Morgunblaðið - 17.03.2007, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Súrt regn varð ástríðunni að bana!?
Sigurlag Söngvakeppni Sjónvarpsins er komið í nýjan búning fyrir úrslitakeppnina í Finnlandi í vor og ekki eru allir á eitt sáttir
með nýja myndbandið og hvað þá litabreytinguna á fögrum lokkum Eiríks Haukssonar. Morgunblaðið leitaði álits þriggja spek-
inga á enska textanum og myndbandinu og spurði hvort þetta tvennt gerði lagið sigurstranglegra.
Hvað finnst
þér um enska
textann?
Enski textinn
er í eins konar
klisjuklippi-
myndastíl, ótrú-
lega margar smá-
myndir með
lélegu lími. Brot-
in flagna upp hér
og þar. Það er
kannski barasta við hæfi, eins og
inntak textans býður upp á, brotnar
tilfinningar, ekkert hald, ekkert lím
nema rokkið, þetta jötungrip sem
öllu bjargar.
Hvernig finnst þér myndbandið,
hvað má lesa í það og er í því
alþjóðlegt myndmál?
Ég sé ekki betur en að þetta sé
mjög „lókal“ útgáfa af alþjóðlegu
myndmáli. Myndbandið er í aflit-
uðum „road-movie“-stíl. Svolítið
kaldhæðnislegt að sjá „Big Red“ á
silfruðum amerískum drekanum
þeysandi með riddarann grámyglu-
legan í litlausum vorleysingum á
meðan allir eru ástfangnir nema
hann og sviplausir meðreiðarsvein-
arnir.
Telur þú þetta tvennt, þ.e. enska
textann og myndbandið, gera lagið
sigurstranglegra?
Lagið er í stíl vangalaga léttþung-
arokks frá síðari hluta áttunda ára-
tugarins og byrjun þess níunda. Það
er nú enginn sérstakur sannfæring-
arkraftur á bak við textagerðina eða
myndbandið. Þetta eru klisjur.
Guðmundur Oddur
Magnússon
Big Red of sak-
laus til að vinna
Hvað finnst þér um enska textann?
Nafnið, textinn, lagið, umgjörðin og samhengið er
aldrei það sama heldur breytt í hvert sinn: Sjónvarps-
salur, íslenska, enska, myndband, Evróvisjón – þannig
getur verið vandkvæðum bundið að gefa framlaginu
endanlega merkingu fyrr en í maí. Textarnir fjalla báð-
ir um leit, von um frelsi og von um rokk.
Myndmál?
Áfram er fjallað um ástina, reyndar um hina hliðina,
ástarsorg. Hér felst svarið ekki í frelsinu eins og hjá
Kristjáni heldur rokk og ról. Enski textinn og íslenski
textinn eiga það sammerkt að vera með hefðbundnu
sniði. Augljóst er þó að enski textinn fellur ekki vel að
íslensku landslagi og menningu.
Sumarvín, „Valentine“ tígur í búri
og frumskógur eru ekki mjög íslensk
þótt vissulega sé hér nóg af fólki í
ástarsorg eins og í öðrum löndum. “
Myndbandið?
Fjórir karlar yfirgefa borgina í
fornbifreið því ástin er horfin á
braut. Þeir keyra undir háspennu-
möstrum eftir malbikuðum vegum
eitthvert út á land og nema staðar
við hrunið hús undir skuggalegum
himni. Litirnir eru horfnir, ástríðan og gleðin og ekk-
ert annað að gera en að draga sig í hlé utan almanna-
leiðar og leita á náðir rokksins. Særðir finna þeir sér
nýjan guð; „rock ‘n’ roll“.
Gunnar
Hersveinn
Frelsi, rokk og landslag
Hvað finnst
þér um enska
textann?
Hann er fullur
af myndlíkingum
af ýmsu tagi
(skógar, leiksvið,
skrugguveður) en
það sem stendur
eftir er trúin á
lækningamátt
rokks og róls.
Gaman er að sjá að jafnvel í söngva-
keppninni eru menn umhverf-
isvænir, ég sé ekki betur en að hér
sé varað við súru regni og full
ástæða til á okkar mengunartímum.
En það besta við textann er „a tiger
trapped inside a cage“ sem fellur vel
að villidýrskrafti Eiríks.
Myndmál myndbandsins?
„Það væru nú ýkjur að segja að
myndbandið hafi hrifið mig með sér.
Sjálf skil ég ekki alveg hvað þessir
menn eru að gera með Eiríki í bíln-
um. En það eru flott skot, landslagið
dapurlegt í grámanum en samt fag-
urt og senan þar sem Eiríkur teygir
sig til himins í miklu öskri er öflug.
Telur þú þetta tvennt, þ.e. enska
textann og myndbandið, gera lagið
sigurstranglegra?
„Nei, hefur þetta tvennt nokkurn
tímann ráðið úrslitum? Hins vegar
segir máltækið að allt er þegar
þrennt er og þar sem þetta er í
þriðja sinn sem Eiríkur fer í víking
að sækja gull í greipar Evrópu tel ég
að við munum hafa þetta.
Katrín
Jakobsdóttir
Eiríkur sækir
gull í greipar
Evrópu
Valentine Lost Mikið veltur á frammistöðu Eiríks Haukssonar í Finnlandi en fyrst þarf myndbandið að gera sitt.
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Epic Movie kl. 2, 4, 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Epic Movie LÚXUS kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Norbit kl. 1, 3.20, 5.40, 8 og 10.20
The Number 23 kl. 8 og 10.15 B.i. 16 ára
Ghost Rider kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 1 og 2 STUTTMYND
Night at the Museum kl. 1, 3:20 og 5.40
Hefur þú einhvern tímann gert
mjög stór mistök?
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI
Epic Movie kl. 4 - 450 kr. , 6, 8 og 10 B.i. 7 ára
Norbit kl. 4 - 450 kr. og 8
Smokin´ Aces kl. 10 B.i. 16 ára
BrettaBíó kl. 6
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
HÚN ER STÓR....VIÐ MÆLDUM
UPPLIFÐU MYNDINA SEM FÉKK ENGIN ÓSKARSVERÐLAUN!
FRÁBÆR GAMANMYND ÞAR SEM GERT ER GRÍN
AF HELSTU STÓRMYNDUM SÍÐASTA ÁRS
FÓR BEINT Á
TOPPINN Í USA
300X
BETRI
EN AÐRAR
MYNDIR