Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 53
SPURNINGALEIKURINN Orð
skulu standa er í þetta sinn sendur
út frá Akureyri. Gestir þáttarins
eru Björn
Þorláksson
fréttamaður
og Hólmkell
Hreinsson
amtsbóka-
vörður. Þeir
ásamt liðs-
stjórunum
Hlín Agnars-
dóttur og
Davíð Þór
Jónssyni fást
við þennan
fyrripart, ortan um svifrykið, nýj-
ustu dánarorsök Íslendinga:
Ryk og drulla dreifa sér,
við drepumst úr þessum hroða.
Í síðustu viku var fyrriparturinn
þessi:
Enn er verðlag ógnarhátt,
enn er þjóðin rúin.
Í þættinum botnaði Hlín Agn-
arsdóttir:
Okkur skortir allan mátt,
ávallt þreytt og lúin.
Salóme Ásta Arnardóttir læknir:
Er þá kaupið alltof lágt,
öll mín þreyja búin.
Flosi Eiríksson:
Aurinn kaupir ósköp fátt,
mín eina von er trúin.
Davíð Þór Jónsson kaus að
yrkja áfram um svipuð náttúrulög-
mál:
Enn er nöpur norðanátt,
nú er vísan búin.
Úr hópi hlustenda sendi Jónas
Frímannsson m.a. þennan:
Þyrfti nýja þjóðarsátt,
þolinmæðin búin.
Finnur Sturluson m.a.:
Auðlindina þú eiga mátt
enda fiskurinn búinn.
Sara Pétursdóttir:
Enn er nöldrað, aldrei sátt,
en hvað ég er lúin.
Georg Ólafur Tryggvason:
Þó lifum við í sælli sátt
saman ég og frúin.
Erlendur Hansen á Sauðárkróki
virðist vera kominn í kosninga-
skap:
Lyfja-Palli semur sátt,
Siv er þreytt og lúin.
Landa sína leikur grátt
Lómatjarnarfrúin.
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Orð skulu standa
Karl Th. Birgisson
Drepumst
öll úr drullu
„ÞAÐ verður eitthvert patrý í nótt,
held ég,“ sagði Birkir Blær Ingólfs-
son kampakátur í gærkvöldi eftir
að MH-ingar höfðu sigrað Borg-
arholtsskóla í MORFÍS. Birkir Blær
var valinn ræðumaður kvöldsins og
sagðist að vonum ánægður með tit-
ilinn en þó sérstaklega sigurinn.
„Þetta er náttúrlega bara aa-
aalveg frábært,“ kallaði hann og
reyndi að yfirgnæfa einkennissöng
nemendafélags MH, „Gleði, gleði,
gleði“, sem hljómaði í bakgrunn-
inum. Aðspurður hvað skóp sig-
urinn stóð ekki á svari: „Þrotlausar
æfingar,“ og þar með var það af-
greitt enda lá greinilega á að fagna
með félögunum. Hann gaf sér þó
tíma til að hrósa stuðningsmönnum
skólans: „Við erum svo sannarlega
ánægðir með þá, þeir voru frábær-
ir.“
Brynjar Guðnason, formaður
stjórnar MORFÍS, sagðist ánægður
með hvernig til tókst í gærkvöldi.
„Það var gríðarleg stemning og
keppnin frábær,“ sagði hann og
giskaði á að um 1.000 manns hefðu
verið í salnum.
111 stig skildu MH-ingana frá
ræðuliði Borgarholtsskóla að leik
loknum.
Morgunblaðið/Sverrir
Niðurlútir Borgó mátti sætta sig við annað sætið en dómnefndin hrósaði báðum liðum fyrir vasklega framgöngu.
Gleði, gleði, gleði
í Háskólabíói