Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
VÍSINDAMENN Íslenskrar erfða-
greiningar hafa fundið erfðabreyti-
leika sem tengist auknum líkum á
hjartaáfalli og er um að ræða
erfðaþátt sem hefur áhrif á það
hvort fólk fái hjartaáfall snemma
eða seint á lífsleiðinni. Uppgötv-
unin er talin afar áhrifamikil og
mun nýtast í greiningu og meðferð.
Niðurstöðurnar voru birtar í gær á
vef vísindatímaritsins Science auk
þess sem þær verða í næsta tölu-
blaði tímaritsins.
„Við erum farin að finna breyti-
leika sem hafa áhrif á þá þætti sem
eru samofnir því hver við erum og
örlögum okkar,“ segir Kári Stef-
ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar. „Þetta þýðir að við get-
um fundið fólk sem er í mestri
áhættu og notað þær aðferðir sem
til eru í dag til að koma því til leið-
ar að það fólk sem annars fengi
hjartaáfall ungt að aldri, fái það
ekki.“
Af meira en sautján þúsund þátt-
takendum í rannsókninni, frá Ís-
landi og Bandaríkjunum, höfðu yfir
20% tvö eintök af afbrigðinu – eitt
frá hvoru foreldri – sem samsvarar
meira en 60% aukningu á hættu á
hjartaáfalli ef miðað er við þá sem
ekki eru með afbrigðið. Um helm-
ingur fólks af evrópskum uppruna
eru með eitt afbrigði.
Vísindamenn ÍE hafa einnig sýnt
fram á að erfðabreytileikinn hefur
áhrif á hvort menn fái hjartaáfall
ungir eða gamlir. Áhættan er tvö-
falt meiri hjá karlmönnum undir
fimmtugu og konum undir sextugu
sem hafa tvö eintök af afbrigðinu
en hjá þeim sem er ekki með breyti-
leikann. Kári segir uppgötvunina
sérstaklega áhrifamikla þegar
kemur að hjartaáföllum hjá þeim
sem yngri eru. „Það er það sem
skiptir svo miklu máli því við sætt-
um okkur ekki við þau hjartaáföll.“
Kári segir allt innsæi inn í mynd-
un sjúkdómsins geta fræðilega
hjálpað til við að finna aðferðir til
að lækna og fyrirbyggja. Hjá ÍE er
fyrsta skref að setja saman grein-
ingartæki og verða niðurstöðurnar
svo væntanlega nýttar við þróun
þeirra lyfja sem fyrirtækið er kom-
ið af stað með. „Vegna þess að
þetta mun gera okkur kleift að
leita uppi fólk sem er í mikilli
áhættu þegar við erum að setja
saman okkar klínísku rannsóknir
og það er hjá því fólki sem auðveld-
ast er að sjá gagnsemi af lyfjum,“
segir Kári.
Töluvert hefur verið af uppgötv-
unum að undanförnu og segir Kári
að margir spennandi hlutir séu
jafnframt í vinnslu. Hann vonast
því til að geta greint heiminum frá
fleiri uppgötvunum, jafnvel á
næstu vikum og mánuðum.
Áhrifamikil og áhugaverð uppgötvun
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Uppgötvun Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
Í HNOTSKURN
»Nýleg uppgötvun vísinda-manna ÍE getur haft mikil
áhrif í baráttunni gegn hjarta-
áföllum.
»Allt innsæi í myndun sjúk-dómsins getur t.a.m. hjálp-
að við að finna aðferðir til að
fyrirbyggja hjartaáföll.
»Spennandi tímar eru fram-undan hjá ÍE og jafnvel
hugsanlegt að fleiri uppgötv-
anir verði kynntar á næstu
vikum og mánuðum.
Íslensk erfðagreining finnur erfðabreytileika sem tengist auknum líkum á hjartaáfalli
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SAMFYLKINGIN sígur á ný
fram úr Vinstri hreyfingunni -
grænu framboði, VG, samkvæmt
nýjustu könnun Capacent Gallup
fyrir Morgunblaðið og Ríkisút-
varpið. Sjálfstæðisflokkurinn
bætir heldur við sig fylgi en staða
Framsóknarflokksins er óbreytt
ef miðað er við síðustu könnun, 28.
apríl. Stjórnarflokkarnir halda
meirihluta sínum á þingi ef marka
má könnunina, fá samanlagt 33
sæti af 63. Þeir hafa nú 34 sæti.
Könnunin var gerð dagana 25.
apríl til 1. maí og var svarhlutfall
62,3%. Vikmörkin eru frá plús eða
mínus 1,4% hjá Íslandshreyfing-
unni upp í plús eða mínus 3,9% hjá
Sjálfstæðisflokknum. Lagðar
voru þrjár spurningar fyrir þátt-
takendur. Fyrst var spurt: „Ef
kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða
flokk eða lista myndir þú kjósa?“
Þeir sem voru óákveðnir voru
spurðir: „En hvaða flokkur eða
listi yrði líklegast fyrir valinu?“
Þeir sem enn voru óákveðnir voru
spurðir: „Hvort er líklegra að þú
kysir Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern hinna flokkanna?“
Samanlagt eru vinstriflokkarn-
ir tveir, Samfylkingin og Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð, með
liðlega 40% stuðning, ívið meiri en
Sjálfstæðisflokkurinn. Hinum síð-
astnefnda er spáð 27 þingsætum,
Framsóknarflokknum sex sætum,
eins og í síðustu könnun, Samfylk-
ingunni 15 og VG 12 en lestina
reka Frjálslyndir með þrjú sæti.
Dregur í sundur með keppi-
nautum á vinstrivæng
Sem fyrr segir er helsta breyt-
ingin frá könnuninni 28. apríl að á
ný er umtalsverður munur á fylgi
Samfylkingarinnar og VG. Fyrr-
nefndi flokkurinn er nú með
23,5% á landsvísu en VG 17,6%.
Síðast voru vinstriflokkarnir tveir
hnífjafnir, báðir með 21,2%. Á
hinn bóginn var Samfylkingin
mun öflugri en VG í könnuninni
19. apríl, var þá með 24,1% en
Vinstri græn 19,1% og hefur nú
endurheimt þá yfirburði gagnvart
helsta keppinautnum um vinstri-
kjósendurna. Framsóknarflokk-
urinn er með slétt 10%, sama hlut-
fall og í síðustu könnun.
Margir töldu víst að Samfylk-
ingin nyti þess að hafa haldið
landsfundi sína meðan könnunin
19. apríl var gerð og virtist sú
kenning á rökum reist þegar hún
lækkaði talsvert 28. apríl. Nú er
ekki slíkum skýringum til að
dreifa og má gera ráð fyrir að liðs-
menn VG fari að ugga nokkuð um
sinn hag þegar fylgið virðist vera
á niðurleið svo skömmu fyrir
kosningarnar 12. maí.
Samfylkingin upp í Reykja-
vík norður
Frjálslyndir fá 5,5% atkvæða,
svipað og í síðustu könnun en mun
minna fylgi en í kosningunum
2003. Öflugastir eru þeir í kjör-
dæmi formannsins, Guðjóns Arn-
ars Kristjánssonar, þar fá þeir
10,4%. Íslandshreyfingin nær
ekki manni á þing frekar en í síð-
ustu könnun en fylgið er meira
núna, 3,2% en mældist 2,3% í lok
apríl. Framsóknarmenn bæta
verulega stöðu sína í Suðurkjör-
dæmi, fá nú 18% en voru með
10,5% í lok apríl. Sjálfstæðismenn
eru einnig á uppleið í kjördæminu,
fá nú 42,4% en voru með 35,3%.
Mest er þó aukningin hjá hinum
síðarnefndu í Reykjavík suður,
kjördæmi flokksformannsins
Geirs H. Haarde, en þar er flokk-
urinn nú með 48,5% stuðning, var
síðast með 40,2%.
Samfylkingin bætir mestu við
sig í Reykjavík norður, kjördæmi
Össurar Skarphéðinssonar, for-
manns þingflokksins, fer úr 17,2%
í lok apríl í 27,1% núna. Flokk-
urinn réttir einnig mjög hlut sinn í
Suðvesturkjördæmi, Kraganum
svonefnda. Könnunin er hins veg-
ar áfall fyrir flokkinn í Suðurkjör-
dæmi, þar fer fylgið úr 33,9% í
19,9%, svo mikla sveiflu á ekki
lengri tíma má líklega kalla hrun.
Vinstri-grænum fatast einnig
flugið í Suðurkjördæmi, fara úr
15,7% í 9,2%, þeir láta einnig und-
an síga alls staðar á suðvestur-
horni landsins en styrkjast tals-
vert í Norðvesturkjördæmi þar
sem þeir fara úr 15,6% í 20,2%.
Vinstrimenn og sjálf-
stæðismenn álíka margir
Stjórnarflokkarnir eflast í Suðurkjördæmi en VG tapar á suðvesturhorninu
!"
#
$%
#% &
'
&
(
&
!"
!"#$ %
&"#$ %
&'#$ %
!#$ %
!
"
#
!
$
% #
'
%
))
)
) )
)
) )
)
))
Í HNOTSKURN
»Staða Framsókn-arflokksins er nær
óbreytt frá síðustu könnun í
Reykjavíkurkjördæmunum.
54,1% þeirra sem kusu
Framsóknarflokkinn í síð-
ustu kosningum ætla að
kjósa flokkinn á ný.
»Samfylkingin styrkirverulega stöðu sína sem
næst-stærsti flokkurinn á
höfuðborgarsvæðinu en tap-
ar í landsbyggðakjördæmum
ef undanskilið er Norðaust-
urkjördæmi. Þar bætir
flokkurinn miklu við sig.
»Konur eru eins og í fyrrikönnunum mun hærra
hlutfall af kjósendum
Vinstrigrænna en karlar. En
kynjamunurinn er samt enn
meiri hjá Samfylkingunni,
16% karla styðja nú flokkinn
en 31,1% kvenna.
MISSKIPTING hefur aukist, einkaneyslan
vaxið umfram kaupmátt og skuldir heimilanna
náð hættulegum hæðum. Hagstjórn liðinna ára
hefur brugðist og stíga þarf
varlega til jarðar ef ekki á
illa að fara. Þetta er rauði
þráðurinn í nýrri vorskýrslu
hagdeildar Alþýðusam-
bands Íslands, ASÍ, sem
kynnt var í gær. „Við lok
stóriðjuframkvæmdanna er
þó ekki gert ráð fyrir harka-
legri lendingu í hagkerfinu,
spáð er ágætis hagvexti í ár
og á næsta ári,“ segir Ólafur
Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ, sem segir þó áhyggjuefni að „ekkert
jafnvægi sé í kortunum“, stýrivextir „verði mjög
háir, verðbólga óviðunandi mikil og viðskipta-
halli ekki viðráðanlegur“.
Ólafur Darri gerir ráð fyrir að fjárfestingar
ríkissjóðs muni aukast milli ára en þó sé ekki
innstæða fyrir öllum kosningaloforðum stjórn-
málaflokkanna fyrir alþingiskosningarnar 12.
maí og að ljóst sé að næsta stjórn muni fram-
kvæma minna en lofað hafi verið.
Helstu forsendur spárinnar eru þær að ráðist
verði í byggingu álvers í Helguvík á seinni hluta
þessa árs, að vextirnir verði háir út árið en fari
lækkandi á næsta ári, að halli verði á ríkissjóði
fjárlagaárið 2008 og að ríkisfjármálin og pen-
ingamálastefnan verði aðhaldssöm á tímabilinu.
Jafnframt er reiknað með veikingu krónunnar á
næsta ári og viðurkenndi Ólafur Darri aðspurð-
ur að hagkerfið kynni að verða viðkvæmt fyrir
hugsanlegri sölu erlendra fjárfesta á krónubréf-
um, sem gæti haft slæm áhrif á hagkerfið.
Spá aukningu í einkaneyslu
Hagdeild ASÍ spáir 2,5% hagvexti 2007 og
3,3% 2008. Bráðabirgðaspá fyrir 2006 gerði ráð
fyrir 2,6% hagvexti en hann var til samanburðar
7,2% 2005. Ólafur Darri segir viðskiptahallann
hættulega mikinn, aðeins Danir og Hollending-
ar hafi tærnar þar sem við höfum hælana í
skuldasöfnun heimilanna. Á móti komi að þjóðin
sé ung, fólk hér safni skuldum snemma á lífs-
leiðinni og greiði þær síðar niður, auk þess sem
hlutfall fólks í eigin húsnæði sé hátt. Engu að
síður sé skuldasöfnunin „hættulega mikil“, ís-
lensk heimili skuldi 80% af eignum sínum og
40% sé tekið tillit til eigna lífeyrissjóðanna.
Hagfræðingar ASÍ gerðu meintan ójöfnuð
einnig að umtalsefni og sagði Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, hagfræðingur hjá samtökunum, að
breytingar á Gini-stuðlinum, mælikvarða á
skiptingu tekna, sýndu að ójöfnuður hefði auk-
ist. Inni í þeim tölum er ekki tekið tillit til sölu-
hagnaðar af höfuðstól og segir Sigríður ákvarð-
anir stjórnvalda hafa „ýkt“ ójöfnuðinn,
barnabætur hefðu lækkað hlutfallslega sem og
persónuafsláttur, á sama tíma og skattbyrði á
þá tekjuhæstu hefði verið lækkuð umfram aðra.
Ekki inn-
stæða fyrir
loforðum
ASÍ gagnrýnir
hagstjórn og ójöfnuð
Ólafur Darri
Andrason