Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Benedikt Stein-þórsson fæddist 11. maí 1984. Hann lést 26. apríl síðast- liðinn. Foreldrar hans eru Steinþór Benediktsson, f. 17. október 1959, og Guðrún Björk Benediktsdóttir, f. 17. september 1963, þau slitu samvistir. Eiginkona Stein- þórs er Hildur Guðbjörnsdóttir, f. 18. maí 1958, sonur þeirra er Brynjar, f. 28. janúar 1996. Son- ur Hildar er Björn Þór Jóhanns- son, f. 13. janúar 1987. For- eldrar Steinþórs eru Matthildur Guðbrandsdóttir, f. 23. maí 1921, og Benedikt Þorvaldsson, f. 22. júlí 1915. Maður Guðrúnar Bjarkar er Hregg- viður G. Þor- steinsson, f. 8. jan- úar 1946. Börn þeirra eru Jón Gunnar, f. 28. jan- úar 1999, Þóra Kristín, f. 20. júní 2001, og Katrín Ágústa, f. 21. maí 2005. Synir Hregg- viðs eru Þorsteinn, f. 4. febrúar 1970, Sigurgeir Þór, f. 9. september 1976, og Ólafur Týr, f. 8. apríl 1978. For- eldrar Guðrúnar Bjarkar eru Jóna B. Guðlaugsdóttir, f. 15. nóvember 1936, og Benedikt J. Ágústsson, f. 16. júlí 1931. Útför Benedikts verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku drengurinn, það ríkir mik- ið tómarúm og mikil sorg í hjörtum okkar, fjölskyldunnar þinnar í Laufrimanum og skelfilega er sárt að horfa á eftir þér. Við eigum ekk- ert val með hvernig allt fór og það er mikið búið að gráta, en við eig- um margar dásamlegar minningar um þig og þær munu ylja okkur um hjartaræturnar og gefa okkur gleðistundir um ókomin ár. Ein af bestu minningunum okkar er hversu einstaklega mikið ljúf- menni þú varst og hve þú varst bóngóður. Ef við spurðum þig til dæmis hvort þú gætir komið og verið með Brynjari bróður þínum, þá þurftum við ævinlega að passa okkur á því, að komast að því fyrst, hvort þú hefðir verið búinn að gera einhverjar áætlanir sjálfur, því þú sagðir alltaf já og lést aðra alltaf ganga fyrir. Við töluðum oft um það og dáð- umst að því hversu þolinmóður þú varst við Brynjar, enda var ekki lítil tilhlökkun hjá honum þegar þú komst til að passa hann og marga daga á undan var skipulagt hvað þið mynduð nú gera saman. Há- punkturinn, rétt fyrir páska, var svo að fá að fara með þér í hest- húsin til að gefa hestunum. Lífið hefur ekki alltaf verið auð- velt hjá þér elsku vinur og þú þurftir að glíma við ýmislegt, bara barn að aldri. Þú veiktist af heila- himnubólgu 4 ára og fékkst krabbamein aðeins 6 ára. Það er ekki lítið lagt á litla sál, en þú hvorki kvartaðir né kveinaðir og yfirvannst hvoru tveggja. Ég held að góður matur, sé eitt af því sem var svo gott að gleðja þig með og þegar eitthvað stóð til á heimilinu var nú ekki langt í þig til að fá að smakka allt góðgætið. Það er minnisstætt þegar þú varst mun yngri og varst að koma til okkar um helgar, að þá var gjarnan það fyrsta sem þú sagðir þegar þú komst inn í bílinn; „Hvað er í mat- inn um helgina“? Við áttum saman okkar síðustu samverustund nú um páskana en þá fórum við saman í fermingarveislu. Þá voru allir uppábúnir, glaðir og kátir og þú svo yndislega fallegur og glæsi- legur og við mikið stolt af strákun- um okkar. Þessi stund verður okk- ur öllum ómetanleg. Elsku yndislegi og ljúfi dreng- urinn okkar, við pabbi þinn ásamt Brynjari og Birni Þór þökkum þér samfylgdina og biðjum góðan Guð að vera með þér og okkur öllum í sorginni. Við fjölskyldan vottum öllum öðrum aðstandendum okkur dýpstu samúð. Hildur. Kæri vinur, nú er ég sest niður til að skrifa þér kveðju brjótast tárin fram og get ég ekki varist gráti yfir því óréttlæti að þú ert farinn frá okkur. Tilvera okkar er undarlegt ferða- lag, segir í kvæði Tómasar Guð- mundssonar, Hótel Jörð, og mis- jafnlega er okkur gefið í byrjun. Á unga aldri fékkst þú fljótt að kynn- ast hörku lífsins og grimmd er þú barðist fyrir lífi þínu og vannst fyr- ir kraftaverk harða orustu við dauðann. Með hjálp hinna frábæru lækna Jóns og Guðmundar og starfsfólks Barnaspítala Hringsins hafðir þú betur í það skiptið. Þeim tókst að lækna þig af krabbameini og hrifsa úr klóm dauðans. Veik- indi þín settu mark sitt á þig upp frá því, handaskjálfti þinn var auð- sær og ugglaust voru fleiri ör er ekki sáust og voru öðrum en þér ekki ljós. Þú tókst þessu mótlæti með æðruleysi sem einkenndi þig í þessari hörðu rimmu. Nú þegar maðurinn með ljáinn hefur haft betur, þá verðum við að sætta okkur við að missa þig kæri vinur, því allt sem lífið lánaði dauð- inn krefst, eins og Tómas segir í kvæði sínu. Við erum þó þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig hjá okkur þessi viðbótarár. Ég vil þakka þér prúðmennsku, góðvild og ást til systkina þinna Benni minn, kurteisi við mig og okkur öll á heimili okkar, þar bar aldrei skugga á. Ég vil þakka þér dugnað þinn er við unnum saman fyrir austan, þá þurfti ég ekki loftpress- ur eða önnur áhöld, nóg var að þú værir á sleggjunni, steyptir veggir og gólf brotnuðu eins og fúaspýtur og steinflísar flugu um loftið, þá var eins gott að vera ekki fyrir. Ég tek undir með honum Úlfari vinnu- veitanda þínum austur í Fljótshlíð er hann átti við mig orð um þig og sagði: „Ég hef aldrei kynnst öðrum eins dugnaði og ofurmennskum krafti í ungum manni við vinnu, hann gekk í allt með þvílíkum krafti og einstökum dugnaði og svo var hann einstakt glæsimenni á velli.“ Já í Fljótshlíð var nú stadd- ur jafnoki Gunnars sem forðum bjó á Hlíðarenda að kröftum og glæsi- leika, hefðu þeir verið samtíða- menn. Hið flókna regluverk samfélags- ins þar sem skólinn er líklega einn mikilvægasti þátturinn í uppeldi okkar er við erum ung brást er þú mættir aftur í skólann eftir veik- indin. Þú varðst fyrir grimmu ein- elti sem þér reyndist erfitt að vinna úr frá því og varðst frábitinn skólagöngu. Þrátt fyrir breytingu og umskipti á högum þínum hvað þetta varðaði er þú fluttist í Árbæ- inn var það ekki nóg, sálin var brotin og sjálfsmatið skert hvað skólagöngu varðaði. Metnaður þinn til að tryggja þér þægilegt sæti inn í framtíðina með að ljúka trésmíð- inni var ekki til staðar, annað átti hug þinn síðustu misserin. Ferða- lag þitt um djúpa dali og dimm fjöll var okkur því miður ekki ljóst. Þótt þú værir vinmargur og vissir af Benna afa og Jónu ömmu í Safa- mýrinni, sem þú gast ávallt leitað til, þá virðum við ákvörðun þína kæri vinur. Ég veit þó með vissu Benni minn, að sæti þitt hjá hinum „æðsta himnasmið, skapara himins og jarðar“ verður þér verðugt. Guð veri með þér kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt. Hreggviður Þorsteinsson. Það er erfitt að finna orð sem lýsa því þegar maður missir ein- hvern eins og þig kæri Benni. Þú varst ungur að árum þegar þú komst inn í fjölskyldu okkar. Við höfðum eignast fósturbróður. En þú hafðir þann mann að geyma, að smám saman tengdumst við sterk- um böndum og svo fór að við litum á þig sem albróður okkar. Þú varst bæði góður og skemmtilegur bróðir sem við gátum treyst á. Sem betur fer eigum við margar góðar minn- ingar um þig sem hjálpa okkur að takast á við sorgina. En það er víst, að þín verður sárt saknað. Sigurgeir Þór og Ólafur Týr. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ Ég átti svo erfitt með mig þegar ég hafði áttað mig á hvað hafði gerst. Á sama tíma og maður reyndi að ná áttum, rigndi yfir mig endalausum minningum, minning- um sem mér þykir afar vænt um. Hugsunin ein um að þurfa kveðja einhvern svo nákominn sér, er svo fjarstæð að ég hefði aldrei getað ímyndað mér hversu erfitt þetta yrði. Sú tilhugsun yljar manni í gegnum sorgina að vita að þú ert nú kominn á mun betri stað og munt vaka yfir okkur fjölskyldunni. Þú munt gera eins og þú gerðir áð- ur, að líta eftir mér. Þú munt brosa og hrópa hátt „áfram“ þegar þú horfir á Brynjar litla bróður okkar keppa í fótbolta. Þú munt hér eftir sem áður alltaf vera hjá okkur. Þegar ég var 4 ára kynntist ég Benna, þegar móðir mín og faðir hans tóku saman. Ég hafði þá eign- ast annan eldri bróður sem var ná- lægt mér í aldri og sem ég gat litið upp til og apað eftir. Ég var svo upp með mér og ég gerði óspart í því að hreykja mér af honum Benna bróður mínum við vini mína. Í mínum augum var Benni líkt og pabbi hans, sterkasti maður sem ég hafði kynnst. Það sem ég gat ekki gert, gat Benni alltaf bjargað mér með. Þeir bestu tímar sem ég og Benni áttum saman voru hérna heima í Laufrimanum, þar lékum við okkur gjarnan tímunum saman í Lego. Við höfðum þar reist heila Lego-borg. Í borginni var Benni forseti, en þar sem ég var yngri fékk ég að vera borgarstjóri. Þegar ég hugsa um Benna, er brosið það fyrsta sem kemur upp í huga mér. Brosið gat hrifið alla með sér og það var hans kostur. Minningin sem ég á um þig Benni minn, er svo sterk og góð. Hún mun lifa með mér alla ævi. Fyrst um sinn verður erfitt að bera hana, en með tímanum mun ég læra að lifa með henni. Ég kveð nú að sinni með sorg í hjarta. Björn Þór J. Þessi glaði, prúði og brosmildi drengur er fallinn frá. Við sem eft- ir sitjum eigum erfitt með að skilja þessi örlög og hans er sárt saknað. Hugurinn reikar til baka. Lítill og ljúfur drengur að koma í heim- sókn til afa og ömmu í Safamýrina og hitta allt fólkið. „Ég er kominn“ var það fyrsta sem hann sagði um leið og hann kom inn um dyrnar með foreldrum sínum. Á eftir var mikið fjör. Hann söng mikið og var sífellt á ferðinni, alltaf glaður og brosandi. Foreldrar Benna skildu og flutti hann í fyrstu með móður sinni heim til afa og ömmu þar sem hann var augasteinn þeirra. Þar dvaldi hann mikið og var ekki gamall þeg- ar hann fór á sjó með afa og hjálp- aði honum. Ský dró fyrir sólu er hann veikt- ist af hvítblæði aðeins fimm ára gamall. Næstu árin fóru í baráttu við þennan hættulega sjúkdóm, miklar lyfjagjafir, einangrun og sjúkrahúsdvöl. Inn á milli var hann hann heima og gat sótt skóla. Hann átti auðvelt með að læra en leið ekki vel í skólanum þar sem honum var ekki sýndur mikill skilningur vegna veikinda hans. Hann sigr- aðist á veikindunum en þau settu sitt mark á hann og hann leið mikið fyrir handskjálfta sem var afleiðing þeirra. Benni lék sér mikið við frændur sína og margt var brallað. Mikið leikið heima og oft var farið upp í sumarbústað. Það voru ófáar stundirnar sem fóru í að byggja kofa, rífa hann aftur, byggja annan, spila fótbolta, sigla á tjörninni sem afi hafði útbúið eða leita að lækja- lontu. Tíminn leið við leik og best leið Benna þegar hann hafði nóg að gera enda kraftmikill strákur. Síð- ar var farið saman á rúntinn, í bíó, í tölvur eða bara að spjalla. Á unglingsárunum flutti Benni í Árbæinn með móður sinni, fóstur- föður og fóstbræðrum. Hann hafði líka eignast lítinn bróður, Jón Gunnar, sem hann var mjög hrifinn af. Tveimur árum seinna fæddist Þóra Kristín og síðar kom Katrín Ágústa. Systkinin voru mjög hænd að bróður sínum enda var hann mikil barnagæla og naut samveru- stundanna með þeim. Missir þeirra mikill. Í Árbænum eignaðist hann marga félaga eins og hann kallaði þá og leið vel. Hann byrjaði að læra húsasmíði en hætti og fór að vinna við smíðar. Hann var forkur til vinnu og ósérhlífinn til allra verka. Benni talaði við mig um að klára námið í húsasmíðinni og setjast á skólabekk með frænda sínum helst í haust. Hann hafði mikið á prjón- unum og hlakkaði til framtíðarinn- ar. Hann var skemmtilegur og góð- ur drengur sem gaman var að um- gangast. Elsku Benni við söknum þín og skarð þitt verður ekki fyllt. Megi góður Guð gefa fjölskyldum þínum styrk til að takast á við þessa miklu sorg sem fráfall þitt er. Bára og fjölskylda. Það er óskaplega sorglegt að setjast niður og skrifa minning- Benedikt Steinþórsson Benni var góður frændi. Hann var alltaf brosandi og í góðu skapi þegar við hittum hann. Benni var duglegur mað- ur, líka hjálpsamur og skemmtilegur. Hann var einn besti frændi okkar og hann var mjög duglegur að vinna. Svo á hann allt gott skilið og við vit- um að Guð tekur vel á móti hon- um. Kveðja, litlu frændsystkinin, Bjarki Páll og Helena Sara. HINSTA KVEÐJA ✝ GuðbjörgValdadóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 12. október árið 1914. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Garðvangi í Garði 27. apríl síðastlið- inn. Hún var dóttir hjónanna Valda Jónssonar frá Stein- um í Austur- Eyjafjallahreppi í Rangárvallasýslu og Guðrúnar Stef- ánsdóttur frá Skála í Vestur- Eyjafjallahreppi. Guðbjörg átti sjö alsystkin sem öll eru látin og fimm hálfssystkin samfeðra. Guðbjörg giftist Þorsteini Zophoníasi Aðalbjörnssyni, d. 1982. Hann var sonur Aðalbjörns Björnssonar frá Stóru-Þverá í Holtshreppi í Skagafirði og Að- alheiðar Þorsteinsdóttur frá Helgustöðum í Haganeshreppi í Skagafirði. Guðbjörg og Þor- steinn eignuðust sjö börn, þau eru: 1) Heiðar, f. 1935, kvæntur Ingibjörgu Önnu Gísladóttur, 2) Kristinn Erlend- ur, f. 1938, d. 2002, 3) Guðrún, f. 1939, gift Jónasi Jóhanns- syni, 4) Jóhann, f. 1942 kvæntur Sig- urbjörgu Helgu Bjarnadóttur, 5) Leó Jóhannes, f. 1948, kvæntur Guð- rúnu Alfreðsdóttur, 6) Valbjörn Óskar, f. 1953 og 7) Jón, f. 1955. Guðbjörg og Þorsteinn hófu bú- skap á Siglufirði og bjuggu þar fram til ársins 1968. Það ár fluttu þau í Garðinn á Suðurnesjum. Ár- ið 1998 flutti Guðbjörg á hjúkr- unarheimilið Garðvang, þar sem hún dvaldi til hinstu stundar. Útför Guðbjargar verður gerð frá Útskálakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Látin er tengdamóðir mín Guð- björg Valdadóttir eftir stutta sjúkralegu tæplega 93 ára að aldri. Bubba eins og hún var alltaf köll- uð var sæmilega heilsuhraust og sýnir það sig í því hvað hún var dug- leg að gera handavinnu. Alltaf var hún að gera eitthvað fallegt í föndr- inu og eiga margir ættingjar hennar fallega hluti eftir hana. Elsku Bubba nú er komið að kveðjustund. Okkur hjónum þykir sárt að hafa ekki verið heima þegar þú kvaddir en við vorum búin að koma heim eftir að þú varst rúmföst og dvöldum þá heima í viku og erum sátt við að hafa hitt þig meðan þú þekktir okkur og fagnaðir okkur alltaf jafn vel. Nú ertu búin að hitta hann Steina þinn. Þú varst nú farin að þrá að fá hvíldina. Þau tæp 50 ár sem ég er búin að þekkja þig hefur aldrei borið skugga á samband okk- ar. Eftir að þið Steini fluttuð í Garð- inn var alltaf stutt á milli okkar, og varst þú stundum hjá okkur eftir að þú varst ein heima áður en þú fórst á Garðvang. Margs er að minnast frá þessum árum en ég held að okk- ur hjónum og sonum okkar fimm sé minnisstæðast þegar þú fórst með okkur öllum til Hollands í sumarfrí. Það var mjög gaman og oft hefur sú ferð verið rifjuð upp. Árin sem Bubba dvaldi á Garðv- angi naut hún mikillar umhyggju, bæði andlegrar og líkamlegrar og á starfsfólkið þar bestu þakkir skild- ar. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Að lokum þakka ég tengdamóður minni samveruna og ég veit að hún kvaddi þennan heim sátt við lífið og tilveruna. Kveðja, Helga S. Bjarnadóttir. Þá er komið að kveðjustund, elsku amma mín. Við vorum öll svo heppin að eiga þig að í 92 ár en nú ertu komin til afa og mömmu og pabba. Það er svo margs að minnast á svona langri ævi. Ég gæti skrifað heila bók um þig og minningarnar mínar með þér. Sumrin mín hjá þér á Sigló og þegar þú passaðir stund- um fyrir mig tvö eldri börnin mín. Þegar þú hjálpaðir pabba með heim- ilið þegar mamma dó og afi Steini dó sama ár. Mig skortir orð til að lýsa hvað þú varst yndisleg manneskja og besta amma í heimi, þannig að mig langar að þakka þér fyrir samfylgdina í gegnum lífið. Að þekkja þig var gott veganesti. Ég votta öllum aðstandendum, börnum þínum, tengdabörnum og barnabörnum, sem þótti svo vænt um þig, mína dýpstu samúð. Þín Guðbjörg (Bubba). Guðbjörg Valdadóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.