Morgunblaðið - 04.05.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 120. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SÁLARHEILL
ÚT AÐ GANGA Í RAUÐABÍTIÐ OG OPNAR
SÝNINGU Á MORGUN >> 26
BIRGIR LEIFUR BYRJ-
AÐI VEL Í MÍLANÓ
SJÖ FUGLAR
ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
EINSTÆÐ móðir er ósátt við að vera
sögð ábyrg fyrir tjóni sem sex ára sonur
hennar, sem er með þroskafrávik, olli á
bílum meðan hann var í gæslu á leik-
skóla. Formaður Félags leikskólakenn-
ara segir að kennarar og skólastjórar
beri ábyrgð á börnunum meðan þau séu
í gæslu og verkefnisstjóri trygginga hjá
Reykjavíkurborg segir að almenna regl-
an sé sú, að foreldrar beri ábyrgð á
börnum sínum.
Leikskólastjóri viðkomandi leikskóla
segir að mannahald þar sé í eðlilegum
farvegi og vegna aðstæðna séu við skól-
ann sérstakir stuðningsstarfsmenn. Hins
vegar gerist hlutirnir fljótt og atvik eins
og um er rætt geti gerst hvar sem er.
Drengirnir hafi verið með skóflur og
kastað möl á bíla utan girðingar. Varð-
andi forvarnir segir leikskólastjórinn að
segja megi að gúmmímottur ættu að
vera undir rólum í staðinn fyrir grús, því
þá væri engin möl nálægt girðingunni,
en í fljótu bragði sé ekki gott að segja
hvort bílastæði væru betur sett annars
staðar.
Margar hliðar
Berglind Söebech, verkefnisstjóri
trygginga hjá Reykjavíkurborg, segir að
almenna reglan sé sú, að foreldrar beri
ábyrgð á börnum sínum, en verði tjónið
talið vera á ábyrgð borgarinnar, þá hafi
borgin tryggingu sem taki til tjóna sem
hún teljist bera ábyrgð á skv. skaðabóta-
lögum. Leikskólarnir beri ekki hlutlæga
ábyrgð á börnunum og skaðabótalögin
taki mið af því sem teljist eðlilegt miðað
við aðstæður. Í umræddu tilviki hafi ekki
verið sýnt fram á sök starfsmanna. Leik-
skólarnir geti ekki haft auga á öllum
börnunum allan tímann sem þau séu í
gæslu, því þá þyrfti að vera með einn
starfsmann á hvert barn, og þess vegna
sé það óraunhæf krafa. Þegar gerðar séu
skaðabótakröfur á hendur borginni, sé
þeim vísað til tryggingarfélags sem meti
bótaskyldu á grundvelli umsagnar
beggja aðila, þ.e. borgarinnar og tjónþol-
ans. Komið hafi fyrir að börn á leik-
skólum hafi valdið tjóni á bifreiðum utan
girðingar og í flestum tilfellum hafi tjón-
þolar, eigendur bifreiðanna, ekki fengið
tjónið bætt hjá Reykjavíkurborg.
Berglind áréttar að í skaðabótamálum
séu margar hliðar og oft sé um mjög
flókin mál að ræða. Viðmiðunarreglur í
tryggingamálum Reykjavíkurborgar miði
við að allir sitji við sama borð og njóti
sama réttar, óháð aðstæðum.
„Því má bæta við að tjónþolar, til
dæmis eigendur bifreiða, geta beðið for-
eldra barns að bæta tjón sem barnið hef-
ur unnið, en flestar fjölskyldutryggingar
taka til tjóna sem börn valda þriðja að-
ila. Hvort foreldrar eru skyldugir til að
bæta tjón sem börn þeirra valda get ég
ekki svarað.“
Skiptar
skoðanir
eru um
ábyrgðina
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
NÝ könnun Capacent Gallup sýnir
litlar breytingar á fylgi flokkanna á
landsvísu miðað við síðustu könnun
28. apríl að því undanskildu að
Samfylkingin er á ný orðin talsvert
stærri en Vinstrihreyfingin - grænt
framboð. Stjórnarflokkarnir halda
meirihluta á þingi ef könnunin
gengur eftir.
Eins og í fyrri könnunum kemur
fram að konur kjósa miklu fremur
vinstriflokkana en karlar. Athygl-
isvert er að nú er hlutur kvenna
meðal kjósenda Samfylkingarinnar
hlutfallslega hærri en hlutur þeirra
í kjósendahópi VG.
Samfylkingin bætir mjög stöðu
sína í Kraganum og Reykjavík
norður en stendur nánast í stað í
Reykjavík suður, kjördæmi for-
mannsins, Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur. Sjálfstæðisflokkurinn
er nú með nær helming atkvæða í
kjördæmi flokksformannsins,
Geirs H. Haarde.
Framsóknarmenn eru með sama
fylgi og síðast á landsvísu, þeir
standa í stað í Reykjavíkurkjör-
dæmunum miðað við síðustu könn-
un og tapa nokkru fylgi í Kragan-
um. Stuðningur á landsvísu við VG
er enn, þrátt fyrir bakslagið núna,
nær tvöfaldur á við það sem hann
var í kosningunum 2003. En flokk-
urinn virðist eiga erfitt með að
halda sínum hlut á síðustu metrun-
um og lætur einkum undan síga á
þéttbýlissvæðum á suðvesturhorn-
inu en einnig í Suðurkjördæmi.| 4
Samfylkingin aftur fram úr VG
Eftir Egil Ólafsson
og Andra Karl
ÓSKÝRAR refsiheimildir og galli á
ákæru ollu því að 10 ákæruliðum af
19 í Baugsmálinu var vísað frá þeg-
ar dómur var kveðinn upp í málinu í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, var dæmdur í fangelsi í 3
mánuði fyrir bókhaldsbrot. Tryggvi
Jónsson, fyrrverandi forstjóri, var
dæmdur í 9 mánaða fangelsi. Dómarnir eru skilorðs-
bundnir. Ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger var
vísað frá.
Jón Ásgeir var sakfelldur fyrir að hafa látið gefa út
tilefnislausan reikning frá Nordica, fyrirtæki Jóns Ger-
alds. Hann var hins vegar sýknaður í sjö liðum ákær-
unnar.
Tryggvi var sýknaður í fjórum ákæruliðum og sak-
felldur í fjórum. Þeir vörðuðu reikninga frá Nordica og
SMS í Færeyjum og bókhaldsbrot við sölu hlutabréfa.
Dómurinn vísaði öllum ákærum frá sem vörðuðu
meintar ólögmætar lánveitingar. Beitt var sömu rökum
og beitt var í máli gegn forstjórum þriggja olíufélaga,
þ.e. að refsiheimildir laga væru óskýrar.
Dómurinn sýknaði Jón Ásgeir og
Tryggva af ákærum um fjárdrátt
sem tengjast skemmtibátnum Thee
Viking. Tryggvi var dæmdur vegna
útgáfu tilhæfulauss reiknings sem
SMS í Færeyjum gaf út. Ósannað
var hins vegar talið að Jón Ásgeir
hafi haft vitneskju um málið eða að
þetta hafi verið gert með hans vilja.
Langstærstur hluti málsvarnar-
launa féll á ríkissjóð sem þarf að
greiða samtals 51,6 milljón í máls-
varnarlaun og sakarkostnað.
Jón Ásgeir og Tryggvi hafa báðir ákveðið að áfrýja
þeim ákæruliðum sem þeir voru sakfelldir fyrir til
Hæstaréttar. Sigurður Tómas Magnússon, settur sak-
sóknari, hefur hins vegar hvorki gert upp hug sinn
varðandi áfrýjun né hvort frávísun ákæruliða verði
kærð.
„Þetta verður skoðað og tekin ákvörðun um það inn-
an þess frests sem um það gildir, þ.e. þrír sólarhringar
hvað varðar frávísunarliðina,“ segir Sigurður og þykir
margt benda til að jafnframt verði einhverjum ákæru-
liðum áfrýjað til Hæstaréttar.
Morgunblaðið/RAX
Dómurinn fallinn Jón Finnbjörnsson, Arngrímur Ísberg dómsformaður og Garðar Valdimarsson kváðu upp dóm í Baugsmálinu í Héraðsdómi.
Sakfelldir í héraðsdómi
Jón Ásgeir dæmdur í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi og Tryggvi í 9 mánuði
skilorðsbundið 10 liðum ákærunnar vísað frá dómi Áfrýjað til Hæstaréttar
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Tryggvi
Jónsson
Baugsmálið | Miðopna og 14-15
„ÞAÐ ER mjög
alvarlegt að vera
ákærður en það
segir sig sjálft að
það er ekki hægt
að yfirheyra
mann sem vitni
og síðan ákæra
sama mann fyrir
það sem hann
sagði. Það er
brot á mannrétt-
indum,“ segir Jón Gerald Sullen-
berger en héraðsdómur Reykjavík-
ur vísaði ákæru á hendur honum
frá dómi.
Jón Gerald segist afar ánægður
með niðurstöðu héraðsdóms í tilviki
sínu en segir hana svo sem ekki
hafa komið sér á óvart.
Frávísun kom
ekki á óvart
Jón Gerald
Sullenberger