Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 19
ERLENT
Sharm El Sheikh. AFP. | Condoleezza
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sótti í gær fund í Egyptalandi
um málefni Íraks en það þótti sæta
tíðindum að Rice ræddi þar við er-
indreka Sýrlands, Walid Muallem,
og jafnframt að hún skyldi ræða við
Manouchehr Mottaki, utanrík-
isráðherra Írans. Rice sagði áður
en hún lagði upp í ferð sína til
Egyptalands að leiðtogar ná-
grannaríkja Íraks yrðu að stuðla að
friði í Írak, stöðugleiki í þeirra eig-
in löndum ylti á því.
„Ég tel að þetta hafi verið mál-
efnalegt,“ sagði Rice eftir hálftíma
fund sinn með Muallem og bætti við
að hvorugt hefði reynt að sýna
gagnaðilanum yfirlæti. Muallem
sagði viðræðurnar hafa verið
„hreinskilnar og gagnlegar“.
Nouri al-Maliki, forsætisráð-
herra Íraks, fór á
fundinum fram á
að þjóðir heims
afskrifuðu allar
skuldir Íraka.
Hann sagði að
írösk stjórnvöld
þyrftu á öllu sínu
fé að halda til að
hrinda í fram-
kvæmd ýmsum
bráðnauðsynlegum endurreisn-
arverkefnum.
Fulltrúar meira en 50 ríkja komu
saman á fundinum og ræddu leiðir
til að forða Írak frá algeru öng-
þveiti. Síðar í gær sagði Ban Ki-
moon, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, að loforð sem gefin
voru á fundinum fælu í sér nið-
urfellingu skulda upp á 30 milljarða
dollara.
Rice átti fundi með fulltrúum
Sýrlands og Írans
Nouri al-Maliki
NICOLAS Sar-
kozy, frambjóð-
andi hægri-
manna í
forsetakosning-
unum í Frakk-
landi, þótti
standa sig betur í
sjónvarpskapp-
ræðum við sósí-
alistann Sego-
lene Royal í fyrrakvöld, þ.e. ef
eitthvað er að marka netkönnun
sem birt var í gær. 53% aðspurðra
þótti Sarkozy meira sannfærandi,
en 31% þótti Royal standa sig betur.
Um 20 milljónir manna fylgdust
með kappræðunum, eða um helm-
ingur kosningabærra manna.
Fréttaskýrendur töldu þó ekki að
öðrum frambjóðendanna hefði tek-
ist að koma afgerandi höggi á hinn.
Sarkozy sagðist í gær hafa verið
undrandi á því hve Royal hefði ver-
ið árásargjörn í kappræðunum en
Royal svaraði því til að það væri
aldrei hægt að vera of sókndjarfur
þegar menn væru að verja sannfær-
ingu sína. Kosið er á sunnudag.
Mikil
spenna í
Frakklandi
Nicolas Sarkozy
HELSTU öfgasamtök mótmælenda
á Norður-Írlandi, Ulster Volunteer
Force (UVF), hyggjast snúa baki
við ofbeldi og taka upp viðræður
um afvopnun að nýju. Samtökin
segjast ætla að halda vopnum sín-
um en að þau verði geymd þar sem
enginn kemst í þau.
UVF hættir störfum
BRETAR hafa fryst greiðslur til Sri
Lanka vegna þróunarsamvinnu
vegna átaka sem farið hafa vaxandi
milli stjórnarhersins og Tamíl-
tígranna. Sri Lanka átti að fá 390
millj. ísl. króna til að landið gæti
greitt skuldir við Alþjóðabankann.
Frysta framlög
SAUTJÁN ára stúlka kom í gær
fyrir rétt í Dublin á Írlandi í því
skyni að fá úrskurð um að hún
mætti ferðast til Bretlands til að
undirgangast fóstureyðingu. Stúlk-
unni hefur verið tjáð af læknum að
barn hennar muni ekki lifa nema
nokkra daga. Heilbrigðisyfirvöld
hafa hins vegar meinað henni að
fara til Bretlands í fóstureyðingu,
en hún er undir lögaldri. Fóstur-
eyðingar eru ólöglegar á Írlandi en
fjöldi írskra kvenna fer ár hvert til
Bretlands til að eyða fóstri.
Vill eyða fóstri
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARÁTTA stjórnarandstöðunnar í
Ísrael fyrir afsögn Ehuds Olmerts
forsætisráðherra færðist út á göt-
urnar í gærkvöldi þegar tugir þús-
unda manna söfnuðust saman í Tel
Aviv til að krefjast þess að hann léti
af embætti.
Olmert tókst hins vegar að koma í
veg fyrir uppreisn í flokki sínum,
Kadima – um sinn að minnsta kosti.
Áður hafði Tzipi Livni, utanríkis-
ráðherra og flokkssystir Olmerts,
hvatt hann til að láta af embætti
vegna skýrslu þar sem forsætisráð-
herrann og Amir Peretz varnar-
málaráðherra eru gagnrýndir fyrir
mistök í stríðinu í Líbanon í fyrra.
Formaður þingflokks Kadima, Avig-
dor Yitzhaki, sagði einnig af sér til að
mótmæla því að Olmert hefur ekki
léð máls á afsögn.
Aðeins tveir af 29 þingmönnum
Kadima studdu kröfuna um að Ol-
mert segði af sér, enda óttast þing-
mennirnir að almenn uppreisn innan
flokksins gæti orðið til þess að kosn-
ingum yrði flýtt. Skoðanakannanir
benda til þess að Kadima myndi
gjalda afhroð ef kosið væri nú og að
Benjamin Netanyahu, leiðtogi Lik-
ud-flokksins, kæmist til valda.
Fréttaskýrendur sögðu að Livni
hefði ekki fengið nægan stuðning
innan Kadima vegna þess að hún
setti ekki forsætisráðherranum úr-
slitakosti og hótaði ekki að segja af
sér ef Olmert sæti áfram.
Netanyahu og nokkrir aðrir þing-
menn kröfðust þess að Olmert léti af
embætti á fundi á þingi Ísraels í gær.
Ekki var þó lögð fram tillaga um að
þingið lýsti yfir vantrausti á Olmert.
Skipuleggjendur mótmælafundar-
ins í Tel Aviv sögðu að hann hefði
verið haldinn til að gefa landsmönn-
um „færi á að sýna Ehud Olmert og
Amir Peretz rauða spjaldið“. Tals-
maður forsætisráðherrans sagði
ólíklegt að Olmert segði af sér vegna
götumótmæla, jafnvel þótt tugir þús-
unda manna tækju þátt í þeim.
Afsagnar Olmerts
krafist á fjöldafundi
Reuters
Heimta afsögn Talið er að allt að 100.000 manns hafi tekið þáttt í mótmælunum gegn Ehud Olmert forsætisráð-
herra á Rabin-torginu í Tel Aviv í gær. „Ónytjungar, farið heim til ykkar!“ stóð á sumum skiltunum.
Í HNOTSKURN
» Flestar skoðanakannanir,sem birtar hafa verið í Ísr-
ael að undanförnu, benda til
þess að 65–68% Ísraela vilji að
Ehud Olmert segi af sér. Að-
eins sex prósent landsmanna
telja að hann sé fær um að
gegna embættinu.
» Olmert hefur viðurkenntað sér hafi orðið á alvarleg
mistök í stríðinu í Líbanon í
fyrra en lofað að leiðrétta þau
og sagt að afsögn væri
ábyrgðarleysi.