Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 75. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
20-50%
AFSLÁTTUR AF
NÝJUMVÖRUM
Opið 10-18 í dag
ÁRÆÐI OG ERÓTÍK
ÞEIR SEM VITIÐ HAFA TELJA SIG GETA LESIÐ
ÝMISLEGT ÚT ÚR HÁUM HÆLUM >> 26
KOMNAR MEÐ AÐRA
HÖND Á BIKARINN
STJARNAN
MALAÐI VAL >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FORMAÐUR Samfylkingarinnar, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, kann svila sínum,
Össuri Skarphéðinssyni, litlar þakkir fyrir
þann einleik sem hann hefur, í nafni Sam-
fylkingarinnar, leikið í auðlindaákvæðis-
málinu, í fullkominni óþökk flestra Samfylk-
ingarmanna, samkvæmt mínum heimildum.
Fullyrt er að meginmarkmið Össurar hafi
aldrei verið að koma hugtakinu þjóðareign á
auðlindum inn í stjórnarskrá, heldur að
reka fleyg í stjórnarsamstarf Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks, á þann veg að fulltrúi
Framsóknar í sérnefnd um stjórnarskrár-
mál gengi til samstarfs við fulltrúa stjórn-
arandstöðunnar um orðalag ákvæðisins,
eins og ákveðnir þingmenn Framsóknar
höfðu fullan hug á að gera. Þar með hefðu
orðið stjórnarslit.
Kostað þrjár vikur
Formenn stjórnarflokkanna, þeir Geir H.
Haarde og Jón Sigurðsson, sáu við bragða-
refnum Össuri og Jón talaði Framsókn til.
Þeir vissu sem var, að ef ákvörðun yrði tek-
in um að þröngva stjórnarskrárbreyting-
unni í gegn, þvert á vilja stjórnarandstöðu,
hefði slíkt þref líklega kostað þrjár vikur í
viðbót á Alþingi. Þannig hefðu stjórnar-
flokkarnir setið uppi með það að stjórnar-
andstaðan keyrði inn í kosningabaráttu með
auðlindaákvæðið sem aðalbaráttumál þar
sem því yrði lofað á báða bóga að neita að
staðfesta ákvæðið eftir kosningar.
Ekki benda á mig
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna
héldu blaðamannafund í gær þar sem inn-
takið var „Ekki benda á mig“ eins og Bubbi
söng forðum. Héldu formennirnir því fram
að út í hött væri að kenna stjórnarandstöð-
unni um lyktir málsins á þingi. En er það
svo?
Formenn stjórnarflokkanna, þeir Geir og
Jón, telja báðir, samkvæmt mínum upplýs-
ingum, að orðalag auðlindaákvæðisins, eins
og það er í frumvarpi þeirra, sé algjörlega
viðunandi og að aldrei verði hægt að orða
það á þann veg að algjör eindrægni ríki um
það, hvorki lögfræðilega né pólitískt. Það
verði því viðfangsefni stjórnarskrárnefnd-
ar, að afloknum kosningum, að vinna tillögu
sem verði síðan kynnt Alþingi þegar það
kemur saman á nýjan leik í haust. Þannig
verði hægt að vinna að víðtækri sátt í þessu
stóra og viðkvæma máli.
Össur Skarp-
héðinsson
Jón
Sigurðsson
Geir H.
Haarde
Einleikur
með fölsk-
um hljómi
Geir og Jón sáu við
Barbabrellum Össurar
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær úrskurð Hér-
aðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá dómi
ákæru á hendur þremur núverandi og fyrrver-
andi forstjórum olíufélaganna; Einari Bene-
diktssyni, forstjóra Olíuverslunar Íslands, Geir
Magnússyni, fyrrverandi forstjóra Olíufélags-
ins – sem nú heitir Ker, og Kristni Björnssyni,
fyrrverandi forstjóra Skeljungs.
Fimm dómarar kváðu upp dóminn og skiluðu
tveir þeirra sératkvæði. Í dómi meirihluta
Hæstaréttar segir að ekki sé nægjanlega fram
komið að varnaraðilar hafi notið þeirra réttinda
sakborninga, sem fyrir er mælt í 70. gr. stjórn-
arskrárinnar og meginreglum laga um meðferð
opinberra mála, í þeirri lögreglurannsókn sem
fram fór í kjölfar meðferðar samkeppnisyfir-
valda. Ákæra verði því ekki reist á umræddri
lögreglurannsókn og var málinu á þeim forsend-
um vísað frá héraðsdómi.
Í forsendum dómsins kemur einnig fram að
fyrirkomulag samkeppnislaga hafi ekki verið
nógu skýrt um meðferð máls ef grunur vaknaði
um að brotið hefði verið gegn lögunum. Þar af
leiðandi hafi verið óskýrt hvernig með ætti að
fara ef tilefni þætti til opinberrar rannsóknar
jafnhliða meðferð samkeppnisyfirvalda og hve-
nær beita ætti refsiviðurlögum. Átti það m.a. við
um þá stöðu varnaraðila að taka þátt í viðræðum
og samningum við Samkeppnisstofnun og veita
henni upplýsingar en fella á sama tíma á sig sök
með því að málið var síðar tekið til refsimeð-
ferðar.
Gunnlaugur Claessen og Ólafur Börkur Þor-
valdsson skiluðu sératkvæði. Gunnlaugur var
sammála niðurstöðu meirihluta dómsins en á
öðrum forsendum. Ólafur Börkur vildi hins veg-
ar fella úrskurð héraðsdóms úr gildi og leggja
fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeð-
ferðar.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari, segir
að niðurstaðan í þessu máli sé endanleg og það
sé dómur Hæstaréttar sem ráði úrslitum. Ekki
verði gefin út önnur ákæra vegna þess „að það
er engin önnur rannsókn til að byggja þá ákæru
á heldur en þessi eina rannsókn sem verið er að
segja að sé ekki fullnægjandi“.
„Ég óska þessum sakborningum til hamingju
með það að vera lausir undan þessu máli. Það
hlýtur að vera léttir. Það er búið að taka langan
tíma og ákæruvaldið hefur alls ekki verið ánægt
með þessa tvöföldu málsmeðferð,“ segir hann
ennfremur. | Miðopna
Frávísun staðfest og
ekki ákært að nýju
Meirihluti Hæstaréttar taldi ekki nægjanlega fram komið að ákærðu í
olíumálinu hefðu notið réttarstöðu sakborninga við lögreglurannsókn
Einar
Benediktsson
Geir
Magnússon
Kristinn
Björnsson
BETUR fór en á horfðist þegar um 300 lítrar af dísilolíu láku niður á
svonefndan Strípsveg í Heiðmörk í gær. Óhappið varð þegar öku-
maður vörubíls var að taka beygju á veginum. Ferð bílsins tengdist
framkvæmdum Kópavogsbæjar við vatnslögn í Heiðmörk. Svo virð-
ist sem bíllinn hafi rekist í grjót með þeim afleiðingum að und-
irvagninn rifnaði og olían lak út. Mikil hálka var á svæðinu og er
hún talin hafa orsakað óhappið.
„Sem betur fer sýnist mér olían hafa aðallega lekið eftir veg-
inum,“ sagði Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri á umhverfissviði
Reykjavíkurborgar. „Það hefði verið verra ef olían hefði lekið út til
hliðar við veginn.“
Grafa var fengin til að moka olíumenguðum jarðvegi upp á vöru-
bíl. Óhappið varð á svokölluðu grannsvæði en því er skipt upp í
nokkur brunnsvæði, þ.e. vatnsbólin sjálf. Næsta brunnsvæði, Myllu-
lækur, var í nokkurra kílómetra fjarlægð frá staðnum. | 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hreinsun Gunnar Örn Pétursson frá SHS var meðal þeirra sem tóku þátt í aðgerðum til að fjarlægja olíumengaðan jarðveg.
Olía lak úr vörubíl
í Heiðmörk
Kristinn Björnsson sagði að niðurstaðan væri
mikill léttir og málinu væri nú endanlega lok-
ið gagnvart einstaklingum. „Með dómi Hæsta-
réttar kemur umbúðalaust fram að allur þessi
málatilbúnaður er ekki á neinum rökum reist-
ur,“ segir Kristinn og bendir á að dómurinn sé
jafnframt ákveðinn vendipunktur í málaferl-
um á hendur olíufélögunum.
Hvorki Einar Benediktsson né Geir Magn-
ússon vildu tjá sig um málið að svo stöddu. | 2
Mikill léttir