Morgunblaðið - 24.02.2007, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
The Number 23 HEIMSFRUMSÝNING kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 8 og 10.15 B.i. 12 ára
Notes on a Scandal kl. 6 B.i. 12 ára
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4
Night at the Museum kl. 4 (450 kr)
The Number 23 HEIMSFRUMSÝNING kl. 5.45, 8 og 10.15 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland kl. 5.20, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
The Last King of Scotland LÚXUS kl. 2.50, 5.20, 8 og 10.35 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
The Pursuit of Happyness 8 og 10.30
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 1, 2, 3, 3.45 og 4.30 STUTTMYND
Rocky Balboa kl. 3 B.i. 12 ára
Vefurinn hennar Karlottu m/ísl. tali kl. 1.30 og 3.40
Night at the Museum kl. 1, 3.20 og 5.40
Byggð á sannri sögu um
manninnn sem reyndi það
ómögulega!
1TILNEFNING TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
eee
M.M.J - Kvikmyndir.com
eee
S.V. - MBL
SVALASTA
SPENNUM
YND
ÁRSINS
NICOLAS CAGE EVA MENDES
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
eeee
D.Ö.J. - KVIKMYNDIR.COM
„Stórfengleg mynd,
sannkölluð perla nútíma
kvikmyndagerðar“
B.S. - FRÉTTABLAÐIÐ
“Forrest Whitaker
er hreint út sagt
magnaður í hlutverki
harðstjórans og sýnir svo að ekki
verður um villst að hér fer einn fremsti
leikari samtímans.”
Mögnuð mynd með Óskarsverðlaunatilþrifum frá
Forest Whitaker sem einn grimmasti harðstjóri sögunnar.
Missið alls ekki af þessari mynd!
HEIMSFRUMSÝNING
Mynd eftir
Joel Schumacher
JIM CARREY
Þú flýrð ekki sannleikann
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
staðurstund
Á morgun, sunnudag, lýkur sýningu HyeJoung Park og Karls Ómarsson í
Suðsuðvestur, Hafnargötu 22 í Keflavík.
Hye og Karl hafa unnið saman áður en
vegna ólíkrar nálgunar þeirra hefur þeim tilraunum verið líkt við sam-
vinnu snigilsins og býflugunnar. Í þetta sinn áttu hugleiðingar þeirra
stefnumót á fyrirfram ákveðnum stað sem hefur sett mark sitt á verkin
og þau hafa fléttast saman í eina innsetningu.
Úr sýningarskrá:
Yfirráðasvæði áhorfandans er truflað með sterkri nærveru. Markvisst
er unnið með tungumál myndarinnar og uppfærslan er rækilega ígrund-
uð.
Vinna tveggja listamanna er framlengd og rennur saman í eitt. Rýmið
teygir sig yfir í kynlausan líkama. Öryggisleysi grípur hvern sem gefur
sér tíma til þess að mæta sterkri framsetningu og hamskiptum miðlunar.
Endurtekinn og vélrænn andardráttur kallar fram ósjálfráð viðbrögð og
móttækilegur sýningargestur gæti því hæglega gengið inn í ástandið líkt
og í leiðslu. Tilfinning fyrir æðaslætti og þrengingu í hálsi eykst. Hægt og
rólega skýrast þó línurnar og maður nær tökum á kringumstæðum á ný.
Myndlist
Samvinna snigilsins
og býflugunnar
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Tónlist
Café Rosenberg | Kvartett Hauks Gröndal:
Haukur Gröndal sax, Ásgeir Ásgeirsson gít-
ar, Þorgrímur Jónsson bassi og Erik Qvick
trommur. Djasstónlist í anda sveiflumeist-
aranna frá 4. og 5. áratug síðustu aldar. Kl.
23, aðgangseyrir 500 kr.
Græni hatturinn | Akureyri. Köntrísveit
Baggalúts heldur hljómleika laugard. 24.
feb. Húsið opnað kl. 21 og hljómleikarnir
hefjast um kl. 22.
Hafnarborg | menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar. Tónleikar Guðlaugs Kristins
Óttarssonar sunnud. 25. feb. kl. 20. Með
Guðlaugi verða níu þekktir hljóðfæraleik-
arar. Leikin verða verk eftir ýmis tónskáld,
auk tónverka Guðlaugs af nýju plötunni
Dense Time.
Hallgrímskirkja | Sunnud. 25. feb. kl. 17
mun Vincent Warnier halda tónleika á veg-
um Listvinafélags Hallgrímskirkju. Hann
mun láta hina þýsku drottningu hljóðfær-
anna hljóma á franska vísu. Miðaverð er
2.000 kr. (1.000 kr. Listvinir/1.200 kr. nem.
og eldri borgara). www.pourquoipas.is
Neskirkja | Sólrún Gunnarsdóttir, fiðla og
Rannveig Káradóttir, sópran, verða í ein-
leikshlutverkum á hljómsveitartónleikum
24. feb. Stjórnandi Hljómsveitar Tónlistar-
skólans í Reykjavík er Gunnsteinn Ólafsson.
Safnaðarheimilið Vinaminni | Akranesi.
Tónleikar Kórs Akraneskirkju í dag, laugard.,
kl. 17. Aðgangseyrir er 1.000 kr. Kórinn er á
förum í söngferð til Kanaríeyja og mun
halda tónleika 28. feb. og 2. mars í guðs-
þjónustu hjá sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur í
Templo Ecumenico.
Myndlist
Anima gallerí | Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.
Lágmyndir. Til 24. feb. Opið þri.–lau. kl. 13–
17. www.animagalleri.is
Auga fyrir auga | á horni Klapparstígs og
Hverfisgötu. Feel free to join me er titill inn-
setningar Önnu Lindar Sævarsdóttur. Til 11.
mars. Opið miðvikud. kl. 15–18, föstud., laug-
ard. og sunnud. kl. 14–17.
Café Karólína | Sýning Kristínar Guðmunds-
dóttur samanstendur af textaverkum á gla-
samottur og veggi.
Café Mílanó | Faxafeni 11. Ljósmyndasýning
Rafns Hafnfjörð. Opið kl. 8–23.30 virka
daga, kl. 8–18 laugard. og kl. 12–18 sunnud.
Gallerí BOX | Sýning á verki Kristínar Helgu
Káradóttur „At Quality Street/Við Gæða-
stræti“. Opið laugard. og sunnud. kl. 14–17 til
3. mars. Nánari á www.galleribox.blogs-
pot.com
Energia | Haf og land. Málverkasýning
Steinþórs Marinós Gunnarssonar. Opið kl. 8–
20. Til 1. mars.
Gallerí Fold | Laugardaginn 24. feb. kl. 15
opnar Haukur Dór málverkasýningu í Baksal
Gallerís Foldar við Rauðarárstíg. Haukur Dór
hélt sína fyrstu sýningu á Mokka 1962 eftir
nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Þá
hélt hann utan til frekara náms í myndlist,
fyrst til Edinborgar og síðan til Kaup-
mannahafnar.
Gallery Turpentine | The Kodak Moments.
Hallgrímur Helgason sýnir 110 grafíkverk
unnin á árunum 2004–2007.
Gerðuberg | RÚRÍ: Tími – Afstæði – Gildi.
Opið virka daga kl. 11–17 og um helgar kl. 13–
16. Til 15. apríl.
Grafíksafn Íslands | Tryggvagötu 17, hafn-
armegin. Kynning á verki Braga Ásgeirs-
sonar „Skuggar ástarinnar“ kl. 14–18.
Hafnarborg | Hrafnhildur Inga Sigurð-
ardóttir sýnir tæplega 40 olíu málverk. Til 4.
mars.
Hafnarborg | Yfirlit yfir listferil. Dröfn Frið-
finnsdóttir (1946–2000). Til 4. mars.
Hallgrímskirkja | Mynd mín af Hallgrími. 28
íslenskir myndlistarmenn sýna útfærslur
sínar á hinni alkunnu mynd Hjalta Þorsteins-
sonar af Hallgrími Péturssyni.
Hrafnista, Hafnarfirði | Olga Steinunn
Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 2. mars.
i8 | Sýning á verkum Kristins E. Hrafns-
sonar til 24. feb. Opið þri.–föst. kl. 11–17 og
laug. kl. 13–17.
Karólína Restaurant | Listagilinu á Ak-
ureyri. Jónas Viðar sýnir málverk. Til 4. maí.
Nánar á www.jvd.is
Kling og Bang gallerí | Helgi Hjaltalín og
Pétur Örn sýna tvær einkasýningar í sam-
vinnu.
Listasafn ASÍ | Arinstofa. Live sucks! Ut-
opia and last blah-blah before you go er
heiti sýningar franska listamannsins Eti-
enne de France. Sýningin fjallar um sýnd-
arheima Netsins og er hluti af frönsku
listahátíðinni „Pourquoi Pas?“ Til 25. mars.
Aðgangur ókeypis.
Síðasta sýningarhelgi á sýningu Eyglóar
Harðardóttur „Leiðsla“. Opið kl. 13–17. Að-
gangur ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Óskars – Les Yeux de L’ombre Jaune
og Adam Batemans – Tyrfingar. Opið alla
daga nema mánudaga 12–17.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Efri hæð:
Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags
Íslands. Neðri hæð: Kárahnjúkar. Ljósmyndir
eftir: Ragnar Axelsson, Pál Stefánsson, Þor-
vald Örn Kristmundsson, Brynjar Gauta
Sveinsson, Kristin Ingvarsson og Vilhelm
Gunnarsson. Til 18. mars. Safnbúð og kaffi-
stofa.
Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard
Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í
upphafi 20. aldar. Sýning á verkum Jóns
Stefánssonar í sal 2. Síðasta sýningarvika.
Opið kl. 11–17 alla daga, lokað mánudaga.
Ókeypis aðgangur.
Listasafn Reykjanesbæjar | Duus-húsum.
Sýning Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og
Arons Reys Sverrissonar.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Sýningin Ásmundur Sveinsson – Maður og
efni sýnir úrval verka úr safneign safnsins.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró –
Gleymd framtíð.
Safnið býður gesti velkomna í sunnudags-
leiðsögn kl. 15. Skoðaðar verða sýningar
safnsins í fylgd starfsfólks.
D er ný sýningaröð sem nefnd er eftir einum
sýningarsal hússins og er hugsuð sem fram-
tíðarverkefni safnsins. Fyrst til að sýna verk
sín í sýningaröðinni er Birta Guðjónsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Á
sýningunni Foss eru tengsl listar og náttúru
rannsökuð í gegnum verk fjögurra lista-
manna sem nálgast viðfangsefnið á afar
ólíkan máta. Listamennirnir eru: Hekla Dögg
Jónsdóttir, Ólafur Elíasson, bandaríska lista-
konan Pat Steir og Rúrí. Sýningarstjóri er
Hafþór Yngvason.
K-þátturinn. Á sýningunni eru verk og ferill
Kjarvals skoðuð út frá hugarheimi Kjarvals.
Kjarval og bernskan. Sýning sem er ætluð
börnum og ungmennum. Alla sunnudaga kl.
14 er dagskrá fyrir börn. Opið öllum.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | www.lso-
.is – grunnskólanemar velja verk. Sýning
sem haldin er í tilefni þess að heildarskrá
listaverka Sigurjóns Ólafssonar, sem gefin
var út á prenti 1998–99, hefur verið upp-
færð og flutt á Netið. Börnin völdu sér verk
sem þau vildu sjá og rituðu um þau stutta
texta. Úrval textanna birtist í sýningarskrá.
Opið kl. 14–17.
Listasalur Mosfellsbæjar | Kjarna, Þver-
holti 2 í Bókasafni Mosfellsbæjar. Listbók-
band – Bóklist á vegg og myndlist á bók.
Ragnar G. Einarsson og Guðlaug Friðriksd.
sýna Bóklist 24. feb.–24. mars. Þau vinna
saman að listbókbandi einnig sýnir Guðlaug
málverk tengd bóklistinni. Opið virka daga
kl. 12–19, laugard. 12–15.
Listhús Ófeigs | Skólavörðustíg 5. Bjarni H.
Þórarinsson, Ómar Stefánsson og Guð-
mundur Oddur Magnússon með samstarfs-
verkefnið Cosmosis-Cosmobile. Til 28. febr.
Opið á verslunartíma.
Skaftfell | Bjarki Bragason sýnir á Vest-
urveggnum í Bistrói. www.skaftfell.is
Suðsuðvestur | Listamennirnir Hye Joung
Park og Karl Ómarsson hafa dregið fram
óræð mörk þar sem sýningargestir eiga
þess kost að skima eftir snertingu verka
sem teygja sig og vaxa. Opið á föstudögum
kl. 16–18 og um helgar kl. 14–17.30 til 25. feb.
Þjóðarbókhlaðan | Sigurborg Stefánsdóttir
sýnir bókverk til 28. feb.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10–17. Nánar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Vissir þú að
meðal þess sem framleitt var í Iðn-
aðarbænum Akureyri var súkkulaði, skinn-
kápur, skór, húsgögn og málning? Opið á
laugard. kl. 14–16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Að-
alstræti 16, lokað til 3. mars.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn |
Spari bækur. Sýning Sigurborgar Stef-
ánsdóttur, Bókverk.
Sýning. Upp á Sigurhæðir – Matthías Joch-
umsson. Sýningin stendur út febrúar.
Minjasafnið á Akureyri | Sýning á 70
óþekktum myndum. Almenningur er beðinn
um aðstoð við að setja nafn á andlit og heiti
á hús. Aðrar sýningar: Akureyri –bærinn við
Pollinn & Eyjafjörður frá öndverðu.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12–
17. www.sagamuseum.is
Veiðisafnið – Stokkseyri | Opið allar helgar
í febrúar kl. 11–18. Nánar á www.hunting.is
Víkin, Sjóminjasafnið í Reykjavík | Opnuð
hefur verið málverkasýning Bjarna Jóns-
sonar, Á flyðruvelli, um horfinn heim ára-
bátamenningar Íslendinga. Sýningarnar Úr
ranni forfeðranna og 100 ára saga tog-
araútgerðar verða opnar áfram fram í apríl.
Fiskveiðum Frakka gerðu skil í móttöku með
myndum og munum.
Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni Hand-
ritin eru sýnd nokkur merkustu skinnhandrit
miðalda. Leiðsögn fyrir hópa og nemendur.
Sýningin Íslensk tískuhönnun til 27. feb.
Leiklist
Loftkastalinn | Leikfélag Menntaskólans í
Reykjavík frumsýnir á herranótt leikritið DJ
Lilli í leikstj. Ólafs Egilssonar. Miðapantanir:
herranott@mr.is og í s: 664 3735.
Skemmtanir
Café Paris | DJ Lucky spilar soul, funk,
reggae, gömlu og nýju hiphop/rnb
Vélsmiðjan, Akureyri | Hljómsveitin Von