Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 41
KIRKJUSTARF
Kvöldmessa með
Þorvaldi í Seljakirkju
Verið velkomin til kvöldmessu í
Seljakirkju sunnudaginn 18. mars
kl. 20. Sr. Bolli Pétur Bollason pré-
dikar. Þorvaldur Halldórsson tón-
listarmaður leiðir lofgjörðina ásamt
kór kirkjunnar undir stjórn Jóns
Bjarnasonar tónlistarstjóra. Gengið
verður að borði Drottins og þegin
þar sú sáluhjálp, sem við öll þurfum
á að halda. Sjáumst! Sjá nánar um
kirkjustarf Seljakirkju á seljakirkja-
.is.
Æðruleysismessa
marsmánaðar í
Dómkirkjunni
Á sunnudaginn kemur, þann
18.mars, verður æðruleysismessa í
Dómkirkjunni kl. 20. Hún verður
með hefðbundnu sniði. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson mun predika og
sr. Anna Sigríður Pálsdóttir mun
leiða messuna og sr. Karl V. Matthí-
asson mun leiða bænahaldið. Þá tal-
ar einn úr hópi kirkjugesta og er
með vitnisburð. Sálmasöngur og
önnur tónlist verða sem fyrr í
öruggum höndum Harðar Braga-
sonar organista, Birgis Bragasonar
kontrabassa-leikara og Hjörleifs
Valssonar fiðluleikara. Anna Sigríð-
ur Helgadóttir mun leiða sönginn.
Æðruleysismessurnar hafa yfir sér
blæ gleði og vonar og það eru góðar
og uppbyggilegar stundir sem fólk
nýtur þar. Allir eru velkomnir . Karl
V. Matthíasson.
Kirkjuskólinn í Mýrdal
Munið samveru kirkjuskólans í Mýr-
dal í grunnskólanum í Vík laug-
ardaginn 17. mars nk. kl. 11.15.
Sóknarprestur.
Safnaðarfélag
Dómkirkjunnar
Fundur sunnudaginn 18. mars að
lokinni árdegismessu í safn-
aðarheimilinu, Lækjargötu 14A. Sr.
Jakob Ágúst Hjálmarsson er kom-
inn heim eftir langa dvöl í Afríku.
Hann kemur á fundinn og segir frá
reynslu sinni. Erindi sitt nefnir
hann; Gróin kristni og ný – hugleið-
ing eftir dvöl meðal Afríkumanna.
Léttur málsverður að venju. Safn-
aðarfélag Dómkirkjunnar er vett-
vangur starfsfólks og reglulegra
kirkjugesta til samfélagseflingar og
framkvæmda á félagssviði safn-
aðarlífsins. Það heldur að jafnaði
fundi sína á eftir messu einu sinni í
mánuði yfir veturinn. Þá eru gjarn-
an haldin erindi sem ýmist fjalla um
það sem er að gerast á vettvangi
safnaðarins eða fróðlegt efni af öðru
tagi.
LITRÓF – kirkja
fyrir alla
Laugardaginn 17. mars kl. 15 hittist
stuðningshópur kvenna í Fella- og
Hólakirkju. Við ætlum að föndra,
spjalla og eiga góða stund saman.
Allar konur innilega velkomnar.
Sunnudaginn 18. mars mun sr. Tos-
hiki Toma predika í guðsþjónustu
kl. 11 en síðan verður alþjóðlegur
hádegisverður þar sem allir eru vel-
komnir að setja rétt frá sínu landi á
sameiginlegt hlaðborð. Við fáum
kynningu á atvinnustarfsemi inn-
flytjanda frá Mexíkó. Við viljum
hvetja ykkur til að mæta og taka
með ykkur gesti til að eiga saman
skemmtilega samveru í Fella- og
Hólakirkju. Velkomin.
Grafarvogskirkja
Fyrsta ferming 2007 verður í Graf-
arvogskirkju sunnudaginn 18. mars
kl. 10.30 og 13.30. Prestar: séra Vig-
fús Þór Árnason, séra Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir, séra Bjarni Þór
Bjarnason og séra Lena Rós Matt-
híasdóttir. Að þessu sinni verða 316
börn fermd frá Grafarvogskirkju og
hafa þau aldrei verið fleiri. Barna-
guðsþjónustur verða kl. 11 í Graf-
arvogskirkju og í Borgarholtsskóla
út aprílmánuð og lokið með barna-
messuferð til Grindavíkur laug-
ardaginn 5. maí. Þar sem ekki verða
birt nöfn fermingarbarna í blaðinu
bendum við á heimasíðu kirkjunnar
sem er: http://www.grafarvogs-
kirkja.is.
Skaftfellingamessa
í Breiðholtskirkju
Á morgun, sunnudaginn 18. mars,
kl. 14 verður Skaftfellingamessa í
Breiðholtskirkju í Mjódd. Í þessari
messu munu þjóna fjórir prestar,
sem þjóna eða hafa þjónað söfn-
uðum í Skaftafellssýslu. Sr. Sig-
urður Kr. Sigurðsson, sókn-
arprestur á Höfn prédikar og sr.
Bryndís Malla Elídóttir, sr. Fjalarr
Sigurjónsson og sr. Gísli Jónasson
þjóna fyrir altari. Þá mun Söngfélag
Skaftfellinga syngja ásamt með-
limum úr samkór Hornafjarðar.
Organistar og kórstjórar eru Krist-
ín Jóhannesdóttir, organisti Hafn-
arkirkju, og Violeta Smid, stjórn-
andi Söngfélagsins.
Að messu lokinni verða kaffiveit-
ingar í safnaðarheimili kirkjunnar,
sem seldar verða til styrktar starfi
Söngfélags Skaftfellinga, og mun
kórinn syngja nokkur lög af því til-
efni. Við viljum hvetja Skaftfellinga,
sem búsettir eru hér á höfuðborg-
arsvæðinu, til að taka þátt í mess-
unni og eiga síðan góða stund í safn-
aðarheimilinu á eftir. Verið öll
hjartanlega velkomin í Breiðholts-
kirkju!
Aðalsafnaðarfundur
Laugarneskirkju
Að lokinni messu kl. 11 á morgun,
sunnudaginn 18. mars, verður aðal-
fundur Laugarnessafnaðar haldinn
og hefst hann um kl. 12.30. Farið
verður yfir safnaðarstarfið 2006 og
verklegar framkvæmdir þess árs.
Reikningar verða kynntir og lagðir
fram til samþykktar auk þess sem
kosið verður um sex laus sæti í sókn-
arnefnd. Veitingar verða í boði fyrir
fundargesti.
Í messunni kl. 11 mun sr. Hildur
Eir Bolladóttir prédika og þjóna
ásamt meðhjálpara og fulltrúum les-
arahóps. Kór kirkjunnar leiðir al-
mennan safnaðarsöng við undirleik
og stjórn Gunnars Gunnarssonar,
tónlistarstjóra kirkjunnar.
Um leið og messan er fer sunnu-
dagaskóli kirkjunnar fram í safn-
aðarheimilinu strax frá kl. 11. At-
hugið breytta tilhögun. Umsjón með
sunnudagaskólanum hafa þau María
Magnúsdóttir, Stella Rún Steinþórs-
dóttir, Þorvaldur Þorvaldsson og
María Rut Hinriksdóttir.
Neskirkja til Hafn-
arfjarðar
Í Opnu húsi miðvikudaginn 21. mars
verður farið til Hafnarfjarðar. Kom-
ið verður við í Hafnarfjarðarkirkju.
Í safnaðarheimilinu Strandbergi
verður boðið upp á léttar kaffiveit-
ingar. Þá verður skoðuð sýning á
verkum færeyska listmálarans Zak-
aríasar Heinesens í Hafnarborg.
Lagt verður af stað frá Neskirkju kl.
15 og er áætlaður komutími að
kirkjunni um kl. 17. Þátttaka til-
kynnist í síma 511-1560 fyrir hádegi
á miðvikudaginn. Fararstjóri verð-
ur sr. Þórhildur Ólafs.
Kristur og konurnar
Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju
sunnudaginn 18. mars kl. 10 ber yf-
irskriftina „Kristur og konurnar“.
Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, dós-
ent við guðfræðideild HÍ, fjallar um
konurnar í kringum Jesú, þekktar
og óþekktar, gagnkvæm samskipti
þeirra og viðhorf, og hvernig Krist-
ur leit konur öðrum augum en sam-
tími hans. Sr. Birgir Ásgeirsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari í
messunni kl. 11 ásamt sr. Irmu Sjöfn
Óskarsdóttur, verkefnisstjóra á
Biskupsstofu. Organisti er Hörður
Áskelsson kantor og félagar úr Mót-
ettukórnum leiða söng. Í messunni
verður fermd Steinunn Harð-
ardóttir. Barnastarfið er á sama
tíma í umsjá Magneu Sverrisdóttur
djákna. Á undan og við lok messu
leikur Stillwater Brass Band frá
Minnesota nokkur lög. Allir vel-
komnir og heitt á könnunni.
Stór dagur í Garðasókn.
Sunnudagurinn 18. mars er stór
dagur í Garðasókn. Í messu kl. 11 í
Vídalínskirkju verður sr. Bragi
Friðriksson, fyrrverandi sókn-
arprestur og heiðursborgari Garða-
bæjar, heiðraður í tilefni af 80 ára
afmæli hans sem var 15. mars. For-
maður sóknarnefndar og bæj-
arstjóri Garðabæjar munu ávarpa
sr. Braga í upphafi messunnar. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir og Nanna
Guðrún Zöega djákni þjóna að
helgihaldinu ásamt kór Vídal-
ínskirkju undir stjórn Magnúsar
Ragnarssonar organista. Eftir
messu munu Lionsklúbbarnir í
Garðabæ reiða fram veitingar. Að
því loknu verður aðalsafn-
aðarfundur í safnaðarheimilinu. Þar
verður farið yfir reikninga safn-
aðarins og einnig er kosning í sókn-
arnefnd. Síðast en ekki síst er farið
yfir framsækið og gott safn-
aðarstarf í Garðasókn árið 2006.
Allir eru velkomnir til helgihaldsins
og uppskeruhátíðar safnaðarins.
Ráðstefna laugardaginn
17. mars kl. 9.30–15
í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu,
Hátúni 2, 105 Reykjavík. Opin ráð-
stefna um efnið Jesús: Læknirinn –
Frelsarinn – Lausnarinn með Lindu
Bergling. Linda er Íslendingum að
góðu kunn. Hún hefur komið til
landsins nokkrum sinnum en hún og
eiginmaður hennar Gunnar Berg-
ling veita Arken (www.arken.org) í
Svíþjóð forstöðu. Þangað hafa þó
nokkrir Íslendingar farið og stund-
að nám í biblíuskóla til lengri eða
skemmri tíma. Linda lagði grunninn
að skólanum og stýrir honum en
skólinn ber nafnið Jesús læknar og
reisir við. Allir eru velkomnir, engin
skráning og verðið er: frjáls fram-
lög. Linda talar einnig á brauðs-
brotningu sunnudaginn 18. mars kl.
11 og á almennri samkomu kl. 16.30
sama dag. Allir velkomnir. Allar
nánari upplýsingar eru í síma 535-
4700 eða með tölvupósti fila-
delf@gospel.is.
Basar Kvenfélags
Fríkirkjunnar í
Hafnarfirði.
Hinn árlegi basar Kvenfélags Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði verður
haldinn að lokinni guðsþjónustu
sunnudaginn 18. mars en guðsþjón-
ustan hefst kl. 13. Kvenfélag Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði er öflugt
félag og hefur fært kirkjunni sinni
stórar gjafir á liðnum áratugum,
m.a. stutt æskulýðsstarfið, en allur
ágóði af basarnum fer að sjálfs-
sögðu til kirkjustarfsins. Að venju
verður margt skemmtilegt til sölu á
basarnum auk þess sem gaman er
að koma saman og spjalla.
Tákn og táknmál
kirkju og trúar
Þriðjudaginn 20. mars kl. 18 hefst á
vegum Leikmannaskóla þjóðkirkj-
unnar námskeið um táknmál kirkju
og trúar. Kennari á námskeiðinu er
sr. Kristján Valur Ingólfsson, lektor
við HÍ og sóknarprestur á Þingvöll-
um. Á námskeiðinu verður fjallað
um kirkjuhúsið, innviði þess og
form, áttirnar fjórar og merkingu
þeirra. Einnig verður fjallað um
baksvið og táknmál einstakra liða
messunnar og frætt um kirkjuliti,
kirkjuárið, kirkjugripi, listskreyt-
ingar og skrúði prests og táknmál
helgihaldsins. Þriðja námskeiðs-
kvöldið er þriðjudagur í kyrruviku
og þá verður hugað sérstaklega að
innihaldi hennar og táknmáli. Nám-
skeiðið er haldið í Grensáskirkju og
hefst kl. 18 og er kennt í fjögur
skipti, tvo tíma í senn. Hægt er að
skrá sig í síma 535-1500 eða á vef
skólans, http://www.kirkjan.is/
leikmannaskoli.
Samræður unglinga
og foreldra um kynlíf
Að loknum kvöldsöng í Laugarnes-
kirkju á þriðjudagskvöldið 20. mars,
sem hefst kl. 20, verður efnt til mál-
þings í safnaðarheimilinu undir yf-
irskriftinni: Samræður unglinga og
foreldra um kynlíf. Málþingið sjálft
hefst um kl. 20.40. Framsöguerindi
flytja Lilja Óskarsdóttir skólahjúkr-
unarfræðingur og Salóme Ásta Arn-
ardóttir læknir. Fundarstjóri verður
Kristín Axelsdóttir, djákni og hjúkr-
unarforstjóri heilsugæslunnar í
Lágmúla. Þá mun sr. Hildur Eir
Bolladóttir ávarpa málþingið.
Málþingið er einkum ætlað for-
eldrum fermingarbarna og for-
eldrum og forráðamönnum annarra
barna og unglinga. Kaffi og kleinur.
Kvöldsönginn kl. 20.00 leiða þeir
Þorvaldur Halldórsson og Gunnar
Gunnarsson. Að kvöldsöngnum
loknum munu 12 spora hópar kirkj-
unnar einnig koma saman og halda
áfram sínu andlega ferðalagi. Um-
sjón með 12 spora starfi Laugarnes-
kirkju hefur Guðrún K. Þórsdóttir
djákni.
RÚSSNESKI stórmeistarinn Va-
leri Salov, sem tefldi hér á landi í
nokkur skipti, hafði einhverju sinni
orð á því að sjálfsmat skákmanna
væri stundum dálítið kyndugt.
„Hver einasti skákmaður virðist
telja að hann prýði einhver höf-
uðdyggð. Einn er með það alveg á
hreinu að hann sé algerlega frá-
bær í endatöflum. Annar er geysi-
lega sterkur á taugum. Sá þriðji er
gæddur óbilandi þrautseigju. Sá
fjórði er geysilega baráttuglaður.“
John Nunn heldur því fram að
mikilvægasti eiginleiki skákmanns-
ins sé að vera ákveðinn, láta ekki
deigan síga undir neinum kring-
umstæðum.
„Mín höfuðdyggð er að ég er
raunsær,“ sagði Salov.
Um það voru menn sammála um
daginn þegar Ingvar Ásmundsson
féll frá að hans „höfuðdyggð“ í
skákinni hefði verið hversu gaman
hann hafði af því að tefla.
Í grein sem birtist í Morgun-
blaðinu fyrir hálfum mánuði
minntist ég á skák sem Ingvar
tefldi við Zaltsman á World Open-
mótinu í Fíladelfíu 1978. Þessa
skák er ekki að finna í helstu
gagnagrunnum en eftir nokkra eft-
irgrennslan fannst grein sem Jón
L. Árnason skrifaði um mótið í DV
þar sem skákin birtist. Þetta er að
mínu mati besta skák sem Ingvar
tefldi á löngum ferli. Leikfléttan í
lokin var að því leytinu óvenjuleg
að drottning Ingvars gerði út um
taflið með því að endasendast
hornanna á milli.
Í mótslok stóð Ingvar uppi sem
sigurvegari ásamt m.a. Florin
Geheorghiu og Yasser Seirawan.
Eftir sigur í fyrstu umferð tapaði
Ingvar í annarri umferð mótsins
en fékk við það hinn þekkta Mon-
rad-meðvind og vann sex skákir í
röð. Þetta var mikið afrek þegar
litið var til þess að tefldar voru
tvær umferðir á dag með fullum
umhugsunartíma. Í næstsíðustu
umferð settist Ingvar niður á móti
Vitaly Zaltsman:
World Open 1978; 8. umferð:
Ingvar Ásmundsson – Vitaly
Zaltzman
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
(Ingvar var ekki mikið fyrir að
opna með 3. d4 í sikileyjarvörninni.
Þessi leikur var vörumerki hans.)
3. … g6 4. c3 Rf6 5. e5 Rd5 6.
0–0 Bg7 7. d4 cxd4 8. cxd4 0–0 9.
Rc3 Rc7 10. Bf4!
(Jón L. hrópmerkir þennan leik.
Liðskipanin gengur fyrir.)
10. … Rxb5 11. Rxb5 a6 12. Rc3
d6 13. h3 dxe5 14. dxe5 Bf5
(Hér hefði Zaltsman átt að fara í
drottningaruppskipti en í opnu
bandarísku mótunum giltu þá og
síðar ákveðin lögmál. Zaltsman var
að reyna að vinna en besta leiðin
hefði gert stöðuna jafnteflislega.)
15. Db3 Rd4 16. Rxd4 dxd4 17.
Bg3 b5 18. Rd5!
(Þessi leikur gerir svarti erfitt
fyrir. 18. … Bxe5 er svarað með
19. Rxe7+ og 20. Rc6. 18. … e6
veikir f6-reitinn of mikið svo
Zaltsman afræður að gefa e7-peð-
ið.)
18. … Be6 19. Rxe7+ Kh8 20.
Hfd1! Da7 21. Da3 Db7 22. Dd6
Hfe8 23. Bh4! h6 24. Bf6 Kh7 25.
Bxg7 Kxg7 26. Rc6 Hac8 27. Rd4!
(Svartur hefur ekki fengið nein
þau færi sem hann vonaðist eftir
er hann gaf e7-peðið. Þótt tafl-
mennskan á þessum kafla sé dálít-
ið handahófskennd missir Ingvar
aldrei frumkvæðið.)
27. … Kh7 28. Rb3 Hc2 29. Rc5
De7 30. b4!
(Skorðar riddarann á c5.)
Dh4 31. Hd2 Hxd2 32. Ddx2
Hd8 33. Dc3 Bc4 34. He1 Dg5 35.
Re4 Df5 36. Rf6+ Kg7 37. Re4
Hd3 38. Db2 Kf8 39. Rd6 De6 40.
Re4 Dd5
(Gefum Jóni L. Árnasyni orðið:
„Síðustu leikirnir voru leiknir í
miklu tímahraki, en nú skyndilega
hefur Ingvar nógan tíma. Og þá er
ekki að sökum að spyrja: Hann
töfrar fram stórkostlega leikfléttu
sem er vægast sagt ótrúlega fal-
leg.“)
Sjá stöðumynd 1
41. e6 Dxe6 42. Dh8+ Ke7
Sjá stöðumynd 2
43. Da1!!
Snilldarleikur. Drottningin
valdar hrókinn á e1 og hótar 44.
Rc5. Við því er engin vörn. Svartur
gafst upp.
Besta skák Ingvars Ásmundssonar
Skák
Helgi Ólafsson
Ingvar Ásmundsson Stöðumynd 1. Stöðumynd 2.