Morgunblaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007 21
ÞAÐ ER ekki oft að á myndlist-
arsýningum sé tilkynnt að atriði í
sýningunni séu ekki við hæfi barna,
en svo er raunin með nýjasta sköp-
unarverk berlínarlistamannsins
Johns Bock sem nú er til sýnis í
kjallara Kling & Bang gallerís. Sýn-
ingin samanstendur af notalegum
sófum, blóðslettum (rauðum lit) á
veggjum og stuttmynd sem ber heit-
ið „Stúlka með klettasalat“ (Lutte
mit rucola). Söguþráður mynd-
arinnar er í stuttu máli þannig að
maður bankar uppá hjá öðrum
manni, lemur hann í hausinn, bindur
hann við borðplötu og tekur svo að
pynta og aflima og fremja furðuleg-
ustu gjörninga með blóði og líkams-
bútum fórnalambsins sem hann svo
spilar saman við eldhúsdót og stofu-
stáss, auk þess að hann treður dóti
og dýrum í opin sárin til að skreyta
þau.
Myndin er ansi hrottaleg áhorfs,
en merkilegt nokk er hrottaskap-
urinn ekkert meiri en sá sem al-
mennt er í boði í sjónvarpi og kvik-
myndahúsum, okkur til
dægrastyttingar. Má t.d. nefna
þættina um Dexter á Skjá einum og
kvikmyndir eins og Hostel og Saw,
að ógleymdum framhaldsmyndum
um mannætuna Hannibal Lecter.
Þessum listhneigða kvalara, sem
er leikin af Bock sjálfum, fylgir lítil
stúlka sem dvelur mest allan hrelli-
tímann í öðru herbergi þar sem hún
dundar sér við saklausa sköpun og
leik. Hún er í rauninni holdgerv-
ingur einhvers yfirnáttúrulegs afls
sem stýrir þessum afbrigðilegu
hvötum. Hér er því goðsögnin um
listamanninn sem er knúinn áfram
af listagyðjunni, og ræður ekki við
sig sökum yfirþyrmandi sköp-
unarþarfar, sett í heldur ýkta en nú-
tímalega mynd.
Bock hlífir okkur, sem betur fer,
við kjánalegum siðferðislegum
spurningum sem venjulega fylgja
raðmorðingja-„splatterum“. Hann
keyrir frekar á andþjóðfélagslegri
stemmningu ræflarokks (og svei
mér þá ef John Bock er ekki nauða-
líkur Sid Vicious) og nær manni með
einhverjum andvaralausum brútal-
isma, heldur innantómum, fyrir mitt
leyti, en hugvitssamlegum, engu að
síður.
Maður
aflimar
mann
„Splatter“ Tilbúinn að saga útlimi í nafni listarinnar.
Jón B.K. Ransu
MYNDLIST
Kling & Bang gallerí
Opið fim. - sun. kl. 14-18. Sýningu lýkur
15. maí. Aðgangur ókeypis.
John Bock
LITIR, form og línur eru viðfangs-
efni abstraktmálverka, og fjöl-
breytnin í útfærslu á þessu óend-
anleg. Á annarri einkasýningu sinni
einbeitir Helgi Már Kristinsson sér
fyrst og fremst að línuspili, lífrænar
línur sveigjast um myndflötinn, í
samspili við beinar en þó lifandi línur
í bakgrunni, eða liðast um bakgrunn
sem er svífandi og loftkenndur.
Myndefnið minnir á myndir í smásjá,
lífræn form og línur eins og á strimli.
Málverk Helga eru öll í viðráð-
anlegum stærðum og ekki hægt að
segja að mikil átök eigi sér stað á
myndfletinum, rannsókn lista-
mannsins beinist fyrst og fremst að
krafti línunnar í forgrunni og síðan
samspili forgrunns og bakgrunns
sem er lifandi og áhugavert þegar
best lætur. Þrátt fyrir breidd í lita-
vali og nokkuð mismunandi bak-
grunn eru myndir Helga nokkuð
keimlíkar, sama þemað er end-
urtekið æ ofan í æ. Átakaleysið er
nokkuð yfirgnæfandi og verkin laus
við ævintýraþrá, rýmisleikurinn
kirfilega niðurnjörvaður innan
ramma hefðarinnar og strigans.
Þetta gerir það að verkum að heild-
arútkoman virðist í fljótu bragði ef
til vill rýrari en efni standa til því
þegar betur er að gáð ná einstök
verk að grípa athyglina, einkum þar
sem innra rými verksins nær að
skapa eigin heim. Óræðar línurnar
má tengja við æðakerfi líkamans,
vegakerfi borga eða þjóðvegi, eins
og um kortlagningu óþekktra leiða
væri að ræða sem um leið auðveldar
áhorfandanum aðgang að verkunum.
Vegir abstraktsins
MYNDLIST
MYNDLIST
Til 7. maí. Opið þri. til fös. frá 12-18 og
lau. frá 11-16.
Aðgangur ókeypis.
Málverk, Helgi Már Kristinsson
Ragna Sigurðardóttir
Fréttir á SMS
ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum
Steingrímur J. Sigfússon
skipar 1. sæti í Norðausturkjördæmi
Kynntu þér málið á www.VG.is
VINSTRIHREYFINGIN – GRÆNT FRAMBOÐ ÆTLAR AÐ
BÆTA KJÖR ALDRAÐRA OG ÖRYRKJA
VIÐ VILJUM RÉTTLÁTT OG SKILVIRKT LÍFEYRISKERFI
ALLT ANNAÐ LÍF!
Við viljum
• hækka grunnlífeyri
• afnema tengingar við tekjur maka
• að atvinnutekjur komi ekki til skerðingar í
almannatryggingum eftir 70 ára aldur
• hækka skattleysismörk
• koma á afkomutryggingu
• gjaldfrjálsar tannlækningar
• afnema gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu
• lækka lyfjakostnað
• stórbæta heimahjúkrun og heimaþjónustu
• útrýma biðlistum á hjúkrunarheimili