Morgunblaðið - 17.03.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Ný sending
Úlpur og stuttkápur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Litir
kampavíns
og svart
Ný pils
SÍÐUMÚLA 11 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 575 8500 - www.fasteignamidlun.is
Pálmi Almarsson
lögg. fasteignasali
Sverrir Kristjánsson
lögg. fasteignasali
Brynjar Fransson
lögg. fasteignasali
Þór Þorgeirsson
lögg. fasteignasali
TRAUST, ÞEKKING, FAGMENNSKA OG REYNSLA ERU OKKAR LYKILORÐ
ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR - 100 ÁRA SAMANLÖGÐ REYNSLA
20% af yfirhöfnum
frá
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
KRINGLUKAST
Sumargarn og -blað komið
Útsala á eldra garni - opið 2. 3. og 4. apríl.
frá kl. 17:00-19:00
Annyblatt garnið
arndis_bj@hotmail.com • Stekkjarsel 7 (bílskúr) • Sími 698 1850
GLÆSILEGAR
VETRARKÁPUR
ÚTSÖLUVERÐ
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Póstsendum
Laugavegi 82, á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Glæsilegur
sundfatnaður
í öllum stærðum
Nýtt kortatímabil
„ÞAÐ hefur vald-
ið okkur von-
brigðum að vísi-
talan skuli ekki
hafa lækkað
meira en raun
ber vitni þar sem
við höfum upp-
lýsingar um
fjöldann allan af
veitingahúsum
innan Samtaka ferðaþjónustunnar
sem hafa lækkað verð,“ segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
SAF, um verðbreytingar á veitinga-
húsum í kjölfar lækkunar virðis-
aukaskatts.
Samtök ferðaþjónustunnar hafa
undanfarin ár sent frá sér ályktanir
þar sem fram hefur komið að þau
telji brýna nauðsyn að lækka mat-
arverð á Íslandi. Í grein sem Erna
ritaði í Morgunblaðið í desember ár-
ið 2005 segir að hér sé matarverð
42% hærra en í löndum ESB. Það
komi á óvart að stjórnvöld geri ekk-
ert til að minnka bilið. „Samtök
ferðaþjónustunnar, sem tala m.a.
fyrir hönd veitingahúsa, hafa marg-
oft bent á þennan mismun og kallað
eftir úrbótum, en rekstrarumhverfi
íslenskra veitingahúsa er eitt hið al-
versta sem þekkist á byggðu bóli
þar sem skattar á áfengi slá hér líka
heimsmet. Íslensk ferðaþjónusta er
í harðri samkeppni á alþjóðamark-
aði og skiptir þá miklu að matarverð
sé samkeppnishæft. þetta háa mat-
arverð er í dag alvarleg samkeppn-
ishindrun.“
Erlendir heildsalar ánægðir
Erna segir að þeir veitingastaðir
sem hún hafi verið í mestu sam-
bandi við og fylgst með og séu innan
samtakanna, séu í hópum búnir að
lækka verð hjá sér. „Ég hef heyrt
frá erlendum heildsölum ánægju
þeirra með að þeir eru búnir að fá
nýjar verðskrár,“ segir Erna. Þar
komi fram lægra verð, bæði á gist-
ingu og veitingum. „Þannig að þetta
er farið að hafa áhrif úti í heimi,“
segir Erna.
Hvers vegna vísitalan hafi ekki
lækkað meira en raun ber vitni seg-
ist Erna ekki geta skýrt. Ef til vill
þurfi að skoða tölurnar yfir lengra
tímabil.
Hún segir SAF hafa hvatt sína fé-
lagsmenn til þess að láta lækkun
virðisaukaskattsins ná í gegn hjá
sér. „Við munum auðvitað halda því
áfram.“
Vonbrigði að vísitalan
hafi ekki lækkað meira
Erna Hauksdóttir
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands
dæmdi nýverið karlmann á fertugs-
aldri til tólf mánaða fangelsisvistar,
en frestaði fullnustu níu mánaða af
refsingunni, fyrir að leita á sjö ungar
stúlkur seinni hluta árs 2006. Honum
var að auki gert að greiða fórnar-
lömbum sínum alls 1,5 milljón króna
og rúmar 600 þúsund krónur í sak-
arkostnað.
Samkvæmt ákæru leitaði maðurinn
á sex stúlknanna í vaðlaug í Jaðar-
sbakkalaug á Akranesi og strauk m.a.
kynfæri, læri og rass þeirra utan-
klæða. Stúlkurnar voru átta og níu
ára gamlar. Einnig játaði maðurinn
að hafa nuddað kynfæri sex ára
stúlku utanklæða á heimili sínu haust-
ið 2006.
Hafa liðið fyrir brotin
Maðurinn játaði brot sín skýlaust
og var litið til þess við ákvörðun refs-
ingar, en einnig þess að hann er með
hreint sakarvottorð og hefur leitað
aðstoðar hjá sálfræðingi og á geðdeild
Landspítalans. Í bréfi sálfræðings
kom m.a. fram að maðurinn hefði sýnt
ríkan vilja til að taka á vanda sínum
og verið fullur iðrunar.
Ákærða var virt til refsiþyngingar
að brotin beindust gegn sjö ungum
stúlkum, m.a. þegar þær voru við leik
í sundi. Segir í niðurstöðu dómsins að
það liggi fyrir að stúlkurnar hafi liðið
fyrir brotin og að gera megi ráð fyrir
að þau geti valdið þeim vanlíðan síðar
meir, þegar þær eldast og þroskast.
Þótti tólf mánaða fangelsi skilorðs-
bundið hæfileg refsing en með hlið-
sjón af eðli brotanna og alvarleika
þeirra var ekki talin ástæða til að skil-
orðsbinda refsinguna nema að hluta.
Þá þóttu 200 þúsund króna miska-
bætur hæfilegar fyrir sex stúlknanna
en ein hlaut 300 þúsund króna miska-
bætur.
Benedikt Bogason héraðsdómari
kvað upp dóminn. Sigríður Elsa
Kjartansdóttir saksóknari flutti málið
af hálfu ákæruvaldsins og Jón Hauk-
ur Hauksson hdl. varði manninn.
Leitaði á ungar
stúlkur í sundlaug
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur
dæmt karlmann á fimmtugsaldri til
greiðslu sjötíu milljóna króna sektar
til ríkissjóðs vegna brota gegn lögum
um virðisaukaskatt og lögum um
staðgreiðslu opinberra gjalda. Greiði
maðurinn ekki sektina innan fjög-
urra vikna kemur tólf mánaða fang-
elsi í stað hennar. Hann var að auki
dæmdur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi.
Maðurinn var framkvæmdastjóri
einkahlutafélags á Patreksfirði sem
tekið var til gjaldþrotaskipta í maí
2004. Á árunum 2001 til 2004 stóð
maðurinn sýslumanninum á Pat-
reksfirði ekki skil á virðisaukaskatti,
að fjárhæð tæpum 50 milljónum
króna, auk þess að á árunum 2003 og
2004 stóð hann ekki skil á stað-
greiðslu opinberra gjalda, samtals
um átta milljónum króna, sem haldið
var eftir af launum starfsmanna.
Kristinn Halldórsson, settur hér-
aðsdómari, kvað upp dóminn. Björn
Þorvaldsson settur saksóknari sótti
málið af hálfu ákæruvaldsins og Sig-
urður A. Þóroddsson hdl. varði
manninn.
Sjötíu millj-
óna sekt fyr-
ir skattsvik
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111