Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 45 árið 1942. Veturinn 1946-47 dvelur hún ásamt manni sínum í Svíþjóð og fullnumar sig eins og það heitir á íslensku. Allar götur síðan vann María við sitt fag hjá ýmsum tann- læknum hér í borginni, fyrstu árin lengst af hjá Matthíasi Hreiðars- syni, Skúla Hansen, Jóni K. Haf- stein, Kristjáni Ingólfssyni og síð- ustu 25 til 26 árin hjá undirrituðum. Höfðum við María og samstarfsfólk okkar mjög ánægjuleg samskipti enda var María snillingur í höndunum og fóru fáir í fötin hennar þegar leysa þurfti vandasamar uppstillingar á gervitönnum. Hún hafði óvenju- næmt auga fyrir þessum þætti tannsmíðinnar og gat oft töfrað fram þau aðalatriði sem best hentu viðkomandi einstaklingi. Sumir telja tannuppstillingar til listgrein- ar. Það á áreiðanlega við þegar María lagði sig fram. María var alltaf glöð og kát á vinnustað og í öll þessi ár sem hún hafði unnið með mér minnist ég þess ekki að hún hafi mætt of seint, þvert á móti, því að oftast var ilmandi kaffilykt á kaffistofunni þegar ég kom til vinnu. María var með afbrigðum hús- bóndaholl og aldrei neitaði hún mér ef ég þurfti á henni að halda. Minn- ist ég þess sérstaklega er frú nokk- ur glataði efri tanngarði sínum að- faranótt Þorláksmessu. Hringdi hún í mig í öngum sínum og bað um hjálp því ella væru jólin glötuð. Tjáði ég henni að einungis með hjálp Maríu væri unnt að leysa málið en þannig stæði á að við bæði ætluðum að eiga frí þennan Þor- láksmessudag. Það var auðsótt mál eins og venjulega að fá Maríu til að gera sér greiða. Við unnum síðan allan þann dag og konan fékk sinn tanngarð að kvöldi. Svona var María ávallt tilbúin. Það má ekki gleyma því að þeir eru ófáir nem- arnir sem hafa notið handleiðslu hennar fyrstu árin og það veit ég að frændi minn Daníel Jónasson, tannsmiður, er henni ævinlega þakklátur fyrir þau 10 ár sem hann sat við hlið hennar, fyrst sem nemi og síðar sem tannsmiður. María var dóttir Helgu Jónas- dóttur og Tryggva Gunnarssonar en ólst upp hjá móður sinni og tveimur systrum á Laufásvegi. Hún var með afbrigðum mann- glögg og kunni skil á flestum ef ekki öllum Reykvíkingum af eldri kynslóðinni. María var gift ágæt- ismanni, Gunnari Kristinssyni, verslunarmanni og söngvara, sem látinn er fyrir tveimur árum. Eign- uðust þau saman tvo syni sem báðir hafa komið sér vel áfram og það veit ég að barnabörnin þrjú punt- uðu mjög vel upp á tilveruna hjá henni. Með samstarfi á tannlækninga- stofum í 60 ár má segja að María hafi upplifað sögu tannlækninga á Íslandi og má segja að það sé á engan hallað að hún hafi lengst allra Íslendinga unnið að störfum tengdum tannlækningum. Að lok- um þakka ég Maríu samstarfið og góða vináttu. Aðstandendum sendi ég mínar samúðarkveðjur. Hörður Sævaldsson. ljós annars vegar hvað hún var stór í sniðum, hvað hún hugsaði stórt og hins vegar hvað form- og litaskyn hennar var þroskað. Það er engu líkara en fegurðarskyn sé sumum í blóð borið, fegurðarskyn og þrá. Slík kennd er miklu meira en skraut, ytra borð, óþarfi eins og margir virðast halda. Fegurðarskyn er kjarni tilverunnar og hefur ekki bara persónulegt gildi heldur sam- félagslegt, í raun hápólitískt. Andlát móður snertir djúpt. Allt- af. Aldur skiptir ekki öllu máli, dauði móður er handan við alla lóg- ík, hann er ávallt sársaukafullur. Eigi að síður er þakklæti efst í huga allra sem kynntust Sigurbjörgu Þorvaldsdóttur. Að leiðarlokum læt ég hér fylgja ljóð sem ég orti til hennar á áttræðisafmælinu, 8.10. 1998. Ef hlúð er að rótunum fara englar að hvískra í liminu Þannig er jafnvægi þess sem vex Þannig springur norðrið út í suðrinu Ungar nætur í gömlum dögum Haust í vori Og sú sem hlúir að rótum má alltaf búast við hvískri engla í liminu Sigurður Pálsson. Sigurbjörg amma mín lék stórt hlutverk í lífi mínu. Eins og stund- um var fékkst ekki leikskólapláss nema hluta úr degi og þess vegna var amma dagmamman mín fyrstu árin. Hún sótti mig þegar leikskól- inn var búinn um hádegi og fór með mig heim til sín. Mínar fyrstu minn- ingar um ömmu eru frá þessum ferðum okkar. Leikskólinn var í göngufæri og hún sótti mig með kerruna mína með sér. Hún rétti mér alltaf stórt og fallegt epli til að maula á heimleiðinni og svo sungum við saman nokkur lög. Ég var í fyrsta sæti þegar ég var hjá ömmu og við lékum okkur sam- an. Við lékum hlutverkaleiki þar sem við skiptum um hlutverk, hún var barnið og ég var amma hennar. Amma stóð sig vel í hlutverkinu en gleymdi sér stundum og var þá minnt á að hún gæti nú ekki drukk- ið kaffi þar sem hún væri barn. Við hjálpuðumst líka að við að leita að gleraugunum hennar sem virtust alltaf vera týnd. Það var gert að leik þar sem ég átti að reyna að muna hvar ég sá þau síðast og svo var at- hugað hvort þau væru þar, leitin var hafin. Hún var alltaf tilbúin að fara skrefi lengra með mér í leikjunum og það var ekkert sem hún gat ekki gert. Hún skreið með mér undir sófaborð af því að þar var sumarbú- staðurinn minn í þykjustunni. Þar héldum við svo kaffiboð með fína stellinu og silfrinu, liggjandi á mag- anum. Amma hélt mikið upp á garðinn sinn og var þar löngum stundum. Þar ræktaði hún ýmsar rósategund- ir sem hún var mjög stolt af. Við vorum oft saman í garðinum og hún sýndi mér allar rósirnar og athugaði hvernig þeim liði þann daginn, klippti og snyrti. Hún lagði líka mikið upp úr menntun og kennslu og sagði mér alltaf hvað rósirnar hétu og hlýddi mér stundum yfir það næsta dag. Hún vildi að ég gengi menntaveginn og fór mjög fljótlega að spyrja mig hvað ég ætl- aði að verða þegar ég yrði stór. Við ræddum þetta stundum og hún hafði sínar skoðanir á þessu. Amma vildi að ég yrði skurðlæknir eða hjúkrunarkona eins og Florence Nightingale, sem hún sagði mér stundum frá. Það gladdi því hjarta ömmu þegar ég loks ákvað að verða hjúkrunarfræðingur. Þegar ég varð eldri var alltaf jafn gott að koma til ömmu. Þar var allt svo hlýtt og öruggt, ekki síst faðmur ömmu. Hún var svo ánægð að sjá mig og vildi fá fréttir af því hvernig gengi í skólanum og hvað hefði drif- ið á daga mína síðan við hittumst síðast. Við héldum áfram að ganga saman um garðinn og huga að rós- unum. Það var eins og það væri allt- af gott veður í garðinum hennar ömmu. Nú eru blómin í garðinum að lifna við og vorið heilsar þegar amma kveður þennan heim. Ég sit eftir með söknuð í hjarta, en þar geymi ég líka yndislegar minningar um ömmu. Sigurbjörg. Þegar ég var minni sagði amma mér iðulega söguna af Rauðhettu áður en ég lagðist til svefns. Nú þegar amma leggst til hinstu hvílu fer ég frá henni eins og Rauðhetta fór til ömmu sinnar, með körfuna fulla. Jóhannes Páll Sigurðarson. HINSTA KVEÐJA ✝ Herbert Ólafs-son fæddist á Gjögri í Árnes- hreppi á Ströndum 23. september 1920. Hann lést 26. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Ólafur Magn- ússon sjómaður og Þórunn Samson- ardóttir, húsfreyja á Gjögri. Systkini Herberts eru Bern- ódus, f. 17. mars 1919, d. 18. sept- ember 1996, Björg Jóhanna, f. 18. október 1924, d. 1. mars 2007, og Karitas Laufey, f. 7. júní 1936. Herbert lét sér alla tíð mjög annt um systkini sín, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. Sem ung- lingur vann hann við uppbygginguna á Síldarverksmiðj- unni í Djúpavík á Ströndum. Hann fluttist ungur mað- ur til Skagastrand- ar með móður sinni og systrum og vann við sjómennsku og verkamannastörf. Um miðjan aldur flutti Herbert til Reykjavíkur og vann lengst af við Íþróttahús Jóns Þorsteinssonar á Lindargötunni og hjá Náttúrulækningafélagi Ís- lands. Útför Herberts verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Það er skrítið að hugsa til þess að Hebbi frændi komi ekki oftar í heimsókn með myndirnar sínar. Hebbi var ferðalangur af guðs náð og fór ótal sumarferðir með Strandamönnum og fleirum um landið. Hann var afar áhugasamur um ljósmyndun sem var aðal tóm- stundagaman hans ásamt ferðalög- um og gönguferðum. Ungur fór hann að taka myndir og til er mik- ið safn ljósmynda eftir hann sem eru góðar heimildir um umhverfið og tíðaranda liðinnar aldar. Eftir að Hebbi flutti til Reykjavíkur kom hann í heimsókn heim til Skagastrandar flest sumur til að hitta fjölskyldur Kaju og Benna og var þá gjarnan með sýningu á myndunum sínum. Í þessum heim- sóknum bætti hann við mynda- safnið sitt með því að taka fleiri myndir af Borginni, Strandafjöll- unum og mannlífinu hér á Skaga- strönd. Mér, og ég veit um fleiri, fannst að nú væri sumarið virki- lega komið þegar við sáum Hebba arka brosandi og glaður um göt- urnar með myndavélina framan á sér. Hebba frænda var gefið ótrúlegt gott skapferli og æðruleysi og þeg- ar við systkinabörnin hans berum saman bækur okkar munum við ekki eftir að hafa séð hann í vondu skapi. Hann sá alltaf hið góða í fólki og var ákveðinn í að láta nei- kvæðni ekki hafa áhrif á sig og sagði gjarnan ef rætt var um nei- kvæða atburði: „Ég veit það ekki, en það er líka allt í lagi þó ég viti það ekki“ og hló. Hann sá fegurð í hinu smáa og ég á minningu um það þegar hann kallaði á mig eitt sumarið til að sýna mér stoltur að begóníulaukarnir sem hann hafði sett niður í blómabeðið sitt við Ak- ur höfðu náð að blómstra og stóðu þarna, í beinni röð í beðinu, með sín litríku blóm. Elsku Hebbi frændi hefur nú lokið 86 ára ferðalagi sínu hér á jörð og er lagður af stað í stóra ferðalagið sitt og ef ég þekki hann rétt hefur hann gott auga fyrir myndefnum og fegurðinni á þessu ferðalagi sem öðrum. Um leið og ég og mínir þökkum honum sam- fylgina og vináttuna á liðnum ár- um bið ég honum velfarnaðar á þessu nýja ferðalagi. Þórunn Bernódusdóttir og fjölskylda, Skagaströnd. Það var um miðjan sjöunda ára- tug síðustu aldar að Herbert Ólafsson var ráðinn húsvörður að Íþróttahúsi afa okkar Jóns Þor- steinssonar við Lindargötu. Þar var þá fyrir Oddur Kristjánsson sem látinn er fyrir allmörgum ár- um. Oddur og Herbert urðu vinir okkar og umgengni við þá varð stór þáttur í lífi okkar bræðra. Það kom strax í ljós hvern öðling Her- bert hafði að geyma. Samvisku- semi og trúmennska ásamt glað- værð og kímnigáfu einkenndu öll hans störf og viðmót. Það eru viss forréttindi að hafa fengið að alast upp með annan fót- inn á Lindargötu 7. Þar var mikill erill og líf og fjör frá morgni til kvölds. Ýmsir skólar höfðu afnot af stærri sal hússins en afi okkar var með sjúkraleikfimi í litla saln- um og svo var það gufubaðsstofan sem ár eftir ár hafði sína föstu við- skiptavini. Það var því mikilvægt fyrir afa að hafa traust starfsfólk. Herbert var svo sannarlega traustur maður og hafði gott lag á að umgangast þá fjölmörgu sem komu í íþróttahúsið. Við bræður sóttum mikið í að vera í kringum Herbert því hann gaf sér alltaf tíma til að spjalla við okkur. Við áttum með honum fjölmargar góð- ar stundir er hann sinnti störfum sínum. Herbert hafði yndi af að kynnast landinu og ferðaðist mik- ið. Á ferðum sínum tók hann ljós- myndir sem hann hafði ánægju af að sýna okkur bræðrum. Herbert varpaði myndunum upp á vegg og breyttist þá húsvarðarherbergið á Lindargötu 7 í kennslustofu í landafræði. Áhugi kennarans var mikill og hrifumst við af skemmti- legum myndum Herberts. Eftir að Herbert kvaddi Lind- argötu 7 lágu leiðir okkar sjaldan saman en það var gaman að hitta hann á góðviðrisdögum og rifja upp gamla tíma. Síðast heimsótti einn okkar hann á Hrafnistu er hann hafði flutt þangað. Það er með miklu þakklæti sem við kveðjum Herbert Ólafsson hinstu kveðju. Blessuð sé minning hans. Jón Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, Árni Guðmundsson, Einar Rúnar Guðmunds- son. Herbert Ólafsson Manni verður alltaf jafnhverft við þegar maður fréttir af andláti vinar og minningum skýtur upp í kollinn. Við félagarnir kynntumst Jóa Björns, eða Jóa gamla eins og við unglingarnir kölluðum hann, í bygg- ðalínuflokknum hjá RARIK. Við þessir línumenn hjá RARIK (sem byrjuðum í flokknum sem ung- lingar) vorum í línuflokki Sigmundar Eiríkssonar og eftir að Simmi and- aðist tók Hallgrímur Scheving við flokknum og síðan Árni Jón Elíasson sem stýrði sínum mönnum þar til flokkurinn var lagður niður. Þetta samfélag línumanna var eins og stór fjölskylda, menn stóðu saman eins og einn maður hvort sem þeir voru í vinnunni eða farið var að skemmta sér en það gerðist örsjald- an! Jói var eins og pabbinn í hópnum, hann var flokksstjórinn og hafði bíl- inn eins og menn sögðu og sá alfarið um hann. Það var svo skrítið með bíl- inn hans Jóa, það var eins og hann bil- aði miklu sjaldnar en aðrir bílar og hann var ævinlega stífbónaður, einn- ig var það þannig að það var alveg sama hversu mikilli drulluvinnu við vorum í, það vorum bara við sem vor- um drullugir upp fyrir haus en ekki Jói. Jóhannes Björnsson ✝ JóhannesBjörnsson fædd- ist á Litlu-Borg í Vesturhópi 5. apríl 1934. Hann lést á Landspítalanum 24. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík 30. mars. Já, hann Jói kenndi okkur guttunum að vinna, ekki með neinum látum heldur með sinni hægð og lagni eins og hans var háttur, Jói var nefnilega ákaflega nær- gætinn maður og traustur. Hann kenndi okkur að það þurfti að passa að hafa allt með út á línu, það þýddi ekki að fara að hugsa þegar út á línu var komið og hefjast átti handa við verkið og kannski um langan veg og torsóttan að fara. Hann tók hlutina til þegar heim var komið að kveldi og gerði allt klárt þannig að hægt væri að leggja af stað tímanlega á morgnana enda var Jói ævinlega kominn út í bíl löngu á undan okkur hinum og jafnvel búinn að kveikja í pípunni og setja í gang og svo beið hann bara með glott á vör þar til hans menn loks mættu. Mórallinn var því þannig, að menn lærðu það fljótt að vera stundvísir ef þeir voru í liði með Jóa. Hann sagði aldrei styggðaryrði um nokkurn mann, en ef hann vildi láta gera hlut- ina á annan veg þá kom hann því að með hægðinni. Manni fannst Jói aldr- ei hamast við verkin, en hann var æv- inlega fyrstur að klára og höfðum við guttarnir mjög gaman af að keppast við og reyna að hafa í við kallinn, hann hafði gott lag á því að láta hlut- ina ganga. Við minnumst Jóa með hlýhug og þökkum fyrir skemmtilegt tímabil í lífi okkar með honum og munum örugglega halda áfram að rifja upp sögur frá þessum tímum þegar við guttarnir hittumst. Við vottum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúð. Viggó Jónsson rafvélavirkjameistari, Elfar Bjarnason tæknistjóri. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.