Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 15
Tryggvi beri ábyrgð á henni. Það sama eigi við um þriðju færsluna, en í dómnum er tekið fram að hún sé ekki rétt dagsett í ákæru. Tryggvi er því talinn hafa brotið 262. gr. almennra hegningarlaga, en hins vegar sé ósannað að Jón Ásgeir hafi með sak- næmum hætti komið að þessum færslum og var hann því sýknaður hvað það varðar. Dómurinn kemst sömuleiðis að þeirri niðurstöðu að Jón Ásgeir hafi ekki sett fram rangar upplýsingar í tilkynningu til Verðbréfaþingsins þar sem Baugi hafi verið heimilt að færa gengishækkun Arcadia hlutabréf- anna til tekna hjá félaginu í árslok 2000. Hann er því sýknaður af þess- um hluta ákærunnar. Ljóst að kreditreikningurinn var tilhæfulaus Jóni Ásgeiri og Tryggva er gefið að sök í 15. lið ákærunnar meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa látið rangfæra bókhald Baugs hf., átt þátt í að búin væru til gögn sem ekki áttu sér stoð í viðskiptum við aðra aðila og hagað bókhaldi Baugs hf. með þeim hætti að það gæfi ranga mynd af við- skiptum og notkun fjármuna. Þetta hafi þeir gert með því að láta búa til tilhæfulausan kreditreikning (afslátt- arreikning) frá Nordica, fyrirtæki Jóns Geralds Sullenberger. Jóni Gerald var einnig sakaður um að hafa aðstoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að rangfæra bókhald Baugs. Reikningur þessi, sem hljóðaði upp á 61,9 milljónir, var aldrei færður í bókhald Nordica, en lögreglan fann hann á skrifstofu fyrirtækisins. Í dómnum segir að Jón Ásgeir hafi tek- ið ákvörðun um að gefa reikninginn út, en hann beri að það hafi verið gert að undangengum samningaviðræð- um um uppgjör á svokölluðum vand- ræðalager frá Nordica. Jón Gerald kannist hins vegar ekki við slíkan samning og framburður vitnis sem starfaði með honum styðji það. Dóm- urinn bendir á að engin samtímagögn styðji framburð Jóns Ásgeirs og Tryggva um ástæður þess að reikn- ingurinn var gefinn út. „Er það niðurstaða dómsins að sannað sé, þrátt fyrir neitun ákærðu, Jóns Ásgeirs og Tryggva, að reikn- ingurinn hafi verið rangur og tilhæfu- laus og þeim hafi báðum verið það ljóst. Brot ákærðu hafði þau áhrif á árshlutauppgjör Baugs hf. sem lýst er í ákæruliðnum og þar af leiðandi var tilkynning félagsins til Verð- bréfaþings Íslands röng, en á því bar ákærði, Jón Ásgeir, ábyrgð sem framkvæmdastjóri félagsins.“ Brot Jóns Ásgeirs eru talin varða 158 gr. almennra hegningarlaga, en brot Tryggva eru talin varða 262 gr. hegningarlaga. Jón Gerald ekki talinn hafa notið réttinda sakbornings Um þátt Jóns Geralds segir í dómnum að í lögregluskýrslum sem teknar voru af honum sem vitni hafi hann iðulega verið yfirheyrður um at- ferli meðákærðu og annarra sem lög- reglan mat refsivert. Lögreglan hafa ætíð gætt viðeigandi ákvæða laganna um meðferð opinberra mála þegar þeir menn voru yfirheyrðir. „Það er mat dómsins að þegar við fyrstu lög- regluyfirheyrslu, 25. ágúst 2002 og alltaf eftir það, hafi borið að láta ákærða njóta réttarstöðu sakaðs manns, enda er ákvæði 51. gr. und- antekningarákvæði sem ber að skýra þröngt og framburður ákærða gaf ekkert tilefni til að leggja það í mat hans hvort skilyrði greinarinnar ættu við.“ Dómurinn bendir á að ákvæði 69. og 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. og 7. gr. mannréttindasáttmála Evrópu hafi verið skýrð svo að þeim sem sak- aður sé um refsiverða háttsemi sé óskylt að tjá sig eða láta í té upplýs- ingar sem leitt geta til sakfellingar hans. Í lögum um meðferð opinberra mála segi að sakborningi sé óskylt á öllum stigum opinbers máls að svara spurningum sem varða refsiverða hegðun sem honum er gefin að sök og beri yfirheyranda að benda sakborn- ingi ótvírætt á þennan rétt hans þeg- ar efni standa til. „Ákærði [Jón Ger- ald] var að vísu yfirheyrður af lögreglunni sem sakaður maður 22. febrúar 2006 og sérstaklega spurður um þau atriði sem hann er ákærður fyrir og svaraði hann á sama hátt og hann hafði gert fyrr í rannsókn máls- ins. Þegar hins vegar er litið til um- fangs fyrri lögreglurannsóknar, þar sem ákærði hafði stöðu vitnis, verður ekki hjá því komist að líta á þessa einu skýrslu sem málamyndaskýrslu er ekki breyti þeirri staðreynd að hann hafði haft stöðu vitnis alla rann- sókn málsins þótt hann væri í raun að tjá sig um atriði er hefðu getað leitt til ákæru á hendur honum.“ Niðurstaða dómsins er því að Jón Gerald hafi ekki notið þeirra réttinda sakbornings við lögreglurannsókn málsins sem agaákvæði áskilja. Ákæru á hendur honum var því vísað frá dómi. Jón Ásgeir sýknaður vegna reiknings frá SMS í Færeyjum Í 16. lið ákærunnar er Jóni Ásgeiri og Tryggva gefið að sök meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa látið rangfæra bókhald Baugs. Þetta hafi þeir gert með því að færa til eignar í bókhaldinu yfirlýsingu frá SMS í Færeyjum. Yfirlýsingin, sem var upp á 46,7 milljónir, var gefin út að beiðni Tryggva. Með játningu Tryggva, sem fengið hafi stuðning í framburði fram- kvæmdastjóra SMS og endurskoð- anda fyrirtækisins sé „sannað að eng- in viðskipti lágu til grundvallar yfirlýsingunni, en ákærði [Tryggvi] taldi hins vegar að þau hefðu átt sér stað og þess vegna ætti Baugur hf. rétt á afslætti vegna þeirra. Yfirlýs- ingin var færð í bókhaldi Baugs hf. með þeim hætti sem rétt er lýst í ákæru. Yfirlýsing þessi átti sér ekki stoð í viðskiptum og hlaut ákærða, Tryggva, að vera það ljóst. Tekju- færsla í bókhaldi á grundvelli þess- arar yfirlýsingar var því óheimil. Hefur ákærði, Tryggvi, því gerst sek- ur um brot gegn 2. mgr. 262. gr. al- mennra hegningarlaga, sbr. 3. tl. 1. mgr. 37. gr. bókhaldslaga nr. 145/ 1994. Hins vegar er ósannað að færsl- an í bókhaldinu hafi verið færð með vilja og vitneskju ákærða, Jón Ás- geirs, og verður hann því sýknaður af þessum lið og þar með einnig af því að hafa látið Baug hf. senda Verðbréfa- þingi Íslands ranga tilkynningu,“ segir í dómnum. Tryggvi sakfelldur um bókhaldsbrot Í 17. lið ákærunnar eru Jóni Ás- geiri og Tryggva gefin að sök meiri háttar bókhaldsbrot við sölu hluta- bréfa í Baugi. Tryggvi hafi látið færa, með vilja og vitneskju Jóns Ásgeirs rangar og tilhæfulausar færslur um viðskipti og notkun fjármuna í bók- hald Baugs hf. með því að færa sölu á eigin hlutabréfum í félaginu til Kaup- þings hf., þegar bréfin voru í raun af- hent Kaupthing Bank Luxembourg til varðveislu, inn á vörslureikning sem Baugur stofnaði. Tryggvi hélt því fram að á þeim tíma sem færslan á vörslureikninginn var gerð hefði það tíðkast að færa eignir sem færðar voru á vörslureikn- ing sem seldar. „Ekki hafa verið lögð fram gögn til stuðnings þessari stað- hæfingu. Þá er ljóst að ákærðu ráð- færðu sig ekki við endurskoðendur Baugs hf. um þessa færslu eða rétt- mæti hennar svo sem tíðkanlegt er hjá forsvarsmönnum félaga þegar vafi leikur á tilteknum færslum í bók- haldi,“ segir í dómnum. Það er því niðurstaða dómsins að Baugur hf. hafi áfram átt þessa 40.000.000 hluta í félaginu, þrátt fyrir færsluna yfir á vörslureikning félags- ins. „Með framburði ákærðu og vitna og öðru því sem rakið er hér að fram- an er sannað að færslur þær sem raktar eru í ákæru að fjárhæð 330.764.000 krónur voru rangar og til þess fallnar að gefa ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna. Er sannað að ákærði, Tryggvi, hafi gefið fyrirmæli um þessar færslur sem honum var ljóst að voru rangar og hefur hann því gerst sekur um brot gegn 2. mgr. 262. gr. almennra hegn- ingarlaga, sbr. 3. tl. 1. mgr. 37. gr. bókhaldslaga nr. 145/1994. Hins veg- ar er ósannað að færslurnar í bók- haldinu hafi verið færðar með vilja og vitneskju ákærða, Jóns Ásgeirs, og verður hann því sýknaður af þessum lið.“ 18. liður ákærunnar varðar skemmtibátinn Thee Viking. Jón Ás- geir og Tryggvi voru ákærðir fyrir fjárdrátt, en þeir voru sakaðir um að hafa látið Baug greiða Fjárfestingar- félaginu Gaumi 32,2 milljónir til að fjármagna eignarhlut Gaums í bátn- um. Tryggvi var sakaður um að hafa með vilja Jóns Ágeirs látið Baug greiða 31 reikning sem gefnir voru út af fyrirtæki Jóns Geralds, Nordica. Ekki sakfelldir vegna skemmtibátsins Jón Ásgeir og Tryggvi héldu því fram að greiðslurnar hefðu runnið til Nordica sem þóknun til Jóns Geralds fyrir störf er hann vann á vegum Baugs hf. í Bandaríkjunum við að afla og viðhalda viðskiptasamböndum, fara á vörusýningar og annað sem tengdist starfsemi félagsins. Þessu hefur Jón Gerald hafnað og borið að greiðslurnar frá Baugi hf. hafi verið til að greiða afborganir af lánum og kostnað við að reka bátinn. Hann hef- ur borið að enginn fótur sé fyrir skýr- ingum ákærðu. „Í þessum lið ákærunnar er ákærðu gefið að sök að hafa dregið Fjárfestingarfélaginu Gaumi ehf. framangreinda fjárhæð, og með þeim hætti sem lýst var, til að fjár-magna eignarhlutdeild félagsins í Thee Vik- ing og greiða kostnað vegna hans. Eins og fram kemur í ákærunni var félagið New Viking Inc. skráður eig- andi bátsins, en einka-eigandi þess félags var Jón Gerald Sullenberger. Hins vegar er ljóst að Gaumur ehf. lagði fram fjármuni til kaupa á bátum er keyptir voru á undan Thee Viking, en andvirði þeirra rann til kaupanna á honum. Það er einnig ljóst af fram- burði ákærðu og vitna, sem rakinn var hér að framan, að ákærði, Jón Ás- geir, og faðir hans, Jóhannes Jóns- son, töldu sig eiga kröfu um að eign- ast hlut í bátnum, en aldrei tókst að ganga frá þeim eignarhlut áður en Jón Gerald seldi bátinn án samráðs við þá feðga, að því er best verður séð. Hins vegar nefndi enginn Gaum ehf., við yfirheyrslur í aðalmeðferð- inni, í sambandi við eignarhlut í bátn- um, nema Jóhannes Jónsson, en af framburði hans má ráða að hann geri ekki greinarmun á Gaumi ehf. og fjöl- skyldu sinni, enda félagið í eigu henn- ar. Fjármunir þeir, sem ákærðu eru ákærðir fyrir að hafa dregið Gaumi ehf. frá Baugi hf., runnu ekki til þess félags, heldur til Nordica Inc., en ákærðu eru þó ekki ákærðir fyrir að hafa dregið féð því félagi. Samkvæmt 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 má ekki dæma ákærðan mann fyrir aðra hegðun en þá sem í ákæru greinir og með því að ósannað er að ákærðu hafi dregið Gaumi ehf. fé, eins og þeir eru ákærðir fyrir, verða þeir sýknaðir af þessum lið ákærunnar. Að fenginni þessari niðurstöðu er þarflaust að fjalla um skýringar ákærðu á greiðslum Baugs hf. til Nordica Inc. sem þessi ákæruliður fjallar um,“ segir í dómnum. Í 19. og síðasta lið ákærunnar er Tryggva gefinn að sök fjárdráttur með því að hafa dregið sér samtals 1,3 milljónir vegna persónulegra út- gjalda sem voru Baugi óviðkomandi. Þessum ákærulið var vísað frá með sömu rökum og 10. lið ákærunnar, þ.e. að ákæran hafi verið óskýr. Stærstur hluti málsvarnarlauna greiddur úr ríkissjóði Málsvarnarlaun Gest Jónssonar, verjanda Jóns Ásgeirs, voru ákveðin 15,3 milljónir og skulu 90% þeirra greidd úr ríkissjóði. Málsvarnarlaun Jakobs Möllers, verjanda Tryggva, voru ákveðin 11,9 milljónir og skulu 80% greidd úr ríkissjóði. Málsvarn- arlaun Brynjars Níelssonar voru ákveðin 7,9 milljónir og skulu alfarið greiðast úr ríkissjóði. Jóni Ásgeiri og Tryggva var gert að greiða óskipt 5 milljónir í sakarkostnað til ríkissjóðs. Kostnaður Jóns Ásgeirs upp á tæplega 25,7 milljónir skal að 90% hluta greiðast úr ríkissjóði. Samtals nema málsvarnarlaun og sakarkostn- aður rúmlega 67,8 milljónum og þar af ber ríkissjóði að greiða 51,6 millj- ónir. Málið dæmdu Arngrímur Ísberg, Jón Finnbjörnsson og Garðar Valdi- marsson. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 15 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn Baugs Group hf. vegna dóms Hér- aðsdóms Reykjavíkur í máli ákæru- valdsins gegn forstjóra félagsins, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni o.fl. „Niðurstaða Héraðsdóms Reykja- víkur felur í sér alvarlegan áfellis- dóm yfir vinnubrögðum lögreglunn- ar og ákæruvaldsins í málinu. Hinn 28. ágúst 2002 var lagt af stað af hálfu lögreglu með alvarlegar ásak- anir um stórfelld auðgunarbrot. Í dag var forstjóri félagsins sýknaður af eina brotinu sem var tilefni inn- rásinnar í Baug en sakfelldur vegna færslu reiknings, sem sérfræðingar efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra töldu fyrst að hefði verið grundvöllur fjárdráttar. Í þau nærfellt fimm ár sem rann- sóknin hefur staðið hefur félagið ítrekað þurft að leiðrétta efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra þegar rannsóknin hefur hvað eftir annað beinst inn á ný svið, að því er virðist til þess eins að réttlæta mistök á upphafsstigum málsins. Þá hefur ákæruvaldið fengið ítarlegar leið- beiningar dómstóla til að lagfæra málatilbúnað sinn. Af samtals 59 lið- um í tveimur ákærum liggur nú fyrir að 43 hefur verið vísað frá, sýknað í 12 og sakfellt í 4, þar af einum ákærulið gagnvart Jóni Ásgeiri og öllum fjórum gagnvart Tryggva Jónssyni. Dómurinn fellir 90% hluta málskostnaðar Jóns Ásgeirs á ríkis- sjóð. Hér er samtals um að ræða tugi milljóna króna sem ríkissjóði er gert að greiða í málsvarnarlaun og sak- arkostnað. Það endurspeglar mat dómsins á slælegum málatilbúnaði ákæruvaldsins. Þetta bætist við þá tugi milljóna króna sem ríkissjóði hefur áður verið gert að greiða í málskostnað á fyrri stigum málsins. Ákæruvaldið er í dóminum gagn- rýnt fyrir að hafa blásið málið út um- fram tilefni, málsmeðferð hafi verið of umfangsmikil og vitni leidd fyrir dóminn að þarflausu. Þegar litið er til þess að sakfelling í tilviki Jóns Ás- geirs virðist hvíla á afar veikum grundvelli, þ.e.a.s. framburði Jóns Geralds Sullenberger, verður að telja mjög líklegt að Jón Ásgeir muni í samráði við verjanda sinn áfrýja þeim þætti málsins til Hæstaréttar Íslands. Verulegar líkur eru taldar á að sú áfrýjun muni leiða til sýknu. Baugur Group hf. hefur frá upp- hafi málsins lýst yfir stuðningi við Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóra í þessu máli. Lýsir stjórn félagsins áfram yfir eindregnum stuðningi við hann nú þegar þessi dómur liggur fyrir.“ 3. maí 2007, f.h. stjórnar Baugs Group hf., Hreinn Loftsson hrl., stjórnarformaður. Yfirlýsing frá stjórn Baugs Group hf. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá verjendum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar: „Jón Ásgeir og Tryggvi hafa frá upphafi lýst yfir sakleysi sínu og gerðu því ráð fyrir að verða sýknaðir af öllum liðum ákærunnar á hendur þeim. Hafa ber í huga að ákæruvaldið hefur gefið út ákærur í 58 liðum gagnvart Jóni Ásgeiri og hann hefur verið sakfelldur í einu tilviki. Ákæru- liðir á hendur Tryggva voru samtals 36 og hann var sakfelldur í fjórum liðum. Í dómi Héraðsdóms Reykja- víkur í dag voru 90% sakarkostnað- arins lögð á ríkissjóð í tilviki Jóns Ásgeirs en 80% í tilviki Tryggva. Þessi niðurstaða dómaranna endur- speglar mat þeirra um að langmest- ur hluti ákærunnar á hendur Jóni Ásgeiri og Tryggva hafi verið tilefn- islaus. Þótt ekki komi til neinnar refsing- ar vegna skilorðsbindingarinnar sætta Jón Ásgeir og Tryggvi sig ekki við sakfellingu að neinu leyti.“ Gestur Jónsson hrl. Jakob R. Möller hrl. Yfirlýsing frá verjendum Jóns Ásgeirs og Tryggva MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Kaup- þingi banka vegna yfirlýsingar Jóns Geralds Sullenbergers um að forstjóri bankans hafi boðið honum tvær milljónir dollara haustið 2002. „Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að hvorki forstjóri Kaup- þings banka né aðrir starfsmenn hans hafa nokkurn tímann boðið Jóni Gerald Sullenberger greiðslur fyrir að draga mál sitt gagnvart Baugi til baka.“ Buðu Jóni Gerald Sullen- berger ekki greiðslur Morgunblaðið/ÞÖK Baugsmál Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi í gær og hér sjást fjölmiðlamenn ræða við Sigurð Tómas Magnússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.