bæta við sig frekara námi á sviðinu og ljúka BS-námi í viðskiptafræði. Rekstrar- og viðskiptanám End- urmenntunarstofnunar er þriggja anna nám sem hægt er að stunda með starfi. Í náminu er fjallað um kjarnaatriði í viðskiptafræði, s.s. reikningshald, stjórnun, markaðs- fræði, lögfræði, rekstrarstjórnun, fjármál og stefnumótun. Kennt er í 30 til 40 manna bekkjum. Gerð er almenn krafa um háskólamenntun og reynslu af at- vinnurekstri en lágmarksundirbún- ingur er stúdentspróf eða sambæri- leg menntun. Námskeiðið Hagfræði hefst 26. febrúar. Nánari upplýsingar og skráning er á heimasíðu Endur- menntunarstofnunar, www.end- urmenntun.hi.is. Menntun | Inngangsnámskeið í þjóðhagfræði og rekstrarhagfræði hjá Endurmenntun Kjarninn í hagfræðinni  Kristján Jó- hannsson fæddist í Reykjavík 1951. Hann lauk stúd- entsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1972, B.Sc.Econ.-prófi frá Viðskiptahá- skólanum í Kaupmannahöfn 1978 og fram- haldsnámi á sviði fyrirtækjafjár- mála frá sama skóla 1981. Kristján hefur verið lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands í 15 ár og jafnramt starfað sem rekstr- arráðgjafi og stjórnarmaður. Krist- ján er kvæntur Ingibjörgu Sigurð- ardóttur kaupmanni og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.